Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
Norræni barnasjóðurinn:
Tveir stjórnarmenn
dæmdir í fangelsi
Osló, 22. febrúar. AP.
SAKADÓMUR í Halden í Noregi hefur einróma dæmt Helge Nordahl og
Odd Rosenlind, tvo fyrrverandi stjórnarmenn hjálparstofnunar Norræna
barnasjóósins til fangelsisrefsingar fyrir fjársvik. Var Nordahl dæmdur í 2
ára fangelsi og Rosenlind í V/2 árs fangelsi. Báðir dómarnir voru óskilorðs-
bundnir.
Saksóknarinn í málinu, Pál
Berg, hafði krafizt 3'á árs fang-
elsisvistar yfir Nordahl og 2 Vi árs
Skömmtun
tekin upp í
Belgrað
Belgrad, febrúar. AP.
MATARSKÖMMTUN hefur verið
tekin upp í Belgrað, höfuðborg Júgó-
slavíu, í fyrsta sinn frá því skömmu
eftir stríð. Kaffi og matarolía fást nú
aðeins gegn skömmtunarseðlum og
svo er einnig með þvottaefni, sem
raunar fæst alls ekki í búðunum.
Alríkisstjórnin í Júgóslavíu hefur
sett sig mjög á móti þessari mat-
arskömmtun enda brýtur það í bága
við landslög, að einstakar sveitar-
stjórnir ákveði slíkt upp á sitt ein-
dæmi. Þrátt fyrir það hefur
skömmtun verið tekin upp víða í
landinu þar sem skortur er á
ákveðnum vörum.
Ríkisstjórnin er einnig á móti
þessari ákvörðun borgarstjórnar-
innar í Belgrað vegna þess, að í
stjórnarskránni er kveðið á um að
Júgóslavía skuli vera einn markaður
þar sem sömu reglur eiga að gilda
alls staðar. í málgagni ríkisstjórn-
arinnar sagði, að skömmtunin væri
„hneyksli, sem yrði að uppræta sem
fyrst“. Belgraðbúar virðast hins
vegar taka henni vel og er haft eftir
þeim, að biðraðirnar séu nú að
mestu úr sögunni.
FRAM
yfir endurskoðandann Rosenlind.
Þá hafði saksóknarinn krafizt eins
árs fangelsis yfir Per Storheim,
skrifstofustjóra sjóðsins, en hann
var sýknaður einróma.
Fjársvik þau, sem ákæran náði
yfir, námu 32,4 millj. n.kr. og var
þeim safnað á meðal um 35.000
svonefndra „feðra" í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku frá árinu 1977
til sumarsins 1981, er lögreglan lét
málið til sín taka.
Það var sænsk kona, sem innti
af hendi framlög í sjóðinn, Mizzi
Berger frá Hálle við Svinesund,
sem fyrst fékk grun um að ekki
væri allt með felldu varðandi
starfsemi sjóðsins. Hún lét lög-
regluna vita og hefur sjálf komið
fram sem vitni í réttarhöldum í
málinu.
Dómur sló því föstu í niðurstöð-
um sínum, að fjársvikin hefðu átt
sér stað með persónulegan ávinn-
ing í huga. Hins vegar var það tal-
ið Nordahl til málsbóta, að hann
hafði innt af hendi mikilsvert
mannúðarstarf, áður en hann
missti stjórn á fjármálum sínum
og tók að blanda peningum sjóðs-
ins saman við eigið fé.
Veður
víða um heim
Akurayri 7 skýjaó
Amsterdam 4 heiórfkt
Aþena 10 skýjaó
Barcelona 12 þokumóóa
Berlin 1 skýjað
Brilssel 2 heíðríkt
Chicago 10 skýjaó
Dublin 5 bjart
Feneyjar 3 bjart
Frankfurt 0 heióríkt
Genf 3 heiórikt
Helsinki -8 bjart
Hong Kong 14 skýjaó
Jerusalem 6 skýjað
Jóhannesarborg 29 heiórfkt
Kaupmannahöfn -1 bjart
Kairó 18 heióskírt
Laa Palmas 20 skýjaó
Lissabon 17 skýjaó
London 4 heióríkt
Los Angeles 27 skýjaó
Madrid 12 skýjaó
Mallorca 19 skýjaó
Malaga 14 þokumóóa
Mexíkóborg 24 skýjaó
Miami 22 skýjað
Moskva +3 skýjaó
Nýja Dethi 24 heiórikt
New York 11 heiöríkt
Osló -1 heióríkt
París 5 heiórfkt
Pekíng 2 heiórfkt
Perth 27 heióskýjaó
Reykjavík 7 ísing
Rio de Janeiro 36 heíóríkt
Rómaborg 11 skýjaó
San Francisco 16 skýjaó
Stokkhólmur -3 bjart
Tel Aviv 13 skýjaó
Tókýó 10 heiórikt
Vancouver 10 skýjaó
Vinarborg 2 bjart
TOLVUSKOLI
Síðumúla 27, a. 39566.
Skammhlaup olli
bíóbrunanum mikla
Tórínó, 22. febrúar. AP.
ÍTALSKA lögreglan telur að skammhlaup hafi valdið kvikmyndahúsabrun-
anum í borginni á dögunum þar sem 64 manns létu lífið. Byggir lögreglan
skoðun sína á því, að eldurinn virðist hafa blossað upp skammt frá tjöldun-
um, en í Ijós kom að rafmagnsvíraflækja ein mikil leyndist þar. Allir hinna
látnu voru á svölum þar skammt undan, á stað sem ógerlegt var að forða sér
til neyðarútganga.
Sennilegt er að þetta verði hin
opinbera skýring á brunanum,
enda hefur lögreglan ekkert fund-
ið sem bendir til íkveikju eða ann-
ara eldsupptaka. Eigandi og fram-
kvæmdastjóri hússins, maður að
nafni Raimondo Cappella, hefur
verið hnepptur í gæsluvarðhald og
sakaður um margfalt manndráp
og glæpsamlega vanrækslu á
húsakynnum sínum. Þá hafa 22
kvikmyndahúsum í borginni verið
lokað meðan öryggisþættir þeirra
eru rannsakaðir.
í vetur munu yfir
8000 bíleigendur
njóta góös af
Lumenition
platínulausu transistorkveikjunni, viö
gagnsetningu og kaldakstur í slyddu
og byl.
Ert þú einn af þeim?
fgp-rf r, u*°cpri,c
Skeifunní 3e. Sánú 8.47.88
Wallace med
magakveisu
Montuomcry. Alabama, 22. tebrúar. AP.
GEORGK Wallace, ríkisstjóri Ala-
bama, var lagður inn á sjúkrahús í gær
með ákafa magaverki. Hann er sem
kunnugt er háður hjólastól eftir morð-
tilræði fyrir nokkrum árum.
Læknar Wallace tjáðu frétta-
mönnum, að ríkisstjórinn væri ekki í
lífshættu, hins vegar er hann með
slæman vírus í maganum sem verður
varla yfirbugaður fyrr en eftir
nokkra daga. I millitíðinni mun
Wallace dvelja í sjúkrahúsrúmi.
TJöfóar til
ll fólks í öllum
starfsgreinum!
Enn hækkar tala
látinna í Assam
Nýj» Delhí, 22. feb. AP.
INDIRA Gandhi, forsætisráðherra Indlands, færði indverska þinginu fyrs
opinberu tölurnar um hve margir féllu í óeirðunum í Assam á dögunui
Gandhi lagði fram töluna 1.127, en öruggt er að öll kurl voru sannarlega ek
til grafar komin. Þannig bárust tíðindi um 50 lík til viðbótar meðan Gand
hélt ræðu sína. Og um morguninn voru morðin til umræðu í neðri málsto
þingsins og þá var vitað um „aðeins“ 925 látna.
Af öllum fjöldanum létust alls
125 af skotsárum af völdum lög-
reglunnar, en umræddir voru
staðnir að því að gera aðsúg að
kjósendum og að því að brenna at-
kvæðakassa. óstaðfestar fregnir
telja hins vegar að hinir látnu séu
nær því að vera 1.400 talsins.
Á sama tíma hélt Kongress-
flokkur frú Gandhi áfram sigur-
göngu sinni og síðla í gær hafði
hann tryggt sér 42 af þeim 48
þingsætum sem þegar var ráðstaf-
að. Öðrum sætum var óráðstafað
þar sem tafir urðu nokkuð víða á
kosningu og talningu atkvæ
vegna óeirða, m.a. auðvitað í A:
am. Báðar indversku þingdeildii
ar gáfu út yfirlýsingar í gær þ
sem fjöldamorðin og óeirðirna:
Assam voru fordæmd og leita y:
lausnar á vandamálinu sem er,
í Assam eru hundruð þúsun
innflytjenda, einkum frá Bang
desh og þykir mörgum hein
mönnum réttindi þeirra of mi
og eigin réttindi fótum troð
Fjölmargir Assambúar eru þei:
ar skoðunar að innflytjenduri
eigi ekki að hafa kosningarétt
það beri að vísa þeim úr landi.
Drottning búin að
fá sig fullsadda
Hefur krafist lögbanns á hallarfrá-
sagnir fyrrum eldhússtarfsmanns
Ixindon, 22. febrúar. AP.
8ÍÐASTLIÐINN mánudag fengu hinar fjórar milljónir lesenda Lundúna-
blaðsins The Sun að heyra um hvernig hún „Koo hamasl í höllinni" og á
þriðjudaginn áttu þeir að fá að lesa um þegar „hún berfætta Díana smurði
brauðið mitt“. Þá fannst Elísabetu II Englandsdrottningu vera nóg komið af
söguburðinum í Kieran Kenny, 20 ára gömlum, fyrrverandi starfsmanni í
eldhúsinu í Buckingham-höll.
Elísabet, sem ferðast nú um lönd
og álfur með konungsskipinu Brit-
annia, skipaði svo fyrir, að leitað
skyldi heimildar fyrir lögbanni á
þessi skrif og er það í fyrsta sinn,
sem bresku hátignirnar grípa til
þeirra ráða.
The Sun sagði frá málinu með
stríðsletri. „Drottningin reynir að
þagga niður i Sun“ var aðalfyrir-
sögnin og síðan sagði: „Við erum
alveg steinhissa.... Við ætlum að
berjast gegn banninu með kjafti og
klóm ... Lögfræðingum okkar hef-
ur verið uppálagt að kanna lög-
bannsbeiðnina og undirbúa vörn í
málinu.
Kieran Kenny vann f eldhúsinu í
Buckingham-höll í hálft þriðja ár
en hætti þar fyrir þremur vikum. í
sögunni, sem birtist sl. mánudag,
sagði Kieran frá morgunverðinum
þeirra Koo og Andrews prins, sem
þeim var jafnan færður í rúmið.
Hann sagði að Koo, sem á sínum
tíma lék í nokkrum klámmyndum,
hefði verið tíður næturgestur í
höllinni þegar drottningin og mað-
ur hennar voru af bæ.
í lögbannsbeiðninni er vitnað til
þess, að Kieran Kenny hafi þegar
hann kom til vinnu í Buckingham-
höll undirritað skjal þess efnis, að
hann héti því að segja aldrei frá
neinu, sem fyrir augu eða eyru
hans bæri í höllinni.