Morgunblaðið - 24.07.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1983
49
Skrúðganga bískupa og presta í Skálholtskirkju á vígsludaginn 21. júlí 1963.
lagshugsjónir kristindómsins
verði öllum öflum ófriðar og ger-
eyðingar yfirsterkari..."
Lýðháskólinn
20 ára saga hinnar endurreistnu
kirkju ber vitni um blómlega
starfsemi á Skálholtsstað, sem
þjónað hefur sem miðstöð kirkju-
og menningarlífs. Þar hafa t.d.
auk messugjörða verið allmargar
prestvígslur og öflugt hljómleika-
hald. En, það sem ber einna hæst
eftir vígslu Skálholtskirkju, er
stofnun Lýðháskólans í Skálholti
1972. Hann var að mestum hluta
reistur fyrir söfnunarfé, sem barst
víða að.
Ári eftir stofnunina var tekin
upp full kennsla við skólann.
Starfa þar nú tveir fastráðnir
menn, rektor og kennari auk
lausakennara og er nú pláss fyrir
20 nemendur í heimavistinni. Lýð-
háskólanum voru snemma sett lög
og er skipulag hans, sem er utan
skólakerfis, mjög frjálslegt og
engin prófskylda. Markmið skól-
ans, sem er sá eini sinnar tegund-
ar hér á landi, er fyrst og fremst
að vekja almennan menningar-
áhuga og persónurækt. Einnig má
geta þess að skólinn er gjörnýttur
til ýmiss konar fundarhalda utan
starfstíma.
Þvi má segja að sú ósk, sem kom
fram í ályktun Kirkjuráðs 19. júlí
1963, að Skálholtsstaður yrði al-
hliða menningarmiðstöð og afl-
vaki í kristnilífi þjóðarinnar, hafi
að mörgu leyti ræst, en því má
ekki gleyma að viðreisn staðarins
stendur enn.
Skálholtsnefnd eða byggingarnefnd Skálholtakirkju. Frá vinstri: sr. Sveinbjörn Högnason, Hilmar Stefánsson,
bankastjóri, dr. Ásmundur biskup Guðmundaaon og Magnús Már Lárusson, prófessor.
Vígsluathöfnin í Skálholtskirkju. Fyrir altari er hr. Sigurbjörn Einarsson biskup. Prédikunarstóllinn er úr dómkirkju
Brynjólfs biskups Sveinssonar. Þar fluttu m.a. ræður Brynjólfur biskup og Jón biskup Vídalin, sem var frægur fyrir
orðkynngi sfna og mælsku.
A-
EICENDUR
MITSUBISHI
BIFREIÐA
vegna hagstæðra innkaupa hefur okkur
tekist að ná verulegri verðlækkun á vara-
hlutum í Mitsublshi bíla.
Við bjóðum aðeins gæðavöru, viöurkennda
af m.m.C. verksmiðjunum, með ábyrgð.