Morgunblaðið - 27.04.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
29
Minning:
Baldur Guðmundsson
fv. framkvœmdastjóri
Fæddur 2. september 1915
Dáinn 19. aprfl 1983
Baldur Guðmundsson, fyrrum
framkvæmdastjóri Alþýðuflokks-
ins, lézt í Borgarspítalanum í
Reykjavík hinn 19. apríl sl. Með
honum er genginn góður drengur,
sem okkur vinum hans og félögum
er mikil eftirsjá að.
Baldur Guðmundsson var fædd-
ur á Eskifirði 2. september 1915,
sonur hjónanna Guðmundar Bene-
diktssonar, gullsmiðs á Seyðisfirði
og Guðbjargar Sæunnar Árna-
dóttur. Ólst hann upp með foreldr-
um sínum á Eskifirði fram til 10
ára aldurs, að hann missti móður
sína. Var þá úr vöndu að ráða
fyrir fjölskylduna og fór svo, að
Baldur var sendur til uppeldis hjá
föðurbróður sínum að Hallgils-
stöðum á Langanesi. Þar dvaldi
hann síðan við gott atlæti allt til
tvítugsaldurs, að hann brá á ann-
að ráð. Þá hélt hann til Reykjavík-
ur, ráðinn í að leita nýrra leiða og
láta drauma sína rætast. Varð
honum þá einna fyrst fyrir að láta
skrá sig til náms í Leikskóla Lár-
usar Pálssonar, og hann stundaði
námið með góðum árangri. Það er
eftirtektarvert, að um miðjan
fjórða áratug þessarar aldar, í
miðri heimskreppu og örvilnan,
skuli búa svo sterk listþrá með
þessum unga manni, að hann
hleypir heimdraganum á vit hins
óþekkta og óvissa, ráðinn í að setj-
ast við fótskör Thalíu, gyðju leik-
listarinnar. Vafalaust hafa margir
synir og dætur íslands átt slíka og
þvílíka drauma á þessum árum og
fyrr, en beygðir af heimskreppu og
allsleysi höfðu fæstir þrek til að
brjóta allar brýr að baki sér og
stefna að fullnægingu óska sinna.
En það var ekki aðeins á þessu
sviði, sem Baldur átti sér stóra
drauma, heldur líka á sviði þjóð-
félagsmálanna. Þegar á unga aldri
Fæddur 26. maí 1906
Dáinn 15. aprfl 1983
í dag verður jarðsettur góður
vinur og samstarfsmaður, Einar
Jóhannsson, fyrrv. húsvörður á
Hrafnistu.
Einar fæddist á Dynjanda í
Arnarfirði 26. maí árið 1906 og
voru foreldrar hans hjónin Guð-
ríður Einarsdóttir, sem ættuð var
úr Hvammssveit í Dölum og J6-
hann ólafur Guðmundsson, sjó-
maður, sem ættaður var úr Arn-
arfirði. Guðríður, móðir Einars,
var farsæl Ijósmóðir í Arnarfirði
um fjögurra áratuga skeið.
Foreldrar Einars bjuggu á
Dynjanda til ársins 1912, en þá
fórst faðir hans með þilskipinu
Geir, en það fórst með allri áhöfn
út af Reykjanesi, við Geirfugla-
sker, að talið var. Þá var Einar sex
ára að aldri, en elstur þeirra
systkina var Guðmundur, þá 17
ára að aldri.
Böm Guðríðar og Jóhanns urðu
17 talsins, tíu komust til fullorð-
insára, hin dóu í æsku.
Sjálfsagt yrði það talið til
kraftaverka í dag, að Guðríði
tókst að halda heimilinu saman og
sjá börnum sínum farborða. En
snemma hafa þau orðið að taka til
hendi. Daginn eftir ferminguna
fór Einar á vertíð í fyrsta sinn og
reri þá vorvertíð frá Hlaðsbót í
Arnarfirði, sem var þá fjölmenn
verstöð, því þaðan reru ellefu skip.
Á skipinu reri Einar með þrem
bræðrum sínum. Þessi vorvertíð
Einars varð upphaf að löngu sjó-
mannsstarfi hans.
Árið 1928 fór Einar fyrst suður
á vertíð til Grindavíkur, en á þeim
árum sóttu menn á Suðurnes til
hreifst hann af samfélagshugsjón
hins lýðræðislega sósíalisma og
varð þess fullviss, að hún væri
bezt til þess fallin að búa mönnum
gott og farsælt jafnréttisþjóðfé-
lag. Þeirri lífshugsjón sinni var
hann síðan trúr alla tíð.
Eftir að Baldur lauk leiknámi
sínu tók hann að stunda leiklist-
arstörf, en þó aðeins í hjáverkum,
þar sem hann hlaut að vinna full-
an vinnudag fyrir sér og fjöl-
skyldu sinni. Hann gekk að eiga
Sigurjónu Jóhannesdóttur, bróð-
urdóttur Jóhanns heitins Sigur-
jónssonar, skálds hinn 26. júní
1943. Framan af árum lék hann
um langt skeið í leiksýningum
Bláu stjörnunnar í Sjálfstæðis-
húsinu.
Vann hann að gerð þeirra sýn-
inga m.a. með þeim þjóðkunnu
leikurum Alfreð Ándréssyni, Har-
aldi Á. Sigurðssyni, Soffíu Karls-
dóttur og mörgu öðru ágætisfólki,
sem mestan svip setti á þær.
Kvöld og helgar fóru löngum í
þessi umfangsmiklu og tímafreku
störf, en dagurinn var að mestu
notaður til starfa á sviði verzlunar
og viðskipta. Var það einkum í
húsgagnaverzlun að hann starfaði
á þeim árum. Hann var m.a. fram-
kvæmdastjóri húsgagnaverzlunar-
innar Valbjarkar, sem um tíma
var ein hin stærsta og vandaðasta
sinnar tegundar hér í borginni og
síðar stofnsetti hann húsgagna-
verzlunina Öndvegi, sem var sama
marki brennd. Þegar fram liðu
stundir ákvað Baldur þó að láta af
þessum erfiðu og erilssömu störf-
um. Hann hafði nokkru áður hætt
leiklistarstörfum og lagði nú niður
verzlunarfyrirtæki sitt. Hófst þá
nýr starfsþáttur í ævi hans.
Eins og áður hefur verið greint
frá varð Baldur snemma hugfang-
inn af jafnaðarstefnunni og hug-
sjónum Alþýðuflokksins. Það
róðra hvaðanæva af landinu.
Einar giftist fyrri konu sinni ár-
ið 1934. Hét hún Rikey Örnólfs-
dóttir frá Suðureyri. Sama ár
fæddist fyrsta barn þeirra. Á Suð-
ureyri hófu þau búskap og þaðan
reri Einar og átti hlut í trilluút-
gerð sem gekk mjög vel.
Einar missti konu sina af
barnsförum árið 1945, er fimmta
barn þeirra fæddist. Það lifði, en
móðirin dó.
Erfiðir tímar fóru í hönd. Einar
varð að leysa upp heimilið og
koma börnunum fyrir og flutti
suður til Reykjavíkur, þar sem
hann vann aðallega í byggingar-
vinnu.
Hann kvæntist öðru sinni síðari
konu sinni, Sigrúnu Elívarðsdótt-
ur og bjuggu þau saman í 15 ár en
slitu þá samvistir. Þau áttu eina
dóttur.
Einar hóf störf við Hrafnistu í
Reykjavík þegar heimilið tók til
starfa 1957, en þá hafði hann unn-
ið við byggingu þess um langt
skeið. Hann var enn við störf þeg-
ar hann andaðist skyndilega þann
15. apríl sl. og var elsti starfsmað-
ur heimilisins, eins og geta má
nærri. Að sjálfsögðu hafði Einar
dregið úr starfi sínu síðustu árin,
en við sem höfum starfað með
honum hátt í fjórðung aldar viss-
um að hann var nýtur starfsmað-
ur fyrir Hrafnistu.
Fram yfir sjötugt var hann í
húsvörslustarfi með margþættu
verksviði. Þetta er jafn erilsamt
alla virka daga ársins. Sumt kom
aldrei fram á vinnuskýrslum, en
þar á ég við snúninga og liðsinni
við vistfólk og annað starfsfólk.
Einar eignaðist góðan vin á efri
gerðist því nokkuð samtímis, að
Baldur lét af fyrrgreindum störf-
um sínum og réðst sem fram-
kvæmdastjóri til Alþýðuflokksins.
Það starf hefur ekki alltaf verið
eftirsótt, enda aðstæður erfiðar og
starfskjör löngum bág. Það þarf
bjartsýna eldhuga til að sinna því
að gagni, menn, sem fúsir eru til
að leggja nótt við dag, ef nausyn
krefur, gjarnan án þess að hirða
um daglaun að kveldi. Baldur heit-
inn var einn þeirra hugsjóna-
manna sem sjálfviljugur gekk
undir þetta ok og stóð undir því
árum saman. Ég hygg, að Baldur
hafi verið framkvæmdastjóri
flokksins í formannstíð þeirra
Gylfa Þ. Gíslasonar og Benedikts
Gröndal. Er mér óhætt að segja,
að samstarf hans við þá tvo og
flokkstjórnina á þessum árum,
sem og flokkssamtökin og forystu-
menn þeirra hafi allt verið með
ágætum. Hann naut vinsælda,
virðingar og trausts meðal
flokksmanna, sem báru til hans
hlýjan hug. Ekki man ég til þess,
að hann hafi nokkru sinni lent í
kasti við flokksmenn eða tekið
neinn þátt í innanflokksdeilum
eða átökum. Hann var maður frið-
samur, óáleitinn og glaðvær og
þess vegna mjög vel látinn meðal
samstarfsmanna sinna í Alþýðu-
flokknum.
árum sínum á Hrafnistu, Ragn-
heiði Oddsdóttur, hjúkrunarkonu.
Hófu þau sambýli í íbúð við Jök-
ulgrunn. Hún lifir Einar sem
reyndist henni góður og traustur
vinur meðan hann lifði.
Þótt aldursmunur væri nokkur
á mér og Einari varð okkur vel til
vina, enda á sama vinnustað um
tveggja áratuga skeið. Hann var
margfróður og ógleymanlegar eru
frásagnir hans af vinnumennsk-
unni í Herdísarvík og skáldinu,
nafna sínum. En aldrei vildi hann
láta færa neitt í letur af því sem
hann sagði frá þeirri vist.
Þegar Einar vinur minn verður
borinn til grafar verð ég staddur
erlendis. Þá mun ég hugsa til vest-
firska sjómannsins sem bar
þyngri byrðar en flestir aðrir, en
bognaði þó aldrei. Hann lifði
stormsama ævi, en dó sáttur við
guð og menn, eins og hann sagði
við mig skömmu áður en hann dó.
Ég sendi börnum hans, Ragn-
heiði og allri fjölskyldunni samúð-
arkveðjur mínar.
Pétur Sigurðsson
Það hefur áður komið fram, að
þau Baldur og Sigurjóna Jóhann-
esdóttir gengu í hjónaband í júní-
mánuði 1943. Þeim varð fjögurra
barna auðið í hjúskap sínum. Elzt-
ur er Gunnlaugur Baldursson,
arkitekt í Köln í Þýzkalandi. Hann
er vel virtur hönnuður þar í borg,
sem rekur eigin arkitektastofu
með þrem teiknistofum. Eigin-
kona hans er Lisel Hambac leik-
kona, og eiga þau eina dóttur
barna, Selmu. Næstelst er Guð-
björg Baldursdóttir. Hún var gift
Hafsteini Jenssyni og eru börn
þeirra Sigurjón Baldur, 18 ára
gamall menntaskólanemi, og Jón-
ína, 16 ára námsmaður. Hún gift-
ist síðar Jóhanni Axel Stein-
grímssyni, og eignuðust þau
Kolbrúnu 10 ára. Guðbjörg missti
Jóhann Axel eftir skamma sam-
búð. Hún býr nú með börnum sín-
um í Reykjavík. Þriðja barn þeirra
var Jóhannes Baldvin, er lézt
þriggja vikna gamall. Fjórða barn
Baldurs og Sigurjónu er Jóna
Margrét Baldursdóttir, er býr með
heitmanni sínum, Geir ólafssyni,
verzlunarmanni í Vestmannaeyj-
um. Allt er þetta hið ágætasta
fólk, þar sem vafalaust blundar
listhneigð sú, sem Baldur var bú-
inn og hann tók í arf frá forfeðr-
um sínum. Kemur hún nú ef til vill
einna sterkast fram í Gunnlaugi
syni hans, sem er hinn ágætasti
arkitekt og ísland þyrfti nauð-
synlega að eignast mörg verk eft-
ir.
Þegar Baldur féll frá var heilsa
hans orðin bág og því kom andlát
hans ekki með öllu á óvart. Að því
stefndi óðum að hjarta hans
brysti og svo fór að lokum. En
samtímis því, að hann var orðinn
heilsulítill, hefur heilsu Sigurjónu
konu hans hrakað svo, að hún
dvelur nú á sjúkrahúsi og verður
þar um sinn. Máske á maður ekki
að harma, að hann skyldi „fá að
fara“, eins og sagt er, úr því að
heilsa hans var orðin svo tæp.
Samt hljótum við mörg, þar á
meðal vinir hans og félagar í Al-
þýðuflokknum, að trega andlát
hans. Hann sat með okkur flokks-
þing, flokkstjórnarfundi og fjöld-
ann allan af venjulegum félags-
fundum. Vissulega var hann ekki
einn þeirra, sem fluttu stórar ræð-
ur og létu mest á sér bera. En
hann var meðal hinna mörgu, er
fylgdust vel með öllu sem gerðist
og lögðu sitt raunsæja og hyggna
mat á það. Hann var bráðgreind-
ur, athugull, hófsamur og raun-
sær. Þess vegna var gott að eiga
hann sem ráðhollan vin og ómet-
anlegt að eiga hann að. Hann vann
með okkur að stórum sigrum og
saman stóðum við frammi fyrir
verulegum ósigrum. En hann var
alltaf sami góði, trausti og glað-
væri félaginn, sem var trúr lífs-
hugsjón sinni um nýtt og betra
þjóðfélag. Þess vegna erum við
mörg, sem munum þakklát geyma
minningu þessa góða drengs í hug-
um okkar. Einlægar samúðar-
kveðjur sendum við fjölskyidu
hans á þessum sorgardegi og biðj-
um þess, að hún megi njóta gæfu
og velfarnaðar á komandi árum og
áratugum.
Sigurður E. Guðmundsson
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
jaröarför eiginmanns mins og föður okkar,
JÓNASAR HRÓBJARTSSONAR
frá Hamri,
Háuhlíö 5, Sauöárkróki.
Auöur Vilhelmsdóttir,
Hróbjartur Jónasson,
Ingi Vilhelm Jónasson,
Ingibjörg Elín Jónasdóttir.
t
Einlægar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför fööur okkar, tengdafööur og bróöur,
ÓLAFS GUTTORMSSONAR,
Stýrimannastíg 3.
Anna Guölaug Ólafsdóttir, Einar Benediktsson,
Helga Guörún Ólafsdóttir, Halldór Pálsson,
Erna Ólöf Ólafsdóttir, Michael Rothe,
Magnús Guttormsson.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jarö-
arför
JÓNU JAKOBSDÓTTUR,
Haga, Aöaldal.
Hugi Jóhannesson, Erla Þóröardóttir,
Snaer Jóhannesson, Birna Ólafsdóttir,
Heiður Jóhannesdóttir, Áki Sigurösson,
Völundur Jóhannesson, Guöný Jónsdóttir,
Hringur Jóhannesson, Sigurbjörg Guöjónsdóttir,
Fríður Jóhannesdóttir, Gunnar Jóhannaaon,
Dagur Jóhannesson, Þórhildur Siguröardóttir,
Freyr Jóhannesson, Hulda Hjálmsdóttir,
Hugrún Hugadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
frá kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 28. apríl vegna jarðar-
farar Vilhelms Frímanns Frímannssonar.
Umboð Happdrættís Háskóla íslands
Hafnarhúsinu.
Einar Jóhanns-
son — Minning