Morgunblaðið - 04.05.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
43
Maraþonsund til
utanlandsferðar
Hveragerði, 24. aprfl.
NEMENDUR í Gagnfræðaskóla
llveragerðis, sem útskrifast í vor,
hyggjast fara í ferðalag er skólanum
lýkur, til Færeyja eða jafnvel til Dan-
merkur, ef fjárhagurinn leyfir. Hafa
þeir verið duglegir við að safna fé til
ferðarinnar, gefið út blað og haldið
sýningu og nú síðast gengust þeir fyrir
maraþonsundi og syntu í einn sólar-
hring frá kl. 17 á laugardag til kl. 17 á
sunnudag 23. apríl, kosningadaginn.
Gengu þeir í hús áður en sundið
hófst og söfnuðu áheitum, einnig
héldu þeir sig í námunda við „kjör-
stað“, og söfnuðu þar. Sögðu nem-
endurnir að þeim hefði alls staðar
verið vel tekið.
Valgarð Runólfsson skólastjóri og
Hjörtur Jóhannsson íþróttakennari,
sem var potturinn og pannan f öllu
ævintýrinu, sögðu mér að krakkarn-
ir hefðu tekið þennan leik mjög al-
varlega og lagt mikið á sig, sumir
hefðu lítið eða ekkert sofið þennan
sólarhring. Þeir hefðu verið harðir á
því að allt færi fyllilega löglega
fram.
Foreldrar og kennarar stóðu vakt-
ir og fylgdust með þeim allan tím-
ann. Sagði Valgarð að Foreldrafé-
lagið starfaði mjög vel, m.a. hefði
það tekið að sér kennslu einn dag í
vetur. Hjörtur sagði að nóttin hefði
verið köld og nokkuð erfitt að synda,
en krakkarnir hefðu staðið sig eins
og hetjur.
Sundinu lauk þannig að allir þátt-
takendur, 15 talsins, syntu nokkrar
mínútur, til að innsigla góðan árang-
ur.
Ekki var nein þreytumerki á þeim
að sjá, en gleðin skein af hverju and-
liti.
Hvergerðingar mega vera stoltir
af þessu þróttmikla æskufólki.
Sigrún
^ KARNABÆR
r i Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi I
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
66 — Glæsibæ.
Úti á landi: Eplið isafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum — Fataval Keflavík — Álfhóll Siglufirði — Nína Akranesi — Ram Husavík — Bakhúsiö
Hafnarfiröi — Austurbær Reyöarfiröi — Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli — Sparta Sauöárkróki — Skógar Egilsstööum — ísbjörninn Borgarnesi —
Lea Ólafsvík — Lindin Selfossi — Paloma Vopnafirði — Patróna Patreksfirði — Báran Grindavík — Þórshamar Stykkishólmi — Hornabær Höfn
Hornafirði — Aþena Blönduósi — Nesbær Neskaupsstað — Versl. Magnúsar Rögnvaldssonar Búöardal.