Morgunblaðið - 08.07.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1983
23
Náttúruskilyrði sem bjóða
upp á möguleika til fiskeldis
Skoðunarferð um Suðumes:
NáUúruvcrndarfélag Suðvesturlands kynnir nú þann þátt tilvonandi Nátt-
úrugripasafns íslands sem snýr að samskiptum manna og náttúru. Salur
ætlaður til svokallaðra skiptisýninga verður í húsinu. Þar verður mjög gott
svigrúm til að hafa sértakar sýningar. Sem dæmi má nefna sýningar á
afmörkuðu vistkerfí, starfsemi ákveðinna dýra og plantna, ákveðinna
náttúrufyrirbrigða og sýningar á samskiptum manna og náttúru, en það er
einmitt það sem NVSV er að kynna í þessari ferð.
Fiskeldi það sem nú er verið að byrja á hér á Reykjanesi og víðar er ný
starfsemi sem almenningur veit lftið um og v«ri kjörið viðfangsefni væntan-
legs Náttúrugripasafns lslands að kynna í skiptisýningarsalnum. Náttúran
sjálf var ef til vill byrjuð sjálf á fiskeldistilraunum fyrir löngu síðan í Hópinu
í Grindavík og verður það mál skoðað á leiðinni.
Eyjólfur Friðgeirsson, fískifræðingur verður leiðsögumaður í ferðinni.
DÝRAFRÆOI
SALUR ’ ■
GRASAFRÆÐI
JAROFRÆOI
Grunnteikning af fyrirhuguðu Náttúrugripasafni íslands.
Á Reykjanesi er hvergi að finna
rennandi vatn, ár eða læki á yfir-
borðinu, en þrátt fyrir það hefur
svæðið upp á ýmislegt að bjóða,
sem vekur áhuga fiskeldismanna.
Víðast hvar er þar að finna ferskt
jarðvatn, sem rætur sínar á að
rekja til mikillar úrkomu, sér í
lagi á Reykjanesfjallgarðinum. Á
utanverðu Reykjanesi er fersk-
vatnið í ferskvatnslinsu, sem flýt-
ur ofan á jarðsjó. Linsan er þykk-
ust fjærst sjó en þynnist út að
ströndinni. Jarðvatnið streymir til
sjávar undir yfirborði jarðar, víða
Isafjarðardjúp:
Ferðamanna-
þjónustan kom-
in í gang
Botni, ísafjarðardjúpi, 5. júlí.
Djúpmannabúöin í Mjóa-
firði opnaði að þessu sinni
laugardaginn 24. júní sl.
Hjónin Björg Baldursdóttir
og Jónas Eyjólfsson reka
hana að þessu sinni. Þar eru
á boðstólunum ýmsir smá-
réttir, kaffi, kökur og sæl-
gæti auk smávarnings og
benzísölu.
í Reykjanesskóla er starfrækt
sumarhótel með hvers kyns veit-
ingarekstri auk gistingar. Sund-
laug er á staðnum, opin alla daga,
en auk þess er þar góð aðstaða til
útilífs. Þá mun vera hægt að fá
svefnpokapláss fyrir hópa í
Dalbæ, en það er samkomuhús á
Snæfjallaströnd. Hjólbarðavið-
gerðir annast bændur á Hvítanesi,
Garðsstöðum og Hörgshlíð, eftir
því sem við verður komið.
Fréttaritari.
Hafnarfjörður:
Undirbúning-
ur að nýju
dagvistar-
heimili hafinn
UNDIRBÚNINGUR er hafínn að
byggingu nýs dagvistarheimilis í
Hafnarfírði. Að sögn Einars Hall-
dórssonar, bæjarstjóra i Hafnarfírði,
þá hefur staðsetning þess ekki verið
ákveðin endanlega, en líklegast yrði
það í suðurbænum. Sagði hann að
undirbúningur væri rétt að hefjast,
sótt hefði verið um fjárveitingu en
væntanlega hæfust byggingafram-
kvæmdir á næsta ári.
í miklu magni, t.d. á Straumsvík-
ursvæðinu, í Vogum, við Húsatóft-
ir og í Grindavík, minna og dreifð-
ara rennsli er að finna víða annars
staðar.
Mikill jarðvarmi er t.d. á Hösk-
uldarvöllum, Svartsengi og yst á
Reykjanesi. Lagnir Hitaveitu Suð-
urnesja hafa víða skapað aukna
möguleika til fiskeldis t.d. í Vog-
um. Á Straumsvíkursvæðinu hafa
menn vonast til að fá heitt vatn
frá Hitaveitu Reykjavíkur í Hafn-
arfirði, en hitaveitan hefur enn
ekki verið aflögufær þar og Pól-
arlaxstöðin hefur nýtt varmaorku
frá álverinu við starfsemi sína.
Við sunnanvert Reykjanes er
hlýr sjór allt árið. Jarðsjórinn
undir Reykjanesi er innilokaður
og blandast lítið við sjóinn við
ströndina. Efnasamsetning hans
er að mörgu leyti ólík efnasam-
setningu sjávar.
Á undanförnum árum hefur það
háð verulega þróun fiskeldismála
að tilfinnanlega hefur skort skýra
stefnumörkun alþingis og stjórn-
valda í fiskeldismálum.
Það fyrir utan hefur raunin orð-
ið sú að einstaklingum og fyrir-
tækjum hefur gengið frekar erfið-
lega að semja um aðstöðu, sér í
lagi hafbeitaraðstöðu. Það hefur
orðið til þess að menn hafa leitað
fyrir sér á stöðum þar sem ekki
eru veiðihagsmunir fyrir en þó
álitleg skilyrði. Nokkra álitlega
staði er að finna á Reykjanesi, t.d.
víð Straumsvík og í Vogum, og
verða þeir báðir skoðaðir á laug-
ardaginn. Fleiri staðir koma til
greina til hafbeitar, t.d. við Kúa-
gerði, Grindavík, í Ósabotnum og
Húsatóftum.
Á sviði eldis lax og silungs upp í
fulla stærð hafa erfiðleikarnir
fyrst og fremst verið í því fólgnir
að þar sem skjól er að hafa við
ströndina er mikil hætta á kæl-
ingu á vetrum, sem getur drepið
eldisfiskinn. Þess vegna hafa
menn verið að reyna að þróa eldi á
fiski í kerjum og lónum á landi. Á
Reykjanesi er víða kjörin aðstaða
fyrir þannig eldi og byggist það þá
á notkun jarðsjávar eða hlýsjávar
við sunnan og vestanvert nesið.
Viðkomustaðir í ferðinni á laug-
ardaginn verða Straumsvík, Vog-
ar, Hafnir, Reykjanestá, Húsa-
tóftir og Grindavík.
(Frá NáUúniTerndarfélftgi Suövesturlands).
Fallhlífarstökk
úr 12.000 feta hæð
— síðan beint í kaffi og kökur hjá okkur
Bandarísku ofurhugarnir úr „Freefall unlimited“ munu
halda fallhlífarstökksýningu á heimsmælikvaröa á morg-
un laugardag kl. 14.00 ef veöur leyfir (annars á sunnu-
dag á sama tíma).
Stökkiö hefst í 12.000 feta hæö yfir Veitingahöllinni í
Húsi Verslunarinnar — og endar meö hressandi kaffi og
glæsilegum kökum í veifingasal okkar.
Komið og sjáið einstæðan atburð.
í Húsi verslunarinnar, Kringlumýrarhraut.
Höfdar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!