Morgunblaðið - 22.03.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
Vönduð gjöf
fyrir börn
og unglinga
í rétta stólnum situr þú rétt og í réttri hæð við borðið.
Þannig þreytist þú síður.
PE 82 er þægilegur stóll framleiddur hérlendis í tveimur
útfærslum, fyrir byrjendur (skólafólkið) og þá sem lengra
eru komnir í lífinu. PE 82 stóllinn er bólstraður, á hjólum
og með gaspumþu. Einnig fáanlegur með örmum og
veltusæti.
Verðiö er aðeins kr. 1.790.-
— Ja, það ættu allir að hafa efni á að eignast slíkan stól.
Hver hefur annars efni á að eyðileggja heilsu sína vísvit-
andi með rangri setu?
HALLARMÚLA 2 - SlMI 83211
SÍJORWJNABFRÆflSLA
Vinnuvistfræði —
öryggi á vinnustöðum
Tilgangur námskeiösins er aö gefa yfirlit yfir hvernig
vinnuumhverfi og vinnuaöstæöur í fyrirtækjum eiga aö
vera og taka til umfjöllunar öryggismál á vinnustööum.
Einkum verður fjallað um eftirtalda
þsatti:
— Gerð og eiginleika mannslíkamans,
aðlögun vinnustaðarins að mannin-
um, áhrif varhugaverðra efna, háv-
aöa o.fl. þátta ásamt slysahættu.
— Aðferðir til aö auka vellíðan
starfsmanna, bæta aðbúnað og
hollustuhætti og auka öryggi á
vinnustöðum.
— Löggjöf um vinnuumhverfismál,
skyldur stjórnenda, starfsmanna
o.fl. aöila, uppbygging innra starfs í
fyrirtækjum, hlutverk opinberra aö-
ila.
Sýndar veröa litskyggnuraðir og kvik-
myndir um afmörkuö efni.
Þátttakendur: Námskeiðið er einkum ætlað starfsmanna-
stjórum, trúnaðarmönnum, starfsmönnum og forystu-
mönnum launþegafélaga, framkvæmdastjórum fy 'rtækja
og öðrum þeim sem vinna aö endurbótum vinnuum. verfis.
Tími: 6.-8. apríl kl. 14.00—18.00.
Staður: Síðumúli 23, 3. hæð.
Ath.: Starfsmenntunarsjóöur Starfsmannafélags ríkis-
stofnana greiðir þátttökugjald fyrir félagsmenn sína á
þessu námskeiöi og skal sœkja um þaö til skrifstofu
SFR. Einnig greiðir Verslunarmannafélag Reykjavíkur
þátttökugjald fyrir félagsmenn sína á þessu námskeiöi
og skal sækja um það til skrifstofu VR.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í
síma 82930.
STJÓRNUNARFÉLAfi
ISLANDS SlÐUMÚLA 23 SÍMI 82930
Leiðbeinandi:
Eyjólfur S«e-
mundsson efna-
verkfrasðingur, for-
stjóri Vinnueftirlits
ríkisins.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
STJÓRN Reagans forseta telur að borgarastríðið í El Salvador sé komið
á alvarlegt stig og reynir að fá Bandaríkjaþing til að samþykkja að
hernaöaraðstoðin við landið verði aukin um 60 milljónir dala. Jafnframt
er í athugun að auka áhrif bandarískra hernaðarráðunauta á vígstöðvun-
um, án þess aö þeir taki þátt í bardögum, og fjölga þeim úr 37 í um 55.
Sagt er að Reagan vilji auka aðstoðina til að sýna El Salvador og
Rómönsku-Ameríku að Bandaríkjamenn muni ekki snúa við þeim baki.
Svo alvarlegt er ástandið talið að sett hefur verið fram ný „dóminó-
kenning". Verði aðstoðin ekki aukin muni Salvador-stjórn tapa stríðinu.
Stöðva verði útbreiðslu kúbansks kommúnisma áður en flóðbylgja bylt-
ingarinnar berist til Mexíkó og Panamaskurðar. „Meiriháttar þjóðar-
hagsmunir Bandaríkjanna" eru í húfi að sögn Thomas Enden, aöstoðar-
utanríkisráðherra Ameríkumála. „Engin ríkisstjórn í Mið-Ameríku verð-
ur óhult.“
guatemala/
.. . , / HONDURAS
juottmola v
’City
j' ’A Tegucigolpa
cuimchaico ^ *
‘Son^Salvodor hÖíA7ai\
EL______^
qai vAnnp
Sjálfhelda í Salvador
Stjórn Reagans vonar að með
því að flýta fyrirhuguðum
kosningum í El Salvador verði
auðveldara að fá samþykki þings-
ins. George P. Shultz utanríkisr-
áðherra segir að áskoranir kirkju-
leiðtoga og annarra um samn-
ingaviðræður Salvador-stjórnar
og skæruliða séu aðeins hvatning
til uppreisnarmanna um að reyna
að komast í stjórn með vopna-
valdi. En þótt flestir embættis-
menn stjórnarinnar vilji að að-
stoðinni við El Salvador verði
haldið áfram, munu nokkrir
þeirra vilja kanna möguleika á
viðræðum. Ástæðan er sú að lík-
lega mun Bandaríkjaþing setja ný
skilyrði fyrir aukinni aðstoð og að
þau muni neyða Salvador-stjórn
til að hefja friðarviðræður.
Charles Percy, formaður utan-
ríkisnefndar öldungadeildarinnar,
vill að slíkar viðræður verði settar
sem skilyrði. Hann vill einnig að
áherzla verði lögð á langtíma
efnahagsaðstoð í stað þess að efla
herinn, að stjórnarandstæðingar
fái vernd fyrir og eftir fyrirhugað-
ar kosningar í desember og að þeir
sem beri ábyrgð á morðunum í El
Salvador verði leiddir fyrir rétt.
Barátta Reagan-stjórnarinnar
fyrir samþykki þingsins hefur ver-
ið erfið. Hörðust gagnrýni hefur
komið frá hópi demókrata, sem
gagnrýnir að stefna stjórnarinnar
auki sjálfstraust hægrisinnaðra
hryðjuverkamanna og efli vinstri-
sinnaða hryðjuverkamenn á sama
tíma og þeir sem raunverulega
vilji frið fyllist vonleysi. Full sam-
staða virðist ekki rfkja í stjórn-
inni. Fréttir herma að Enders ráð-
herra vilji að fylgt verði tvíþættri
stefnu: stuðningi við Salvador-
stjórn verði haldið áfram, en reynt
um leið að stuðla að viðræðum við
skæruliða fyrir milligöngu þriðja
aðila.
Sendiráð Bandaríkjanna f El
Salvador telur lífsnauðsyn að
endurskipuleggja stjórnkerfið og
herinn til að afstýra algeru hruni.
Bandarískir embættismenn eru
sammála um að hernaðarástandið
hafi versnað verulega á síðustu
sex mánuðum. Skæruliðar sæki að
heita megi að vild inn í borgir og
bæi án verulegrar mótspyrnu og
taki fleiri hermenn til fanga og
meira vopnamagn herfangi en
nokkru sinni fyrr. Þeir tala um
aukið áræði skæruliða, sem eru 6-
7.500 talsins, en hæfni 22.400 her-
manna stjórnarinnar er dregin í
efa og hálfgerður uppgjafarandi
sagður ríkja í sumum hersveitum.
Bandarískur þingmaður hefur
jafnvel eftir æðsta hernaðarráðu-
naut Bandaríkjamanna, Waghle-
stein ofursta, að ekki sé hægt að
sigra skæruliða.
Fulltrúar Salvador-stjórnar
segja alrangt að sigur skæruliða
blasi við og bera til baka fullyrð-
ingar um að skotfærabirgðir hers-
ins muni aðeins endast í einn
mánuð. Ástandið sé „alvarlegt", en
ekki eins skuggalegt og Banda-
ríkjastjórn staðhæfi. Með auknu
samstarfi bandarískra hernaðar-
ráðunauta og Salvador-hermanna
á vígvellinum á að bæta ástandið.
Ráðunautarnir eiga að fá meiri
áhrif á hermennina, sem þeir
þjálfa, og yfirmenn þeirra. Léleg
forysta sumra yfirmanna, einkum
pólitískra gæðinga, er ein helzta
ástæða frekar slælegrar frammi-
stöðu stjórnarhersins.
Stríðið er f sjálfheldu: hvorugur
aðilinn hefur haft betur. Bardagar
blossa upp í hvert skipti sem
skæruliðar láta á sér kræla og
gangurinn er þessi: Skæruliðar
„hertaka" bæ eða borg þegar þeir
hafa ráðið niðurlögum fámenns
setuliðs, efna til skrúðgöngu og
halda stundum dansleik á aðal-
torginu, mála nokkur vígorð á
veggi stjórnarbygginga, sprengja
upp aðalveginn til bæjarins til að
tefja sókn stjórnarhersins og fara
svo. Eftir hvern bardaga flýja
nokkur hundruð manns á öruggari
staði, íbúum bæjanna fækkar og
bæjunum hnignar. Saklausir borg-
arar verða fórnarlömb átakanna.
Hermenn skutu 74 smábændur í
aðgerðum gegn skæruliðum f hér-
aðinu Sonsonate í febrúarlok.
Skæruliðar ræna ungum mönnum,
neyða þá til að ganga í lið með sér
og skjóta þá ella.
Enn er þetta ekki hreinræktað
stríð. Skotkraftur stjórnarhersins
er ekki það mikill og skæruliðar
hafa ekki fengið almenning í lið
með sér, þannig að uppreisn hefur
ekki brotizt út eins og í Nicaragua.
Röskunin er þó eins mikil og í
stríði. Um 250.000 hafa misst
heimili sín og búa í flóttamanna-
búðum og fátækrahverfum eða hjá
ættingjum í öðrum bæjum. Efna-
hagslífið er í kalda koli og varð-
veizla slíks ástands virðist megin-
markmið skæruliða. Það sýna
árásir þeirra á brýr, vegi, raforku-
ver, sykurreyrsakra og samgöngu-
tæki. Þannig getur stríðið haldið
áfram í mörg ár ef uppreisnar-
menn fá næg vopn. Mikið af þeim
hafa þeir tekið herfangi eða fengið
með mútum frá stjórnarhernum.
Stjórnarherinn hefur breytt um
baráttuaðferðir í bardögunum,
sem geisa aðallega í norðurhluta
landsins, nálægt landamærum
Honduras. Skæruliðar hafa lengi
haft norðausturhéraðið Morazan á
valdi sínu og í fyrrahaust hélt Jose
Guillermo Garcia landvarnaráð-
herra því fram að hernám þess
skipti engu máli, þar sem þetta
væri hrjóstrugur afkimi og hefði
litla efnahagslega og hernaðarlega
þýðingu. En í síðasta mánuði sendi
Garcia þangað eina af þremur
hersveitum, sem Bandaríkjamenn
hafa þjálfað, til að stjórna þessu
„frelsaða svæði“, sem hann óttast
svo mjög. Bærinn Perquin var tek-
inn eftir meiriháttar hernaðarað-
gerðir.
Þessar aðgerðir gáfu skærulið-
um færi á að ná borginni Berlin í
Usulutan, stærstu borginni sem
þeir hafa tekið, og halda henni um
tíma. Þessi töluverði áróðurssigur
hafði áhrif i Bandaríkjunum.
Skæruliðar fóru ránshendi um Us-
ulutan, sem er blómlegt hérað, og
náðu stórum hluta þess á sitt vald.
Hersveitin, sem Bandaríkjamenn
þjálfuðu, var send til Morazan í
sama mund og njósn barst af því
að fjöldi skæruliða væri að laum-
ast inn í Usulutan. Bandarískur
hernaðarráðunautur telur að úr-
slit stríðsins verði ráðin í Usulut-
an.
Salvador-her hefur þannig
breytt gegn ráðleggingum banda-
rískra hernaðarráðunauta, sem
leggja áherzlu á að efnahagsleg
skotmörk séu varin í stað þess að
yfirráðum sé haldið uppi í ein-
angruðum bæjum og þorpum í
Morazan. En þessi aðferð er líka
gagnrýnd á þeirri forsendu að ef
afskekkt vígi skæruliða séu af-
skrifuð gefist þeim tími til að
skipuleggja aðgerðir sínar á svæði
þar sem þeir séu óhultir. Enn er
deilt um menn og aðferðir í hern-
um og staða Garcia hershöfðingja
virðist lítið hafa batnað síðan
Ochoa ofursti gerði uppreisn í
janúar vegna lélegrar stjórnar
hans á stríðsrekstrinum.
Salvador-hermenn leita að skæruliðum.