Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 + Eiginkona min og móöir okkar, ÓLÖF SIGFÚSDÓTTIR, Aöalbóli, veröur jarösungin frá Staöarbakkakirkju föstudaginn 29. marz. Benedikt Jónsaon, Jón Benediktsson, Aöalbjörn Benediktsson. t Móöir okkar og tengdamóöir, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Frakkastíg 20, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Lára Árnadóttir, Jóhann V. Sigurjónsson, Magnea Árnadóttir, Marteinn Kratsch, Þóra Árnadóttir, Albert Jenaen, Eyþór Árnason, Anna Ásmundsdóttir. Eiginmaöur minn og faöir ÁSTMUNDUR GUDMUNDSSON, Grenimel 1, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. april kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á SlBS. Ágústa Ágústsdóttir, íris Ástmundsdóttir, Guólaug Ástmundsdóttir, Björn Ástmundsson, Ásta Ástmundsdóttir. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, VILHELM FRÍMANN FRÍMANNSSON, Hringbraut 46, sem lóst 18. apríl, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Edvard Frímannsson, Ragnar Frímannsson, Frimann Frímannsson, Bára Magnúsdóttir, börn og barnabörn. t Móöir mín, tengdamóöir, stjúpmóðir og amma, GUOLEIF BÁRÐARDÓTTIR, Vatnsholti 8, Reykjavík, áóur Ránargötu 31, sem lést 19. þ.m. veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 28. apríl kl. 3 e.h. Jarösett veröur í gamla kirkju- garöinum. Katrín Jónsdóttir, Benedikt Alfonsson, stjúpbörn og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma. ANNA SIGURLAUG EINARSDÓTTIR, Langeyrarvegi 7, Hafnarfiröi, Minning: Sigríður Jónsdótt- ir frá Kirkjubœ Fædd 10. september 1897 Dáin 17. apríl 1983 í dag er sumardagurinn fyrsti. Þeim degi var tengdamóðir mín vön að heilsa með hátíðarbrag, heitu súkkulaði og pönnukökum. Hún hélt þeim sið úr foreldrahús- um, en Sigríður var fædd á ísa- firði, þriðja í röð átta systra, sem kenndu sig við Kirkjubæ í Skut- ulsfirði. Fjórar systur Sigríðar eru á lífi, þær Guðrún, Ólöf, Guðbjörg og Petrína. Elstu systurnar, Margrét og María, og hin næst yngsta þeirra, Herdís, eru látnar. Foreldrar þeirra voru Guðbjörg Jónsdóttir og Jón Bjarnason smið- ur. Sigríður var pasturslítil í bernsku en naut þar móður sinnar sem var annáluð myndarkona og allt lék í höndunum á. Slíkt orð fór af nærfærni Guðbjargar við börn, að á heimilinu dvöldu ævinlega eitt eða fleiri aðkomubörn, um lengri eða skemmri tíma. Leiðir okkar Sigríðar lágu sam- an síðasta þriðjung ævi hennar, er ég kynntist einkasyni hennar, Herði Daníelssyni, 18 ára gömul. Við hófum búskap okkar í skjóli Sigríðar og bjuggum á heimili hennar fyrstu tvö hjúskaparár okkar. Smátt og smátt kynntist ég þessari nettu og skapstóru konu og mér varð ljóst að hún hafði átt erfiða ævi. Hún baslaði áfram ein- stæð með ungan son sinn sem hún hafði eignast 37 ára gömul og mið- aði starf sitt við að geta sinnt hon- um sjálf, þótt örðugt væri við að- stæður þess tíma. Hún stundaði hreingerningar hjá útvarpinu, árla morguns og síðla kvölds, þegar barnið svaf og einhver var tiltækur til að hafa auga með því. Hún tók að sér þvotta og frágang á þvotti fyrir ýmsa en dreymdi um að eignast eigið þvottahús. Oft neyddist hún, í endalausum húsnæðisvandræð- um sínum, til að taka á leigu hús- næði sem á voru kvaðir um heim- ilishjálp, því hún hafði engin efni til að tryggja sér öryggi í þeim efnum. Sigríði var annt um systur sínar og systrabörn og var það gagn- kvæmt milli systranna. Þegar verst stóð á skutu vinir og ætt- ingjar skjólshúsi yfir mæðginin. Má þar nefna öðlingshjónin Þor- björgu Þorvaldsdóttur og ólaf Guðmundsson og Margréti elstu systur Sigríðar og mann hennar Guðmund Þorlák skipstjóra, en heimili þeirra stóð Sigríði ávailt opið. Þeir voru ófáir staðirnir í gamla bænum sem Sigríður hafði ein- hvern tíma búið á, en nærri lá að mæðginin þyrftu að flytja árlega. Þetta öryggisleysi setti mark sitt á Sigríði en hún var stolt kona og kröfuhörð. Sigríður var vönd að verkum sínum og vöruþekking hennar var frábær. En viðhorf nítján ára gamallar tengdadóttur í verslunarleiðöngr- um á Laugaveginum í gamla daga mótaðist ekki af aðdáun á vöru- þekkingu tengdamóðurinnar. Mér þótti í raun dálítið erfitt að fara með Sigríði í búðir. Hún lét nefni- lega ekki bjóða sér hvað sem var. En smátt og smátt hefur mér orð- ið ljóst hversu næman smekk hún hafði, bæði hvað mat og föt snerti. En hvað olli? Ef til vill hefur dvöl hennar á efnuðum heimilum á Isa- firði og Reykjavík kynnt undir meðfæddan smekk hennar og kveikt neista þess munaðar sem hún leyfði sér í mat þegar hún kom því við buddunnar vegna. Hún hafði ákaflega gaman af að gefa fólki góðan mat, sparaði hvergi fyrirhöfn og var „mat- vönd“. „Sannkölluð Sigríðarsúpa", er orðtak yfir verulega vel lagaða súpu hjá okkur í Lindarhvammi. Hafrakexið hennar er bakað um allt land úr „Kökubókinni“, en uppskriftir fékk ég stundum hjá henni í bæklinga sem við sáum um gerð á. Á sínum yngri árum var hún m.a. í vist hjá apótekaranum á ísafirði, líklega ein 3—4 ár, ásamt Maríu systur sinni. María var matráðskona en Sigríður stofu- stúlka. Síðar bættist Ólöf yngri systir þeirra í hópinn sem barna- pía og Margrét, elsta systirin, var kölluð til þegar mikið lá við. Það er óhætt að fullyrða að systurnar frá Kirkjubæ voru vinsælar í húsi Rasmussen apótekara. Vildu þau hjónin fá systurnar Sigríði og Maríu með sér til Kaupmanna- hafnar þegar þau fluttu þangað árið 1919, „en pabbi sagði nei“, og málið þar með afgreitt. Sigríður fluttist til Reykjavíkur en fór í síld á sumrin til Siglu- fjarðar í nokkur ár. Sökum vandvirkni sinnar var hún eftirsótt í vinnu, var m.a. í vist hjá Þorvaldi Krabbe, Guð- mundi Thoroddsen, Helga Guð- mundssyni, bankastjóra, og Jónasi Þorbergssyni, útvarpsstjóra. Tveir eldri synir okkar Harðar fæddust á meðan við bjuggum hjá Sigríði á Klapparstíg 26, en þar var hún í húsnæði hjá útvarpinu sem hún stundaði hreingerningar hjá um 30 ára skeið. Sigríður, sem ekki sá sólina fyrir sonarsonum sínum fremur en syni, leiðbeindi mér fyrstu skrefin í ungbarna- meðferð og heimilishaldi og var mér í alla staði góð. Ég er sann- veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Hulda Sverrisdóttir, Egill Tyrfingsson. + Einlægar þakkir fyrir samúö og vinsemd viö andlát og útför mannsins míns, fööur og afa okkar, AÐALSTEINS JÓHANNSSONAR, Samtúni 16. Guöný Helgadóttir, Margrét Aóalateinsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö fráfall og útför ÁSLAUGARJÓNSDÓTTUR, Kimbastööum. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, SAMÚELS JÓNSSONAR frá ísafiröi. Ragnhildur Helgadóttir, Selma Samúelsdóttir, Ketill Jensson, Léra Samúelsdóttir, Stefén Þórarinsson, Brynjólfur Samúelsson, Þorbjörg Bjarnadóttir, Friögerður Samúelsdóttir, Einar Gíslason, Samúel J. Samúelsson, Þórhalla Gísladóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GRÓU ÞÓRDARDÓTTUR fré Eilífsdal, Skólagerói 51. Guömundur Magnússon, Guöfinna Guömundsdóttir, Þórdls Guömundsdóttir, Pétur Ágústsson, Rannveig Lilja Pétursdóttir, Magnús Pétursson. færð um að hún átti mikinn þátt í að yngri drengurinn komst yfir erfiðan hjalla, bæði á fyrstu mán- uðum ævi sinnar og síðar. Við Sigríður vorum ólikar en okkur kom vel saman. Sinnti hún heimilishaldinu að miklu leyti og gerði mér þar með kleift að vinna við teiknistörf í svefnherberginu og leggja mitt af mörkum til að íbúðarkaup okkar Harðar tækjust. Gestkvæmt var hjá Sigríði. Systur hennar, systrabörn og kunningjar litu oft við á leið um Laugaveginn og alltaf var heitt á könnunni hjá henni og ilmandi meðlæti. Hlé varð á sambúð okkar Sigríð- ar um 2ja ára skeið er hún missti húsnæðið á Klapparstígnum. Á þessum tveimur árum bjó hún á þremur stöðum, hætti hjá útvarp- inu og fór að stunda fiskvinnu. Eftir slæma flensu fluttist hún til okkar og bjó með okkur í ein átta til níu ár. Hún sá um matseld og ýmis önnur störf á heimili okkar, en ég sinnti auglýsinga- og umbúðahönnun í stofuhorninu. Það gekk á ýmsum geðhrifum í sambúðinni en Sigríður var okkur góð á sinn sérstaka hátt, en átti erfitt með að þiggja hlýju á móti. Mér er það minnisstætt að hún reyndi ekki að leyna vanþóknun sinni einhvern tíma þegar ég ætl- aði að gleðja hana með kaffi í rúmið á sunnudegi. Henni fannst hún einangruð í Kópavogi og lang- aði alltaf í gamla bæinn í Reykja- vík. Henni varð að ósk sinni er börn Margrétar systur hennar leigðu henni húsnæði á æskuheim- ili þeirra á Ránargötunni. Sigríður var komin yfir sjötugt þegar þetta var og hrakaði heilsu hennar mjög á þessum tíma. Hún lærbrotnaði illa og náði vart að ganga óstudd eftir það. Hún lá nokkra mánuði á hjúkrunardeild Grundar en komst síðan á Hrafnistu og dvaldi þar til dauðadags, eða í tæp þrettán ár. Á tímabili var Sigríður erfiður sjúklingur, hún gat verið næsta kröfuhörð og kenjótt. En á síðustu árum breyttist viðmót hennar, hún auðsýndi ánægju og þakklæti þegar henni var gott gert. Fyrir bragðið varð hún vinsæl á gangin- um sínum og vikuleg heimsókn heim í Lindarhvamm breyttist í ánægjulega samverustund miklu oftar en hitt. Það er ekki hægt að skilja við síðustu ár Sigríðar án þess að minnast á „taumana". Meðan hún sat og hnýtti tauma gleymdi hún vanlíðan sinni og vann sér inn aura til að gleðja með sjálfa sig og aðra. Sigríði líkaði vel dvölin á Hrafnistu hin síðari ár. Það var vel hugsað um hana og elskulegt viðmót starfsstúlknanna á E- ganginum létti henni ævikvöldið. Vil ég nota tækifærið og þakka þeim og öðru starfsliði Hrafnistu fyrir hönd okkar Harðar. Líklegt er að Sigríður hafi búist við að sinn tími væri í nánd. Hún var við messu á skfrdag og bað þá séra Árna Berg Sigurbjörnsson að jarðsyngja sig og á páskadag tal- aði hún um að hún vildi hvíla í nýja Gufunesgrafreitnum. Sigríður lést síðasta sunnudag í vetri og er jarðsungin í fyrstu viku sumars. Sumardagurinn fyrsti var mesti hátíðisdagur ársins í hennar augum — því fer vel á því að segja: Gleðilegt sumar. Kristín Þorkelsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.