Morgunblaðið - 05.08.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
3
6F‘ • ár*'
'7:
MorgunblidiA/Steiiar
Æskan SF 140 varð aflahRst á humarvertíð að þessu sinni.
Höfn, Hornafirði:
Humaraflinn
minni en í fyrra
llöfn, Hornanrdi, 3. ágúst.
HUMARVERTÍÐ er nú lokið hér og
varð aflinn talsvert minni en á síð-
ustu vertíð eða nærri 100 lestum
minni. Aflahæsti báturinn að þessu
sinni varð Æskan SF 140.
Nú stunduðu alls 20 bátar veið-
arnar og lögðu upp hjá fiskverk-
unarstöð KASK og Stemmu hf.
Aflahæstu bátarnir urðu Æskan
með 18,514 lestir, Haukafell með
17,708 og Garðey með 17,215 lestir.
Allir þessir bátar lönduðu hjá
KASK. Þrír aflahæstu bátar hjá
Stemmu voru Heinaberg með
11,816 lestir, Halldór Jónsson með
10,874 og Matthildur með 10,485
lestir. Heildaraflinn á vertíðinni
Flugmaður
gleymdi að
láta vita af sér
UNGIR menn á lítilli einkaflugvél
lögðu upp frá Sauðárkróki í fyrradag,
án þess að láta vita um ferðir sínar,
eins og lög og reglur gera ráð fyrir.
Fljótlega var farið að grennslast
fyrir um ferðir þeirra og kom þá í
ljós, að þeir höfðu lent í túnjaðri
bæjar í Blönduhlíð í Skagafirði og
sátu við kaffidrykkju í góðu yfirlæti,
þegar haft var samband við þá.
Grétar H. Óskarsson hjá Loft-
ferðaeftirlitinu sagði að flugmaður-
inn yrði ávíttur fyrir þetta kæru-
leysi, enda væri það gífurlega mikil-
vægt atriði út frá öryggissjónarmið-
um, að menn létu vita af ferðum sín-
Verðlagsráð
samþykkti
hækkanir
VERfíLAGSRÁÐ hefur samþykkt á
fundi sínum, að heimila Landleiðum
20% hækkun á fargjöldum á leiðinni
milli Reykjavfkur og Hafnarfjarðar.
Hækkunin hefur í för með sér, að far-
gjöld fullorðinna hækka úr 32 krónum
í 39 krónur.
Þá samþykkti Verðlagsráð, að
heimila 14—14,5% hækkun á far-
gjöldum sérleyfisbifreiða. Ráðið
samþykkti og að heimila Arnarflugi
11% hækkun á fargjöldum sínum á
innanlandsleiðum.
Loks samþykkti Verðlagsráð, að
heimila 23% hækkun á saltfiski, sem
hefur í för með sér, að kílóið af salt-
fiski í neytendapakkningum hækkar
úr 61,05 krónum í 75,10 krónur.
Umræðu um hækkunarbeiðni
Sementsverksmiðju ríkisins í Verð-
lagsráði var frestað og óskað eftir
frekari skýringum fyrirtækisins
fyrir hækkunarþörfinni.
o
varð 223,315 lestir en í fyrra
320,093 lestir, en þá stunduðu 22
bátar veiðarnar. Fréttaritari
8.000 tunnur af hrognum
fengust á grásleppuvertíð
— vertíð brást fyrir norðan og austan, en var þokkaleg vestanlands
Grásleppuvertíð er nú lokið um
allt land og skilaði hún alls um
8.000 tunnum af hrognum. Vertíð-
in brást nær alveg fyrir Norður- og
Austurlandi en var þokkaleg fyrir
Vesturlandi að sögn Rögnvalds
Einarssonar, formanns samtaka
grásleppuhrognaframleiðenda.
Nú var alls úthlutað 387 leyf-
um til grásleppuveiða, en í fyrra
voru það 348 leyfi og fengust þá
alls um 6.000 tunnur af hrogn-
um. Árið 1981 voru útgefin leyfi
522 og þá fengust alls um 20.000
tunnur af hrognum. Árið 1980
fengust 18.000 tunnur, þannig að
ljóst er að vertíðin nú og í fyrra
er með lakasta móti.
Rögnvaldur sagði ennfremur,
að sala hrognanna hefði gengið
mjög vel og væru nú öll hrogn
seld og ekki hefði náðst að anna
eftirspurn. Verð fyrir tunnu
hefði nú verið 330 dollarar og
væri það 10% hækkun í dollur-
um frá því í fyrra. Væru menn
ánægðir með það verð og ætti
líklega minnkandi framleiðsla
og aukin eftirspurn þátt í þvi að
svo gott verð hefði fengist. Sagði
hann, að söltuðu hrognin væru
aðallega seld til Danmerkur og
Þýzkalands, en kavíar að mestu
til Frakklands. Væri það Sölu-
stofnun lagmetis, sem aðallega
annaðist sölu niðurlagðra
hrogna og flytti hún meðal ann-
ars út fyrir Arctic á Akranesi,
sem væri stærsti framleiðandi
kavíars hér á landi. Þá gat
Rögnvaldur þess, að vertíðin nú
hefði sér vitandi gengið áfalla-
laust fyrir sig, engin slys hefðu
orðið á mönnum, en grásleppu-
karlar hefðu nú verið tryggðir
við störf sín í fyrsta sinn.
VISA-K0RT
eru nu
afgreidd á 120
afgreiðslustödum
banka og sparisjóða
VISA ISLAND hefur opnað aðalskrifstofu sína
að Austurstræti 7 í Reykjavík
VISA ÍSLAND er þjónustufyrirtæki á sviði greiðslukorta. Það
er Scuneignarfélag 5 banka og 13 sparisjóða og starfar um
allt land.
Fyrirtækið er aðili að VISA INTERNATIONAL, sem er stærsta og
öflugasta greiðslukortafélag heims.
VISA er samstarfsvettvangur 15000 banka og sparisjóða í 160
löndum. Viðskiptaaðilau- VISA eru 4 milljónir fyrirtækja,
einkum á sviði verslunar og þjónustu. Handhaféu' VISA-korta
eru um 100 milljónir talsins.
VISA-greiðslukort eru fjórðungi útbreiddari en önnur
sambærileg kort.
Þeir, sem þurfa að ferðast mikið erlendis, eiga þess kost að
fá VISA-kort hjá viðskiptabanka sínum eða sparisjóði.
Notkun kortanna er háð sérstökum reglum Gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans.
VERIÐ VELKOMIN í VISA VIÐSKIPTI.
^ÖS
'O
INNLENT
Eignaradilar:
Alþýðubankinn hf.
Búnaðarbanki íslands
Iðnaðarbanki íslands hf.
Landsbanki íslands
Samvinnubanki íslands hf.
Sparisjóður Bolungarvíkur
Eyrasparisjóður,
Patreksfirði
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Mýrasýslu,
Borgamesi
Sparisjóður Norðfjarðar,
Neskaupstað
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Sparisjóður Siglufjcu-ðar
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Sparisjóður Svarfdæla,
Dalvík
Sparisjóður V-Húnavatnssýslu,
Hvammstanga
Sparisjóður Vestmannaeyja
AND
Austurstræti 7, 3. hæð. Pósthólf 1428, 121 Reykjavík, sími 29700.