Morgunblaðið - 04.05.1983, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
56
Bústaður sendiherra Ráðstjórnarríkjanna að Túngötu 9 er í þeirra eign.
Skrifstofa sendiráðs Ráðstjórnarríkjanna er f þessu reisulega húsi, Garðastræti 33, er þau eiga.
Adsetur sovéskra
í Reykjavík
Húseignin Sólvallagata 55 bættist nýlega í fasteignasafn Ráðstjórnarríkjanna í Reykjavík.
I sovéska sendiráðinu á íslandi eru nú 37 starfsmenn og þar af 15 á þeim lista
sem utanríkisráðuneytið í Reykjavík gefur út yfir skráða stjórnarerindreka erlendra
ríkja. Auk þess eru hér 33 eiginkonur þessara starfsmanna, en sumar þeirra vinna
einnig á vegum sendiráðsins. 9 börn þessa fólks dveljast einnig hér á landi. Alls eru
því 79 manns tilheyrandi sovéska sendiráðinu í Reykjavík.
í hinni opinberu skrá utanríkisráðuneytisins eru einnig birt heimilisföng
skráðra stjórnarerindreka Sovétríkjanna og birtir Morgunblaðið hér myndir af
þeim húsum þar sem hinir skráðu Sovétmenn búa.
Sovétmenn eiga nú 5 stórhýsi í hjarta Reykjavíkur og eru húsnúmer birt í
þeim tilvikum í myndatexta, auk þess hafa þeir aðsetur á a.m.k. 10 stöðum til
viðbótar í Reykjavík. Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Moskvu eru þrír og
hafa þeir afnot af tveimur meðal íbúðum í Moskvu og einu einbýlishúsi, en
Sovétstjórnin leigir íslenska ríkinu þetta húsnæði.
aðsetur fretta- og
áróðursstofu Ráð-
stjórnarríkjanna.
Við Ægissíðu
»»»:<
►?♦**!