Morgunblaðið - 04.05.1983, Side 4
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
Innhverf íhugun
Bættur árangur
í HÁSKÓLA
Breyting á árangri í Háskóla
VIOMtOUNAR
HÖPUR
HÓPUR I NAMSKEIOI
VlSINDA
SKOPUNARGREINDAR
eftir Jörund
Jóhannesson
Reynsla af æðri vitund er orðin
að veruleika hjá 3 miiljónum
manna um allan heim. Vöxtur vit-
unda iðkenda Innhverfrar íhugun-
ar er orðin vísindaleg staðreynd.
Veda og nútíma eðlisfræði hafa
mælt til nýrra vísindalegra rann-
sókna á vitund, sem svið allra
möguleika. Hagnýtur árangur
þess að lífga svið allra möguleika
á einstaklings- og samvitund mun
vera grundvöllur varðveislu fyrir-
myndar samfélags. Til að skapa
slíkt samfélag þarf samstilling að
verða í þjóðarvitund. Samstilling
verður að veruleika eftir að eitt
prósent af landsmönnum byrjar
að virkia Innhverfa íhugun (IÍ).
Með II þróast meðvitund um
fjórða vitundarástandið, er kallast
handanlæg vitund (tær vitund).
Kenningar sálfræðinga hafa sagt
til um þetta svið hugans, sem er
undirstaða hinna þriggja vitund-
arástanda: vökuástand, draum-
svefn og djúpsvefn. Reynsla á því
sviði fæst með reglulegri iðkun IÍ.
Er frá líður mun vitundin staðlast
á sviði tærrar vitundar. Árangur
verður stöðugt vitundarlíf. Víxl-
Jörundur Jóhannesson
verkun milli iðkanda og umhverfis
mun bera meiri einkenni já-
kvæðni. óreiða mun hverfa og
samspil þjóðfélagsþegna verða
uppbyggilegra. Hin fyrirbyggj-
andi eðlislægu áhrif er skapast við
iðkun IÍ verður meir og meir
stöðluð vöm gegn streitumyndun.
Lífinu verður þá lifað i aukinni
fullnægju og vandamál víkja fyrir
meira skipulagi og jafnvægi. Ef il
er iðkuð af nægilega mörgum
þjóðfélagsþegnum, munu þeir geta
magnað viðleitni allra lands-
manna til lífvænlegri lífshátta.
Svið óendanlegra samtengsla sér
til þess að lífmagnaðri straumar
en áður hafa þekkst styrki ein-
staklinga til öflugra atferlis á
hvaða sviði sem er. Samfara þessu
verður reynslan í gæfuátt, en ella
yrði, ef sama stefna helst er verið
hefur svo lengi, lengi.
Innhverf íhugun er afar hentug
tækni til eflingar vitsmunalífinu.
Fleiri hundruð rannsóknaniður-
stöður liggja nú fyrir um gildi
tækninnar. Niðurstöður þessar
sýna svo ekki verður um villst, að
II hefur mjög jákvæð áhrif. Þær
rannsóknaniðurstöður er birtast
með grein þessari eru aðeins brot
af því er nú liggur fyrir. íslend-
ingar bera nú þá gæfu að eiga
hvað styst í einstaklings- og þjóð-
félagslega uppljómun, vegna þess
stóra hóps er nú þegar iðkar II.
Maharishi Mahesh
yogi
Innhverf íhugun hefur síðustu
áratugi verið tekin upp á Vestur-
löndum til iðkunar af fólki úr öll-
um stéttum þjóðfélagsins. Út-
breiðsla tækninnar hefur verið ör
og vinsældir hennar að sama
skapi miklar. Með endurkomu
Maharishis frá einsetubústað sín-
um á Himalayafjöllum hefur
endurvakning IÍ orðið að veruleika
um allan heim. Frá einbúalíferni
sneri hann 1955. Maharishi endur-
vakti IÍ síðan fyrst á Indlandi. Er
hann var búinn að leggja sterkan
grunn að hreyfingunni í sínu
heimalandi hélt hann til fjarlæg-
ari landa. Vegna hins mikla áhuga
á IÍ sem olli miklum önnum við
kennslu ákvað Maharishi að
þrautþjálfa menn til kennslu í IÍ.
Nú þegar eru nokkrir kennarar er
leiðbeina við íslenska íhugunarfé-
lagið.
Nauðsyn þess að
hækka vitundina
Hækkun vitundar þýðir aukinn
þroski, víðfeðmari hugarstarfsemi
og samhengislegri skynjun á
margbrotnum veruleika. í tækni-
væddu samfélagi nútímans er
þörfin svo miklu skýrari fyrir
nauðsyn staðlaðrar hugrænnar
rósemi sem fæst auðveldlega með
iðkun tærrar tækni. Með iðkun IÍ
fær hugurinn að kyrrast og skynja
fíngerðari stig vitundar. Með
reglulegri, daglegri íhugun mun
iðkandinn fá reynslu af meiri fín-
leik vitundarlífsins. Frá grunn-
sviði hugans berast bylgjur at-
hafnaþráar. Þar sem skynjanir
einstaklinga eru á misjöfnum stig-
um, umbreytist athafnaviljinn I
misjafnar myndir eftir því á
hvaða stigi hver einstakur er á.
Athafnaþráin (eða athafnaviljinn)
klæðist hugsunum og ráðast hugs-
anir þá af sjálfstöðum, af stöðu
skynjunar í það og það skiptið. Af
þessu er afar mikilvægt að ein-
staklingar þjálfi skynjunina til að
geta starfað frá fíngerðari lögum
vitundar. Með þessu á ég við að
athafnaviljinn komi út sem óskir
til athafna, og verði „einskonar
æskilegri óskir". Það er að segja
hagkvæmari athafnir komi til
fyrir samfélagið í heild. Ókyrr
hugur eða (óreiðufull vitund) get-
ur ekki skynjað dýpri lög vitundar
eða það mikilvægasta handanlæga
vitund og framkallar oftast bjag-
aða mynd af athafnaviljanum. Því
meir sem óreiða hugans er þeim
mun meiri verða óskir óheilla-
vænlegri og víxlverkun fleiri
óreiðu einstaklinga magna ring-
ulreiðina. Að starfa meir frá sviði
minnstrar örvunar hugans er í átt
til aukins jafnvægis, sjálfstæði
eykst, einstaklingurinn verður
sjálfum sér nógur, og sönn lífsfyll-
ing fyllir vitund mannsins í stað-
inn fyrir að þurfa að staðfesta
sjálfið á hinu hverfula glysi efn-
ishyggjunnar, þá kemur hið tæra
sjálf meir til sögunnar sem stjórn-
andi athafna og leiðir til fullkom-
ins atferlis verunnar. Með fleiri
slíkum einstaklingum eykst skipu-
lag og mistök hverfa.
Breytt grundvallar-
hugmyndamynstur
Með iðkun IÍ breytist úrelt
hugmyndamynstur mannsins á
mjög æskilegan hátt, það er með
hækkun vitundar á hærra stig. Að
þurfa stöðugt að staðfesta sjálfs-
kennd sína mun heyra sögunni til.
Óuppljómaðir einstaklingar í
þjóðfélögum eru meira og minna
upp á kant við umheiminn. Það
kemur fram I þessu: „Ég á móti
honum“-afstöðunni, „ég hér inni"
á móti „heiminum þarna úti“.
Neysluþjóðfélagið t.d. nærir gervi-
sjálfsvitund eða bráðabirgða-
sjálfsmynd okkar. Bráðabirgðavit-
und er það vegna þess að nýju vit-
undarstigi fylgir breytt sjálfsvit-
ÞEIR
KRÖFUHÖRÐU
velja
undir bílinn!
Því að reynsla Bridgestone á íslandi
sannar, að Bridgestone hjólbarðarnir
gefa frábæra rásfestu og hafa mikið slit-
þol og endingu.
Nú fást bæði Bridgestone radial og diag-
onal hjólbarðar hjá hjólbarðasölum um
land allt.
Vandið valið - Veljið
undir bílinn öryggisins vegna.
• á Islandi
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99