Morgunblaðið - 23.02.1983, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið.
Nýbreytni
landbúnaði
í
Pálmi Jónsson, landbúnað-
arráðherra, benti rétti-
lega á það í ræðu við setningu
búnaðarþings á mánudag, að
tekin hefði verið upp marg-
vísleg nýbreytni í íslenskum
landbúnaði á undanförnum
árum. Eins og eðlilegt er hafa
bændur orðið að laga sig að
breyttum háttum og miða
framleiðslu sína jafnvel meira
en áður við eftirspurn á mark-
aðnum. En um landbúnað hér
gildir hið sama og í öllum öð-
rum löndum, að ógjörlegt er
að stýra framleiðslunni þann-
ig að hún sé ávallt í samræmi
við vilja kaupenda. Smjörfjöll
hafa orðið til víðar en hér á
landi og spennan í verslunar-
viðskiptum Bandaríkjanna og
Efnahagsbandalags Evrópu á
helst rætur að rekja til þess,
að þessi efnahagslegu stór-
veldi geta ekki náð sáttum
vegna niðurgreiðslna á land-
búnaðarvörum.
Nýbreytni í landbúnaði er af
mörgum toga. Á síðasta ári
var til dæmis hafist handa um
að pakka kjöti með nýrri að-
ferð hjá fyrirtækinu ísmat í
Njarðvíkunum. Pálmi Jónsson
sagði í ræðu sinni, að á Nýja-
Sjálandi hefðu rannsóknir
sýnt að kjöt tapaði þunga við
geymslu í grisjupokum en ekki
ef það er geymt í plastumbúð-
um. Sagði landbúnaðarráð-
herra að rök væri unnt að
færa fyrir því, að þannig færu
400 tonn af kjöti til spillis hjá
okkur að verðmæti 30 milljón-
ir króna á núverandi heild-
söluverði. í hinni nýju kjöt-
vinnslu í Njarðvíkunum er
kjötinu pakkað í plast og ættu
hinir framtakssömu menn
sem að því fyrirtæki standa að
láta víðar að sér kveða. Er
ekki að efa, að þeir hafa þegar
ýtt við stærsta kjötútflytjand-
anum, Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. En það er
ekki nóg að huga að rýrnun
kjöts sem geymt er í grisju-
pokum. Fyrir bændur skiptir
jafnvel meira máli að niður-
staða fáist í rannsóknum og
umræðum um meðferð þeirra
fjármuna sem varið er til
niðurgreiðslna. Er sú skipan
sem nú ríkir í því efni hin hag-
kvæmasta fyrir bændur?
Margt bendir til að svo sé alls
ekki og fjármunirnir rýrni
ekki síður en kjötið vegna
þeirra aðferða sem beitt er við
greiðslu þeirra.
Þetta eina dæmi sem að vísu
ræður engum úrslitum þegar á
heildina er litið sýnir að með
framtaki má margt bæta án
þess að þrengt sé að frelsi
bænda til umsvifa og ákvarð-
ana um bústofn og fram-
leiðslu. Athyglisvert var, að
Pálmi Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, hreyfði því við setn-
ingu búnaðarþings, hvort ekki
væri ástæða fyrir bændur að
huga að stjórn eigin mála og
gera hana markvissari. Um-
Sætur á því sviði eiga áreið-
anlega rétt á sér. Landúnað-
arráðuneytið fer með yfir-
stjórn þessara mála af opin-
berri hálfu. Ákvörðunar- og
ráðgjafarvald hafa Búnaðarfé-
lag íslands, Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Stéttar-
samband bænda svo að þrír
stærstu aðilarnir séu nefndir.
Sex-manna-nefnd annast
verðákvarðanir en í hennisitja
fulltrúar bænda, ríkisins og
neytenda og sölustarfsemin er
að mestu leyti í höndum Sam-
bands íslenskra samvinnu-
félaga, Sláturfélags Suður-
Iands og mjólkursamlaga víðs-
vegar um landið. Og svo er það
Áburðarverksmiðja ríkisins
sem nú hefur verið siglt á kaf í
erlenda skuldasúpu eins og
þjóðarskútunni allri. Það er
áreiðanlega verðugt verkefni
fyrir alla sem vilja hag bænda
sem bestan að gera úttekt á
þessum stjórn- og sölustofn-
unum út frá þeim sjónarhóli
hvort afkoma bænda ráði
mestu um ákvarðanir þeirra.
Lyftur
fyrir lamaða
ví ber að fagna að fræðsl-
uráð Reykjavíkur skuli á
fundi sínum nýlega hafa
ákveðið að láta enn til skarar
skríða í því skyni að komið
verði fyrir lyftu fyrir hreyfi-
hamlaða í Hlíðaskóla í
Reykjavík. Fyrri áform ráðs-
ins hafa strandað á kröfum
Öryggiseftirlits og kostnaði
vegna þeirra. Eins og bent var
á hér í blaðinu í gær eru til
ýmsar gerðir af einföldum
lyftum sem auðvelda lömuðum
að komast ferða sinna í skól-
um og öðrum opinberum
stofnunum. Öryggiseftirlit er
nauðsynlegt og í skólum þarf
að búa þannig um hnúta að
börn verði ekki fyrir slysum
vegna ófullnægjandi tækja.
En með eðlilegri aðgæslu og
ábendingum til skólabarna
ætti að vera unnt að nota þann
tækjaskost í Hlíðaskóla og
annars staðar sem ekki ofbýð-
ur fjárhagsgetu skattborgar-
anna.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Pllllllllllllllllllllilll
Sea
Heræfing í Honduras
LOKIÐ er víðtækum heræfingum 1.600 bandarískra hermanna og 4.000
Hondurashermanna nálægt landamærum Nicaragua, hinum mestu sem
Bandaríkjamenn hafa staðið fyrir f Mið-Ameríku. Tilgangur æfinganna
var augljóslega að hræða byltingarstjórn Sandinista í Nicaragua, sem
Rússar og Kúbumenn styðja og aðstoðar vinstrisinnaða skæruliða í vina-
ríkinu El Salvador, styðja við bakið á stjórn Honduras og búa íbúana
undir hugsanlega styrjöld við Nicaragua. Æfingarnar fóru fram á svæði,
sem er vígi um 4.000 útlaga frá Nicaragua og þeir nota til árása gegn
stjórn Sandinista.
Æfingunum var hagað þann-
ig að forðazt var að til
beinna árekstra kæmi við Nicar-
aguamenn. Engar bandarískar
bardagasveitir tóku þátt og
bandarísku hermennirnir höfðu
ströng fyrirmæli um að halda sig
í að minnsta kosti 1.600 metra
fjarlægð frá landamærunum.
Hlutverk bandarísku hermann-
anna var aðallega að sjá um !iðs-
flutninga, birgðaflutninga og
fjarskipti og veita Honduras-
mönnum tilsögn í nútíma hernað-
araðferðum.
Hernaðaraðstoð Bandaríkjanna
við Honduras jókst úr 9,1 milljón
dala 1981 í 31,1 milljón dala í
fyrra. Bandarikjaþing hefur sam-
þykkt 13 milljón dollara fjárveit-
ingu til endurbóta á herflug-
völlum.
Þrátt fyrir aukna hernaðar-
aðstoð er Hondurasher veikburða.
í heræfingunum á dögunum
reyndust Hondurashermenn lítið
kunna fyrir sér, þeir voru illa
þjálfaðir og lítt agaðir. Herinn er
ekki í stakk búinn til að verja
landið, hvað þá að gera árásir á
Nicaragua. Flugherinn er þó und-
anskilinn, hann er vel búinn til
varnar og sóknar.
Reglubundnar árásir útlaga frá
Nicaragua frá stöðvum í Hondur-
as hafa oft leitt til átaka á landa-
mærunum. Útlagarnir eru vel-
vopnaðir og velþjálfaðir og munu
hafa notið leynilegrar aðstoðar
Bandarfkjamanna. Arásirnar hóf-
ust skömmu eftir fall Anastasio
Somoza einræðisherra í júlí 1979.
Margir útlaganna eru úr Þjóð-
varðliði Somoza, en í hópnum eru
einnig Miskito-Indíánar sem hafa
flúið. Útlagarnir spá því að mikill
hluti Nicaraguamanna geri bráð-
lega uppreisn gegn Sandinistum.
í haust sögðust útlagarnir hafa
fellt 109 Nicaraguamenn á þrem-
ur mánuðum. Auk þess munu um
1.200 skæruliðar fjandsamlegir
Sandinistum stunda aðgerðir rétt
innan við landamæri Nicaragua.
Aðrir vopnaðir hópar munu vera
lengra inni í landi, sumir tæpa 60
km frá höfuðborginni.
Útlagarnir notuðu heræf-
ingarnar til að auka árásir á
herstöðvar nálægt ströndinni í
héraðinu Zelaya í Nicaragua og 73
þeirra féllu, en fimm Sandinistar.
Sandinistar segja að 58 útlagar
hafi fallið í þorpi Miskito-Indíana
hjá landamærunum, og 15 daginn
eftir í nálægu þorpi. Héraðið er
einangrað, nær yfir um helming
Nicaragua og er byggt Indíánum
og blökkumönnum, þar af mörg-
um menntuðum hjá brezkum trú-
boðum. Sumpart vegna áhrifa
Breta hefur Sandinistum gengið
verr til að fá fólk á ströndinni til
að sætta sig við byltinguna en
annars staðar í landinu.
Sandinistar hafa sent fjöl-
mennt herlið, skriðdreka og stór-
skotalið á vettvang. Þeir segja að
54 „gagnbyltingarmenn" hafi fall-
ið á þessum slóðum á einum mán-
uði auk 24 hermanna Sandinista
og 14 óbreyttra borgara. Sandin-
istar hafa kallað æfingarnar ögr-
un og hvatningu við gagnbylt-
ingarmenn og óttast harðnandi
árásir í kjölfar æfinganna.
Honduras hefur hingað til
sloppið við þá hættulegu ó'gu,
sem hefur þjakað grannríkin, en
ólgan getur breiðzt þangað. Ólgan
hefur aukið hernaðarþýðingu
landsins og það hefur sagt skilið
við hlutleysisstefnu, sem það hef-
ur lengi fylgt. Lýðræði var endur-
reist í fyrra eftir 19 ára stjórn
herforingja. Reynt er að koma
fótunum undir efnahagslífið, þótt
erfitt sé á tíma samdráttar og
ólgu. Haldið er áfram tilraunum
til jarðaskiptinga og reynt að
varðveita þjóðfélagslegt jafnvægi,
sem er ótryggt.
Aðeins um 10% íbúanna eru
Indíanar og blökkumenn, svo að
þjóðin er heilsteyptari en
nágrannaþjóðirnar og togstreita
ólíkra menningarhópa minni.
Þess vegna hefur ólgan verið
minni i Honduras en í grannríkj-
unum. Auk þess er landið ekki
eins þéttbýlt og ræktanlegt land
nóg (íbúarnir eru innan við fjórar
milljónir og aðeins þriðjungurinn
býr í borgum). Landsmenn hafa
ekki búið við eins mikla kúgun og
grannþjóðirnar, þrátt fyrir ein-
ræðisstjórnir.
Hondurasmenn er önnur fátæk-
asta þjóð Rómönsku-Ameríku,
(tekjur á mann eru kr. 12.000 á
ári). Fjórðungur þeirra hefur
hvorki til hnífs né skeiðar og hálf
milljón barna er vannærð. Þó er
minna bil milli ríkra og snauðra
en annars staðar í Mið-Ameríku.
Löngun almennings í „lífsgæði" er
vöknuð vegna kynna af lífskjörum
í neyzluþjóðfélögum.
Þjóðartekjur hafa staðið í stað
síðan 1979 og lífskjörin rýrnað.
Útgjöld ríkis og einkaaðila hafa
minnkað og útflutningur á banön-
um, kaffi, timbri og hveiti dregizt
saman. En verðbólgan hefur
minnkað í tæp 10% og skuldir við
útlönd í 1,5 milljarð dala. Um
150.000 hafa misst atvinnuna. At-
vinnuleysi er alvarlegast í land-
búnaði, sem tveir þriðju lands-
manna byggja afkomu sína á.
Jarðaskipting hófst 1962, en tíð-
ar byltingar töfðu framkvæmdir
unz López Arellano hershöfðingi
hraðaði framkvæmdum á valda-
árum sínum 1973—75. Lýðræðis-
stjórnin, sem tók við í janúar 1
fyrra undir forystu Roberto Suaro
Cordova, hefur aukið jarðaskipt-
ingu og um 25.000 hektörum var
úthlutað í fyrra, stærra landi en á
næstu þremur árum á undan. Ýtt
er undir stofnun kaupfélaga smá-
bænda, sem fá fræðslu um búvís-
indi, framleiðni og nýjar búvöru-
greinar.
Jarðaskipting er forsenda jafn-
vægis og friðar. Þótt þeir sem
ekki hafa eignazt jarðir séu
óánægðir vilja flestir landsmenn
friðsamlega samninga um lausn
þjóðfélagsmála. Róttækra áhrifa
gætir ekki í verkalýðsfélögum,
nema í félögum landbúnaðar-
verkamanna og kennara. Þau eru
flest i tengslum við bandarísku
verkalýðshreyfinguna AFL-CIO.
1 fyrra voru 18 Hondurasmenn
felldir, fjögur lík fundust og fjórir
leituðu hælis í sendiráði Mexíkó.
Mannhvörf hafa aukizt, þótt kúg-
un hafi verið lítil á mælikvarða
Mið-Ameríku. Skæruliðahreyf-
ingin Cinchonero krafðist frelsun-
ar fanga fyrir nokkru og 11 verka-
lýðsforingjum var sleppt þegar
allsherjarverkfalli var hótað.
Einn þeirra sagði að þeir hefðu
verið pyntaðir. Leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, Ramon Custodio
Lopez, kennir Gustavo Alvarez yf-
irhershöfðingja, sem hann telur
raunverulega öllu ráða, um
harðnandi stefnu í innanlands-
málum.
Vinstriflokkar og kristilegir
demókratar, sem standa til
vinstri við miðju, biðu mikinn
ósigur í kosningum í nóvember
1981 og aðeins kristilegum tókst
að vinna eitt þingsæti. Frjálslyndi
flokkurinn undir forystu Suaro
forseta hefur 44 þingfulltrúa, en
34 fulltrúar Þjóðarflokksins,
íhaldsmanna, greiða yfirleitt at-
kvæði með meirihlutanum. Hóf-
samir menn ráða flokki kristi-
legra, en róttækir íhuga stofnun
nýs flokks. Hlutverk stjórnarand-
stöðu í þingræðisríki virðist ekki
hafa hlotið viðurkenningu i Hond-
uras. Þar skipta flokkar minna
máli en leiðtogar og þaggað er
niðri í stjórnarandstæðingum,
sem vitna í hugmyndafræði. Slík-
ir menn eru aðeins taldir til vand-
ræða.