Morgunblaðið - 24.07.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLl 1983
75
Punktar
úr heimi
kvikmyndanna
Return of the Jedi (Star Wars
3) nýtur mikilla vinsælda vest-
anhafs í sumar, og þar með er
miðþætti flokksins lokið (Star
Wars, The Empire Strikes Back,
Jedi, eru númer 4, 5 og 6).
Ákveðið er að ástralski leikstjór-
inn George „Mad Max“ Miller
leikstýri næstu mynd, upphaf-
inu.
★ ★ ★
— Hver leikur Evitu í stór-
myndinni sem nú er á
undirbúningstigi? Leitin að
leikkonunni er farin að líkjast
leitinni að Scarlett O’Hara.
Barbra Streisand vildi hlutverk-
ið, en framleiðandinn Robert
Stigwood vísaði henni á dyr.
Hann vill helst fá Meryl Streep.
Bara að hún gæti sungið.
★ ★ ★
— Dallas-kvikmyndin hefur
lengi verið í fæðingu. Myndin
kemur til með að kosta mikla
peninga, 27 milljónir dala. Philip
Capice, framleiðandinn, segir að
í myndinni sé Ewing-fjölskyldan
sameinuð, en ætli menn verði
ekki að sjá það áður en þeir trúa
því. Allir aðalleikararnir úr
þáttunum verða í myndinni,
nema hún Victoria Pam Princip-
al, því hún neitar að striplast.
★ ★ ★
— Stayin’ Alive heitir nýjasta
mynd John Travolta og er hún
framhald af Saturday Night
Fever. Bee Gees sér um tónlist-
ina, en leikstjóri er enginn annar
en Sylvester Stallone.
★ ★ ★
— Robert Redford hefur loks
gert upp hug sinn. Hann ætlar
ekki, eins og flestir gerðu ráð
fyrir, að leikstýra næstu mynd,
heldur að leika aðalhlutverkið í
„The Natural" sem Barry Lev-
inson leikstýrir. Robert lék síð-
ast I „Brubaker" árið 1980 og
leikstýrði Ordinary People árið
eftir og fékk óskarinn.
— Jeremy Irons er ekki að-
gerðarlaus. Hann lauk nýlega
við mynd Harolds Pinter, „Be-
trayal“ og lék þar á móti Ben
Kingsley. Þá flaug hann til
Þýskalands og lék í The Cap-
tain’s Doll“. I Astralíu lék hann í
„Villiöndinni" á móti Liv Ull-
mann. Nú er hann í Frakklandi
og leikur í „Swann In Love“, sem
er byggð á seinni hluta bókar
eftir Marcel Proust, „Remem-
brances of Things Past“. Fransk-
ir gagnrýnendur eru æfir yfir
því að breskur maður skyldi
leika hetju eftir Proust og að
þýskur maður, Volker Schlön-
dorff, leikstýri. Það er kannski
dálítil huggun harmi gegn að
handritshöfundurinn er fransk-
ur.
★ ★ ★
— Gamla kempan Martin Ritt
hefur orðið að hætta við gerð
kvikmynda að undanförnu vegna
veikinda. Nú hafa læknarnir
ráðlagt honum að hvíla sig, sem
þýðir að hann leikstýrir ekki
Jack Nicholson og Tim Hutton í
Roadshow.
Ofurmanninum fatast ekki flugið
frekar en fyrri daginn. Öðru nær,
þriðju myndinni skaut upp á him-
inhvolfið rétt í þessu og hefur hún
skotið hinum myndunum tveimur
langt aftur fyrir sig.
Merkilegt hvað þessi persóna
fellur vel í kramið hjá almenningi.
Superman og Superman II kost-
uðu um 100 milljón dali í fram-
leiðslu en hafa þegar dregið 600
milljónir dala í kassann um heim
alian. Nú er sú þriðja komin og
verða víst ekki fleiri. Christopher
Reeve er orðinn leiður á þessu sí-
fellda flugi heimsálfa á milli, svo
Alexander Salkind (le poete de
l’argent), sonur hans Ilya, og fé-
lagi Pierre Spengler, peninga-
mennirnir að baki myndanna,
hafa afráðið að gera næst Super-
girl!
Á meðan flestir framleiðendur
neyðast til að fara á knjánum
milli banka, eru Salkind-feðgarnir
ekki í neinum vandræðum með að
fá peninga í sínar Superman-
myndir. En þeir voru staðráðnir í
að þriðja myndin yrði svolítið
öðruvísi en hinar tvær fyrri.
Það er ekki hægt að koma sér
upp öruggri formúlu, er haft eftir
Ilya Salkind, og að sjálfsánægja sé
hættulegri Ofurmanninum heldur
en „kryptonite". Hann segir að
þeir hafi tekið allt það besta úr
gömlu Superman-sögunum og
kryddað með nýju og fersku. En,
segir hann, við vissum frá upp-
hafi, að við yrðum að hafa
skemmtunina að leiðarljósi, ef við
Clark Kent breytir sér í einn Iftinn ofurmmnn.
Ovinur númer eitt I SUPERMAN (númer þrjú): tölvusérfræðingurinn (Rich-
mrd Pryor) og eigmndinn (Robert Vmughn).
ætluðum að gera þrjár vinsælar
myndir um sama manninn.
Um það verður ekki deilt að
myndirnar um Ofurmanninn eru
skemmtilegar, og það er einmitt
það sem hinn almenni bíógestur
sækist eftir.
Þeir sem sáu mynd númer tvö,
muna sjálfsagt að Superman kom
í veg fyrir að Lex Luther eignaði
sér vesturströnd Bandaríkjanna.
En í nýju myndinni berst hann
gegn auðjöfri nokkrum sem hefur
komist að því hvernig stjórna má
umhverfinu. Richard Pryor leikur
manninn, sem kann á tölvuna
miklu, sem verður versti óvinur
Ofurmannsins.
Pryor segir að hann hafi tekið
að sér hlutverkið vegna þess að í
einu atriði dulbýr hann sig sem
herforingi „og gat notið þeirrar
virðingar í hernum sem hann átti
skilið, en naut aldrei". Þegar hann
gekk úr hernum gortaði hann af
því að hann hefði verið fallhlífa-
stökkvari, en var í raun pípulagn-
ingamaður. Hann viðurkennir þó
nú að hann hefði aldrei náð langt í
hernum því hann var svo loft-
hræddur. „Kannski að fólk trúi því
að maður geti flogið... en ég er
enn að grufla i því hvernig vélar
geta hangið svona lengi þarna
uppi.“ I myndinni þurfti hann að
„fljúga" nokkrum sinnum og það
fór næstum með hann, að sögn.
Þriðja myndin er ekki beint
framhald af númer tvö, að
minnsta kosti er jarðneski partur-
inn af Ofurmanninum, Clark
Kent, hættur að dufla við Lois
Lane, fréttamanninn. I þessari
mynd lendir hann í brauki með
annarri skvísu, Lönu löngu (Ann-
ette O’Toole). Þau eru sögn gamlir
skólafélagar og hittast aftur þegar
bekkurinn kemur saman eftir
langan aðskilnað.
Maðurinn sem leikstýrði fyrstu
myndinni, Richard Donner, var
látinn víkja fyrir Richard Lester.
Sá síðarnefndi er titlaður leik-
stjóri myndarinnar númer tvö,
þótt Donner hafi leikstýrt flestum
atriðunum. En framleiðendunum
leist betur á Lester, sem er hinn
ánægðasti með hlutskipti sitt.
Lester er annars þekktastur fyrir
Bítla-myndirnar.
Margir nýir leikarar koma fram
í þessari mynd, Richard Pryor
leikur hér annað stærsta hlut-
verkið, Robert Vaughn leikur auð-
jöfurinn valdagráðuga sem ræður
yfir tölvunni, Annette O’Toole
leikur nýju kærustu Clarks, Pam-
ela Stephenson leikur aðstoðar-
mann vondu kallanna, en einnig
eru persónur úr hinum myndun-
um tveimur, meðal annarra Jackie
Cooper sem leikur ritstjórann og
Margot Kidder leikur Lois Lane,
gömlu kærustu Clarks. — HJÓ
Komið við í
kvikmyndahúsunum
Pryor og félagar í myndlnni Þjófur é lausu í Laugarásbíói.
Sama kvikmyndaval er í dag,
(19.), í Bíóhöllinní og um síðustu
helgi. Sama máli gegnir um
Regnbogann utan aö þar eru
hafnar endursýningar á drama er
geröist í Berlín þriöja áratugar-
ins, Hlaupið í skarðið — Just a
Gigolo.
Meö aöalhlutverkin fara David
Bowie, Kim Novak, Maria Schell
og David Hemmings, sem jafn-
framt leikstýrir. Þá bregöur fyrir
Marlene gömlu Dietrich. Þetta er
merkilegur hræringur sem ætti
aö hvetja sjálfan mig á staö, og
fleiri sem til þessa hafa látiö hjá
líöa aö sjá myndina.
Bíóbær hefur dustaö rykiö af
Endurkomunni, bandarískri
hrollvekju, og Austurbæjarbíó
leggur til atlögu í annaö skipti á
þessu sumri meö Ég, dómarinn
aö vopni. Satt best aö segja þótti
mér Mike karlinn Hammer heldur
lítill fyrir mann aö sjá í höndum
Armandes Assante, en Hammer
var nefnilega hvaö kaldrifjaöast-
ur haröjaxla í lögreglu- og
skúrkabókmenntum minna ungl-
ingsára. Má vera aö mór hafi þótt
lítiö til myndarinnar koma af
þessum sökum.
I Nýja bíói ríkir mikil
slagsmálastemmning enda segir
i auglýsingunni um Karatemeist-
arann, sem frumsýnd var í vik-
unni, aö hér séu engir viövan-
ingar á ferö...
I Laugarásbíói er hinsvegar Þjóf-
ur á lausu — Bustin Loose, ein
af þessum fjölmörgu meöal-
myndum sem ætlaö er aö hala
inn fé á geysivinsældum Richard
Pryors í Vesturheimi.
Vissulega heldur Pryor þjófn-
um á loft, hann er skemmtilegur
og einkar fyndinn í allri fram-
komu. En brandararnir eru frekar
viö hæfi litaðra í Bandaríkjum
Noröur-Ameriku en regnbaröra
Mörlanda. Þó held ég aö ætti aö
fæöast bros á fölum andlitum
okkar af uppákomum einsog
þegar Pryor fær hjálp frá Ku-
Kux-Klan viö aö ná úr festu í for-
arvilpu faratæki sínu!
Efnisþráöurinn er í lóttari kant-
inum. Pryor fer meö hlutverk
smáglæpamanns sem er fenginn
til aö flytja hóp munaöarlausra
vandræöabarna ásamt kennara
þeirra (Cicely Tyson) þvert milli
stranda Bandaríkjanna. Er
skemmst frá því aö segja aö þeg-
ar á leiðarenda er komiö er smá-
krimminn næstum í helgra
manna tölu, alsæll meö kennslu-
konuna í faömi og hornrekurnar
litlu englar í mannsmynd!
STJÖRNUGJÖF:
The Stunt Man ★ ★ ★
Atlantic City ★ ★ ★ W
Hver er morðinginn? ★ ★
í greipum dauðans ★ ★ ★
Tootsie ★ ★ ★
Rocky III ★ ★ ★
Rocky II ★ ★
Mjúkar hvílur mikiö stríö ★
Starfsbræður ★ ★ 'A
Þjófur á lausu ★ 'h
Ég, dómarinn ★
Sæbjörn