Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 3 6F‘ • ár*' '7: MorgunblidiA/Steiiar Æskan SF 140 varð aflahRst á humarvertíð að þessu sinni. Höfn, Hornafirði: Humaraflinn minni en í fyrra llöfn, Hornanrdi, 3. ágúst. HUMARVERTÍÐ er nú lokið hér og varð aflinn talsvert minni en á síð- ustu vertíð eða nærri 100 lestum minni. Aflahæsti báturinn að þessu sinni varð Æskan SF 140. Nú stunduðu alls 20 bátar veið- arnar og lögðu upp hjá fiskverk- unarstöð KASK og Stemmu hf. Aflahæstu bátarnir urðu Æskan með 18,514 lestir, Haukafell með 17,708 og Garðey með 17,215 lestir. Allir þessir bátar lönduðu hjá KASK. Þrír aflahæstu bátar hjá Stemmu voru Heinaberg með 11,816 lestir, Halldór Jónsson með 10,874 og Matthildur með 10,485 lestir. Heildaraflinn á vertíðinni Flugmaður gleymdi að láta vita af sér UNGIR menn á lítilli einkaflugvél lögðu upp frá Sauðárkróki í fyrradag, án þess að láta vita um ferðir sínar, eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Fljótlega var farið að grennslast fyrir um ferðir þeirra og kom þá í ljós, að þeir höfðu lent í túnjaðri bæjar í Blönduhlíð í Skagafirði og sátu við kaffidrykkju í góðu yfirlæti, þegar haft var samband við þá. Grétar H. Óskarsson hjá Loft- ferðaeftirlitinu sagði að flugmaður- inn yrði ávíttur fyrir þetta kæru- leysi, enda væri það gífurlega mikil- vægt atriði út frá öryggissjónarmið- um, að menn létu vita af ferðum sín- Verðlagsráð samþykkti hækkanir VERfíLAGSRÁÐ hefur samþykkt á fundi sínum, að heimila Landleiðum 20% hækkun á fargjöldum á leiðinni milli Reykjavfkur og Hafnarfjarðar. Hækkunin hefur í för með sér, að far- gjöld fullorðinna hækka úr 32 krónum í 39 krónur. Þá samþykkti Verðlagsráð, að heimila 14—14,5% hækkun á far- gjöldum sérleyfisbifreiða. Ráðið samþykkti og að heimila Arnarflugi 11% hækkun á fargjöldum sínum á innanlandsleiðum. Loks samþykkti Verðlagsráð, að heimila 23% hækkun á saltfiski, sem hefur í för með sér, að kílóið af salt- fiski í neytendapakkningum hækkar úr 61,05 krónum í 75,10 krónur. Umræðu um hækkunarbeiðni Sementsverksmiðju ríkisins í Verð- lagsráði var frestað og óskað eftir frekari skýringum fyrirtækisins fyrir hækkunarþörfinni. o varð 223,315 lestir en í fyrra 320,093 lestir, en þá stunduðu 22 bátar veiðarnar. Fréttaritari 8.000 tunnur af hrognum fengust á grásleppuvertíð — vertíð brást fyrir norðan og austan, en var þokkaleg vestanlands Grásleppuvertíð er nú lokið um allt land og skilaði hún alls um 8.000 tunnum af hrognum. Vertíð- in brást nær alveg fyrir Norður- og Austurlandi en var þokkaleg fyrir Vesturlandi að sögn Rögnvalds Einarssonar, formanns samtaka grásleppuhrognaframleiðenda. Nú var alls úthlutað 387 leyf- um til grásleppuveiða, en í fyrra voru það 348 leyfi og fengust þá alls um 6.000 tunnur af hrogn- um. Árið 1981 voru útgefin leyfi 522 og þá fengust alls um 20.000 tunnur af hrognum. Árið 1980 fengust 18.000 tunnur, þannig að ljóst er að vertíðin nú og í fyrra er með lakasta móti. Rögnvaldur sagði ennfremur, að sala hrognanna hefði gengið mjög vel og væru nú öll hrogn seld og ekki hefði náðst að anna eftirspurn. Verð fyrir tunnu hefði nú verið 330 dollarar og væri það 10% hækkun í dollur- um frá því í fyrra. Væru menn ánægðir með það verð og ætti líklega minnkandi framleiðsla og aukin eftirspurn þátt í þvi að svo gott verð hefði fengist. Sagði hann, að söltuðu hrognin væru aðallega seld til Danmerkur og Þýzkalands, en kavíar að mestu til Frakklands. Væri það Sölu- stofnun lagmetis, sem aðallega annaðist sölu niðurlagðra hrogna og flytti hún meðal ann- ars út fyrir Arctic á Akranesi, sem væri stærsti framleiðandi kavíars hér á landi. Þá gat Rögnvaldur þess, að vertíðin nú hefði sér vitandi gengið áfalla- laust fyrir sig, engin slys hefðu orðið á mönnum, en grásleppu- karlar hefðu nú verið tryggðir við störf sín í fyrsta sinn. VISA-K0RT eru nu afgreidd á 120 afgreiðslustödum banka og sparisjóða VISA ISLAND hefur opnað aðalskrifstofu sína að Austurstræti 7 í Reykjavík VISA ÍSLAND er þjónustufyrirtæki á sviði greiðslukorta. Það er Scuneignarfélag 5 banka og 13 sparisjóða og starfar um allt land. Fyrirtækið er aðili að VISA INTERNATIONAL, sem er stærsta og öflugasta greiðslukortafélag heims. VISA er samstarfsvettvangur 15000 banka og sparisjóða í 160 löndum. Viðskiptaaðilau- VISA eru 4 milljónir fyrirtækja, einkum á sviði verslunar og þjónustu. Handhaféu' VISA-korta eru um 100 milljónir talsins. VISA-greiðslukort eru fjórðungi útbreiddari en önnur sambærileg kort. Þeir, sem þurfa að ferðast mikið erlendis, eiga þess kost að fá VISA-kort hjá viðskiptabanka sínum eða sparisjóði. Notkun kortanna er háð sérstökum reglum Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans. VERIÐ VELKOMIN í VISA VIÐSKIPTI. ^ÖS 'O INNLENT Eignaradilar: Alþýðubankinn hf. Búnaðarbanki íslands Iðnaðarbanki íslands hf. Landsbanki íslands Samvinnubanki íslands hf. Sparisjóður Bolungarvíkur Eyrasparisjóður, Patreksfirði Sparisjóður Hafnarfjarðar Sparisjóðurinn í Keflavík Sparisjóður Kópavogs Sparisjóður Mýrasýslu, Borgamesi Sparisjóður Norðfjarðar, Neskaupstað Sparisjóður Ólafsfjarðar Sparisjóður Siglufjcu-ðar Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík Sparisjóður V-Húnavatnssýslu, Hvammstanga Sparisjóður Vestmannaeyja AND Austurstræti 7, 3. hæð. Pósthólf 1428, 121 Reykjavík, sími 29700.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.