Morgunblaðið - 22.03.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
„Og enn syngja launþegalorsprakkarnir hástöfum gamalkunna sönginn um hið mikla erfiði, sem þeir verða að leggja
á sig vegna „hinna lægst launuðu". En hver er svo reyndin? Raungildi kaups láglaunamanna rýrnar stöðugt, meðan
topplaunamenn skara eld að sinni köku.“
Væri ekki
tilvalið að
fá Culture
Club hingað?
Tvær tólf ára skrifa:
„Velvakandi.
Er ekki hægt að fá hliómsveit-
ina Culture Club til lslands í
sumar? Hún er búin að fara til
allra Evrópulanda nema tslands.
Hljómsveitin hefur orðið þekkt
fyrir lögin sín „Tirne" og „Do You
Really Want to Hurt Me?“ og er
langvinsælasta hljómsveitin núna.
Lagið „Time“ er nú í fyrsta sæti á
vinsældalistanum og „Do You Re-
ally Want to Hurt Me?“ var þar
heillengi.
Væri ekki alveg tilvalið að fá
hljómsveitina hingað í sumar, þar
sem hún er best um þessar mund-
ír
Að baki Tímans
tjalda
E.E. skrifar:
„Á flokksþingi Framsóknarflokksins urðu harðar deilur um
starfsemi Tímans og þótti mörgum flokksmönnum blaðið fara
versnandi. Ekki verður séð, að blaðið hafi batnað síðan. Um sl.
áramót var Jónasi Guðmundssyni rithöfundi vikið frá og kvaddi
hann fyrirtækið fremur kuldalega með grein í D.V. Ein nýbreytni
er þó tvímælalaust til bóta, því að nú birtast í Helgar-Tímanum
cocktail-uppskriftir sem koma munu lesendum blaðsins að góðum
notum:
1.
Sjást að baki Tímans Tjalda
tötrughypjur skuggavalda.
Merlar urðarmánaskini,
markað vaðli blaðsins svið.
Grýlukerti gefa mið,
greina má þar falska vini.
Mæðir flokksins mæta syni
Möðruvallafíflalið.
Helgisiðum hvergi breyta,
hrútum djúpa lotning veita.
Sauðvitrir í svaðið troða
sjálfumglaðan stýrimann.
Mannvit setja í mesta bann,
menningunni stefna í voða.
Sálmabækur sínar skoða,
sinna rækt við boðskap þann.
Batna munu bænda hættir
blöndu nýrri höldar kættir,
hanastél um helgar teygar
hver og einn í gleði og frygð.
Vænkast ráð um víða byggð,
veldi Tímans hvergi geigar.
Droplaug byrlar dýrar veigar,
Dóra veldur gremju og hryggð."
GÆTUM TUNGUNNAR
Dagatal
fylgiblaðanna
* ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM *
IÞROTTA
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
Alltaf á föstudögum
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
ALLTAF Á SUMINUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fróðleikur og skemmtun
Mogganum þinum!
fttaqjtitiMiifrffr
Boy George, söngvari Culture Club.
Sést hefur: Hann vann sér góðan orðstý.
Rétt væri: Hann gat sér góðan orðstír.