Morgunblaðið - 27.04.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
3
Borgarráð samþykkir samhljóða:
Dagvistargjöld
hækka um 10%
BORGARRÁÐ samþykkti í gær með
samhljóða atkvæðum að sækja um
10% hækkun hámarksgjalda í dag-
vistarstofnunum borgarinnar. Þessi
hækkun hafði og verið samþykkt
samhljóða í félagsmálaráði borgar-
innar. Á Akureyri hækkuðu sam-
svarandi gjöld nú um 15%, sam-
kvæmt upplýsingum Mbl.
Þá var á fundinum samþykkt
mhljóða að hækka húsaleigu í
leiguíbúðum borgarinnar um
51,04% þann 1. maí næstkomandi.
Ennfremur var samþykkt að
rafmagn og hiti hækkuðu um 25%
og þjónustugjöld á Dalbraut um
20%. Eru þessar hækkanir í sam-
ræmi við hækkun vísitölu húsnæð-
iskostnaðar, hækkun hita og
rafmagns og hækkun visitölu vöru
og þjónustu.
Borgarráð:
Bygging Keiluspilahúss
í Óskjuhlíð heimiluð
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær með 3 atkvæðum sjálf-
stæðismanna gegn 2 atkvæðum
vinstri manna að heimila byggingu
keiluspilshúss í Öskjuhlíð, en áður
hafði skipulagsnefnd samþykkt það
með fyrirvara um afmörkun útivist-
arsvæðisins í Öskjuhlíð og lóðarinn-
ar og skilmála gatnamálastjóra og
veitustofnana.
Umhverfismálaráð Reykjavíkur
fjallaði um erindi þetta nýlega og
féllst á staðsetningu hússins. Hins
vegar benti ráðið á að Öskjuhlíðin
væri samþykkt útivistarsvæði og
því mikilvægt að öll umgengni um
svæðið tæki mið af því. Gerði ráð-
ið að skilyrði að í húsinu færi ekki
fram önnur starfsemi en tilgreind
væri og lagði einnig áherslu á að
fyrir lægi vönduð framkvæmda-
áætlun frá byggingaraðilum, áður
en hafist yrði handa um fram-
kvæmdir.
Dómur í útburða-
málinu Ljóninu í hag
ísafirói, 26. apríl.
FULLTRÚI bæjarfógetans á ísafirði,
Guðmundur Kigurjónsson, kvað upp
úrskurð í útburðarmáli Ljónsins sf. á
hendur Kaupfélagi ísfirðinga, vegna
verslunarinnar á Skeiði, síðastliðinn
Töstudag.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu, riftað í Ljónið
kaupsamningi við Kaupfélagið,
þar sem stjórn Kaupfélagsins
neitaði að undirrita kaupsamning-
inn fyrr en tiltekin lagfæring
hefði verið gerð á húsnæðinu.
Samningaumleitanir, sem lögfr-
æðingarnir Páll S. Pálsson, hrl.
fyrir hönd Ljónsins og Jón Finns-
son hrl. fyrir hönd Kaupfélagsins,
hafa staðið í, stóðu yfir lengi án
árangurs.
Féll úrskurðurinn á þann veg,
að Kaupfélagi ísfirðinga bæri að
rýma húsnæði Ljónsins.
í dag, þriðjudag, var gerð sú
sátt milli aðila hjá fógeta, að
Kaupfélagið fengi að vera í hús-
næðinu til 1. júlí næstkomandi.
Úlfar.
Flak TF-FLD dregið á land á Hálsanesi í gær. Morjunhi.Art kek.
TF-FLD fannst í Hvalfirði:
Nýleg hjólför flugvélar á
flugvellinum á Hálsanesi
MKNNIRNIR tveir, sem saknað var
með lítilli flugvél í fyrrakvöld, fundust
í gærmorgun látnir í flugvél sinni, þar
sem hún lá í kafi í Hvalfirði, um 150
metra frá landi við Hálsanes í Kjós-
inni. Mennirnir, sem fórust, voru Svan-
ur Breiðfjörð Tryggvason rafvirki, 43
ára, og Kggert Karlsson framkvæmda-
stjóri, 47 ára. Þeir voru báðir með
einkaflugmannspróf. Báðir láta eftir
sig eiginkonur og þrjú börn hvor.
Á Hálsanesi er ófullkominn flug-
völlur og sáu leitarmenn f gærmorg-
un nýleg för á honum og var líkast
því sem flugvél hefði setzt á völlinn
og farið strax í loftið aftur. Sam-
kvæmt upplýsingum loftferðaeftir-
litsins liggur ekkert fyrir um orsakir
slyssins, en flugvélin var talsvert
löskuð þar sem hún lá á fjarðarbotn-
inum.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á bæjum í ná-
grenni slysstaðarins þykknaði upp í
Hvalfirði þegar á daginn leið, stöku
dropar féllu og talið var að örlítill
éljagangur hafði verið til fjalla, en
skýjahæð ekkert óeðlileg og flug-
skyggni gott.
Flugvélin, sem var tveggja sæta af
gerðinni Cessna 150 og með
einkennisstafina TF-FLD, fannst
um klukkan 06,20 í gærmorgun. Það
var Þorkell Guðnason flugmaður lít-
illar einkaflugvélar, TF-SJM, sem
fann flugvélina. Þorkell var með
svokölluð laxagleraugu, og sagði
hann það sennilega hafa ráðið úrslit-
um um það að hann sá flugvélina, en
með notkun þeirra er eins og glampi
af sjónum hverfi, og betur sést niður
á meira vatnsdýpi.
TF-FLD fór frá Reykjavík upp úr
klukkan 17 á mánudag til tæpra
tveggja stunda útsýnisflugs um
Borgarfjörð. Þegar flugvélin kom
ekki til baka á tilsettum tíma hófst
leit úr lofti, sem var hætt eftir að
myrkur skall á.
Jafnframt var skipulögð leit á
landi og tóku þátt í henni flugbjörg-
unarsveitir, hjálparsveitir skáta og
sveitir SVFÍ á svæðinu frá Reykja-
nesi og allt norður í Húnavatnssýsl-
ur. Tóku þátt í leitinni hátt á fimmta
hundrað björgunarsveitarmanna, á
annan tug loftfara, þ.á. m. þyrlur
Landhelgisgæzlunnar og þyrlur
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Leit beindist að Borgarfjarðarsvæð-
inu og hugsanlegri flugleið vélarinn-
ar í Borgarfjörð, en síðast heyrðist
til hennar er hún flaug út úr vall-
arsviði Reykjavíkurflugvallar við
Kjalarnes skömmu eftir flugtak.
I loftleitinni var reynt að hlusta
eftir hugsanlegri sendingu neyðar-
sendis flugvélarinnar, en aldrei
heyrðist í honum, og er skýringin á
því sú að þeir verða óvirkir í vatni og
eins lá flugvélin þannig í sjónum að
loftnet neyðarsendisins var skermað
af.
Eftir að flugvélin fannst við
Hálsanes reyndu skipverjar á skipi
Eimskipafélagsins, Grundarfossi, að
sigla að staðnum þar sem hún lá og
hugðust ná flakinu um borð, en urðu
frá að hverfa sökum grynninga.
Skömmu síðar settu björgunarsveit-
armenn fram báta og festu streng í
flakið, sem dregið var á land eftir að
froskmenn höfðu náð lfkum hinna
látnu úr flugvélinni.
S*'
©v
vi©<
vv
k u
v ó\\<
„«tv
.(jv
\ -*• "
Ö'
0
r mr
,o'