Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
P Kjörskrá
Kjörskrá til alþingiskosninga er fram eiga aö fara
23. apríl nk. liggur fram almenningi til sýnis á
skrifstofu Garðabæjar, Sveinatungu, alla virka
daga frá 22. marz—8. apríl nk. Þó ekki á laugar-
dögum. Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa
borist bæjarskrifstofunni eigi síöar en 8. apríl nk.
Menn eru hvattir til að kynna sér hvort nafn þeirra
sé á kjörskránni.
Garðabær, 21. marz, 1983.
Bæjarstjóri.
Frá Yfirkjörstjórn
Reykjaneskjördæmis
Framboðslisti til alþingiskosninga 23. apríl nk. ber að
skila til formanns yfirkjörstjórnar Guðjóns Stein-
grímssonar, hæstaréttarlögmanns, Linnetstíg 3,
Hafnarfirði, fyrir kl. 24.00, þriðjudaginn 22. þ.m.
Fundur yfirkjörstjórnar meö umboðsmönnum
framboðslista verður haldinn í veitingahúsinu Gaflin-
um Dalshrauni 13, Hafnarfirði, miövikudaginn 23.
þ.m. kl. 20.00.
Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis.
Guöjón Steingrímsson, Björn Ingvarsson,
Þormóður Pálsson, Páll Ólafsson og
Vilhjálmur Þórhallsson.
Norskur saltfiskur fyr-
ir 150 millj. til Jamaica
Útflutningur saltfisks frá íslandi svarar ekki kostnaði
FISKVINNSLUFYRITÆKIÐ Uni-
dos í Álasundi, Noregi, hefur gert
samning við verzlunarfyrirtæki á
Jamaica um sölu á þurrkuðum saltf-
iski þangað. Fiskurinn skal fluttur
út í 7 förmum, alls 2.500 lestir að
verðmæti tæpar 150 milljónir ís-
lenzkra króna, segir meðal annars í
norska blaðinu Aftenposten nýlega.
Undanfarin ár hafa íslendingar flutt
út 1.000 til 1.500 lestir af þurrkuðum
saltfiski, en að sögn Valgarðs J.
Ólafssonar, framkvæmdastjóra SÍF,
hcfur sá útflutningur verðið rekinn
með halla.
Sagði Valgarð, að Norðmenn
réðu verðmyndun á þessum mark-
aði og í krafti stuðnings ríkisins
héldu þeir verði það mikið niðri,
að ekki svaraði kostnaði fyrir
okkur að flytja þurrkaðan saltfisk
út. Hins vegar væri það gert til
þess að sýna, að við værum ekki
alveg út úr markaðinum. Norð-
menn flyttu nokkuð út til Jamaica
til þess að létta á birgðum hjá sér
fyrir afar lágt verð og með löngum
greiðslufresti og ábyrgðist norska
ríkið greiðsluna. Auk þess væri
þetta allt saman ufsi. Sagði hann,
að við flyttum aðallega saltaðan
ufsa út til Brasilíu, Frakklands og
Panama. Mest færi til Brasilíu í ár
fyrir nokkru hærra verð en til
boða stæði a Jamaica, en það
stæði okkur einnig til boða.
Segir Aftenposten að þessi
norski samningur hafi náðst í
framhaldi viðskiptafundar Norð-
manna í Kingston á Jamaica, þar
sem viðskiptaráðherra Noregs,
Arne Skauge var viðstaddur. Síð-
ustu 7 ár hafa Norðmenn flutt út
um 300 lestir af þurrkuðum saltf-
iski mánaðarlega til Jamaica. Af-
hending samkvæmt þessum nýja
samningi hefst í marz og fara 350
lestir í hverjum mánuði. Ákveðið
hefur verið að ræða um frekari
samninga að þessum loknum.
Portúgölsk sendinefnd kom
til viðræðna við Landsvirkjun
HÉR á landi voru í sl. viku fulltrúar
nokkurra portúgalskra stórfyrir-
tækja til viðræðna við fulltrúa
Landsvirkjunar.
Portúgölsku fulltrúarnir létu
vel af veru sinni og sögðu, að við-
ræður hefðu verið mjög gagnlegar
og myndu væntanlega og vonandi
skila árangri. Fyrirtæki þeirra
sérhæfa sig á ýmsum sviðum
orkuvera. Talið frá vinstri er
Vasco Vieira da Fonseca frá
Mague, Custodio Ancieto Pinto frá
Efacec, Jose do Amalral Oliveira
frá Seop, Joao Sousa Machado
verzlunarfulltrúi, yfirmaður
viðskiptaskrifstofu Portúgals sem
fer með málefni íslands og Nor-
egs, Luiz Alberto de Albuquerque
Veloso frá Sorefame og A.B. Golc-
alves frá Mota ltd.
(Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson)
Iceland Seafood Corporation
seldi fyrir 20 milljónir dala
fyrstu tvo mánuði þessa árs
Aukningin miðað við sama tíma í fyrra 46%
„SALAN hjá okkur hefur verið góð
í janúar og febrúar og marzmánuð-
ur lofar einnig góðu. Heildarsalan
fyrstu tvo mánuðina nam alls 20,5
milljónum dollara, eða rúmlega
412 milljónum íslenzkra króna, og
er það 46% aukning miðað við
sömu mánuði í fyrra. Hvað varðar
magn er aukningin 42%. Þannig
hefur hvor mánuður fyrir sig verið
metmánuður," sagði Guðjón B.
Ólafsson, framkvæmdastjóri Ice-
land Seafood Corporation, sölufyr-
irtækis Sambandsfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, í samtali við
Morgunblaðið.
Guðjón sagði ennfremur, að
sömu mánuðir í fyrra hefðu að
vísu ekki verið góðir, en þá hefði
aðeins selzt fyrir rúmar 14 millj-
ónir dala. Sala framleiddra afurða
nú hefði verið heldur sterkari en
sala á flökum, enda vantaði flök
og raunar blokk líka að heiman.
Þá sagði Guðjón, að það, sem
helzt ylli þessari aukningu, væri
árangur markvissrar vinnu um
ára bil, batnandi efnahagsástand
og yfirstandandi fasta. Ekki taldi
hann skipta máli að íslendingar
hefðu ekki mótmælt hvalveiði-
banni.
VANDAÐ TÍMARIT UM STJÓRNMÁL
Meðal efnis að þessu sinni:
Sjálfsþurftarbúskapur — eða samstarf viö útlendinga (viðhorfin í orku- og iðnaðarmálum — Kenningar Milton
Friedmans — Ástand og horfur í efnahagsmálum — Þrígreiningarkenning Monterquieus — Dulbúin barátta KGB.
Gerist áskrifendur aö Stefni — þaö borgar sig.
Tímaritið Stefnir
Sjálfstæöishúsinu Valhöll,
Háaleitisbraut 1, 105 Rvk.
Áskriftarsími 82900