Morgunblaðið - 25.03.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.03.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983 29 Guðbjörn Guðmundsson prentari - Kveðjuorð Fjórtán voru þeir unglingarnir í unglingadeild KFUM sem komu saman í húsi KFUM hinn 11. maí 1911 til að stofna knattspyrnufé- lag, sem hlaut nafnið Valur. Séra Friðrik Friðriksson var hlynntur þessu framtaki, en leyfi séra Frið- riks þurfti að koma til, sem og var fyrir hendi. Það var m.a. fyrir forgöngu Guðbjörns Guðmundssonar að þetta tókst. Nú eru allir frumherj- arnir horfnir yfir móðuna miklu, en síðastur kvaddi Guðbjörn Guð- mundsson, en hann lést 13. þ.m., 88 ára að aldri. Með andláti Guðbjörns á Valur ekki aðeins að sjá á bak frumherj- anum, heldur einnig góðum og merkum félaga, sem ætíð lét sig miklu skipta hag og heill félags- ins. Hann fylgdist með öllum fé- lagslegum hræringum innan Vals. Hann gladdist yfir velgengni fé- lagsins inná við, sem útá við en harmaði þegar miður gekk. Guðbjörn var meðlimur full- trúaráðsins. Hann lét sig aldrei vanta á fundi þess og fylgdist sér- lega vel með og lagði ætíð gott til mála. Það var gaman og jafnframt lærdómsríkt að hlusta á Guðbjörn rifja upp endurminningar sínar um gamla daga í Val, bæði í frá- sagnarformi á fundum eða (einka- samtölum. Frásögn hans var lif- andi og fjörug enda minnið trútt og áhuginn eftir því. Þó umsvifin fram eftir árum væru ekki stór- brotin, barið saman við seinni árin og frumbýlingsbragur á hlutun- um, var samt ýmislegt gert sem glæddi áhugann og samstöðuna. Farið í ferðalög ýmist gangandi eða á hjóli, ruddir knattspyrnu- vellir, efnt til skemmtana o.fl. Guðbjörn var gerður heiðursfé- lagi Vals á 20 ára afmæli félags- ins. Með Guðbirni Guðmundssyni er síðasti stofnfélaginn og sá sem beitti sér hvað mest fyrir því að Valur varð til — hann var óum- deilanlega brautryðjandinn — horfinn. Við kveðjum þig hinstu kveðju þakklátum huga, jafnframt því sem við minnumst hinna stofnfélaganna nú á þessari stundu. Innilegar samúðarkveðjur eru sendar ættingjum, venslafólki og vinum Guðbjarnar. Knattspyrnufélagið Valur. Frá undankeppni íslandsmótsins I sveitakeppni. Sveit Aðalsteins Jörg- ensens frí Hafnarfirði komst nokkuð öruggleag í úrslitakeppnina f fyrsta sinn. Hér spilar „kapteinninn" ásarat spilafélaga sínum, Stefáni Pálssyni, gegn sveit Gunnars Þórðarsonar frá Selfossi. Forseti Bridge- sambandsins, Kristófer Magnússon, fylgist með gangi mála. Bridge Arnór Ragnarsson Bridgefélag kvenna Staðan í aðalsveitakeppninni eftir 6 umferðir er þessi: Alda Hansen 81 Þuríður Möller 72 Aldís Schram 72 Sigríður Ingibergs 69 Hrafnhildur Skúladóttir 69 Gunnþórunn Erlingsdóttir 68 Hermann Tómasson — Ásgeir Stefánsson 184 Viðar Guðmundsson — Pétur Sigurðsson 112 Ragnar Björnsson — Þórarinn Árnason 108 Hannes Ingibergsson — Jónína Halldórsdóttir 98 Þorsteinn Þorsteinsson — Sveinbjörn Axelsson 90 Sigurður ísaksson — Edda Thorlacíus 82 Stefán Ólafsson — Valdimar Elíasson 78 Gísli Benjamínsson — Jóhannes Sigvaldason 54 Hermann Ólafsson — Gunnlaugur Þorsteinsson 32 Bridgefélag Hornafjarðar Staðan í sveitakeppninni er nú þessi: Sv. Jóns Gunnarssonar 65 (2 leikir eftir). Sv. Skeggja Ragnarssonar 63 (2 leikir eftir). Sv. Árna Stefánssonar 40 (1 leik- ur eftir). Sv. Svövu Gunnarsdóttur 39 (1 leikur eftir). Sv. Björns Gíslasonar 38 (3 leikir eftir). Bridgedeild Barð- strendingafélagsins Mánudaginn 21. marz lauk Barómeterkeppni félagsins með þátttöku 26 para. Sigurvegarar urðu Ragnar Þorsteinsson og Helgi Einarsson. Úrslit: sUg Ragnar Þorsteinsson — Helgi Einarsson 222 Bridgefélag Hafnarfjarðar Þegar spilaðar hafa verið 14 umferðir í Barómeter-tvímenn- ingi félagsins er staða efstu para eftirfarandi: stig Aðalsteinn Jörgensen — Stefán Pálsson 140 Björn Eysteinsson — Guðmundur Hermannsson 140 Kristófer Magnússon — Guðbrandur Sigurbergssonl33 Árni Þorvaldsson — Sævar Magnússon 131 Ragnar Magnússon — Rúnar Magnússon 127 Ólafur Valgeirsson — Ágúst Helgason 109 Eins og sjá má hefur færst mikil spenna í mótið eftir að for- setinn og Guðbrandur hófu að gefa út punkta og töpuðu í fyrsta sinn forystunni í mótinu. Næstu umferðir verða spilaðar nk. mánudagskvöld 28. 3. og samkv. venju hefst baráttan stundvfs- lega kl. 19.30. OTRULEGT! Vegna hagstæöra innkaupa getum viö boöið fjölmargar geröir af hinum landsþekktu SUPERIA reiöhjólum á ótrúlega lágu veröi: Gerö „Touring" 10 gíra 28“ ..................... Kr. 3.035 Gerö „Minerva" gíralaust 28“ ................... kr. 3.095 Gerö „Diana“ 5 gíra 28“ ........................ kr. 3.750 Gerö „Bristol“ gíralaust 26“ ................... kr. 3.800 Gerö „Voyager“ 10 gíra 28“ ......................T<r4r4QQ- Stelpu eöa strákahjól gíralaust 24“ ............. kr.2.250 Stelpu eöa strákahjól 4 gíra 24“ ............... kr. 2.800 Gerö „Vivi“ barnahjól gíralaust 16“ ............ kr. 2.140 Nú er um aö gera aö hafa hraöan á og tryggja sér nýtt Superia hjól fyrir voriö, því aöeins er um takmarkaöan fjölda hjóla aö ræöa. Góöir greiðsluskilmálar. Sendum í póstkröfu um land allt. Opiö til kl. 16 á laugardag. 10 gíra hjól frá kr. 3.095 superiaH Hjól & Vagnar super h)ói a super »erði Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik, Simi 21511 POLAROID augnabliksmyndir hrókur alls fagnaðar í fermingarveislunni TILBOÐ TILVALIN FERMINGARGJÖF Þú sparar meira en 500 kr! )% afsláttur Polaroid 1000 Áöur Nú aö- eins myndavél meö flash 1.438 865 Polaroid 5000 * myndavél meö autofocus og flash 1.637 985 Polaroid augnabliksmyndir eru fallegar, litríkar og skarpar. LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811 Gríptu gæsina meðan hún gefst!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.