Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 40
^^uglýsinga-
siminn er 2 24 80
^\skriftar-
síminn er83033
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
Gengis-
skráning
í eðli-
legt horf
VEGNA þeirra óvissu, sem ríkt hefur
um gengisskráningu gjaldmiðla landa
Efnahagsbandalagsins síðustu daga,
var gengisskráning nokkurra gjald-
miðla felld niður hér á landi í gær, ss.
diinsku krónunnar, norsku krónunnar
og sænsku krónunnar, finnska marks-
ins og franska frankans.
Hins vegar var skráð dollaragengi,
gengi brezka pundsins og vestur-
þýzka marksins. Gert er ráð fyrir, að
eðlileg gengisskráning geti hafizt
hér á landi í dag.
Dollaraverð haekkaði um liðlega
0,8% yfir helgina, en sölugengi
Bandaríkjadollars var skráð 20,840
krónur sl. föstudag, en í gær var það
skráð 21,010 krónur. Frá áramótum
hefur Bandaríkjadollar því hækkað
um tæplega 26,2% í verði, en í árs-
byrjun var sölugengi hans skráð
16,650 krónur.
Lögbannskrafan
liggur f láginni
LÖGBANNSKRAFA Verðlagsstofnun-
ar vegna 25% fargjaldahækkunar SVR
frá 12. febrúar síðastliðnum, hefur enn
ekki verið send yfirborgarfógeta, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgunblað-
ið fékk hjá Gísla ísleifssyni, lögfræð-
ingi Verðlagsstofnunar í gær.
Ekki hefur heldur verið send kæra
til Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna þessarar hækkunar, eða vegna
46,5% hækkunarinnar frá 7. janúar
sl., sem lögbann var lagt við. Báðar
þessar aðgerðir, lögbannið og kæran
til RLR voru boðaðar í fréttatilkynn-
ingu frá stofnuninni þann 2. mars sl.
Spurningu um hver ástæðan væri
fyrir því að lögbannskrafan eða kær-
an til rannsóknarlögreglunnar hefðu
ekki verið sendar, svaraði Gísli Is-
leifsson þannig, að hann gæfi engar
skýringar á því. Hins vegar sagði
hann að þetta yrði „deginum Ijósara
innan skamms".
Horfur á
batnandi
færð í dag
VÍÐA var þungfært á Vestur- og
Norðurlandi í gær og var þá unnið
að ruðningi víða, en venja er að
ryðja vegi á þriðjudögum.
Að sögn Veðurstofunnar var
ekki reiknað með miklum breyt-
ingum á veðurfari í dag.
Þrátt fyrir hálku og skafrenn-
ing í gær var fært um Hellisheiði
og Þrengsli og austur með suður-
og austurströndinni allt austur á
Firði. Oddsskarð og Vatnsskarð
voru ófær, en fært um Fjarðar-
heiði og um Hérað. Sæmileg
færð var fyrir Hvalfjörð og í
Borgarnes, en vegir í uppsveitum
Borgarfjarðar og á Snæfellsnesi
og í Dölum voru víðast hvar
þungfærir, aðallega vegna veð-
urs. Hafinn var mokstur frá
Patreksfirði til Tálknafjarðar og
ráðgert var að ryðja Hálfdán, en
Kleifaheiði var ófær. Á norðan-
verðum Vestfjörðum var mikil
ófærð. Holtavörðuheiði var ófær
og á vestanverðu Norðurlandi
voru vegir víða þungfærir eða
ófærir. Öxnadalsheiði var fær
jeppum og stórum bílum og fært
var frá Akureyri til Dalvíkur en
ófært um Ólafsfjarðarmúla, en
fært frá Akureyri austur um til
Húsavíkur og allt austur á
Vopnafjörð.
Valsmenn íslandsmeistarar í körfuknattleik
Þeir unnu Keflvíkinga í gærkveldi í æsispennandi úrslitaleik í Laugardalshöllinni með einu stigi.
Vogum:
Kona í
hrakningum
Vogum, 21. mars.
í ÓFÆRÐINNI á Reykjanesbraut
síðastliðið laugardagskvöld óku
menn úr björgunarsveitinni Skyggni
í Vogum fram á konu á gangi við
vegamótin í Voga. Hafði hún verið
ein á ferð í bíl á Reykjanesbrautinni
er bíllinn bilaði.
Fékk hún síðan far með bíl, sem
ók henni að Vogavegamótum. Var
það síðan fyrir tilviljun, að menn
úr Skyggni voru á ferð þarna og
komu að konunni. Var hún bæði
köld og blaut. Frá vegamótunum
frá Reykjanesbraut og í Voga eru
2 kílómetrar. Oddur Ólafsson,
formaður Skyggnis, sagði óvíst
hvernig farið hefði, ef konan hefði
þurft að fara fótgangandi þessa
vegalengd við þær aðstæður, sem
voru á laugardagskvöldið í myrkri,
kulda og skafrenningi.
“ Fréttaritari.
Starfar enginn
í anda Marx,
Engels og Lenins?
ENN hefur enginn gert tilkall í dán-
arbú Sólveigar Jónsdóttur og Sigur-
jóns Jónssonar í kjölfar auglýsingar
þess efnis í Lögbirtingi þann 16. mars
síðastliðinn.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um, ánafnaði Sigurjón Jónsson
eignum sínum til þeirra, er teldu
sig starfa í anda sósíalismans og
Marx, Engels og Lenins. Markús
Sigurbjörnsson, skiptaráðandi í
Reykjavík, tjáði Morgunblaðinu í
gær, að enn hefði enginn gert til-
kall til eftirliggjandi eigna Sigur-
jóns.
Aðalfundur Eimskipafélags íslands í gærdag:
Eiginfjárstaða Eimskips
batnaði verulega 1982
Hagnaöur vard af rekstri félagsins í fyrsta sinn í 5 ár
HEILDARTEKJUR Eimskipafélags
íslands á árinu 1982 urðu samtals
955 milljónir króna, en til saman-
burðar voru tekjur félagsins um 548
milljónir króna á árinu 1981. Veltu-
aukningin milli ára er því um 74%.
Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu Halldórs H. Jónssonar,
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
tilkynnt Landssambandi íslenzkra
akstursfþróttafélaga að, að því er
varðar fyrirhugaða rallkeppni telji
ráðuneytið á þessu stigi eigi tilefni
til að heimila keppnina, sem, ef leyfð
verður, yrði stærri í sniðum en
keppnir til þessa að því er varðar
dagafjölda, fjölda sérleiða og fjölda
stjórnarformanns Eimskipafélags-
ins, á aðalfundi í gærdag.
„Á árinu 1982 varð í fyrsta
skipti um 5 ára skeið hagnaður á
rekstri félagsins. Nam hann 7,9
milljónum króna. Hefur þá verið
tekið tillit til allra rekstrargjalda
keppenda.
Þá segir í tilkynningu ráðuneyt-
isins, að keppnin sé fyrirhugðuð
un nýjar slóðir, að nokkru um
friðuð og viðkvæm lönd, sem hlífa
ber af náttúruverndarsjónarmið-
um. Áður en til þess komi að ráðu-
neytið taki endanlega afstöðu til
umsóknar landssambandsins, telji
ársins, fjármagnskostnaðar og
áætlaðra opinberra gjalda af
rekstrinum vegna ársins 1982.
Afskriftir á árinu námu samtals
71,7 milljónum króna. Liðurinn
fjármagnstekjur og gjöld varð
neikvæður um 113 milljónir
króna," sagði Halldór ennfremur.
það nauðsynlegt, að fyrir liggi, að
hlutaðeigandi lögreglustjórar
samþykki fyrir sitt leyti, að rall-
keppnin fari fram, að fullnægðum
frekari skilyrðum, sem tíunduð
eru hvað keppnina og ökutæki
varðar. Þar með liggi fyrir sam-
þykki hlutaðeigandi veghaldara og
sveitarstjórna.
„Þessa jákvæðu afkomu ársins
má fyrst og fremst rekja til mik-
illa flutninga á fyrri hluta þess,
og góðrar nýtingar á skipum fé-
lagsins á þeim tíma. Afkoma síð-
ari hluta ársins varð hins vegar
til muna lakari í kjölfar efna-
hagslegs samdráttar hér á landi
og minnkunar bæði innflutnings
og útflutnings. Þá endurspeglar
þessi jákvæða afkoma einnig
áframhaldandi hagræðingu og
endurskipulagningu á rekstri fé-
lagsins.
Heildareignir Eimskipafélags-
ins námu í árslok 1982 1.035
milljónum króna. Heildarskuldir
námu samtals 678 milljónum
króna. Eigið fé félagsins í árslok
að meðtöldu hlutafé nam því 357
milljónum króna. Eigið fjárhlut-
fallið er 34%, sem verður að telj-
ast góð staða," sagði Halldór H.
Jónsson.
í ársskýrslu félagsins kemur
ennfremur fram, að eigið fjár-
hlutfall félagsins var um 29% á
árinu 1981, þannig að staðan hef-
ur verulega batnað milli ára.
Sjá ennfremur frásagnir af að-
alfundi Eimskipafélagsins á
bls. 18.
Dómsmálaráðuneytið um hálendisrallið:
Ekki ástæöa til að
leyfa rallið á þessu stigi