Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 Forsetinn boðar stjórnmálaleiðtoga til funda á morgun FORSETI íslands hefur boðaö for- svarsmenn stjórnmálaflokkanna og Samtaka um kvennalista til óform- legra viöræðna eftir ríkisráösfund- inn á morgun, þar sem forsætisráö- herra biöst lausnar fyrir sig og ráöu- neyti sitt. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins er boðaður til fundar kl. 13.30 og síðan for- svarsmenn hinna aðilanna hver á fætur öðrum. Að sögn Halldórs Reynissonar forsetaritara verða óformlegar viðræður milli forsetans og leið- toganna á þessum fundum um stjórnmálaviðhorfin. Hilmar Karlsson Is- landsmeistari í skák Hilmar Karlsson HILMAR Karlsson varð íslands- meistari í skák 1983 í gær, eftir að hann og Elvar Guðmundsson sömdu jafntefli í biöskák sinni frá því í fyrrakvöld, án þess aö tefla hana áfram. Báðir hlutu þeir 3 vinninga í úr- slitakeppninni, sem þeir háðu ásamt Ágústi S. Karlssyni um íslandsmeistaratitilinn, en þessir þrír urðu í 2.-4. sæti á Skákþingi fslands sem háð var um páskana, en þar varð sigurvegari Svíinn Dan Hanson. Hilmar hlýtur fslandsmeistaratitilinn vegna þess að þeir andstæðingar, sem hann bar sigurorð af á Skákþing- inu, voru stigahærri en þeir sem Elvar vann. Hvanneyri: Tilraunir með sæðis- töku úr stóðhestum Á NÆSTUNNI verða gerðar til- raunir hér á landi meö sæðistöku úr stóðhestum, en nemandi á bændaskólanum á Hvanneyri, Sig- urbjörn Björnsson, hyggst skrifa kandidatsritgerð um þetta efni, að því er fram kemur í blaðinu Eið- faxa. Segir ennfremur í blaðinu að sæðistökur úr stóðhestum, m.a. íslenskum, hafi tíðkast í Þýska- landi um nokkurt skeið. Að töku lokinni er sæðið fryst og síðan geymt í svokölluðum sæðis- banka. Segir í blaðinu að til- raunir þessar hafi gefist vel, að því er fréttir hermi. í Eiðfaxa kemur og fram, að heyrst hafi „að meðal þeirra stóðhesta sem verða fyrir gjörn- mgum þessum Hvanneyri". sé Hlynur frá Gerðu athugasemd við atkvæðagreiðslu Akureyri. 27. apríl. FULLTRÚAR allra framboðslist- anna 6 í Norðurlandskjördæmi eystra undirrituðu athugasemd, sem send var yfirkjörstjórn og varðaði framkvæmd fógetaembættisins á Akureyri á utankjörfundaratkvæða- greiðslu á fjórum stöðum, þ.e. á dvalarheimilunum báðum, Fjórð- Sovéski sjómaður- inn látinn SOVÉSKI sjómaðurinn, sem brenndist illa og var sóttur út á sjó aðfaranótt sunnudagsins 19. apríl og lagður inn á Landspítal- ann, lést þar á sunnudaginn var. Hann hét Nikonoarov. Fulltrúi sovéska sendiráðs- ins, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, bað um að komið yrði á framfæri þakklæti til allra þeirra sem þátt áttu í björgun og umönnun sjómannsins, allt hefði verið gert sem hægt hefði verið. ungssjúkrahúsinu og Kristnesi, en á öllum þessum stöðum var opnaður kjörstaður til utankjörfundarat- kvæðagreiðslu. Athugasemd er gerð við það, að starfsfólk á viðkomandi stöðum hafði verið látið aðstoða vistfólk við kosningu, en það mega aðeins gera viðkomandi kjörstjórnir og fógeti sjálfur eða umboðsmaður hans. Umrædd athugasemd var færð yfirkjörstjórn til bókunar og meira verður ekki gert í málinu að þessu sinni. — G. Berg. Aðalstræti 10. MorpinbliAi«/ÓI.K.M. Leiktækjasalur opnaður í elsta húsi borgarinnar ELSTA hús Reykjavíkurborgar, húsið númer 10 við Aðalstræti, kemur að öllum líkindum til með að hýsa leiktækjasal í nán- ustu framtíð, því borgarráð gerði ekki athugasemdir við rekstur þess konar staðar þar og óvana- legt er að lögreglustjóri hafni slíkri leyfisveitingu, ef athuga- semdir borgarráðs liggja ekki fyrir. Er um að ræða flutning á sams konar starfsemi, sem rekin hefur verið að undanförnu í hús- inu við hliðina, Aðalstræti 8. Að sögn Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar, þótti ekki ástæða til að hafna leyfisveitingunni, þar sem um tilfærslu á sams konar starfsemi milli húsa var að ræða og húsið, þó það sé elsta hús Reykjavík- urborgar, ekki formlega friðlýst. Borgarstjórn hefur lýst því yfir að húsið skuli friðað, en samn- ingar við eiganda þar að lútandi hafa ekki tekist enn sem komið er. Engar formlegar kvaðir eru því um verndun hússins, nema ef eitthvað slíkt er sérstaklega tekið fram í leigusamningi og sagði Gunnar, að hann teldi borgaryfirvöldum ekki stætt á að leggja sérstakar kvaðir á notkun hússins, nema notin brytu í bága við eldvarnar- eða heilbrigðisreglur. Það kom einnig fram hjá Gunnari, að nýlega hefur verið hafnað ieyfisveitingu fyrir sams konar rekstri í þessu sama húsi. Þar var um nýjan rekstur að ræða og auk þess var gert ráð fyrir því í umsókninni að staður- inn yrði opinn á kvöldin og um helgar. Sá leiktækjasalur sem sennilega fær leyfi nú í þessu húsi, og áður hafði heimild í því næsta, verður einungis opinn virka daga kl. 11—19 og lokaður um helgar. Norður-Atlantshafsflug Flugleiða: Óska eftir undanþágum fyrir DC-8-þotur sínar „VIÐ höfum þegar óskað eftir fram- lengingu á þeirri undanþágu, sem er í gildi fyrir vélar félagsins, að fljúga til þessara staða fram til 1. janúar 1985 og við teljum okkur reyndar hafa góðar vonir um að sú framleng- ing muni fást,“ sagði Sigurður Helgason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flugleiða, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir við- brögðum félagsins við þeirri ákvörð- un flugmálayfirvalda í New York og New Jersey í Bandaríkjunum að banna allt flug véla, sem standast ekki hávaðatakmarkanir, inn á svæð- ið eftir 20. júlí nk., en DC-8-þotur Flugleiða eru yfir umræddum takm- örkunum. Sigurður Helgason, sagði að al- ríkisstjórnin í Bandaríkjunum hefði tilkynnt á sínum tíma, að fé- lögum væri heimilt að fljúga á um- ræddum vélum til Bandaríkjanna fram til 1. janúar 1985, en nú hefðu umrædd flugmálayfirvöld hins vegar riðið á vaðið, að því er virtist til að ýta á flugfélögin í að verða sér úti um nýjar vélar, sem ekki væru eins háværar. „Við höfum um nokkurt skeið verið með athuganir í gangi á hugsanlegum breiðþotukaupum til flugs á Norður-Atlantshafsleiðum félagsins, en veik staða fyrirtækis- ins hefur hins vegar gert það að verkum, að öllum slíkum áformum hefur verið slegið á frest. Það er hins vegar ljóst, að við verðum annaðhvort að vera búnir að kaupa breiðþotu fyrir 1. janúar 1985, eða þá að skipta um hreyfla á DC-8-þotum félagsins, en þó nokk- ur flugfélög hafa farið út í slíka framkvæmd, jafnframt því að skipta um innréttingar í þeirn," sagði Sigurður Helgason ennfrem- ur. Sjónvarp verður með sama hætti í júlí og hina sumarmánuðina SJÓNVARPIÐ verður ekki lokað í júlímánuði í sumar, eins og verið hefur allt frá því að það hóf göngu sína. Verður dagskrá þess með sama sniði í júlímánuði og hina sumar- Bráðabirgðalög í dag? Hundrað milljón kr. skatt- lagning á bifreiðaeigendur Á rfkisstjórnarfundi í gærmorgun var nefnd þriggja ráðherra falið að ganga frá bráðabirgðalögum um öfl- un rúmlega 100 milljóna kr. í vega- sjóð með skattlagningu á bifreiða- eigendur. í viðtali við Mbl. í gær- kvöldi sagðist Steingrímur Her- mannsson reikna með að bráöa- birgðalög þess efnis yrðu sett í dag. Skattur þessi, sem ákveðinn er til að endar nái saman í vegaáætl- un, er að grunni til fólginn í 1 kr. gjaldi á hvert kíló þyngdar bif- reiða, en einhverjar tilhliðranir hafa verið gerðar hvað varðar stórar bifreiðir og verða innflutn- ingstollar á hjólbörðum stórra bif- reiða lækkaðir úr 40% í 20% að sögn Steingríms. Þar sem hér er um tekjuöflun að ræða gefur fjár- málaráðherra bráðabirgðalögin út. mánuðina, en sumardagskrá sjón- varpsins hefst 1. maí og stendur til septemberloka. Einkennist dagskrá- in þá af erlendu efni, en innlendir þættir falla niður meira og minna. Sjónvarpið sótti um 13 nýjar stöður og hefur heimild fengist fyrir tæpum helmingi af þeirri viðbót, að því er fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Hörður Vil- hjálmsson, tjáði Morgunblaðinu. Ekki er ósk um þessa viðbót ein- göngu komin til af því að sjón- varpinu verður ekki lokað í júlí, heldur er um uppsafnaða þörf að ræða og lengingu orlofs, sem kost- ar sjónvarpið 3—4 stöður. Gert er ráð fyrir að Lista- og skemmtideild taki sitt frí í júlí eins og verið hefur, sem og hluti af því fólki sem vinnur í stúdíói og sviðsmyndadeild. Innlend dag- skrárgerð mun því liggja niðri í júlímánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.