Morgunblaðið - 25.03.1983, Page 12

Morgunblaðið - 25.03.1983, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983 Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon Guðbjörn Guðmundsson og Morgunblaðið Morgunblaðið/ólafur K. Magnússon Guðbjörn Guðmundsson við gömlu prentvélina í prentsmiðju Morgunblaðsins í Austurstræti. ásamt aöstoöarmanni. Haraldi Richter. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins við andlát Guð- björns Guðmundssonar, prent- ara, er sá starfsmaður, sem lengst hefur unnið við gerð Morgunblaðsins, genginn með honum. Hann var við setningu fyrsta tölublaðs Morgunblaðsins 1. nóvember 1913, en blaðið kom út daginn eftir. Ákveðið hafði verið, að það skyldi heita Dag- blaðið, en andstæðingar þessa nýja gróðurs á upplýsingaakri íslenzkrar fjölmiðlunar, Vísis- menn, létu þá koma krók á móti bragði og gáfu út Dagblaðið, ef það mætti koma í veg fyrir út- gáfuna. Þá var ákveðið í snar- heitum eftir samtal í prent- smiðjunni milli þeirra, sem unnu við nýgræðinginn, að hann skyldi heita Morgunblaðið. Þessi hrekkur náði að sjálfsögðu ekki þeim tilgangi sínum, að koma í veg fyrir að nýja blaðið kæmi út, heldur sannaðist þar, sem oft áð- ur, að fall er fararheill. Það var í sjálfu sér merkileg reynsla að tala við Guðbjörn Guðmundsson á efri árum hans, mann, sem hafði verið í prentsmiðjunni, þegar Morgunblaðið var sett, brotið um og prentað í fyrsta sinn — og að sjálfsögðu var hann viðstaddur, þegar stungið var upp á nafninu Morgunblaðið — og það var samþykkt af þeim hugsjónaríku eldhugum, Vil- hjálmi Finsen og ólafi Björns- syni, sem þar voru í forystu. Guðbjörn Guðmundsson átti einnig morgunblaðseld alla ævi. X X Guðbjörn Guðmundsson var fæddur 23. nóvember 1894 og var því einungis 19 ára gamall, þeg- ar hann setti Morgunblaðið í fyrsta sinn. Hann fæddist í Vatnskoti í Þingvallasveit, sonur Guðmundar bónda þar Þórðar- sonar og konu hans Guðfinnu Einarsdóttur frá Skálabrekku. Guðbjörn hóf prentnám 1. maí 1912 í ísafoldarprentsmiðju og lærði þar bæði setningu og prentun. Hann var einn af stofn- endum prentsmiðjunnar Acta og prentsmiðjustjóri hennar frá 1919—1936, en hóf þá aftur vinnu í ísafoidarprentsmiðju og síðan prentsmiðju Morgunblaðs- ins frá því hún var stofnuð í stríðinu. Hann tók mikinn þátt í félagsmálum prentara, en sú saga verður ekki rakin hér. Gull- merki Iðnaðarmannafélagsins hlaut hann á 100 ára afmæli þess, 3. febrúar 1967. Guðbjörn Guðmundsson var kvæntur Júlíu Magnúsdóttur frá Syðri-Sýrlæk í Flóa og eignuðust þau þrjú börn. Júlía er látin fyrir nokkrum árum. x x Guðbjörn Guðmundsson réðst fyrst sendisveinn í ísafoldar- prentsmiðju í desember 1908 og bar þá út höfuðmálgagn Björns Jónssonar og sjálfstæðismann- anna gömlu, Isafold. Hann starf- aði þannig við blöð mestan hluta ævinnar. Hann tók við prentun Morgunblaðsins 1915 og hafði það starf með höndum fram á sumar 1919, þegar hann fór utan að kaupa vélar og áhöld fyrir Acta. Hann kom aftur að Morg- unblaðinu í janúar 1940 og hóf prentun þess eins og áður, en nú var upplagið stórum meira en fyrstu árin og samkeppni jafn- framt harðari og miklu meiri kröfur gerðar til blaðsins en áð- ur var. í höndum Jóns Kjart- anssonar og Valtýs Stefánsson- ar, sem tóku við ritstjórn Morg- unblaðsins 1924, náði blaðið þeirri forystu í útbreiðslu, sem það hefur haft með yfirburðum ávallt síðan. En það voru ekki sízt tryggir og vinnusamir starfsmenn eins og Guðbjörn, ’ sem áttu þar hlut að máli, enda hefur morgunblaðsandi ávallt ríkt hér á blaðinu og hagsmunir þess setið í fyrirrúmi hjá starfs- fólkinu og er þess að vænta, að svo verði áfram, meðan blaðið gegnir því mikilvæga hlutverki í þjóðlífi íslendinga sem raun ber vitni. x x Guðbjörn Guðmundsson verð- ur ávallt minnisstæður okkur, sem störfuðum með honum um árabil á gamla Mogga í Austur- stræti, enda er hann eftirminni- legur þar sem hann stóð í gömlu prentsmiðjunni innan um frum- stæðar setningavélar og smurði prentvélina upp úr miðnætti, svo að hún kæmi frá sér því stóra upplagi, sem til var ætlazt, enda þótt álagið væri meira en nokk- urn gat órað fyrir. Blaðið komst yfirleitt í hendur kaupenda, það stækkaði og því óx fiskur um hrygg, og þegar við komum í nýja húsið hér í Aðalstræti varð Guðbjörn Guðmundsson að sjálfsögðu prentstjóri nýju Goss-vélarinnar, sem þá var í kjallaranum hér í Morgun- blaðshúsinu og tók við af gamla rokknum. Þannig fylgdi Guð- björn Guðmundsson blaðinu eft- ir og við vorum stolt af því að hafa hann á morgunblaðsheimil- inu svo lengi sem raun bar vitni. x x Á fertugsafmæli Morgun- blaðsins, 2. nóvember 1953, skrifaði Sigurður Bjarnason samtal við Guðbjörn Guð- mundsson og þykir mér rétt að grípa niður í það. Guðbjörn minnir á, að fyrstu árin sem hann vann við Morgunblaðið, hafi það verið handsett, en síðan prentað í hraðpressu, sem skil- aði af sér 1.200 blöðum á klst. Það tók rúman klukkutíma að prenta upplagið. Nú hefur það 40-faldast og með nýju press- Guðbjörn prentari í gömlu prentsmiðjunni í Austurstræti. unni í Skeifunni tekur ekki lengri tíma en tvær til þrjár klukkustundir að prenta þessi 45—48 þús. eintök á degi hverj- um. Guðbjörn Guðmundsson segir í samtalinu, að oft hafi verið unnið við setninguna til klukkan tvö til þrjú á nóttunni fyrst í stað og stundum lengur. Ég man eftir því, að setningu var oft ekki lokið fyrr en eftir miðnætti á gamla Mogga, en nú heyrir slíkt undantekningum til, enda er tæknin orðin svo fullkomin, að vart er unnt að lýsa framförun- um fyrir þeim, sem hafa ekki fylgst með þeim. Geta má þess, að í stað handsetningar fyrr á árum er nú skrifað á skerma beint inn í tölvu, sem síðan skil- ar efninu eins og á silfurbakka. Sú tækniþróun, sem orðið hefur á þessu sviði í okkar tíð, er raun- ar með ólíkindum. Hraðpressan, sem fyrr er nefnd, gekk fyrir orku frá gas- stöðinni. „I því sambandi minn- ist ég eins sérkennilegs atviks," segir Guðbjörn Guðmundsson í fyrrnefndu samtali, „það mun hafa verið 1917. Þá var gasið skammtað um tíma vegna kola- skorts, frá kl. 10 árd.—4 síðd. Varð þá að ljúka prentun blaðs- ins fyrir klukkan fjögur síðdegis. Þá var gasið tekið af og stöðv- aðist þá gasmótorinn hjá okkur í prentsmiðjunni, ef hann var þá enn í gangi og varð ekki settur í gang aftur fyrr en kl. 10 árd. næsta dag.“ Guðbjörn Guðmundsson segir ennfremur að fyrsta setningar- vélin hafi komið í ísafoldar- prentsmiðju 1918 eða 1919 og prentvélin hafi verið knúin með rafmagni frá 1921. Áður hafði prentsmiðjan fengið rafmagn til ljósa frá mótorrrafstöð, sem Natan & Olsen áttu. Allmörg hús í miðbænum fengu rafljós frá þessari rafstöð fyrirtækisins. Morgunblaðið fékk nýja prentvél 1943 og notaði hana, þar til flutt var hingað í Aðal- stræti, eins og fyrr segir. Guðbjörn Guðmundsson hefur þetta að segja um starf þeirra prentaranna, meðan við vorum í Austurstræti: „Öll okkar vinna er nú næturvinna. Ég er vana- lega kominn til vinnu um klukk- an ellefu að kvöldi. Þá þarf að undirbúa prentunina, ganga frá myndamótum, smyrja vélina og „gera klárt“. Upp úr miðnættinu hefst svo prentunin og stendur í 8— 8% klst. með því móti að ekk- ert komi fyrir. Eg er því vana- lega kominn heim til mín kl. 9— 10 á morgnana. Þá er farið að leggja sig og sofið til kl. 5—6 á daginn. Þetta er frekar erilsamt og óeðlilegt líf, eilíf næturvinna. Síðan við urðum tveir við prent- un blaðsins hefur þetta þó orðið miklum mun þægilegra. Við vinnum sína vikuna hvor.“ x x Morgunblaðið á slíkum starfsmanni sem Guðbirni Guð- mundssyni mikið að þakka. Segja má, að hann hafi verið þeirrar gæfu aðnjótandi að upp- lifa þróun prentlistar, eins og hún var frá fornu fari og þar til tölvuöldin gekk í garð með öllum þeim fyrirheitum, sem hún býð- ur upp á. Gengnir vinir okkar morgunblaðsmanna hefðu ekki talið, að skera ætti við nögl þakklætið við útför Guðbjörns prentara. Með honum hefur drengskaparmaður safnazt til feðra sinna. En við eigum margs að minnast, sem eftir erum, og betra veganesti er ekki til i harðri baráttu á kröfuhörðum tímum en arfurinn, sem við hlut- um eftir þessa góðu vini, því að funi kveikist af funa. Matthías Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.