Morgunblaðið - 25.03.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
5
Kagnhildur Darfð
Pétur
Sólrún
Hádegisfundur
um endurreisn
atvinnulífsins
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjavík, Heimdallur,
Hvöt, Óðinn og Vörður, munu halda almennan hádegis-
fund um atvinnumál laugardaginn 26. mars nk. frá kl.
12:00—14:00 í Valhöll við Háaleitisbraut.
Fundur þessi er sá fyrsti af þremur hádegisfundum
sem haldnir verða fram að kosningum um mál sem
Sjálfstæðisflokkurinn leggur mikla áherslu á í komandi
kosningum.
Á þessum fyrsta fundi á laug-
ardaginn verða frummælendur
fjórir, þ.e. Davíð Scheving Thor-
steinsson iðnrekandi og þrír af
frambjóðendum flokksins í kom-
andi alþingiskosningum, Pétur
Sigurðsson, Ragnhildur Helga-
dóttir og Sólrún B. Jensdóttir. Að
loknum ræðum frummælenda
Erna
gefst fundarmönnum tækifæri til
að bera fram fyrirspurnir.
Fundarstjóri verður Erna
Hauksdóttir, viðskiptafræðinemi.
Á boðstólnum verður léttur há-
degisverður á vægu verði fyrir
fundargesti. I kjallara Valhallar
verða teiknimyndir sýndar fyrir
börn fundargesta og barnagæsla.
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Ellilífeyrisþegar fá
afslátt - og börn und-
ir 4ra ára aldri frítt
„Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
ákveðið, að þeir ellilífeyrisþegar á
aidrinum 67—70 ára, sem njóta
tekjutryggingar frá Tryggingarstofn-
un ríkisins, skuli eiga kost á sama
afslætti á fargjöldum SVR og nú
býðst ellilífeyrisþegum, 70 ára og
eídri. Farmiðaspjöld aldraðra og ör-
yrkja eru seld gegn framvísun
nafnskírteinis á afgreiðslustöðum
SVR á Hlemmi og Lækjartorgi frá
og með 28. þ.m.
Jafnframt hefur stjórn SVR
samþykkt, að börn innan fjögurra
ára aldurs, í fylgd með fullorðn-
um, ferðist endurgjaldslaust með
vögnum fyrirtækisins."
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu, sem Morgunblaðinu
barst í gær frá Strætisvögnum
Reykjavíkur. Sveinn Björnsson,
formaður verðlagsráðs, sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær, að þetta mál væri
að sínum dómi óháð lögbannsmál-
um þeim er í gangi hafa verið milli
embættis verðlagsstjóra og borg-
aryfirvalda. Þetta hefði ekki verið
kynnt verðlagsstofnun á neinn
hátt, eða borið undir hana.
Sveinn sagði einnig, að öll þessi
Landsvirkjun:
Fimm sóttu
um stöðu
forstjóra
Umsóknarfrestur um starf fram-
kvæmdastjóra Landsvirkjunar rann
út 23. þ.m., og bárust Hmm umsóknir
um starfið.
Umsækjendur eru Gísli Júlíus-
son, deildarverkfræðingur hjá
Landsvirkjun, Halldór Jónatans-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar, Jóhann Már Marí-
usson, yfirverkfræðingur Lands-
virkjunar, og Kári Einarsson, for-
stöðumaður tæknideildar Raf-
magnsveitna rikisins. Fimmti um-
sækjandinn óskaði eftir nafnleynd.
mál væru nú í athugun innan
verðlagsráðs og hjá verðlags-
stjóra. Á meðan þeirri athugun
væri ekki lokið, sagði hann verð-
lagstjóra hafa fallist á að „doka
við“ og aðhafast ekkert í málinu í
bili, að ósk verðlagsráðs.
Solin hækkar á lofti
voriö er á næsta leiti
viö erum komin meö
nýjar fallegar vorvörur
frá Frakklandi, ítalíu,
Hollandi og Englandi.
Austurstræti 22
Má bjóöa þér í 10 ára afmæli Útsýnar í Lignano?
ítölsk helgi í Reykjavík 25.—27. marz á vegum
Feröamálaráös Lignano og Útsýnar
Itölsk
barna- og fjölskylduhátíð
áNb**
BICCAIDWAT
sunnudaginn 27. marz kl. 14.00.
Kynning á hinum afburðavinsæla fjölskyldustað Lign-
ano meö glæsilegri aðstöðu á „gullnu ströndinni"
fyrir börnin, foreldrana og ótal tækifærum fyrir ungt
fólk á öllum aldri til að njóta lífsins í sumarleyfinu.
Ströndin í Lignano sett upp á sviöi Broadway.
Lína Langsokkur kemur i heimsókn.
Garðabæjarkórinn syngur undir stjórn Guöfinnu D.
Ólafsdóttur. Hin unga söngstjarna Ingunn Gylfadóttir
kynnir nýútkomna plötu sína.
Kynnir: Bryndís
Schram, ritstjóri
og fararstjóri.
Aðgöngumiðar á kr.
25,00 í Broadway í dag,
sími 77500.
Húsið opnað kl. 13.30.
Krakkar — Krakkar
Endur og hendur — stórglæsilegur barnafatnaöur.
Modelsamtökin sýna.
Danshópur frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar
sýnir dans og margt fleira til skemmtunar. En aö
lokum veröur stórfenglegt gjafa-happdrætti með
itölskum leikföngum og ítalskir vinir okkar leysa aö
lokum öll börnin (sem aöeins fá aðgang með full-
orðnum) út meö ítölskum páskaeggjum.
Stórbíngó —
Aðalvinningur 2ja vikna
sumarleyfisferð til
Lignano fyrir
alla fjölskylduna.
?roaskrifstofat»
Velkomin á
ítalska hátíð
í Broadway