Morgunblaðið - 22.03.1983, Side 22

Morgunblaðið - 22.03.1983, Side 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 Minningarkapella Hrafn- istu vígð á sunnudaginn Sér Sigurður H. Guðmundsson messar í nýju kepellunni á sunnudaginn. f baksýn má sjá herra Pétur Sigurgeirsson biskup, en hann vígði kapell- una. Á SUNNUDAGINN var vígð kap- ella í nýju álmu Hrafnistuhússins í Hafnarfirði. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, vígði kapelluna, en sóknarprestur Víði- staðasóknar, séra Sigurður H. Guðmundsson, messaði. Kapell- an er kostuð af minningargjöfum sem gefnar hafa verið í heilsu- gæslusjóð Hrafnistu, og heitir kapellan Minningarkapella Hrafnistu. Geta gefendur fest upp skildi í kapellunni til minn- ingar um látna vini og ættingja. Þegar hafa verið festir upp fjórir slíkir skildir. Það var Halldór Guðmunds- son arkitekt sem hannaði kap- elluna, en Halldór teiknaði hús Hrafnistu í Hafnarfirði. Við altarið eru tveir gluggar sem Gunnar Hjaltason hefur unnið Þarna sjást gluggarnir tveir úr steindu gleri sem Gunnar Hjaltason gerði. Myndirnar eru af Guðmundi góða og heilögum Þorláki. í myndir úr steindu gleri. Myndirnar eru af Guðmundi góða og heilögum Þorláki og í baksýn eru Hólar og Skálholt. Séra Sigurður H. Guðmundsson sagði að þetta væri táknrænt, og ætlað til að minna á að stól- arnir á Hólum og Skálholti voru fyrstu stofnanirnar hér- lendis sem beittu sér fyrir elli- þjónustu. Þá sagði Sigurður að kapellan væri fyrst og fremst hugsuð sem staður þar sem fólk gæti komið hvenær sem er og verið eitt með sjálfu sér og guði sínum. Þu þarfft á henni a& halda Bokin ISLENSK FYRIRTÆK11983 er komin Fyrirtækjaskrá Umboðaskrá Vöru- og þjónustuskrá Skrá yfir vörusýningar erlendis Skipaskrá Dagbók Hringið og pantið eintak sími82300 FRJÁLST FRAMTAK hf. Utgáfa timarita og bóka, auglýsingagerð og ráðgjöf. Armúla 18-105 Reykjavík-Ísland-Sími 82300 Höfum ákveðið að bíða átekta og fylgjast með framvindu mála — segir í yfirlýsingu „frjáls- lyndra sjálfstæðismanna“ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfírlýsing frá „frjáls- lyndum sjálfstæðismönnum“. Undir yfirlýsinguna rita nöfn sín Benedikt Bogason, Sveinn Björnsson og Gunnar Bachmann. „Á undanförnum árum hefur flokksræði og óbilgirni færst í vöxt innan Sjálfstæðisflokksins. Um leið og þessi þróun hefur gengið gegn helstu markmiðum Sjálfstæðisflokksins um lýðræði og einstaklingsfrelsi, hefur hún valdið vaxandi óánægju og kvíða hjá fjölmörgum Sjálfstæðis- mönnum. Þótt benda megi á, að lítill ágreiningur hafi komið fram um þá víðsýnu stefnumótun, sem flokkurinn hefur að jafnaði sett fram í þjóðmálum, er hinu ekki að leyna, að einstrengingsleg öfl inn- an flokksins hafa frekar sinnt öðr- um málum en þeim, er varða ein- staklinginn og frelsi hans til at- hafna. Með þessu telja margir Sjálf- stæðismenn að flokkurinn hafi brugðist stefnu sinni. Þrátt fyrir málefnalegt andóf gegn þessari þróun innan flokks- ins, hefur það komið æ betur í ljós á undanförnum mánuðum, að í stað tillitssemi og umburðarlynd- is, stefnir nú í átt til aukins flokksræðis, sem þrengja muni flokkinn utan um harðan kjarna fárra, gegn fjöldanum. Með þessu er hinu breiða fylgi Sjálfstæðisflokksins stefnt í voða. Þar sem óvíst var, hvort hinn mik- ilhæfi baráttumaður okkar fyrir frelsi, víðsýni og umburðarlyndi, dr. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra, yrði í framboði til kom- andi alþingiskosninga, töldum við brýna nauðsyn til þess að láta á það reyna, hver styrkur hans væri í þessari baráttu, innan flokks sem utan, til þess að sporna gegn þessari óheillaþróun í Sjálfstæðis- flokknum. Því var afráðið að skora á dr. Gunnar með undirskriftum að leiða sjálfstætt framboð til komandi kosninga. Undirtektir hafa verið með ágætum, og auk þess hafa forsæt- isráðherra borist fjölmargar áskoranir frá Sjálfstæðismönnum um land allt. Því er ekki að neita, að þessar áskoranir hafa mætt harðri and- stöðu hinna þröngu flokksræðis- afla í Sjálfstæðisflokknum, eins og við var að búast, en þó ber þess að geta, að málsvarar samlyndis og flokkseiningar hafa eindregið hvatt til þess, að beðið yrði átekta, þar sem þeir telja hilla undir frá- hvarf frá einstefnu og óbilgirni. Við höfum í lengstu lög viljað trúa því, að um síðir rofaði til í flokkserjum Sjálfstæðismanna, svo aftur næðist jafnræði milli ólíkra sjónarmiða í stórum Sjálfstæðisflokki og flokkurinn gæti á ný orðið það baráttuafl í þjóðmálum, sem hann fyrrum var. Nú hefur dr. Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi kosningum, og höfum við því ákveðið að bíða átekta, en fylgjast vel með framvindu mála.“ Skagafjörður: Rökkurkórinn syng- ur í Miðgarði Mælifelli, 15. marz. RÖKKURKÓRINN hélt söngskemmt un f Miðgarði sl. laugardagskvöld fyrir fullu húsi og við ákaflega góðar undir- tektir. Kórfélagar eru 48, aðallega úr Akra-, Seylu- og Lýtingsstaðahreppum og er þetta fjórði veturinn, sem hann starfar. Söngstjóri í vetur er Gróa llreinsdóttir, tónlistarkennari f Varmahlíó. Dagskrá tónleikanna var mjög fjölbreytt, enda bæði söngstjóri og söngfólk fjölhæft, var bæði einsöng- ur og tvísöngur, karlakvartett, sér- stakur kvennakór og gamanmál í ljóði. Einsöngvarar voru Þuríður Þorbergsdóttir, Sigfús Pétursson og Gróa Hreinsdóttir, einnig sungu þær Þuríður og Gróa dúett, en und- irleikarar voru Einar Schwaiger, Gróa söngstjóri og Heiðmar Jóns- son. 2 kórfélagar skemmtu börnun- um í gerfi músarinnar og refsins úr „Dýrunum í Hálsaskógi", þeir Jó- hann Guðmundsson og Helgi Bald- ursson, en sá síðarnefndi kynnti líka dagskrána á smellinn hátt. Söngskemmtunin verður endur- tekin nk. þriðjudagskvöld, 22. marz, og munu áreiðanlega margir vilja eiga skemmtilega kvöldstund með þeim Rökkurkórsfélögum G.LÁsg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.