Morgunblaðið - 05.08.1983, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
Góð veiði Sigiu-
fjarðarbáta
Siglufirði, 3. ágúst.
SIGLUVÍK landaði hér 150 lestum í gær, Siglfirðingur landar 60 lestum f dag
og Stálvík mun væntanlega landa 140 lestum á morgun. Afli togaranna hefur
verið nokkuð góður að undanförnu og mestmegnis þorskur. Þá er veiðin
einnig að glæðast hjá þeim á trillunum. Þeir hafa komið með allt að einu
Miklar vegaframkvæmdir hafa verið í sumar í Mikla-
dal í Patreksfirði og á Víðieyrum í Tálknafirði.
Vegagerðarmenn að störfum. Morgunblaðíð/ J6n Pétursson.
Patreksfjörður:
Miklar vegaframkvæmdir í sumar
Patreksfirdi, 29. júlí.
í SUMAR hafa verið miklar vegaframkvæmdir á
milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Að sögn
Braga Thoroddsen vegaverkstjóra var hafist
handa við framkvæmdirnar í byrjun júní. Hafa
þær gengið nokkuð vel en verkið hefur verið mjög
erfitt, sérstaklega aksturinn á efninu sem allt þarf
að taka í Tálknafirði. Þetta mun nálægt því að
vera um 5 kílómetra vegarkafli, og hefur hann
allur verið undirbyggður, um 1,5 km í Tálknafirði
og 3,5 í Patreksfirði. Búið er að leggja bundið
slitlag Tálknafjarðarmegin, þ.e. á veginn um Víði-
eyrar frá Norður-Botnsá að Keldeyrará en fljót-
lega eftir verslunarmannahelgina verður lagt
bundið slitlag á veginn í Mikladal. P.S.
tonni eftir daginn.
Veðrið er mjög gott hér um
þessar mundir. Margir ferðamenn
hafa lagt leið sína hingað í sumar
og venju fremur stansað fremur
lengi hér í bænum. Það kæmi mér
ekki á óvart að það væri vegna
þess að þeir kviðu svo mikið fyrir
að fara vegna þess hve vegurinn er
slæmur út úr bænum. Ég hef ekki
farið eftir verri vegi og mér dettur
oft í hug skriðdreki þegar ég er að
fara hér út ströndina. Vegagerðin
hefur nokkrum sinnum sett niður
hæla þarna á veginum, en þeir
hafa jafnóðum dottið í burtu og
ekkert meira verið aðhafst.
Menn eru að velta því fyrir sér
hvort Vegagerðin hefur að þessu
sinni sett upp hælana fyrir fjár-
málaráðherrann sem væntanlegur
er hingað á morgun!
— Matthías.
Breytt eiturlyfjalöggjöf á Spáni:
Reynslan verður að leiða í Ijós
þörfina á hertu eftirliti
— segir Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustj. á Keflavíkurflugyelli
„ÞAÐ ER RÉTT að ígrunda það
vandlega, en sjálfsagt verður reynsl-
an að segja til um það hvaða áhrif
þetta hefur,“ sagði Þorgeir Þor-
steinsson, lögreglustjóri á Keflavík-
urflugvelli, aðspurður um hvort
breytt eiturlyfjalöggjöf á Spáni, þar
sem sú breyting er gerð að ekki er
lengur saknæmt að hafa undir hönd-
um eiturlyf til einkanota, gerði kröf-
ur um hert eftirlit með farþegum frá
Spáni frá því sem nú tíðkast. Að
minnsta kosti 8 þúsund íslendingar
lögðu leið sína til Spánar á síðasta
Bókaútgáfan Iðunn:
Ný bók eftir
Þórarin Eldjárn
KYRR KJÖR heitir bók eftir Þór-
arin Eldjárn sem væntanleg er hjá
bókaútgáfunni Iðunni í haust, að
því er Jóhann Páll Valdimarsson
hjá Iðunni tjáði Mbl. í gær. Þetta
er fyrsta langa saga Þórarins Eld-
járns og er efni bókarinnar svið-
sett á 18. öld.
Aðalpersónan, Guðmundur
Bergþórsson, sem ber sitt rétta
nafn í bókinni, gekk undir nafn-
inu Stapakrypplingurinn. Hann
var dvergvaxinn og mikið lík-
amlega bæklaður, en talinn mik-
ið ákvæðaskáld og orti m.a.
Olgeirsrímur, sem eru með
lengstu rímum sem ortar hafa
verið á íslandi. Að sögn Jóhanns
Páls bera fleiri persónur sem
koma við sögu sín réttu nöfn, en
ekki er þó um heimildaskáldsögu
að ræða.
Fyrsta skáldsaga Stefaníu
Þorgrímsdóttur kemur einnig út
hjá Iðúnni síðar á þessu ári.
Þessi skáldsaga hefur ekki enn
fengið nafn, en Stefanía er dóttir
Jakobínu Sigurðardóttur í
Garði.
Ljóðabók Hannesar Péturs-
sonar, 36 ljóð, er nýkomin út hjá
Iðunni, en frá útkomu hennar
hefur áður verið sagt í Mbl.
Af þýddum bókum kemur m.a.
út bók eftir rúmanska rithöf-
undinn Zaharia Stancu, en hún
ber íslenska nafnið Meðan eld-
arnir brenna, og er i þýðingu
Kristínar Thorlacius. Einnig
verður gefin út bók eftir kúb-
anska rithöfundinn Alejeo Car-
pentier. Hún heitir Ríki af þess-
Þórarinn Eldjárn
um heimi og er í þýðingu Guð-
bergs Bergssonar. Að auki verð-
ur gefin út ný þýðing Hannesar
Péturssonar á Hamskiptunum
eftir Franz Kafka og fleiri sög-
um. Þetta eru allt sögur sem
Kafka heimilaði útgáfu á meðan
hann lifði. Hannes þýddi þessa
bók fyrir mörgum árum og kom
hún þá út hjá Menningarsjóði,
en hann hefur nú endurþýtt
hana.
Öldin okkar kemur út í haust
og verður í þeirri bók fjallað um
tímabilið frá 1971 til 1975 og það
er Gils Guðmundsson sem hefur
tekið hana saman.
Jóhann Páll gat þess að lokum
að hér væri aðeins stiklað á
stóru, enda sendi Iðunn frá sér
um 100 bókatitla á þessu ári.
ári með beinu leiguflugi, fyrir utan
þá sem sóttu Spán heim með öðrum
hætti.
Þorgeir sagði að þeim hefði ekk-
ert borist formlega ennþá um
þessar breytingar á spánskri eit-
urlyfjalöggjöf eða um viðbrögð ís-
lendinga við þeim. „Við reynum að
hafa það eftirlit með þessu sem
mannaráð leyfa og munum ekki
síður fylgjast með farþegum frá
Spáni en annars staðar frá, eins
og gert hefur verið hingað til,“
sagði Þorgeir ennfremur.
„Það er vissulega alvarlegt, ef
einhverjir eru að gefast upp í
þeirri viðleitni að hamla á móti
notkun eiturlyfja," sagði Jón
Helgason, dómsmálaráðherra, í
samtali við Morgunblaðið um
þessar breytingar og hvernig þær
horfðu við fslendingum. Jón sagði
að ráðuneytið myndi afla sér upp-
lýsinga um þetta mál og gera þær
ráðstafanir sem þyrfti vegna
þessa. Jón sagði aðspurður um
hvort til greina kæmi að mótmæla
þessari lagasetningu Spánverja
eins og Norðmenn hyggjast gera,
að ef að í ljós kæmi að þarna væri
um brot á alþjóðasamningi að
ræða, þá myndi það verða skoðað,
en það færi eftir efni málsins og
hvað í ljós kæmi við könnun þess.
Aðspurður um hvort tollgæsla á
Keflavíkurflugvelli varðandi far-
þega frá Spáni yrði hert, sagði
Jón, að það yrði athugað, en eftir-
lit með farþegum erlendis frá væri
í ágætu horfi.
10. þúsundasti far-
þeginn með Eddunni
BÍLA- og farþegaferjan Edda hefur nú flutt liðlega 10.000 farþega frá því að
skipið hóf siglingar í byrjun júní sl., að sögn Einars Ilermannssonar, fram-
kvæmdastjóra Farskips.
Einar Hermansson sagði enn-
fremur, að 10. þúsundasti farþeg-
inn hefði komið um borð í Eddu í
Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi,
sem er annar viðkomustaður skips-
ins í Evrópu, en hinn er Newcastle
í Englandi.
Einar sagði að mikill fjöldi far-
þega hefði farið með skipinu á mið-
nætti í gærkvöldi og voru t.d. allir
farþegaklefar uppseldir fyrir ferð-
ina. Þá koma það ennfremur fram,
að fólksflutningar á milli Bret-
lands og Þýskalands hafa stöðugt
verið að aukast og í sl. viku fóru t.d.
202 farþegar með skipinu frá New-
castle til Bremerhaven.
Einar Hermannsson sagði, að
bókanir í ferðir það sem af er
sumri hafi aukist jafnt og þétt að
undanförnu og væru fáir klefar eft-
ir í ferðirnar 17. og 24. ágúst nk.
Landsmálafélagið
Vörður:
Rit um
þróun
íslenskra
þjóðmála
komið út
Landsmálafélagið Vörður hefur
gefið út rit er nefnist Þróun ís-
lenskra þjóðmála í Ijósi stefnu
Sjálfstæðisflokksins.
í ritinu birtast erindi er flutt
voru á ráðstefnu Varðar sl. vor.
Eftirfarandi erindi birtast í rit-
inu: Stjórn peningamála og lána-
markaðar: Bjarni Bragi Jónsson.
Atvinnumál: Víglundur Þorsteins-
son. Utanríkismál og viðskipta-
tengsl: Björn Bjarnason. Skatt-
heimta á íslandi og hlutur hins
opinbera: Pétur H. Blöndal.
Þá birtist í ritinu útdráttur úr
pallborðsumræðum sem fram fóru
í lok ráðstefnunnar, en auk fram-
sögumanna tóku þátt í þeim þau
Geir Hallgrímsson, Sverrir Her-
mannsson, Salome Þorkelsdóttir,
og Davíð Oddsson. Umræðunum
stjórnaði Jónas Bjarnason.
Ábyrgðarmaður og ritstjóri rits
Landsmálafélagsins Varðar er
Kristinn Jónsson.
Ritið fæst afhent ókeypis á
skrifstofu Varðar í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1.
Breytingar á umferð í Reykjavík:
Leyfilegt að aka norður
Aðalstræti af íslandsplani
NOKKRAR breytingar munu eiga
sér stað á umferð í Reykjavfk í dag,
5. ágúst. Þá verður leyfilegt að aka
norður Aðalstræti af Hótel ís-
landsplani svonefndu, en það hefur
hingað til verið bannað. Þá verða
bifreiðastöður einnig heimilar á
Túngötu milli Hólsvallagötu og
Hofsvallagötu, fyrir framan Landa-
kotsspítala, að hluta til upp á gang-
stétt.
Aðrar breytingar sem verða á
umferð í Reykjavík eru: Ein-
stefnuakstur verður á Ránargötu
til austurs frá Ægisgötu að
Garðastræti og heimilt verður að
leggja bílum beggja vegna götunn-
ar á sama kafla.
— bifreiðastöður verða bannað-
ar á 12 metra kafla á sunnan-
verðri Leifsgötu til austurs frá
húsalínu Barónsstígs.
— á húsagötu vestan megin
Grensásvegar verður einstefnu-
akstur til suðurs.
— á húsagötu austan megin
Grensásvegar verður einstefnu-
akstur til norðurs. Bifreiðastöður
verða leyfðar beggja vegna ak-
brautar, skástæði að austanverðu,
en langstæði að vestanverðu við
Grensásveg.
— á húsagötu meðfram Síðu-
múla verður einstefnuakstur til
norðurs.