Morgunblaðið - 22.03.1983, Side 31

Morgunblaðið - 22.03.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 39 F A 8 4 10/12 Nýtt nafn í báta- flota Akurnesinga Akranesi, 17. mars. NÝVERIÐ hefur Haraldur Böðv- arsson & Co. hf. á Akranesi keypt hluta Guðjóns Bergþórssonar skip- stjóra í m/s Sigurfara AK 95, en þessir aðilar hafa verið eigendur hans undanfarin ár. Nafni skipsins hefur verið breytt og heitir það nú Höfrungur AK 91. Þetta nafn er gamalkunn- Vilja útibú Alþýðubankans á Akureyri Á FUNDI, sem haldinn var að til- hlutan Alþýðusambands Norður- lands, með stjórnum verkalýðsfé- laga á Akureyri, var eftirfarandi til- laga samþykkt samhljóða: „Sameiginlegur fundur stjórna verkalýðsfélaga á Akureyri, hald- inn 17. febrúar 1983, að Hótel Varðborg, skorar á viðskiptaráð- herra að samþykkja nú þegar um- sókn Alþýðubankans hf. um stofn- un útibús frá bankanum á Akur- eyri.“ Að samþykktinni stóðu stjórnir eftirtalinna verkalýðsfélaga: Fé- lag málmiðnaðarmanna, Akur- eyri, Félag verslunar- og skrif- stofufólks, Akureyri, Iðja, félag verksmiðjufólks, Akureyri, Raf- virkjafélag Akureyrar, Sjómanna- félag Eyjafjarðar, Trésmiðafélag Akureyrar, Verkalýðsfélagið Ein- ing og Vörubílstjórafélagið Valur. ugt í flota Akurnesinga, því fyrir röskum áratug átti HB & Co. hf. þrjú skip með þessu nafni, sem öll voru velþekkt aflaskip. Höfrungur AK 91 er smíðaður í Noregi 1975, en síðan lengdur og yfirbyggður 1978, hann er 422 brúttótonn að stærð. Upphaflega hét þetta skip Árni Sigurður AK 370 og var þá einnig gert út frá Akranesi. Guð- jón Bergþórsson verður áfram skipstjóri á skipinu. J.G. Höfn: Vertíðin fór hægt af stað vegna ógæfta llofn, HornafirAi, 16. marz. VERTÍÐ hjá Hornafjarðarbátum hófst upp úr áramótum, en fór hægt af stað, einkanlega vegna mikilla ógæfta. Nokkrir bátar byrjuðu með línu, en aflinn yfirleitt lítill, svona að meðaltali um 5 tonn í róðri. í byrjun febrúar byrjuðu þeir bátar, sem ekki reru með línu, að leggja net sín og svo allir bátar upp úr því, en aflinn kom ekki og ótíðin hélst. Alls var ætlað að 22 bátar stunduðu róðra héðan, en einn bátur, Akurey, heltist úr lestinni og kemur tæplega á þessa vertíð. Gert er ráð fyrir að viðgerð á henni verði vart lokið fyrr en í maí. Heildarafli hér frá áramótum er 4.441 lest í 546 sjóferðum, en á sama tíma í fyrra var aflinn 5.923 lestir í 550 róðrum, er það 1.432 lestum minna. 3 hæstu bátar nú eru Sigurður Ólafsson með 309 lestir í 30 sjó- ferðum. Hvanney með 296 lestir í 40 sjóferðum. Hún var bæði með línu og net. Garðey með 278 lestir í 27 sjóferðum. Til samanburðar voru 3 hæstu bátar í fyrra á sama tíma Hvanney með 548 lestir í 29 sjóferðum, Haukafeil með 406 lestir í 22 sjóferðum og Vísir með 398 lestir í 34 sjóferðum. Hjá fiskverkun KASK landa 17 bátar, bæði til frystingar og í salt. Afli þar er 3.798 lestir, og hjá Stemmu landa 4 bátar og er afli þeirra 643 lestir, eingöngu í salt. (aunnar Leiðrétting f (iREIN í Morgunblaðinu, „Af inn- lendum vettvangi", sem birtist á laugardag síðastliðinn, slæddist inn sú villa í myndatexta að Reykjavík- urborg hefði fengið land í Viðey í makaskiptum við Iðnaðarbankann. Það er ekki rétt, eins og sést, ef greinin er lesin, því þar kemur fram að umrædd makaskipti voru gerð við Útvegsbanka íslands. Beð- ist er velvirðingar á þessum mis- tökum. FACIT NyKrona hin hljódláta bylting Facit 8000,8100 og 8110 - ný kynslóð ritvéla sem búin er rafeindatækni tölvualdar. Fislétt leturkróna, NyKrona færir þér hljóðláta en eldfljóta prentun, jafnan áslátt og fallegri áferð en nokkru sinni fvrr. Facit NyKrona býður þér fjölmarga tæknilega yfirburði. Vélin sér um sjálfvirka upp- færslu og línuskiptingu, línuminnið gerir þér kleift að vélrita stöðugt um leið og þaðauð- veldar einnig leiðréttingar, sjálf virkur talnadálkastillir tryggir þér margfaldan tímasparnað og margt fleira léttir þér störfin á margvíslegan hátt. Facit 8000 er einfaldasta ritvélin í NyKrona línunni, en engu að síður búin öllum þeim tækniyfirburðum sem máli skipta þegar vélritun þarf að vera lipur, hröð og þægileg. Með Facit 8100 og 8110 nálgast þú ritvinnslukerfi tölvualdarinnar enn frekar. Þú tengir þær við tölvu- eða telexkerfi skrifstofunnar og tæknivæðir hana til frambúðar. framtíðarþekking í nútímaþágu - . GÍSLI J. JOHNSEN ri ~\ SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF I I Smiójuvegi 8 - Simi 73111 Umboðsmenn á Akuieyri Skrifstofuval hf. Kaupangi v Mýrangöai sími(%) 25004

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.