Morgunblaðið - 05.08.1983, Side 15

Morgunblaðið - 05.08.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 15 Nýjar sannanir um „gult regn“ Washington, 4. ágúst. AP. BANDARÍSK stjórnvöld sendu Sameinuóu þjóðunum í gær ný gögn sem sýndu fram á að notuð hafa verið bönnuð eiturvopn í Suðaustur- Asíu fyrir tilstilli Sovétríkjanna. Gögnin sem um ræðir eru blóð- sýni tekin úr flóttamönnum frá Laos sem hafast við í nágranna- ríkinu Thailandi. Fjögur sýni voru send til Sameinuðu þjóðanna, úr þremur konum og einum skæru- liða stjórnarandstæðinga. Öll sýn- in báru þess merki að eiturefni sem bönnuð hafa verið með al- þjóðlegum samþykktum hafa verið notuð. Talsmaður bandaríska utanrík- isráðuneytisins sagði í gær, að Angóla: þessi gögn væru ekkert annað en viðbót við fjölmörg önnur. í þrjú ár hafa Bandaríkjamenn sakað Sovétríkin um að nota ólögleg ejt- urefnavopn í baráttunni við frels- issveitir í Afganistan, auk þess sem þeir hafi séð stjórnvöldum í Kambódíu og Laos fyrir sams kon- ar vopnum til að beita gegn frels- issveitum. Sovétmenn hafa jafnan neitað harðlega að þeir noti þessi vopn, en þau eru afar hryllileg, valda miklum blæðingum, uppköstum og ógleði áður en þau draga fórnar- lömb sín til dauða ef þau hafa orð- ið fyrir þeim í of ríkum mæli. Hef- ur verið talað um „gula regnið". Stórsókn UNITA Uppreisnar minnst Þúsundir Pólverja söfnuðust saman í Powazki-kirkjugarðinum í Varsjá sl. mánudag til að minnast þess, að þann dag voru 39 ár liðin frá því að borgarbúar gerðu uppreisn gegn nasistum. Talið er, að um 200.000 manns hafi látið lífið í uppreisninni. Það, sem einkenndi minningarhátíðina að þessu sinni, var V-merkið, merki Samstöðu, sem táknar sigur fólksins yfir kúgurum sínum hvort sem þeir eru af nasískum eða kommúnískum toga. AP. HM í skák: Campomanes útilokar ekki nýja keppnisstaði Ridursð liiírnulavíu A ámiut AI* Belgrað, Júgóslavíu, 4.ágúst. AP. Lissabon, 4. ágúst. AP. Skæruliðar UNITA í Angóla segj- ast hafa hrundið af stað mikilli sókn gegn stjórnarhernum í land- inu um mánaðamótin síðustu og hafi þeir sótt fram í 5 héruðum, sem þekja hálft landið. Þessi tíðindi komu fram í fréttatilkynningu sem UNITA sendi frá sér í Lissabon í Portú- gal í gær. Sagði í tilkynningunni, að skæruliðunum hefði orðið vel ágengt og mikið mannfall hefði verið í röðum stjórnarhersins. Til dæmis segjast þeir hafa fellt tæplega 300 stjórnarhermenn og 15 kúbanska ráðgjafa í miklum bardögum við borgirnar Chicala og Cangumbe. Víðar hefur stjórn- arherinn beðið talsvert afhroð, auk þess sem skæruliðarnir segj- ast hafa skotið niður 3 MIG orrustuþotur og hertekið mikið magn vopna og annarra her- gagna. Talsmenn UNITA segja að- gerðirnar miða að því að neyða stjórnvöld til að semja um vopna- hlé. Hefur UNITA margóskað eftir slíku samkomulagi, en stjórnvöld jafnan neitað. Þá vilja UNITA-menn að kúbanskir her- menn og ráðgjafar verði sendir til föðurhúsanna. Stjórnvöld neita öllum viðræðum og segja stjórnvöld í Suður-Afríku standa á bak við UNITA. Hafa skærulið- arnir hótað að auka aðgerðir sín- ar á næstu dögum. Florencio Campomanes, forseti Al- þjóða skáksambandsins, sagði í sam- tali við dagblað í Júgóslavíu í gær, að það væri ekki útilokað lögum sam- kvæmt að breyta um keppnisstaði und- anúrslitakeppnanna í áskorendaein- vígjunum í skák, en Sovétmenn hafa mótmælt keppnisstöðunum harðlega og neitað keppendum sínum að mæta til leiks. Garri Kasparov á að mæta Viktor Korchnoi í Pasadena í Kali- forníu, en Vasily Smyslov á að keppa gegn Ungverjanum Zoltan Ribli f Abu Dhabi, keppnin á að hefjast 6. ágúst. Arabarnir hafa hins vegar dregið til- boð sitt til baka vegna óvissunnar sem nú ríkir. Álasaði Campomanes Sovét- mönnum jafnframt fyrir furðulega stífni og „sérþarfapólitík“. Hann sagði að FIDE gæti fundið nýja keppnisstaði og Sovétmenn myndu fá tvo daga til að samþykkja þá ef út í það færi, en tapa einvígjunum að öðrum kosti. Bozidar Kazic, varaforseti FIDE, lagði áherslu á orð Campomanes, að Sovétmennirnir myndu tapa ein- vígjunum ef þeir mættu ekki til leiks. „Reglurnar eru skýrar og fram hjá þeim verður ekki farið," sagði Kazic í samtali við AP. Campomanes var gramur í garð Rússa er hann ræddi við umrætt dagblað, þar sagði hann Sovétmenn vera vísvitandi að eyðileggja mikið starf og skýringarnar, sem gefnar væru, væru lélegar. „Smyslov hefur sjálfur sagt mér að hann hefði ekk- ert á móti því að tefla í Abu Dhabi, því er þetta verk stjórnvalda og ekk- ert annað,“ sagði forsetinn. Vara- forsptinn Kazic sagði að Sovétmenn hefðu borið fyrir sig slaka öryggis- gæslu í Pasadena, en gerði lítið úr þeim orðrómi að Sovétmenn óttuð- ust að Kasparov myndi leita hælis setn pólitískur flóttamaður í Banda- ríkjunum. Bæði Kasparov og Smyslov hafa látið hafa eftir sér hnjóðsyrði um Campomanes og FIDE í sovéskum fjölmiðlum að undanförnu. Kasp- arov hinn ungi sagði m.a.: „FIDE mun hreinlega deyja út ef það gerir sig sekt um að ýta til hliðar óskum snjöllustu stórmeistaranna eins og þeir væru ekkert annað en ágengir betlarar." Orð Smyslovs hafa verið á sama veg, en Kasparov sagði að lok- um: „FIDE hefur ávallt haft kepp- endur með í ráðum er keppnisstaður hefur verið ákveðinn og bæði mót- herji minn og ég lýstum áhuga okkar á því að keppa í Rotterdam í Hollandi. Til hvers er FIDE að spyrja okkur álits ef ekkert mark er svo tekið á okkar óskum? Ég held að Campomanes myndi alls ekki setja niður við að skipta um skoðun, held- ur myndi hann vaxa í áliti, því slíkt bæri vott um að maðurinn hefði heilbrigða skynsemi til að bera.“ Sovéska skáksambandið ítrekaði í gær, að ákvörðun sín stæði óhagg- anleg, Kasparov og Smyslov myndu ekki keppa í Pasadena og Abu Dhabi. Bettino Craxi, forsætisráðherra Italíu: Tækifærissinni eða fæddur til forystu? Bettino Craxi, forsætisráðherra, spjallar við fréttamenn meðan á tilraun - um hans stóð til stjórnarmyndunar. BETTINO Craxi, fyrsti italski for- sætisráðherrann úr flokki sósíal- ista, hefur átt skjótum frama að fai'"". í llokki sínum og ítölskum stjórnmálum en getið sér nokkuð misjafnt orð á ferli sínum. í augum sumra er hann maður, sem er lítt treystandi, „skemmdarvargur", sem ávallt kemur illu til leiðar, en aðrir hafa tröllatrú a hæfileikum hans. Flestum ber þó saman um, að hann sé í raun óráðin gáta, sem fyrst nú muni fást einhver botn í. Craxi, sem er 49 ára að aldri, er ákaflega metnaðargjarn maður og kann vel við sig í sviðsljósinu. Andstæðingar hans segja, að hann sé frekur og yfirgangssam- ur og hafi velt úr sessi fjórum ríkisstjórnum með hagsmuni Sósíalistaflokksins eina að leið- arljósi, en stuðningsmenn hans eru hinir ánægðustu. Forsætis- ráðherrann er nú úr flokki sósíal- ista, litla flokknum, sem svo lengi hefur verið eins og á milli steins og sleggju, milli kristilegra demó- krata og kommúnista. „Sem stjórnmálamaður hefur Craxi ýmislegt til brunns að bera,“ sagði nýlega Indro Mont- anelli, framámaður í Kristilega demókrataflokknum, „en sem landsfaðir er hann óskrifað blað. Við skulum þó vona, að hann komi okkur á óvart því að það sem við höfum séð til hans, er ekki uppörvandi." Á það má líka minna, að við borð lá að ítalska stjórnin félli á síðasta ári þegar ráðherra ríkisfjarmála, Nino Andreatta úr flokki kristilegra, lét þau orð falla, að aðferðir Sósíalistaflokksins minntu mest á „þjóðernissósíalismann", með öðrum orðum nasismann. Bettino Craxi er fæddur í Míl- anó, sonur lögfræðings, sem fluttist þangað frá Sikiley á valdadögum Mussolinis. Á há- skólaárum sínum gekk hann til liðs við Sósíalistaflokkinn og fékk brátt svo mikinn áhuga á pólitík- inni að hann hætti námi til að geta helgað sig henni óskiptur. Hann var fyrst kjörinn á þing ár- ið 1968, 34 ára gamall, og átta árum síðar tók hann við forystu flokksins, sem þá hafði lengi ver- ið að missa fylgið yfir til komm- únista. Ríkisstjórn Bettino Craxi á við ærinn vanda að glíma og er hall- inn á ríkisfjármálunum hvað al- varlegastur, en hann nemur 18% af þjóðarframleiðslunni. Flestum þykir þó ólíklegt, að ríkisstjórn undir forystu sósíalista muni geta tekið á þessum vanda af nægilegri hörku en þó er augljóst, að eitthvað verður að gera. Hingað til hafa sósíalistar ekki viljað fallast á mikinn niðurskurð hjá hinu opinbera, segja mein- semdina vera hin gífurlegu skatt- svik, sem lengi hafa tíðkast á Ita- líu, en hætt er við að þeim muni reynast erfitt að koma í veg fyrir þau á stuttum tíma. I utanrík- ismálunum er Craxi eindreginn stuðningsmaður Atlantshafs- bandalagsins og flokkur hans hefur samþykkt, að komið verði fyrir bandarískum eldflaugum á Sikiley í lok þessa árs. Ríkisstjórnir á Italíu verða að jafnaði ekki langlifar og enginn treystir sér til að spá nokkru um framtíð ríkisstjórnar Bettino Craxi. Craxi segist gera sér grein fyrir, að „kristilegir demókratar hafa fært mér hengingarólina á silfurfati en ég er bara klókari en þeir og mun sjá við öllum þeirra bellibrögðum". Vörumarkaðurinn hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.