Morgunblaðið - 22.03.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
19
Sýslumannshjónin Böðvar Bragason og Gígja Haraldsdóttir taka á móti forseta fslands í kalsaveðri við
Þjórsárbrú snemma á sunnudagsmorgum. Ljósm. Ragnar AieUson.
Margmenni tók á móti forseta
íslands í Rangárvallasýslu
HEIMSÓKN forseta íslands í
Rangárþing á sunnudaginn
tókst í alla staði vel, og fagnaði
fjölmenni Vigdísi Finnboga-
dóttur hvar sem hún kom,
þrátt fyrir kalt og heldur leið-
inlegt veður mestan hluta
dagsins.
Heimsóknin hófst klukkan
hálf níu um morguninn við
Þjórsárbrú, en sýslumaður-
inn í Rangárvallasýslu,
Böðvar Bragason, og kona
hans, frú Gígja Haraldsdótt-
ir, tóku á móti forseta og
fylgdarliði hans. Eftir ör-
stutta viðdvöl við Þjórsá var
haldið að Hellu, og þar tók
Jón Þorgilsson sveitarstjóri
á móti gestunum í hinu nýja
elliheimili Lundi. Jón bauð
Vigdísi velkomna á Rangár-
velli, og færði henni að gjöf
bækurnar Rangvellingabók I
og II, áritaða af hrepps-
nefndinni. Frú Vigdís Finn-
bogadóttir þakkaði gjafir og
hlý orð í sinn garð, og kvaðst
ánægð með að vera komin í
svo sögufrægt hérað, þar sem
Oddaverjar hinir fornu hefðu
forðum gengið um garða. í
Lundi þáðu gestir kaffiveit-
ingar, og frú Vigdís heilsaði
upp á vistmenn elliheimilis-
ins og einnig fólk á öllum
aldri frá Hellu og nágrenni.
Frá Hellu var síðan haldið
að Odda á Rangárvöllum, þar
sem séra Sváfnir Sveinbjarn-
arson prófastur, Stefán Lár-
usson sóknarprestur og fleiri
klerkar tóku á móti gestun-
um. í kirkjunni rakti séra
Stefán sögu héraðsins og
Oddastaðar sérstaklega í
stuttu máli, og síðan var
stutt helgistund, þar sem
prófastur prédikaði. Frá
Odda var síðan haldið í Hér-
aðsbókasafnið á Hvolsvelli,
þar sem fjöldi fólks fagnaði
forsetanum, sem þar skoðaði
meðal annars sýningu á
verkum Árnýjar Filippus-
dóttur fyrrum skólastýru
kvennaskólans í Hveragerði.
Síðan var snæddur hádegis-
verður í félagsheimilinu
Hvoli, en þaðan haldið til fé-
lagsheimilis Vestur-Eyfell-
inga, þar sem frú Vigdís og
fylgdarlið hennar var við-
statt einn þáttinn í héraðs-
vöku Rangæinga, sem nú
stendur yfir. Heimsókninni
lauk síðan á sunnudagskvöld
með því að snæddur var létt-
ur kvöldverður í Lambey í
Fljótshlíð.
Ad lokinni helgistund í
Oddakirkju. Frú Vigdís
Finnbogadóttir gengur úr
kirkju ásamt þeim sr.
Sváfni Sveinbjarnarsyni
prófasti (t.v.) og séra Stef-
áni Lárussyni í Odda.
A-listinn á
Norðurlandi
eystra
KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðunokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
hefur birt framboðslista flokksins
í kjördæminu vegna Alþingiskosn-
inganna 23. apríl næstkomandi.
Listann skipa:
1. Árni Gunnarsson, alþingis-
maður, Akureyri, 2. Hreinn
Pálsson, lögmaður, Akureyri, 3.
Arnljótur Sigurjónsson, raf-
virkjameistari, Húsavík, 4. Jón-
ína Óskarsdóttir, aðstoðar-ráðs-
kona, Ólafsfirði, 5. Stefán
Matthíasson, læknanemi, Akur-
eyri, 6. Alfreð Gíslason, sagn-
fræðinemi, Akureyri, 7. Her-
mann Grétar Guðmundsson,
bóndi Akurbakka, Grýtubakka-
hreppi, 8. Hallsteinn Guð-
mundsson, fiskiðnaðarmaður,
Raufarhöfn, 9. Konráð Eggerts-
son, bifreiðastjóri, Húsavík, 10.
Jóhann Sigurðsson, sjómaður,
Hrísey, 11. Guðrún Sigbjörns-
dóttir, tryggingafulltrúi, Akur-
eyri, 12. Jón Helgason, formaður
Einingar, Akureyri.
Þrjú efstu sætin voru ákveðin
með bindandi úrslitum í próf-
kjöri.
Kór Tónlistar-
skólans held-
ur tónleika
KÓR Tónlistarskólans í Reykjavík,
heldur tónleika í Norræna húsinu
þriðjudaginn 22. mars, kl. 20.30.
Á efnisskránni eru lög eftir
Brahms, Distler, Kodaly og ítalsk-
ir Madrigalar. Stjórnandi kórsins
er Marteinn H. Friðriksson, en
einnig stjórna nemendur úr
Tónmenntakennaradeild. Aðgang-
ur er ókeypis.
Hoppar Mezzoforte enn
upp vinsældalistann?
„J/GJA, þá er komið að næstu gestum
okkar og þeir koma alla leið frá ís-
landi. Þetta er hljómsveitin Mezzo-
forte með sína aðra plötu. Hún ber
einfaldlega nafnið Surprise, Surprise.
I’latan kostar lítil 15 pund uppi á fs-
landi, þannig að við getum eftir allt
saman prísað okkur nokkuð sæl með
að búa á Englandi. En hér koma þeir,
gerið svo vel Mezzoforte."
Þannig kynnti breski plötusnúð-
urinn og ú^varpsmaðurinn, Tony
Blackburn, M;zzoforte í sjónvarps-
þættinum vinsæla Top of the Pops,
sem sýndur var á rás eitt í BBC á
fimmtudagskvöld. Mezzoforte kom
fram í þættinum ásamt mörgum
þekktum hljómlistarmönnum. Má
þar nefna Paul Weller, fyrrum í
Jam, Joan Armatrading, Bucks
Fizz, Bananarama, F.R. David,
Taco, Bonnie Tyler og Ultravox.
Mezzoforte flutti lagið Garden
Party, sem menn þekkja e.t.v. undir
nafninu Sprett úr spori á íslensku
útgáfu plötunnar. Samkvæmt regl-
um sambands breskra hljóðfæra-
leikara má ekki nota upptöku af
plötu sem bakgrunnstónlist, komi
hljómsveit fram í sjónvarpi í eigin
persónu.
Strákarnir urðu því að hljóðrita
lagið að nýju og var það nokkuð
styttra en upprunalega útgáfan,
auk þess sem Friðrik Karlsson tók
gítarsóló á einum stað í laginu, þar
sem áður hafði verið sóló á flugel-
horn. Þá voru bakraddir lítt áber-
andi í útgáfunni, sem leikin var í
þættinum.
í ljós kemur í dag hvort lagið
Garden Party, sem í fyrri viku var í
29. sæti vinsældalistans, tekur frek-
ara stökk upp á við. Reglan er nær
undantekningarlaust sú, að lögin
færast enn ofar á listanum eftir að
þau eru kynnt í Top of the Pops, en
á þann þátt horfa 12 milljónir
manna um allar Bretlandseyjar að
staðaldri.
Hvað er svona
merkílegt við það
að mála stofuna
fyrír páska?
Ekkert mál -
með kópal.
málninghlf