Morgunblaðið - 08.05.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983
21
hefur verið mun misjafnari og
lakari þegar á heildina er litið og
aflaverðmæti minna því margir
netabátanna eru með allt of mik-
inn ufsa í aflanum, sem er verð-
minni er þorskur og ýsa.
Við fórum úr höfn á miðnætti
föstudags seinnipart apríl-mánað-
ar og komum í land á sunnu-
dagsmorgni. Aflinn var nær ein-
göngu fallegur þorskur, rúm 20
tonn, svo segja má að þetta hafi
verið allra þokkalegasti túr, því á
veiðum var verið einn sólarhring
og seinni hlutann i leiðinda veðri,
allt upp i 12 vindstigum af norðan.
f þessum túr var verið á veiðum
vestur af Surtinum, eða vestur við
Klöpp og langleiðina vestur undir
friðaða svæðið, sem nefnt er Frí-
merkið. Á þeim tíma, sem við vor-
um þarna, að minnsta kosti meðan
veður var skaplegt, voru þarna um
30 bátar, allir að toga á afmörk-
uðu svæði og voru að fá frá tveim-
ur upp í níu tonn í hali eftir
þriggja til fjögurra tíma tog.
Veður fór versnandi á laugar-
deginum þannig að minni bátarnir
höfðu ekki mikið næði og fóru til
hafnar. Að lokum voru aðeins ör-
fáir eftir, eða bara þeir, sem voru
yfirbyggðir, enda þá veður orðið
mjög slæmt, 10 til 12 vindstig af
norðan og talsverður kuldi. Manni
fannst orðið nóg um að vera með
kallana á dekki, þegar hætt var og
ekki var nú heilsan merkileg
seinni hluta ferðarinnar, en aldrei
þó svo slæm, að ekki væri hægt að
mynda það, sem fyrir augun bar.
Strákarnir á Frá vildu meina það,
að landkrabbi eins og ég hefði ekki
sem verst af því að sjá sjómennsk-
una við þessar aðstæður. Ég er
þeim sammála og þakka þeim
bara fyrir góða ferð og hjálpsemi.“
Sigurgeir
Óskar á Frá er glaðhlakkalegur við
Hsksjána og útlitið gott í næsta hali.
Á Frá er 7 manna áhöfn og hluturinn því orðinn nokkuð góður.
Sýnir á Kjar-
valsstöðum
UM ÞESSAR mundir heldur Guð-
mundur Karl Ásbjörnsson, listmál-
ari, sýningu á verkum sínum á
Kjarvalsstöðum. Guðmundur hefur
meðal annars stundað nám í mynd-
list á Ítalíu og Spáni og hlaut meðal
annars námsstyrk á Ítalíu og á Spáni
lagði hann stund á málverkaviðgerð-
ir. Guðmundur sýndi fyrst hér á
landi 1966 og hefur haldið margar
sýningar á verkum sínum, bæði inn-
anlands og erlendis.
Útitónleikar
á Lækjartorgi
SUNNUDAGINN 8. maí næstkom-
andi gengst SATT, Samband alþýðu-
tónskálda og tónlistarmanna, fýrir
útitónleikum á Lækjartorgi ef veður-
guðir leyfa.
Fram koma nokkrar af þekkt-
ustu hljómsveitum landsmanna i
dag. Tónleikarnir eru meðal ann-
ars haldnir til að vekja athygli á
myndlistarsýningu sem haldin er
til styrktar SATT í Gallery Lækj-
artorgi. Fjöldi nafnkunnra mynd-
listarmanna á verk á sýningunni,
en ágóði rennur til kaupa á hús-
næði undir starfsemi SATT.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á círliim MntJaatK* /