Morgunblaðið - 04.05.1983, Side 9
49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
Fræðsluþættir frá Geðhjálp
Hvernig get ég öðlast
aukið sjál&traust?
Spurt er:
1. Hvernig get ég öðlast aukið
sjálfstraust? 2. Þar sem ég er
mjög óörugg fyrir próf langar mig
að vita hvort þið getið gefið mér
góð ráð.
Svar:
Oftast eru óöryggi og lítið
sjálfstraust nátengdir hlutir,
þannig að t.d. mikið óöryggi veikir
sjálfstraustið og öfugt. Eg mun
þess vegna svara þessum spurn-
ingum saman.
I stuttu máli getum við talað um
að sjálfstraustiö hvíli á þeirri ör-
yggiskennd sem hver og einn finn-
ur hjá sjálfum sér, að þú getir
sætt þig við sjálfan þig eins og þú
ert. Enginn okkar er fullkominn,
við höfum öll okkar kosti og galla.
Burt séð frá öllu öðru, t.d. því
hvernig þér gengur í því sem þú
tekur þér fyrir hendur og hvernig
aðrir meta þig, þá er nauðsynlegt
að þú virðir og viðurkennir sjálfan
þig eins og þú ert, ekki sem eitt-
hvert staðnað fyrirbæri, heldur
sem lifandi persónu sem er í stöð-
ugri persónulegri þróun og þroska.
I þessu sambandi er rétt að benda
á að persónuleg þróun er ekki nein
bein snurðulaus lína, heldur inni-
heldur hún jafnt ósigra sem sigra.
Og jafnvel þó að þeir nánustu líti
oft á það að falla eða að takast
ekki eitthvað neikvæðum augum,
getur þetta raunverulega verið
mikilvæg persónuleg lífsreynsla.
Sú sjálfsmynd sem við höfum er
einnig mjög mikilvæg fyrir
sjálfstraustið. Það er alltof al-
gengt að þessi sjálfsímynd byggist
á því hvernig aðrir meta mann,
hvað aðrir hugsa og gera og ekki
síst hvaða væntingar aðrir hafa til
manns. Ef við erum heiðarleg við
sjálf okkur komumst við kannski
að því að við eyðum miklu af lffi
okkar í að lifa í samræmi við
væntingar annarra, ættingja og
vina o.s.frv. Viðbrögð annarra eru
reyndar nauðsynleg til að við get-
um lært af reynslunni. En í stað
þess að leita alltaf eftir áliti og
viðurkenningu annarra á sjálfum
sér, þá er mjög mikilvægt að við-
urkenna það jákvæða i sjálfum
sér, hæfileika sína og kosti.
Próf eru mat annarra á getu/
vitneskju þeirra sem gangast und-
ir prófið. Það er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir að þetta er
mat á mjög svo afmarkaðri getu,
undir pressu. Þannig getur þín
raunverulega geta verið allt önnur
en niðurstöður prófsins gefa í
skyn, þú getur jafnvel miklu meira
eða minna og því er prófið mjög
takmarkaður mælikvarði á getu
þína. Reyndu því að treysta þinni
eigin dómgreind og sjálfsmati,
þannig að þú verðir minna háður
mati og viðurkenningu annarra.
Prófniðurstöður geta vissulega
opnað eða lokað fyrir ýmsum
framtíðarmöguleikum. En þetta
vald sem prófin hafa skiptir þó
ekki miklu máli i samanburði við
það vald og þá möguleika sem búa
í okkur sjálfum. Það er alltof al-
gengt að fólk leggi alla sína fram-
tíð undir einn ákveðinn afmarkað-
an möguleika eða niðurstöðu. Með
þessu er maður aðeins að tak-
marka sína eigin möguleika, mað-
ur gefur sjálfum sér ekki tækifæri
til að móta sér eigin framtíð.
Reyndu því að einbeita þér að deg-
inum í dag og þeim verkefnum
sem liggja. fyrir, í stað þess að
eyða orku þinni í hugarangur út af
einhverri óljósri framtíð. Það
versta sem þú gerir sjálfum þér er
að vera upptekinn af eigin óöryggi,
í stað þess að reyna að njóta þess
sem þú ert að fást við hverju sinni.
Ef þú gefur þér leyfi til að við-
urkenna þetta fyrir sjálfum þér,
þá getur þú gengið undir próf, eins
og hvert annað verkefni, sem að
vísu skiptir máli, en ekki svo
miklu máli að þú þurfir að hræð-
ast það.
Ef þér tekst þetta ekki og ert
ennþá yfirbugaður af ótta og ann-
arri líkamlegri og sálrænni vanlíð-
an, reyndu þá að tengja þennan
ótta og vanlíðan ákv. einstökum
atriðum varðandi prófið. Reyndu
þannig að gefa því nafn sem þú ert
hræddur við. Ertu t.d. hræddur
við viðbrögð annarra og þá hverra.
Ertu hræddur um að standast ekki
prófin? Ertu hræddur um að þú
sért ekki nógu góður í augum ann-
arra? Við hvað ertu nákvæmlega
hræddur, hvaða persónur og hvaða
viðbrögð? Reyndu síðan að meta
hvaða máli þetta raunverulega
skiptir þig. Taktu síðan afstöðu til
þess sem skiptir þig minnstu máli
í þessu sambandi og sem þú ert
minnst hræddur við og líttu á
möguleika þína sem mest óháða
þessu atriði. Reyndu þannig að
líta á það sem þú ert að gera sem
óháð því sem gerir þig hræddan.
Þannig skaltu stig af stigi taka
afstöðu til þess sem gerir þig
hræddan. Sú hræðsla, sem situr
eftir, er hræðsla við raunverulega
hluti, sem þú hefur tekið þá af-
stöðu til að séu þess virði að það sé
ástæða til að vera hræddur við þá.
Slík raunveruleg hræðsla er miklu
auðveldari að glíma við eða lifa
með en einhver óljós ótti. Og
reyndu að lifa með þessari
hræðslu þannig að hún blandist
ekki inn í það sem þú ert að glíma
við.
Að lokum. í stað þess að nota
orku þina 1 að vera upptekinn af
því sem liggur fyrir utan það sem
þú ert að kljást við, eins og t.d.
hvað framtíðin ber í skauti sér,
notaðu þá þessa orku til að kljást
við og njóta þess sem þú ert að
gera hverju sinni. í stað þess að
nálgast verkefnin út frá þeirri
hugmynd að þú getir ekki leyst
þau, innstilltu þig á að þú getir
það. Ef fyrri tilraunir hafa mis-
tekist, er það einfaldlega mikilvæg
reynsla sem þú getur lært af og út
frá þeirri reynslu getur þú reynt
aftur nýja möguleika. Þegar á
reynir kemur oftast I ljos að þú
getur miklu meira en þú heldur.
Og með því að upplifa ánægjuna
við það sem þú ert að gera, getur
þú losað þig við spennu sem er
tengd því að vera upptekinn af eig-
in óöryggi. Ef þú notar alla þína
orku í að vera upptekinn. af
óörygginu eða af stöðugri leit að
því að vera laus við það, þá lokar
þú fyrir möguleikum og hæfileik-
um þínum gagnvart þeim verkefn-
um sem þú tekur þér fyrir hendur.
Njóttu þess sem þú ert að gera,
þannig byggir þú best upp sjálfs-
traust þitt.
Magnús Þorgrímsson
sálfræðingur.
Stjorn Sjálfsbjargar, á myndinni eni frá vinstri, fremri röð: Trausti Sigur-
laugsson, formaður, Sigurður Björnsson, ritari. Aftari röð, frá vinstri: Óskar
Konráðsson, vararitari, Sigurrós M. Sigurjónsdóttir, varaformaður og Guð-
ríður Olafsdóttir, gjaldkeri.
Sjálfsbjörg:
Félagsstarfið með
hefðbundnum hætti
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar, fé-
lags fatlaðra í Reykjavík og ná-
grenni, var haldinn í Sjálfsbjargar-
husinu Hátúni 12 laugardaginn 26.
mars síðastliðinn. Sátu um 130
manns fundinn. í skýrslu stjórnar
kom m.a. fram, að félagsstarfíð var
með nokkuð hefðbundnum hætti.
63 nýir aðalfélagar gengu í fé-
lagið á árinu, sem er meira en
undanfarin ár. Góð sala var í
happdrættunum um sumar og jól
og seldust yfir 50 þúsund miðar.
Sjálfsbjargarfélagið hóf samvinnu
við íþróttasamband fatlaðara,
starfrækslu hins svokallaða
„Heimabingós" sl. vor. Hinsvegar
dró félagið sig úr því samstarfi nú
um áramótin. Eins og undanfarin
ár voru góð samskipti við Norð-
menn. Fór hópur frá Sjálfsbjörg
út sl. sumar og hópur Norðmanna
kom hingað. Starfsemi skrifstofu
félagsins að Hátúnu 12 hefur auk-
ist mjög undanfarið samfara auk-
inni alhliða starfsemi félagsins.
Að venju fóru fram kosningar í
stjórn og fastanefndir félagsins.
Kosið er um formann árlega, Rafn
Benediktsson, sem hefur verið
formaður félagsins í 6 ár, gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi for-
mennsku, var því kosinn nýr
formaður, Trausti Sigurlaugsson.
Stjórnina skipa nú: Trausti Sigur-
laugsson formaður, Sigurrós M.
Sigurjónsdóttir varaform., Sigurð-
ur Björnsson ritari, Guðríður
Ólafsdóttir gjaldkeri, óskar Kon-
ráðsson meðstjórnandi.
Á fundinum var m.a. ályktað
um ferðaþjónustu fatlaðra. í
ályktuninni er Reykjavíkurborg
þakkað fyrir þennan rekstur en
jafnframt er þeim eindregnu til-
mælum beint til sveitarstjórna á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, að þær
semji nú þegar um aðild að ferða-
þjónustunni, þannig að allir þeir
sem vegna hreyfihömlunar eiga
erfitt með að nota almennings-
vagna geti fengið þessa þjónustu á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
(tlr rréttatilkynningu.)
Verktakar
VélsmiÓjur
Við hjá Sindia spyrjum:
Eru starfsmenn ykkar að smíða stigapalla, stiga milli hæða, stiga á tanka, landgöngubrýr?
Vantar ristarefni þar sem loft og Ijós þarf að komast á milli hæða? Vantar þrep og palla
utan á tankinn, verkstæðisbygginguna? Er gætt fyllsta öryggis varðandi þrep og palla utan
dyra t.d. vegna snjóa?
Það má lengi spyrja, en við hjá Sindra Stál teljum að ristarplötur, pallar og þrep frá
Weland séu svar við þessum spurningum.
Framleiðsluvörur Weland eru úr gæðastáli og heitgalvaniseraðar til að tryggja þeim
lengsta endingu.
Gœtum hagkvœmni - gœtum öryggis.
Lausnin er Weland ristarplötur, pallar, þrep.
Þrep
900 x 230 mm
900 x 260 mm
1000 x 260 mm
Þessar stærðir eru til á lager:
Þrep með
hálkuvörn
700x230 mm
900 x 230 mm
900 x 260 mm
Pallar
900 x 1000 mm
lOOOx 1000 mm
Ristarplötur
Úr 25 x 3 mm stáli:
1000 x 6000 mm
Úr 30 x 3 mm stáli:
1000 x 6000 mm
Leitið upplýsinga
SINDRA
STÁLHF
PÓSTHÓLF 881, BORGARTÚNI 31, 105 REYKJAVÍK, SIMAR: 27222 & 21684