Morgunblaðið - 05.08.1983, Page 1
56 SÍÐUR
174. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Loftárásir á tvær
nýjar borgir í Chad
N’Djamena, 4. ágúst. AP.
LÍBÝSKAR sprengjuflugvélar gerðu
loftárásir á stöðvar í Chad sjötta dag-
inn í röð og að þessu sinni á ný
skotmörk. Arásirnar voru gerðar á
borgirnar Kalait og Oum Chalouba,
sem eru hernaðarlega mikilvægar.
Tvaer sovézkar herflutninga-
flugvélar af gerðinni Antonov-26,
merktar lofther Líbýu, millilentu í
Aþenu í dag á leið sinni frá Kænu-
garði í Sovétríkjunum til Trípolí í
Líbýu. Þær voru ekki tollskoðaðar,
en flugvélunum flugu sovézkir og
líbýskir herflugmenn.
Tvær bandarískar AWACS-rat-
sjárflugvélar eru komnar til
Egyptalands viku á undan áætlun
og er talið að þeim sé ætlað að
fylgjast með umsvifum líbýskra
herflugvéla í námunda við víg-
stöðvarnar í Chad. Flugvélarnar
munu síðar taka þátt í árlegum
heræfingum Bandaríkjamanna og
Egypta.
Spenna eykst stöðugt milli
Bandaríkjanna og Líbýu vegna síð-
ustu atburða í Chad og í því sam-
bandi hafa Líbýumenn hlotið
stuðning Sovétmanna. Þrír banda-
Skákeinvígi:
Rússar vilja fara
framhjá FIDE
Moskvu, 4. ágúst. AP.
Skáksamband Sovétríkjanna hvatti
til þess í dag að keppendur í áskor-
endaeinvígjunum í skák héldu eigið
mót framhjá Alþjóöaskáksamband-
inu (FIDE).
Hvöttu Sovétmenn til þess að
viðkomandi skáksambönd tækju
sig út úr FIDE og buðust þeir til að
halda einvígin tvö.
Kváðust Sovétmenn reiðubúnir
að stuðla að því að sérstakt mót
yrði haldið framhjá FIDE og sögð-
ust af því tilefni reiðubúnir til við-
ræðna við fjórmenningana, sem
rétt hafa unnið til þátttöku í áskor-
endaeinvígjunum, og skáksambönd
þeirra. Fjórmenningarnir eru Sov-
étmennirnir Gary Kasparov og
Vasily Smyslov, Victor Korchnoi,
sem keppir í nafni Sviss, og Ung-
verjinn Zoltan Ribli.
Sovézka skáksambandið mót-
mælti þeirri ákvörðun FIDE að
halda fast við áætlanir Campom-
'anesar forseta um að halda áskor-
endaeinvígin í Abu Dhabi og Pasa-
dena í Kaliforníu. Sagði sambandið
að Kasparov og Smyslov vildu
gjarnan að einvígin færu fram, en
ekki á áðurgreindum stöðum, og
því hefðu þeir krafist þess að
fundnar yrðu leiðir út úr sjálfheldu
þeirri sem málið væri komið í. Þar
sem FIDE virti óskir keppenda að
vettugi væri ekki um annað að
velja en fara framhjá FIDE og
kanna hvort hægt væri að koma
einvígjunum í kring með öðrum
Sjá nánar á bls 15.
rískir hernaðarráðgjafar, frá
Bliss-herstöðinni í Texas, eru
komnir til N’Djamena til aðstoðar
hersveitum Hissene Habre forseta.
Reagan Bandaríkjaforseti átti
viðræður við Mobutu, forseta Zaire,
í Hvíta húsinu í dag um ástandið í
Chad og hrósaði Reagan Mobutu
fyrir það „hugrekki,, að senda
sveitir til Chad til aðstoðar sveit-
um Habre. Hét Reagan Zaire auk-
inni efnahagsaðstoð við þetta tæki-
færi.
Sveitir uppreisnarmanna, sem
styðja Goukouni Oueddi fyrrum
forseta, náðu Kalait og Oum Chal-
ouba á sitt vald 9. júlí sl. en stjórn-
arherinn náði þeim aftur þremur
dögum seinna. Um borgirnar liggja
aðalsamgönguæðar til austurhluta
Chad. Þær eru 350 kílómetra suð-
austur af Faya Largaeu.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
„nokkurt tjón“ hafa hlotist af loft-
árásum Líbýumanna. Hingað til
hafa Líbýumenn einskorðað loftár-
ásir sínar við vígstöðvarnar við
Faya Largeau, sem stjórnarherinn
náði úr klóm uppreisnarmanna sl.
laugardag, en þá hafði borgin verið
í höndum þeirra í röskan mánuð.
Landgönguliði úr bandaríska flotanum mundar byssu með
Redeye-loftvarnarflaug, sömu gerðar og þær flaugar eru sem Bandaríkja-
menn hafa sent stórnarhernum í Chad. Þrír bandarískir hernaðarráðgjafar
eru komnir til Chad til að kenna þarlendum að nota flaugarnar gegn
líbýskum árásarflugvélum. AP/sim.mynd.
ísraelsher flytur
hergögn til strandar
Beírút, 4. igúst. ap. I Beirút og er talið að um sé að ræða
ÍSRAELSHER hóf að flytja her- fyrsta skrefið í fyrirhugaðri til-
gögn úr Chouf-fjöllunum, í mið- færslu ísraelskra hersveita í Líban-
hluta Líbanon, til strandar suður af | on.
Palme tilbúinn til
viðræðna við Dani
Stokkhólmi, 4. ágúst. AP.
OLOF Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, sagði á blaðamannafundi í
dag að ákvörðun Dana um að hefja
olíuleit á umdeildu svæði á Kattegat
ætti enga hliðstæðu í samskiptum
Dana og Svía undanfarin 30 ár.
Kröfðust Svíar þess formlcga í dag
að borununum yrði hætt þegar í
stað.
Palme kvað ákvörðun Dana
„gerræðislega" og gagnrýndi það
harðlega að fyrri mótmæli sín
skyldu að vettugi virt. Palme
endurtók margsinnis á fundinum
að sænska stjórnin væri reiðubúin
að setjast niður með þeirri dönsku
til að reyna að jafna ágreininginn
um miðlínu á Kattegat.
Búist er við að Palme og Paul
Schlúter ræði um deilu þessa þeg-
ar þeir hittast á fundi forsætis-
ráðherra Norðurlandanna um
helgina.
Eyjan umdeilda á Kattegat, Hesseleyja, sem Svíar og Danir þrátta um.
Sagði Palme að ríkisstjórn
borgaraflokkanna hefði setið að
völdum í Svíþjóð þegar síðast var
reynt að jafna ágreining ríkjanna
um yfirráð yfir Kattegat, en það
var árið 1978.
Kvað Palme það alvarlegast í
deilu þessari að dönsk yfirvöld
hefðu í júní sl. leyft tilraunabor-
anir á umdeilda svæðinu, án þess
að hafa samráð um það við sænsk
yfirvöld.
Palme sagði ákvörðun Dana
brjóta í bága við hafréttarsátt-
málann frá 1982 og einnig væri
hún á skjön við samþykktir nor-
rænu umhverfisráðstefnunnar frá
1974.
Palme sagði að Svíum væri
áfram um að deila þessi yrði leyst
á friðsamlegan hátt. Aðspurður
sagðist hann vona að ekki þyrfti
til þess að koma að Svíar færu
með deiluna fyrir Alþjóðadóm-
stólinn í Haag.
Robert C. McFarlane, sendi-
maður Bandaríkjanna í Miðaust-
urlöndum, sagði eftir viðræður
við Begin forsætisráðherra,
Shamir utanríkisráðherra og Ar-
ens varnarmálaráðherra í ísrael,
að „framfaraskref" hafi verið
stigið í tilraunum til að tryggja
brottflutning erlendra herja frá
Líbanon.
McFarlane skaust að vörmu
spori til Beirút til fundar við Elie
Salem utanríkisráðherra og Wa-
dih Haddad, aðalráðgjafa Gema-
yels í varnarmálum, en ekkert
fréttist um gang viðræðnanna
þar áður en Mbl. fór í prentun.
Viðræður McFarlane í Jerúsal-
em og Beirút snerust um til-
færslu Israelshers i Libanon og
hvernig tryggja mætti að til-
færslan skildi ekki eftir sig tóma-
rúm sem hrinda kynni af stað
borgarastríði milli kristinna
manna og múhameðstrúarmanna
í Chouf-fjallahéruðunum.
Leiðtogar drúsa hafa krafist
pólitískra samninga af stjórn
Gemayels áður en stjórnarherinn
verður sendur inn á svæðið til að
taka þar við af ísraelum. Krefj-
ast drúsar að sveitir kristinna
manna, sem styðja Gemayel,
hverfi frá fjöllunum og að stöðv-
um þeirra þar verði lokað, ella
muni þeir veita stjórnarhernum
mótspyrnu.
Robert C. McFarlane
Langar lestir ísraelskra her-
flutningabifreiða sáust aka eftir
Sídonveginum gamla til hafnar-
borgarinnar Damour, sem er 15
km suður af Beirút. Samtímis var
sagt að ísraelar væru að gera
vegi og reisa stöðvar meðfram
Awali-fljótinu. íbúar á svæðinu
segja ísraela undirbúa flugvall-
arbyggingu við ána.
Vestrænn diplómat sagði ísra-
ela einungis vera að flytja óþarfa
búnað frá Chouf-fjöllunum, þeir
yrðu þar áfram með fullum
herstyrk, með skriðdreka og
loftvarnarbyssur, en þegar eigin-
leg tilfærsla kæmi til yrði hún
auðveld og fljótleg.