Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 Það kemur í hlut Þórðar Elías- .sonar og félaga hans frá Akranesi að verja heiður utanbæjarmanna í 8 sveita úrslitakeppni um fs- landsmeistaratitilinn í bridge 1983 sem fram fer um bænadagana. Aðrar sveitir sem taka þátt í úrslit- unum eru: Jóns Hjaltasonaar, Þórarins Si- gþórssonar, Aðalsteins Jörgen- sens, Karls Sigurhjartarsonar, Ólafs Lárussonar, Sævars Þor- björnssonar og Braga Haukssonar. A-riðiIl: Keppnin í A-riðli var mjög skemmtileg þar sem 3 sveitir háðu harða baráttu um 2 úrslitasæti. Fyrir síðustu umferðina hafði sveit Sigtryggs Sigurðssonar 58 stig, sveit Þórðar Elíassonar 56 stig og sveit Jóns Hjaltasonar 49 stig. Jón og félagar hans höfðu tapað illa fyrir Sigtryggi og naumiega fyrir Þórði en Þórður og Sigtryggur áttu að spila saman í síðustu umferð þannig að mögu- leikar Jóns voru ágætir. Leik Þórðar og Sigtryggs lauk svo 11—9 þannig að sveitirnar voru jafnar að stigum en Þórðarsveitin komst áfram vegna þess að inn- byrðissigur milli þessara sveita réð úrslitum. Lokastaðan í A-riðli: Jón Hjaltason 69 Þórður Elíasson 67 Sigtryggur Sigurðsson 67 Sigurður Vilhjálmsson 42 Páll Pálsson 28 Bernharður Guðmundsson 27 B-riðill: Þrjár sveitir börðust einnig 1 þessum riðli um sætin tvö. Aðal- steinn Jörgensen úr Hafnarfirði átti góða möguleika fyrir síðustu umferðina en ef ég man rétt þá vantaði herzlumuninn að þeir kæmust í úrslitin í fyrra. Þeir létu það ekki henda sig að þessu sinni og komust í úrslit ásamt Þórarni Sigþórssyni. Sveit Þórarins hefir oft átt í erfiðleikum með að klóra sig í gegnum undankeppnina en að þessu sinni unnu þeir riðilinn. Sveit Gests Jónssonar varð úti í kuldanum að þessu sinni. Þeir töp- uðu í næstsíðustu umferð fyrir Aðalsteini 0—20 og áttu eftir það Frímann Frímannsson hefir í ára- raðir séð um aö Morgunblaðið fái að staðaldri fréttir frá Bridgefélagi Akureyrar. Hann var meðal þátt- takenda í undankeppninni. Svipmynd frá undankeppninni. Það eru grallararnir Sölvi Sigurðsson og Aðalsteinn Jónsson sem etja kapp við Reykjavfkurmeistarana Jón Baldursson og Val Sigurðsson. Undanúrslitum íslandsmótsins í sveitakeppni lokið: Skagamenn, Gaflarar sveitir úr Reykjavík í og sex úrslitin umferðina benti allt til þess aö þeir myndu ná öðru sæti í riðlin- um. Þá höfðu Reykjavíkurmeistar- arnir tryggt sér fyrsta sætið eða svo gott sem. Sigurbjörnssynir höfðu 56 stig, sveit Braga Hauks- sonar 42 stig og sveit Jóns Stef- ánssonar hafði 39 stig. Sveit Braga átti að spila gegn Aðalsteini Jónssyni frá Eskifirði en sveit hans hafði átt örðugt uppdráttar í mótinu en bræðurnir áttu að spila gegn Agli. Ekki er hægt að segja að Egill hafi komið á óvart með að sigra í leiknum 15—5 en bræðurna vantaði einn impa til að leikurinn færi 14—6 og þá hefðu þeir þurft að koma í bæinn á ný um bæna- dagana en þrátt fyrir góðan vilja og mikla leit fannst hann hvergi. Sveit Braga Haukssonar vann aft- ur á móti sinn leik 20 mínus 5. Bræðrasveitin frá Siglufirði var nálægt því að komast í úrslitakeppnina. Þá vantaði aðeins einn punkt (impa) og þó vel væri leitað var hann hvergi að finna. Talið frá vinstri: Bogi, Anton, Jón og Ásgrímur Sigurbjörnssynir. Eyjólfur Magnússon Gunnar Þórðarson C-riðill: 19 sækja í úrslitunum. Sveit Ar- 18 manns J. Lárussonar vann 3 leiki en tapaði fyrir Ólafi og Karli. <m Lokastaðan í C-riðli: komast í úrslitin. Þar spiluðu sveitir Ólafs Lárus- Karl Sigurhjartarson 86 Lokastaðan í B-riðli: sonar og Karls Sigurhjartarsonar. ólafur Lárusson 85 Þórarinn Sigþórsson 74 Mátti heita að það væri forms- Ármann J. Lárusson 55 Aðalsteinn Jörgensen 72 atriði að ljúka tveimur síðustu Jón Þ. Björnsson 44 Gestur Jónsson 64 umferðunum. Báðar þessar sveitir Leif Österby 6 Oddur Hjaltason 45 verða eflaust erfiðar heim að Gunnar Jóhannesson +2 D-riðiIl: f þessum riðli fór keppnin í nokkuð óvæntan farveg. Fyrir- fram var sveit Egils Guðjohnsens talin eiga góða möguleika en í fyrstu umferð töpuðu þeir illa fyrir sveit Jóns Stefánssonar frá Akureyri. Bræðrasveitin frá Siglufirði lék aftur á móti við hvern sinn fingur og fyrir síðustu Lokastaðan í D-riðli: Sævar Þorbjörnsson 87 Bragi Hauksson 62 Ásgrímur Sigurbjörnsson 61 Jón Stefánsson 42 Egill Guðjohnsen 32 Aðalsteinn Jónsson 1 Mótið var óvenju rólegt — jafn- vel síðustu umferðirnar þegar oft hefir borið á titringi í taugum. Keppnisstjóri var Agnar Jörg- ensson en hann hefir stjórnað ís- landsmótinu undanfarin ár af röggsemi. Brídge Arnór Ragnarsson DISKETTUR, TÖLVUSEGULBÖND, HARÐIR DISKAR________________ Höfum fyrirliggjandi MEMOREX diskettur. Gæðavara - Gott verð - Gengur í flestar gerðir tölva. Sölu og markaðsdeild RAFRÁSAR veitir allar nánari upplýsingar um MEMOREX diskettur. Þorskveiði- bann um páskana Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið, að þorskveiðihann um páska hcfjist kl. 22.00 þriðjudaginn 29. mars og standi til hádegis þriöjudaginn 5. aprfl nk. Eru öllum skipum, öðrum en þeim, er undir „skrapdagakerfið" falla, bannaðar þorskveiðar á ofangreindu tímabili. Bann við þorskveiðum merkir, að hlutfall þorsks í afla einstakra veiðiferða má ekki nema meiru en 15%. Auk þess leggur ráðuneytið sérstaka áherslu á, að á fyrr- greindu tímabili er óheimilt að hafa net í sjó. (Fréttatilkynning) Askriflamiminn cr S30.13

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.