Morgunblaðið - 24.07.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JtJLÍ 1983 25
Kveðjuorð:
Guðmundina Þórunn
Kristjánsdóttir
Fædd: 18. febrúar 1903.
Diin: 12. júlí 1983.
Guðmundína, vinkona mín er
horfin yfir móðuna miklu, laus við
þjáningar þessa lífs. Hún bar sín-
ar þrautir æðrulaus, því þrek
hennar var mikið og sálarró.
Foreldrar hennar voru Sigur-
lína Kolbeinsdóttir og Kristján
Þórðarson, sem bjuggu á ósi við
Steingrímsfjörð. Heimilið á ósi
var yndislegt, þar ríkti guðsótti og
góðir siðir, húslestrar lesnir, sem
venja var á flestum heimilum.
Minnist ég þeirra stunda er ég
fékk að koma í heimsókn að Ósi
þar sem vinátta var milli foreldra
minna og húsráðanda. Þá var það
venja á kvöldum að lesið var upp-
hátt og sátu allir hljóðir undir
lestrinum og höfðu um hönd ein-
hver létt störf, var af þessu hin
besta skemmtan, enda lesarinn
góður, Albert Ingimundarson,
fóstursonur Þórarins og Guð-
mundínu móður Kristjáns.
Ungu hjónin Sigurlína og Krist-
ján bjuggu í sambýli við gömlu
hjónin. Þau áttu 4 börn, þrjár
dætur og einn son, var Guðmund-
ína þeirra elst og þar af leiðandi
þekkti ég hana best, varð strax
hrifin af hvað hún var falleg og
kát.
Um 17 ára varð hún fyrir þeirri
sorg að missa föður sinn, sem hún
unni mjög og nú hlaut að koma í
hennar hlut sem elsta barns að
hjálpa eftir mætti og það tel ég
hana hafa gert. Svo liðu árin. Eft-
ir tvítugt kynntist hún myndar-
manni, Ingimundi Magnússyni frá
Hólum, vel gefnum, listfengum og
duglegum. Hófu þau búskap á ósi
og bjuggu af myndarskap í 8 ár.
Þá veiktist Ingimundur og enn
kom það í hlut Guðmundínu að
sýna hvað í henni bjó. Um hávetur
tók hún sig upp, fór til Reykjavík-
ur og var yfir manni sínum hel-
sjúkum þar til yfir lauk. Hún átti
svo ríka samúð með öllum sem
liðu og gerði svo mörgum gott, þó
ekki væru vandabundnir. Eftir
þetta fór hún aftur að sinna bú-
störfunum. Réði til sín ráðsmann,
Sigurð Arason, og sá hann um
búreksturinn í nokkur ár. Dvöldu
móðir hennar og systur hjá henni
að nokkru. Nokkru síðar giftust
þau Guðmundína og Sigurður,
fluttu til Hafnarfjarðar og stofn-
uðu þar sitt heimili. Var sambúð
þeirra farsæl og reyndist Sigurður
henni traustur og góður maður til
hinstu stundar.
Er mér ofarlega í huga þakklæti
til þeirra hjóna fyrir þann vin-
argreiða er þau tóku dóttur mína,
Guðrúnu, á heimili sitt í þrjá vet-
ur, meðan hún var við nám og
reyndust henni mjög vel. Að end-
ingu votta ég Sigurði Arasyni
mína dýpstu samúð, svo og systk-
inum hennar. Ég kveð hana með
virðingu og þökk.
Megi hún njóta guðsblessunar.
Magndís A. Aradóttir.
2 hlutar af 7 í flugvélinni TF Exp eru til sölu. Flugvélin
er Cessna Hawk XP 11, árg. 1977 meö: 195 Hp-mót-
or, skiptiskrúfu, fullkomnum blindflugstækjum, Glide
Slope Cessna 300 Autopilot, Dual King NAV/ com,
King ADF, King X-power og long range-tönkum.
Upplýsingar veittar í síma 81022 (Sigurjón) og í
síma 53004.
MEÐ í FERÐALAGIÐ
Hljómplata eða kassetta og bók með textum og myndum
BÓKIN FYLGIR ÓKEYPIS
Þetta er kassettan sem börnin hlusta á um leið og þau skoöa
bókina og eru róleg í aftursætinu, svo að allir njóti ferðalagsins
FRÓÐLEGT FJÖRUGT OG SKEMMTILEGT BARNAEFNI
Töfrar og fegurð
Flugleiöir gefa þér kost á aö kynnast töfrum
landsins og fegurð, sem þú hefur ef til vill aðeins
lesið um í ferðabæklingum fyrir útlendinga og
ferðahandbókum. Gististaðir eru allir mjög góðir,
alltfrá fyrsta flokks hótelum til fallegra tjaldstæða,
- og allt þará milli. Miðað er við að ferðalangurinn
nýti sér skipulagða ferðaþjónustu á hverjum
áfangastað eða nýti sért.d. bílaleigurtil að ferðast
á eigin vegum. Hér er um að ræða svo að segja
ótakmarkaða möguleika til að njóta sumarleyfisins
á sem hagkvæmastan hátt.
Sérstakt verð
Sumarreisur Flugleiða eru íslandsferðir fyrir
Islendinga, boðnar á sérstöku verði, sem er 30%
lægra en venjuleg fargjöld, en kaupa þarf einhverja
sumarreisuþjónustu á áfangastað fyrir að minnsta
kosti 600 krónur fyrir hvern ferðalang, - 250 krónur
fyrir börn.
ísafjörður
Sumarreisuþjónusta: Hótel ísafjörður, sigling um
Hornstrandir, sigling um Djúpið, útsýnisferð um
bæinn. Sérstaklega áhugaverð 4ra daga ferð um
Hornstrandir, einn fegursta stað á Vestfjörðum.
Helgarferð, sem hefst á föstudegi og lýkur á
mánudegi.
Akureyrl - Húsavík
Sumarreisuþjónusta. Hótel KEA, Varðborg, Akureyri,
Mývatnsferðir, Eyjafjarðarsigling, útsýnisferðir um
bæinn.
Hótel Húsavík, bílaleiga, sjóstangaveiðiferðir og
Eldárferð, sem er sérstaklega yfirgripsmikil
dagsferð frá Húsavík um Tjörnes, Ásbyrgi,
ÍSLANDSREISUR
IÍSLENDINGA
n ___\ v-I&ÉIœR ;::T _______ Hljóða
Hljóðakletta og til Dettifoss. Þaðan er farið til
Mývatns og aftur til Húsavíkur. Ógleymanleg
náttúrufegurð í rammíslensku umhverfi.
Egilsstaðir - Höfn
Sumarreisuþjónusta: Hótel Valaskjálf, Gistihúsið
Egilsstöðum, bílaleiga gefur kost á könnunarferðum
um fegurstu staði Austfjarða og Héraðs. Jöklaferðir
hf. á Homafirði gefa nú ferðalöngum kost á
sérstakri jöklaferð með lúxus snjóbíl. Þessar
jöklaferðir eru afar vinsælar. Farið er á Vatnajökul í
sérstaklega innréttuðum snjóbíl og ferðast
þægilega um jökulinn í 3-4 klukkustundir. Þetta er
útsýnisferð, sem á sér varla nokkurn líka.
ReykJavík
Sumarreisuþjónusta: Hótel Esja, Hótel Loftleiðir.
Útsýnisferðir til Gullfoss og Geysis með
Kynnisferðum, auk fjölda annarra ferða þeirra.
Útsýnisferð um Reykjavík, dagsferðir og kvöldferð
sem endar á Broadway. Söfn, tónleikar, leikhús,
skemmtistaðir, íþróttastaðir o.m.fl.
Lágmarksdvöl á áfangastað er 4 dagar en
hámarksdvöl 21 dagur.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Nánarl upplýsingar fást hjá sðluskrlfstofum okkar. umboðs-
mönnum og ferðaskrlfstofum.