Morgunblaðið - 04.05.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MU)VIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
69
í
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MUéi
Allir velkomnir sem
rétta vilja hjálparhönd
Sigríður Kristjánsdóttir skrifar
25. apríl:
„Kæri Velvakandi.
Sem félagi í Foreldra- og vina-
félagi Kópavogshælis vil ég vekja
athygli á fjársöfnun sem félagið
gengst fyrir þessa dagana vegna
sundlaugarbyggingar við Kópa-
vogshæli. Sundlaugarmálið svo-
kallaða er orðið nokkurra ára
gamalt og er ríkisvaldinu til há-
borinnar skammar.
Kópavogshæli er orðið 30 ára
gamalt og er fjölmennasta stofn-
unin fyrir vangefna og með erfið-
ustu vistmennina í mörgum tilfell-
um. Vistmenn á Kópavogshæli
hafa verið látnir sitja á hakanum
í flestum málum og þar á meðal
líkamsræktarmálum.
í samfélagi, þar sem það eru tal-
in sjálfsögð mannréttindi að geta
stundað sund, er fjölda fatlaðs
fólks, sem í flestum tilvikum getur
ekki talað sínu máli, boðið upp á
það að horfa á hálfkláraða sund-
laug út um gluggann hjá sér svo
mánuðum skiptir.
Mörg loforð hafa verið gefin, en
fæst þeirra efnd. Því hefur verið
gripið til þeirra ráða að leita til
hins almenna borgara um aðstoð
við að ljúka við þessa sundlaug.
Því vil ég hvetja þig, lesandi góð-
ur, til að ljá málinu stuðning með
því móti að sjá af nokkrum krón-
um í gott málefni. Póstgíróreikn-
ingurinn er nr. 72700-8.
Að lokum vil ég geta þess, að
undanfarnar helgar hefur félagið
staðið fyrir sjálfboðavinnu við
sundlaugarbygginguna og eru allir
velkomnir sem vilja rétta okkur
hjálparhönd. Formaður félagsins
er Birgir Guðmundsson, sími
51208.
Með von um góðar undirtektir."
Málleysurnar
halda samt velli
Þórunn Guðmundsdóttir skrif-
ar:
„Góði Velvakandi.
Öllum er ljóst, að málfar fjöl-
miðla hlýtur að hafa mikil
áhrif á málfar almennings.
Leiðbeiningar og leiðréttingar
koma oft fram. Ég vil nefna
ágæta þætti um daglegt mál,
ekki síst í höndum þess, sem nú
flytur þá; greinar Gísla um ís-
lenskt mál og þær stuttorðu en
markvissu bendingar: Gætum
tungunnar, í Morgunblaðinu.
Mér virðist samt sem vatni sé
stökkt á gæsir, því málleysurn-
ar halda samt velli. Útvarps-
stjóra, sem er manna faguryrt-
astur á íslenska tungu, hlýtur
stundum að svíða í eyrun er
hann hlýðir á orðaskipti
starfsmanna sinna.
Nú vil ég bera fram tillögu.
Hvernig væri að safna saman
þeim orðum og orðatiltækjum
sem helst bæri að varast og
setja á blað til viðvörunar og
benda um leið á þau, sem rétt-
ara væri að nota? Þessi blöð
væru síðan fengin í hendur sem
flestra þeirra, sem koma fram í
sjónvarpi og útvarpi, þingmenn
og prestar ekki undanskildir.
Ætla ég nú að tíunda syrpu af
orðum, sem ég tel að megi miss-
ast. Þau hefur reyndar mörg
borið á góma hjá áðurnefndum
málvöndunarmönnum.
„Allavega" er svo mikið not-
að að fæstir virðast lengur
kunna að segja „að minnsta
kosti", en allavega hefur alltaf
þýtt fjölbreytni af einhverju
tagi. „Til byggingu, til snert-
ingu, til Kristínu". Þetta heyr-
ist oft, svo afkáralegt sem það
er. Mætti þá allt eins segja
Menningusjóður og byggingufé-
lag. „Fyrir ári síðan", þessu
„síðan“ er alveg ofaukið.
„Vormisseri". Ég hefi aldrei
vitað nema tvö misseri í árinu.
„Áhugi fyrir, ástæða fyrir, lík-
ur fyrir“ í stað ástæða til, áhugi
á, líkur til. „Þetta gekk þannig
fyrir sig.“ „Fyrir sig“ er bara
hortittur. „Að gefa sig“
(danska) í stað „láta sig“. „í
dag“, þegar átt er við tímann
undan og eftir deginum í dag, í
stað „nú á tímum", „um þessar
mundir" eða bara „nú“. „Tölur",
„verð“ í fleirtölu o.s.frv.
Ofnotkun fleirtölu sækir
mjög á í máli manna. Ef orð
tekur fleirtölu í ensku, þá verða
íslensk orð að lúta því, þótt þau
hafi aldrei haft hana áður.
„Þeir sögðu við hvorn annan“,
„þær búa í sitthvoru húsi“,
„vörurnar voru af sitthverju
tagi“, í stað: „þeir sögðu hvor
við annan", „þær búa hvor í
sínu húsi“, „vörurnar voru hver
af sínu tagi“. Þessi misnotkun
fornafnanna „sinn og hvor/-
hver“ er svo algeng að furðu
gegnir, því jafnvel sæmilega
ritfærir menn og jafnvel rithöf-
undar virðast ekki kunna að
beita þeim rétt. Samt er rétt
notkun þeirra svo einföld að ég
treysti mér til að kenna hana
hverjum meðalgreindum manni
á skömmum tíma. Þar sem ég
er kominn yfir þann aldur er
menn almennt vinna launuð
störf, skyldi ég gera það alveg
ókeypis.
Margt fleira gæti ég talið, en
læt gott heita í bili. I þættinum
um daglegt mál hefur vel og
réttilega verið rætt um þann
rugling á áherslu sem færist
ískyggilega í vöxt. Ég sendi
fjölmiðlunum kveðju mína með
ósk um gleðilegt sumar og
beiðni um að gæta þess að aðal-
áhersla á öllum íslenskum orð-
um er á fyrsta atkvæði.
Ég vil hnýta hér ofan í þakk-
arkveðju til borgaryfirvalda
fyrir þann ágæta glerskáp á
biðstöðinni í Lækjargötu. Ég
hefi notið þess í veðragjósti
vetrarins að standa í höm og
horfa á hann og þá fimm
heppnu sem þar fá rými, en
þarna bíða oft 10—15 og veður-
næmt mjög utan skáps svo
slegið gæti að gamalmennum,
sem lengi þurfa að bíða. En ár
aldraðra er víst liðið.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Einhver sagði: Þeir komu í stað hvors annars.
Rétt væri: Þeir komu hvor í annars stað.
tí'
1
>V^\ votoT' OQ VN
sV-e’
té'
* b•»
ga'’
v'®'vN
\\WÖ
),VN0'
Vj\^v-
MatarverÖ
ótrúlegt
Aöeins 350 krónur
Dagskrá:
Hátíðin hefst með Ijúffengum fordrykk kl. 19.30 en síðan
tekur Franzois Fons yfirmatreiöslumaður við og býöur
gestum sínum upp á glæsilegan veislumat meðal annars
nýstárlega matreiðslu á kjúklingum frá ísfugl.
Matseðill
Forréttur: Aðalréttur:
Petit saga grafin duchesse Gtoöaöir sjávarréttir Supreme de Volaitte an champagne Kjúkiingabrjóst meö kampavinssósu
Eftirréttur:
Coupé Apies huit Mintisbikar meö sukkulaðihjup
Avarp
Eysteinn Helgason framkvæmdastjóri
Tískusýning
Model 79 sýnir frá versluninni Dömunni Lækjargötu
Kvartett M.K.
Frábær söngflokkur
sem kemur öllum í
gott skap.
Skemmtiþáttur
Leikararnir Sigurður Sigurjónsson og Randver Þor-
láksson skemmta af alkunnri snilld.
Glæsilegt ferdabingó
ísfugl
kjúklingari sérflokki
Spilað um þrjár utan-
landsferðir og auka-
vinningar kjúklinga-
kassar frá ísfugl.
Happdrætti
Dregið verður um sólarlandaferð að verðmæti 36.000
kr.
Verdlaunaafhending
Afhent verða verðlaun í spurningakeppninni. Vikudvöl
fyrir 6 í hinum vinsælu sumarhúsum í Hollandi.
Ný hljómsveit
Hljómsveitin Topp-
Menn hefur slegið í
gegn á Sólarlanda-
kvöldum úti á landi í
vetur og nú verður allt
á fullu hjá þeim í Súlna-
salnum og sungið og
dansað kl. þrjú.
AÐGÓNGUMIDASALA OG BORDAPANTANIR I SÚLNA8AL EFTIR KLUKKAN
16.00 I DAG. SÍMI 20221.
Kynnir: Magnús Axelsson.
Stjórnandi: Siguröur Haraldsson.
Sólarkvöldin — Vönduó og valhappnuö skammtun viö allra haafi.
Boröhald hefst kl. 19.30.
Húsió opnaó klukkan 22.00 fyrir aöra en matargesti.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899