Morgunblaðið - 22.03.1983, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
21
— kastaði 85,12 metra í Los Angeles
„ÉG ÞAKKA ÞETTA fyrst og fremst þjálfurum mínum hér. Ég er mjög
ánægöur meö þá og aðstööuna alla saman. Þeir hafa unnið stórvirki og
lagaö tækni mína stórkostlega. Þessi bætti árangur er fyrst og fremst
tilkominn vegna stórbreytinga á kasttækninni. Öryggið í köstunum er
orðið miklu meira, ekki þessi sveifla sem verið hefur hjá mér. Ég held
að þetta sé aö koma hjá mér og er bjartsýnn á framhaldið," sagði Einar
Vilhjálmsson spjótkastari úr UMSB í samtali viö Morgunblaðið í gær,
en um helgina setti Einar nýtt og glæsilet íslandsmet í spjótkasti á
frjálsíþróttamóti í Los Angeles.
Einar kastaði 85,12 metra á
mótinu, en hann átti sjálfur eldra
íslandsmetið, sem var 81,22 metr-
ar, sett á ísiandsmeistaramótinu
1981. Hann kastaöi lengst í fyrra
80,64 metra.
„Ég geröi ekki ráö fyrir aö hvíla
mig fyrir þetta mót, en þar sem ég
erti dálítið gömul eymsl í baki i síð-
ustu viku, þá kom ég ekkert í lyft-
ingaherbergiö þá vikuna, og var
því afslappaöur og mjúkur til
átaka.
Viö erum mjög bjartsýnir hér,
það eru hlutir sem ég veit aö ég
get enn aukiö, tækniatriöi sem ég
á eftir aö ná betra lagi á," sagöi
Einar.
Metiö kom í öðru kasti hjá Ein-
ari, og í næstu umferð kastaöi
hann 84,44 metra, og undirstrikar
það afreksgetuna. í fyrstu umferö
kastaöi Einar 77,60 metra, „og ég
fann þá aö ég mundi kasta mjög
langt, því ég geröi mistök í fyrsta
kastinu og var reyndar hissa hvaö
þaö reyndist langt. Þjálfarinn
ákvaö aö ég skyldi hætta eftir
fjórðu umferöina, sem fór fram
hálftíma eftir þá þriðju, þar sem viö
vorum ekki aö stíla á þetta mót, en
í fjóröu umferðinni kastaði ég
79,48 metra," sagöi Einar i samtali
viö Mbl.
Glæsilegt met í spjótkasti
hjá Einari Vilhjálmssyni
• Einar Vilhjálmsson setti glæsilegt íslandsmet í spjótkasti,
kastaði 85,12 metra og bætti sitt eigið met. Einar segist eiga
von á því aö geta gert enn betur. Ljósm. Þónrinn Ragntrsson.
Brad Miley:
Var reiðubúinn til
að taka þr jú vítaskot
99
„MÉR ER alveg óskiljanlegt
hvernig hægt var að dæma á mig
þrjár sekúndur. Klukkan sýndi
Þórdís reyndi við
Norðurlandamet
Það munaði engu aö ísland
eignaöist sitt fyrsta Norðurlanda-
met í frjálsíþróttum um langt ára-
bil á laugardag, því þá var Þórdís
Gísladóttir frjálsíþróttakona úr ÍR
tvívegis aðeins hársbreidd frá því
að stökkva 1,92 metra í hástökki
og setja Norðurlandamet. En Þór-
dís setti þó alltént íslandsmet
utanhúss, því hún stökk 1,87
metra.
„Það var ansi gremjulegt að
hún skyldi ekki fara yfir 1,92, því
tvisvar var hún komin alla leið, en
kræktí í bæði skiptin í rána með
hælnum. Ég er viss um að hún á
eftir að stökkva þessa hæð, ef
ekki betur,“ sagöi Þráinn Haf-
steinsson frjálsíþróttamaöur í
samtali viö Morgunblaðið, en þau
Þórdís eru í hópi margra ís-
lenskra frjálsíþróttamanna í Ala-
bama.
Þetta var fyrsta utanhússmót
Þórdísar og því ekki slæm upp-
skera aö setja strax met, en fyrra
metið átti hún einnig, þaö var 1,86
metrar, og sett er hún varö banda-
rískur háskólameistari í fyrra. Þór-
dís varö, sem kunnugt er, banda-
rískur háskólameistari innanhúss
um síðustu helgi, stökk þá 1,88
metra, sem er að sjálfsögöu ís-
lenskt innanhússmet.
Þráinn sagði aö Þórdís heföi
beðið um hækkun í 1,90 metra eft-
ir aö hún stökk 1,87 metra, en fyrir
einhver mistök var hækkað í 1,92
metra, og komst Þórdís ekki aö því
fyrr en í lok keppninnar, þegar
mælt var aö nýju. Það þarf vart aö
taka fram að Þórdís varö yfir-
burðasigurvegari á mótinu, sem
fram fór í Gainesville á Flórída,
enda með næstbesta hástökks-
árangur bandarískra háskóla-
kvenna á nýafstaðinni innanhúss-
vertíö.
Samkvæmt heimildum Mbl. er
Norðurlandametið i hástökki
kvenna 1,91 metri og er i eigu
sænsku stúlkunnar Susanne Lor-
entzon.
—ágás.
ISLANDSMEISTARAR I FIMLEIKUM
• íslandsmeistarar í fimleikum áriö 1983. Jónas Tryggvason Ármanni og Kristín Gísladóttir Gerplu.
Þau voru vel aö sigrinum komin. Þau sýndu bæði mikla hæfni í æfingunum á mótinu og sigruðu
nokkuð örugglega. Sjá frétt á bls. 24. Lj6.mynd Krl>lján Ein>rt>on.
tvær þegar ég teygði mig fram og
náði boltanum og þá var brotið
illa á mér,“ sagöi Brad Miley eftir
leikinn. „Þegar dómarinn rétti
upp þrjá fingur var ég viss um að
ég hefði fengið þrjú vítaskot og
geröi mig kláran til þess að taka
þau. Ég vissi varla hvaðan á mig
stóö veðrið þegar ég sá aö hann
hafði dæmt Valsmönnum bolt-
ann. Hvílíkur dómur.
— Það var sárt að tapa þess-
um leik, en einhver verður að
tapa. Lið okkar getur að mörgu
leyti vel við unað. Við höfum
staðið okkur mjög vel í vetur. Við
getum veriö stoltir af því að hafa
leikið til úrslita gegn Val um titil-
inn. Sjá bls. 25. — ÞR
Einar vann mótiö örugglega,
kastaöi 10 metrum lengra en næsti
maöur. Árangur hans er sá bezti,
sem nokkru sinni hefur náöst í
suövesturríkjum Bandaríkjanna frá
upphafi, og segir þaö ekki litla
sögu um ágæti afreksins. Þá er
árangur Einars nýtt skólamet.
Hann bætti eldra metiö um fimm
metra. Þetta er jafnframt bezti
árangur sem náöst hefur í spjót-
kasti í Bandaríkjunum á þessu ári.
„Ég verö aö segja þér alveg eins
og er, aö ég er mjög bjartsýnn á
komandi sumar og geri ráð fyrir að
ég eigi eftir aö vinna mikið meira
úr því sem ég hef verið aö gera í
vetur. Ég hef aldrei æft jafn grimmt
og í vetur og er staðráöinn í aö
stíla inn á heimsmeistaramótiö í
ágúst. Það er langt í frá aö mér
finnist ég vera kominn í þaö líkam-
lega form, sem ég ætlaöi mér aö
vera í. Nú er bara aö halda sér frá
meiðslum og vera skynsamur, því
eins og við vitum er þetta andskoti
meiöslasöm íþróttagrein," sagöi
Einar aö lokum. __ ágás.
Bjarni sigraói
fimmta ário í
HINN snjalli júdómaður Bjarni
Friðriksson, Ármanni, varð ís-
landsmeistari I opnum flokki í
júdó fimmta árið í röð, síðastlið-
inn laugardag er keppt var (
opnum flokkum á íslandsmótinu í
íþróttahúsi Kennaraskólans.
Bjarr.i glímdi til úrslita við Kol-
bein Gíslason úr Ármanni, harð-
skeyttan júdómann, og var glíma
þeirra jöfn og spennandi. Bjarni
sýndi þó og sannaði aö hann er
okkar fremsti júdómaður. Hann
glímdi mjög vel og vann sinn
fimmta sigur í röð í þessu móti.
Gott afrek hjá Bjarna. Átta kepp-
endur tóku þátt í opna flokknum
og var keppt í tveimur riðlum. Úr-
slit urðu þessi:
Karlar:
1. Bjarni Friöriksson, Árm.
2. Kolbeinn Gíslason, Árm.
3—4. Siguröur Hauksson, UMFK
3—4. Magnús Hauksson, UMFK
Konur:
1. Margrét Þráinsdóttir, Árm.
2. Lisbeth Nedelberg, (gestur)
3. Eygló Siguröardóttir, Árm.
Margrét sigraöi örugglega alla
keppinauta sína, þeirra á meöal
dönsku stúlkuna, sem keppti sem
gestur mótinu.
Á laugardaginn kemur, 26.
mars, verður þriðji og seinasti hluti
íslandsmótsins í júdó. Veröur þá
keppt í flokkum júníora 17—19 ára
og í flokkum unglinga 14—16 ára
og ennfremur í þyngdarflokkum
kvenna.
v m
• Bjarni Friðriksson, sterkasti
júdómaður landsins um langt
árabil. Hann varð fslandsmeistari
í opnum flokki um helgina
fimmta áriö í röð.