Morgunblaðið - 25.03.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.03.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983 15 Á þessari mynd sjást bækistöðvar Sovétraanna í Lourdes á Kúbu. Um er að ræða stærstu njósna- og fjarskiptastöð heims. Stöð þessi er innan við 200 km frá Bandaríkjunum. símamynd ap. Ræða Reagans fordæmd í Sovétríkjunum: Gervihjartaþeginn Barney Clark látinn William Devries stendur við hlið Barney Clarke eftir að gervihjartanu hafði verið komið fyrir í honum. að hjartanu var komið fyrir í hon- um. Að sögn lækna voru margir samverkandi þættir þess valdandi að Clark lét lífíð, en dauði hans var sagður hafa verið sársaukalít- ill og tekið skjótt af. Líkið verður krufíð á næstu dögum. „Dr. Clark var ótrúleg mann- gerð. Hann var ákaflega hug- rakkur og sterkur, andlega jafnt sem líkamlega," sagði William C. Devries, sá er kom gervihjartanu fyrir í Clark á sínum tíma. Clark hafði verið með talsverð- an hita í tæpar tvær vikur áður en dauða hans bar að höndum um kl. 5 að íslenskum tíma í nótt. Nýru hans voru hætt að starfa eðlilega og ástand hans fór versn- andi með hverri klukkustund sem leið. Læknum kom þvi dauði hans ekki á óvart. Salt Lake-borg, 24. mare. AP. Gervihjartaþeginn Barney Clark lést í nótt í læknamiðstöðinni við háskólann í Utah, 112 dögum eftir SOVIET COMMUNICATIONS INTELLIGENCE FACILITY LOURDES, CUBA ANTENNA FIELDS SATELLITE RECEIVERS SOVIET HEADQUARTERS Tass segir afstöðu Bandaríkja- stjórnar jafn óraunsæja og fyrr ERLENT Moskvu, 24. mars. AP. SOVÉTRÍKIN vöruðu í dag við því, að uppsetning nýs varnarkefís á borð við það, sem Ronald Reagan lýsti í ræðu sinni í gær, bryti í bága við núverandi samninga ríkjanna tveggja. 1 opinberri yfirlýsingu frá Tass-fréttastofunni sagði að hugmyndir Reagans um ný vopn, sem grandað gætu sovéskum flaugum á flugi, væru skref í þá átt að ná hernaðarlegum yfir- burðum gagnvart Sovétríkjunum og myndu raska því hernaðar- jafnvægi, sem nú væri í heimin- um. Þá sakaði Tass Bandaríkjafor- seta í annarri yfirlýsingu um að reyna að skapa einhvers konar hernaðarmóðursýki til þess að styðja áætlanir sínar um stór- aukin útgjöld til varnarmála. Sagði Tass, að stöðgut væri reynt að heilaþvo bandarískan almenn- ing með hættunni, sem stafaði af sovéskum vopnum. Þetta væri gömul brella, sem enginn félli lengur fyrir. „Sjónvarpsræða Reagans und- irstrikaði það enn einu sinni, að Bandaríkjastjórn situr enn við sama óraunsæja heygarðshornið og virðir að vettugi kröfur meiri- hluta kjósenda að þegar í stað verði gripið til skjótra og áhrifa- ríkra aðgerða til þess að stemma stigu við vígbúnaðarkapphlaup- inu,“ sagði einnig í yfirlýsingu Tass. Mynd þessi sýnir sovéskar orrustuþotur af gerðinni MIG-23 og MIG-21 á flugvelli í vesturhluta KÚbu. Símamynd AP. Viðbrögð við ræðu Reagans í Evrópu: Ummæli forsetans eins og í vísindaskáldsögu London, 24. mars. AP. VIÐBRÖGÐ evrópskra fjölmiðla við þeirri yfirlýsingu Reagans Bandaríkja- forseta, að Bandaríkin hygðust koma sér upp varnarkerfí, sem fært væri um að eyða sovéskum flaugum á flugi, voru í flestum tilvikum á þann veg, að þeim fundust ummælin líkust hluta úr vísindaskáldsögu. Blöð slógu upp frettum með fyrirsögnum á borð við „Geisla- byssur forsetans" og „Kjarnorku- vopnin úrelt" og fleiru í þeim dúr. Ræða forsetans var ekki tekin til umfjöllunar í leiðurum vestrænna blaða fyrir þá sök, að hún birtist svo seint í nótt. Opinbera pólska fréttastofan, PAP, sagði í yfirlýsingu ummæli forsetans með ólíkindum og hugmyndina stefna öryggi alls mannkyns, þar með talið Banda- ríkjamanna, í stórhættu. Sagði fréttastofan einnig, að ef Bandaríkjamenn hæfu fram- kvæmdir á þessu sviði væri ekki hægt að búast við öðru en Sovét- menn gripu til svipaðra aðgerða. Jonathan Alford, aðstoðaryfir- maður ALþjóða herfræðistofnun- arinnar í Lundúnum, sagði að margir vísindamenn myndu taka ummælum forsetans með fyrir- vara, sérstaklega með tilliti til laser-geislans, sem forsetinn sagði geta grandað sovéskum flaugum á flugi. „Þetta er gífurlega erfitt tækni- verkefni," sagði Alford „og ég er þeirrar skoðunar, að það kunni að reynast svo örðugt í framkvæmd að við þurfum ekki að gera okkur vonir um að af því geti orðið." Um möguleikana á því að granda langdrægum eldflaugum á flugi, sagði Alford, að það kynni vel að vera hugsanlegt, en miklu erfiðara væri að stöðva eldflaugar, sem hefði minna flugþol og notað- ar væru á nálægari skotmörk. Gunnar Gunnarsson hefur um langt skeið venð einn virtasti höfunci- ur á Norðurlondum Ritsafn Gunnars Gunnarssonar J v. j \ Saga Borgaraettarmnar Vargur i véum Svartfulg Sælir eru einfaldir Fjallkirkjan 1 Jón Arason Fjallkirkjan II Sálumessa Fjallkrikjan III Fimm fræknisögur Vikivaki Dimmufjöll Heiðaharmur Fjandvinir S r a_ r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.