Morgunblaðið - 24.07.1983, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1983
Or heimi kvikmyndanna■■■■■■■■■■■■
BROOKE SHIELDS
í karlmannsgervi
Góðar hugmyndir hafa alltaf mátt þola eftirhermur. Það nýjasta, sem þó er
ekki svo nýtt, er að karlmenn klæðast gervum kvenna og konur gervum
karlmanna. Við höfum undanfarnar vikur fylgst með Dustin Tootsie Hoff-
man. Barbra Streisand hefur eytt tveimur árum í að kvikmynda „Yentl“,
byggð á sögu eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn Isaac Bashevis Singer. Sagan
fjallar um konu sem verður að klæðast rabbiTötum til að komast í rabbí-
skóla. Og nú hefur Brooke Shields fengið sitt tækifæri.
Hún lauk nýlega við myndina
„Sahara", en í þeirri mynd leikur
hún dóttur kappaksturshetju sem
ætlar að taka þátt í aksturskeppni
í eyðimörkinni. Pabbinn veikist
skyndilega og til að bjarga honum
dulbýr stúlkan sig sem ungan
mann og keppir í hans stað.
Það er fsraelinn Menahem Gol-
an sem framleiðir myndina. Hann
hefur lent í miklum erfiðleikum
því ekki færri en þrír leikstjórar
hafa gefist upp, Robert Wise, Guy
Hamilton og John Guillermin, en
Andrew McLaglen er leikstjóri
þegar þetta er skrifað.
Dulargervi Brooke Shields þykir
ágætt. Þegar hún spígsporaði um
kvikmyndaverið í karlmannsgerv-
inu snerust hausar og allir spurðu
forviða: „Hver er þessi náungi?"
Menahem segir að í myndinni sé
koss kossa, koss sem fær alla til að
hætta að kyssa; hvern Brúkkí
kyssti er ekki vitað enn, — en í
karlsmannsgervinu var hún.
Anthony Perkins úr Psyco og Psycho II:
„Tekur mig hálft ár að
komast inn í hlutverk“
Á sínum tíraa var geðsjúklingur-
inn Norman Bates settur í spenni-
treyju og lokaður inni á geðsjúkra-
húsi eftir að hann hafði framið
nokkur hræðileg morð, m.a. á ungri
stúlku í sturtu. Það gerðist í mynd
Alfreðs Hitchcock, „Psycho", frá ár-
inu 1960, mynd sem nú er talið vera
klassískt meistaraverk. Svo er það
22 árum seinna í nýrri mynd,
„Psycho II“, sem Norman Bates er
úrskurðaður heilbrigður í sálarkytr-
unni og honum er leyft að fara til
síns heima, í mótelið gamla þar sem
hann áður framdi glæpi sína. En það
líður ekki á löngu þar til dularfullir
atburðir fara að gerast
Núna heitir leikstjórinn Rich-
ard Franklin og hann vill meina
að hans mynd sé ekki ódýr endur-
gerð Hitchcock-myndarinnar,
heldur frumleg og vellukkuð hryll-
ingsmynd. Það sama segir Nor-
man Bates, eða Anthony Perkins
sem leikur sjúklinginn í báðum
myndunum. „Þessi nýja mynd
leggur ekki aðaláhersluna á
ofbeldi því það hefði ekki verið í
anda fyrstu myndarinnar ef þessi
síðari hefði verið yfirfull af blóði,"
segir Perkins. „Leikstjóri og fram-
leiðandi „Psycho 11“ voru ekki að
sækjast eftir að endurgera fyrstu
myndina, heldur gera sjálfstæða
mynd í sama anda og með sama
húmor og Hitchcock. Og mér
finnst persónulega að það hafi
tekist hjá þeim og ég held að
gæðamunurinn á þessum tveimur
myndum sé ekki mikill. Norman
Bates er að mínu áliti Hamlet
hryllingsmyndanna, flókinn per-
sónuleiki, sem í fyrstu myndinni
var gersamlega bilaður, en í þess-
ari nýju mynd er hann sér með-
vitaður um andfélagslegar tilhnei-
ingar sínar.
Anthony Perkins, hár, grannur,
óformlega klæddur með kurteis-
islegt yfirbragð, kippir sér ekki
upp við það þegar skotið er að
honum þeirri athugasemd að eins
og í „Psycho" og öðrum myndum
virðist hann vera sérfræðingur í
að leika taugaveiklaðar persónur.
Hann segir: „Þegar persónan, sem
maður leikur, fer að angra einka-
lífið getur maður sagt að maður
hafi fest sig í sama hlutverkinu of
lengi. Mér finnst ég ekki eiga
nokkurn skapaðan hlut sameigin-
legan með Norman Bates, og nú,
þegar ég á konu og börn til að
sanna það, finnst mér ég vera enn
ólíkari honum en áður. Ég er í
rauninni afskaplega afslappaður
maður, og það er hreint ekki
margt í lífinu og tilverunni sem ég
þarf að kvarta'yfir.“
Perkins hefur ekki sést í mörg-
um myndum hin síðari ár. Hann
hefur verið að vinna eftir eigin
handriti sem hann kallar líf barn-
anna minna, og meinar þá að hann
sé í fullu starfi við að ala upp
börnin sín og þykist ekki geta gert
mikið meira i bili. En það er annað
sem hefur haldið honum frá hvíta
tjaldinu. „Ég hef mikið verið að
leika á Broadway og þá í leikritum
sem hafa gengið lengi og það er
gott, því það tekur mig venjulega
ekki minna en hálft ár að komast
almennilega inn í hlutverk. Ég hef
mikla ánægju af að leika í verkum,
sem eru minnst ár í gangi, tala nú
ekki um ef þau eru tvö eins og
„Equus“ þar sem ég lék sálfræð-
ingjnn.
Ófugt við leikritin verður leikari
í kvikmynd að finna sig í hlutverk-
inu á mettíma og undir vökulum
augum leikstjórans," segir
Perkins. Þjóðsagan segir að leik-
stjórinn Hitchcock hafi farið með
leikara undir sinni stjórn eins og
þeir væru aular. „Hitchcock bar
þvert á móti hina mestu virðingu
fyrir mér, hann sýndi hugmyndum
mínum og athugasemdum áhuga,
veitti mér frjálsræði og sýndi mér
tillitssemi. Hann var allt öðruvísi
en menn vilja vera láta og vin-
semd hans var langt frá því að
vera tilbúningur.“
Þrátt fyrir drengjalegt útlit er
Anthony Perkins 51 árs, en hann
tekur aldrinum vel
„Þegar ungir blaðamenn eru að
taka við mig viðtal, segi ég stund-
um um eina eða aðra mynd að hún
hafi verið „mín fyrsta talmynd".
Og þeir segja bara já og halda
áfrám að skrifa í blokkina sína.
Síðan setja þeir í blöðin að ég hafi
verið í þöglu myndunum svo ég er
eiginlega hættur þessari stríðni."
Anthony Perkins