Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
93. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Portúgal:
Soares byrjar
stjórnarmyndun
Lissabon, 26. aprfl. AP.
Sósíalistallokkurinn í Portúgal vann
mikinn kosningasigur í þingkosningum
þar í landi í fyrradag. Lokatölur höfðu
ekki borist seint í gærkvöldi, en Ijóst
var að flokkurinn hafði fengið 34 til 37
prósent atkvæða og var það veruleg
aukning frá því í síðustu þingkosning-
um. Þá fékk flokkurinn einungis 28
prósent atkvæða.
Mario Soares, formaður flokksins,
fékk í gær umboð til að reyna stjórn-
armyndun, en hann lýsti strax yfir
er úrslit lágu fyrir, að hann myndi
ekki standa að minnihlutastjórn.
Talið er að hann hafi áhuga á sam-
starfi við Sósíaidemókrataflokkinn,
sem fékk um 27 prósent atkvæða síð-
ast er vitað var til. Formaður hans
er Mota Pinto.
Pinto og hans menn voru í fráfar-
andi stjórn með Miðdemókrata-
flokknum og er talið að flokkarnir
hafi nokkurn áhuga á því að starfa
saman áfram hvað svo sem úr verð-
Ur Sjá nánar erlendan vettvang á
blaðsíðu 16.
Perú:
Enn hryllileg
morð skæruliða
Ayacucho, Perú, 26. apríl. AP.
I ÞRIÐJA skiptið á rúmum mánuði,
gerðu vinstri sinnaðir skæruliðar í
Perú sig seka um fjöldamorð í gær.
Her og lögregla í Perú telur að skæru-
Miðausturlönd:
ísraelar og Sýr-
lendingar skipt-
ust á skotum
Damascus, Sýrlandi, 26. april. AP.
SÝRLENSKIR hermenn skutu á ísra-
elska herflutningabíla og hermenn i
gær og er það í fyrsta skipti síöan í júní
að þessum aðilum lendir saman í Líb-
anon. Atvikið átti sér stað í Bekaa-
dalnum í austurhluta landsins, en þar
hafa ísraelsmenn átt í höggi við skæru-
liða Palestínuaraba sem hafa skýlt sér
á bak við sýrlensku víglínuna.
Mannfall varð ekkert og ísraelski
flokkurinn lét undan síga, enda hafði
hann hætt sér inn á bannsvæði.
George P. Schult2, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, átti í gær
fyrsta fund sinn með ráðamönnum
Arabalandanna. Var fundurinn í Ka-
iro með Hosni Mubarak, forseta Eg-
yptalands. Lítið fréttist hvað þeim
fór á milli, en í fundarlok sagði
Schultz, að skoðanir forseta Egypta-
lands og Bandaríkjanna færu saman
í þessum efnum. Ágreiningsefni voru
þó fyrir hendi, þannig lét háttsettur
embættismaður í egypska utanrík-
isráðuneytinu hafa eftir sér, að Eg-
yptar væru á öndverðum meiði við
Bandaríkjamenn um hlutdeild PLO
að viðræðum.
Olíuflekkurinn
nálgast Bahrain
Kuwait, 26. »prfl. AP.
OLÍUBRÁKIN mikla sem flotið hefur
sístækkandi fram og aftur um Persa-
flóa síðustu vikurnar og á uppruna að
rekja til íranskrar olíulindar sem írak-
ar löskuðu með sprengjuárás, mun
skella á ströndum Bahrain innan 24
klukkustunda, nema að eitthvað stór-
kostlegt komi til.
Mikill viðbúnaður er í Bahrain
vegna þessa og er mikið lið manna í
viðbragðsstöðu. Ráðherrar og emb-
ættismenn landanna við Persaflóa
hafa setið á fjölmörgum fundum að
undanförnu, síðastti gær, en árang-
ur hefur enginn orðið.
liðarnir hafi verið allmargir, en morðin
frömdu þeir í þorpinu Lucita.
Að sögn sjónarvotta, komu
skæruliðarnir, sem kalla sig „Skín-
andi leiðin" og eru maoistar, að
næturþeli og ruddust inn í kofa
þorpsþúa. Drógu þeir fórnarlömb
sín úr rúmunum, hjuggu þau og
skutu, ýmist inni í kofunum eða úti
fyrir eftir að hafa dregið þau þang-
að. 12 manns létust í þessari síðustu
árás skæruliðanna og þeir særðu
auk þess sjö manns til viðbótar
mjög illa. Alls hafa skæruliðarnir
myrt 97 þorpsbúa í umræddum
þremur árásum, en sú fyrsta var
gerð á páskadag. Þá féllu 67.
Ofbeldi og mannfall hefur aukist
mjög í viðskiptum skæruliðanna og
hersins síðustu vikurnar. T.d. hafa
246 manns látið lífið 1 apríl einum
saman, en allt siðasta ár féllu 152.
Ríkisstjórn Perú hefur um 2.000
manna herlið á mesta hættusvæð-
inu, við rætur og i hliðum Andes-
fjalla. Fyrir skömmu felldu her-
menn um 30 skæruliða í blóðugri
orrustu.
Þrír metrar ofan á bíl
á Botnsheiði
Fyrir nokkru fór 17 manna hópur upp á Botnsheiði við Súgandafjörð til að grafa upp bfl sem hafði festst þar.
Tók tvo klukkutíma að finna bflinn í snjónum og varð að grafa þrjá metra niður á þak hans.
Sjá nánar á bls. 17 í blaðinu í dag.
Kafbátaskýrslan vekur athygli:
Allt að sex sovéskir kafbát-
ar í sænsku landhelginni
Stokkhélmi, 26.apn1. AP.
GERT var opinbert í gær inni-
hald skýrslu þingnefndar sem
rannsakaði ferðir sovéskra
njósnakafbáta í sænskri land-
helgi. í skýrslunni kom fram, að
allt að sex sovéskir kafbátar
hafi verið á ferðinni, þrír stórir
og hver þeirra með smákafbát.
Litlu bátarnir voru sendir í hættu-
legar njósnaferðir. Einn slíkur
smábátur gerði sér lítið fyrir og
sveimaði inn í höfnina í Stokk-
hólmi. Um borð í hverjum smá-
kafbáti var einn stýrimaður.
Sænska ríkisstjórnin mótmælti
harðlega þessum njósnum Sovét-
ríkjanna og er þetta í annað skipt-
ið á 18 mánuðum sem slík mót-
mæli eru borin fram. Að sögn Svía
er þeim nú nóg boðið og Olof
Hér má sjá hugmynd teiknara
skríður eftir botninum á beltum
um útlit smákafbátanna.
i. Fjær er móðurskipið.
Símamynd AP.
Lítið krfli sem
Palme forsætisráðherra sagði á
blaðamannafundi að „þær þjóðir
sem hugsa sér að njósna um okkur
með þessum hætti verða að taka
með í reikninginn, að sænska sjó-
hernum verður gert að reyna að
granda kafbátunum".
Palme kallaði Boris Pankin,
sendiherra Sovétríkjanna á sinn
fund í gær, áður en fréttamanna-
fundurinn hófst og bar fram mót-
mælin fyrir hönd Svíþjóðar.
Palme sagði að Pankin hefði verið
fámáll, „enda varla í aðstöðu til að
tjá sig um málið," eins og Palme
komst að orði. Þá kölluðu Sviar
sendiherra sinn í Moskvu heim um
stundarsakir a.m.k. Smákafbátar
Sovétmanna hafa vakið mikla ?*-
hygli og yfirvöld á Vesturlö'-
líta svo á að bátar þessir V
ógna öryggi þeirra.
Sjá nánar á blaðsíð’