Morgunblaðið - 05.08.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ; FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
75 ára afmæli
Gufudalskirkju
Miðhúsum, Keykhólasveit, 3. ágúst.
NÆSTKOMANDI sunniidag veröur minnst 75 ára afmælis Gufudals-
kirkju í Barðastrandarprófastsdæmi og samkvæmt upplýsingum sem fengnar
eru frá sóknarprestinum á Reykhólum, Valdimar Hreiöarssyni, er kirkjan
timburkirkja og teiknuð af Rögnvaidi Ólafssyni. Trésmíðameistari var Jón
Þ. Ólafsson, ísafirði. Kirkjusmíðinni var lokið á árinu 1908 og var kirkjan
vígð af séra Jóni Þorvaldssyni, Stað á Reykjanesi, 3. sunnudag í aðventu 13.
desember sama ár. Séra Jón var þá þjónandi prestur í Gufudaí.
í Gufudal er kirkjan helguð gofri
og vorri frú og heilögum krossi ög
er fyrst getið am prest þar um
aldamótin 1200. í Gufudal sat
prestur fram til 1905, en þá hvarf
séra Goðmundur Guðmundsson
frá starfi og fluttist til ísafjarðar.
Árið 1907 var Gufudalsprestakall
sameinað Staðarprestakalli og
síðar Reykhólaprestakalli og hef-
ur verið þjónað af prestum þaðan.
Miklar umbætur standa fyrir
dyrum á kirkjunni í Gufudal. Þarf
að endurnýja viði í turni og skipta
um járn á þaki. Þessar fram-
kvæmdir eru kostnaðarsamar fá-
mennum söfnuði og verður erfitt
að standa undir þeim. En það hef-
ur verið metnaðarmál safnaðar
Gufudalskirkju að varðveita
kirkjuna í sinni upprunalegu
mynd og hefur safnaðarfólk oft á
tíðum innt af hendi fórnfúst starf
og lagt fram fé af litlum efnum.
Eins og áður var sagt verður 75
ára afmælisins minnst með guðs-
þjónustu í kirkjunni næstkomandi
sunnudag, 7. ágúst. Auk óknar-
prestsins verður prófasturinn í
Barðastrandarprófastsdæmi, Þór-
artnn Þór á Patreksfirði, viðstadd-
ur athöfnina. Séra Þórarinn þjón-
aði lengi Gufudalskirkju þegar
hann var prestur á Reykhólum.
Síðustu 30 árin hefur ólína Kr.
Jónsdóttir leikið oftar á orgelið í
Gufudalskirkju en nokkur annar.
Stundum fer þó messa þar fram
án nokkurs undirleiks. I Gufudal
búa heiðurshjónin Kristjana
Jónsdóttir og Kristinn Berg-
sveinsson og veita þau jafnan
kirkjugestum veitingar af mikilli
rausn sem og öðrum er þangað
eiga leið.
—Sveinn
Samband íslenskra námsmanna erlendis:
Mótmæla skerd-
ingu námslána
Mbl. hefur borist fréttatilkynning
frá Sambandi íslenskra námsmanna
erlendis, SÍNE, varðandi áætlanir
um að veita Lánasjóði námsmanna
ekki nema hluta þess fjár sem sjóð-
inn vantar.
SfNE ályktaði eftirfarandi á
fundi sínum 3. ágúst sl.:
„Þau tíðindi hafa borist úr fjár-
og menntamálaráðuneytum að
bregðast eigi við fjárhagsvanda
Lánasjóðs námsmanna með því að
veita honum aðeins um þrjá fjórðu
af því sem sjóðinn vantar til að
standa við skuldbindingar sínar
við námsmenn fram að áramótum.
Talað er um að veita 130—140
milljónir af þeim 182 milljónum
sem sjóðinn skortir. Þetta mundi
þýða að meðalnámsmaður fengi
aðeins um 78% af þeim fram-
færslukostnaði sem Lánasjóður-
inn áætlar. Miðað við núverandi
verðlag fengi einstaklingur á fs-
landi 8.787 kr. á mánuði í lán í
stað 10.702 kr.
íslenskir námsmenn erlendis
mótmæla harðlega þessum ráð-
stöfunum. Námsmenn eru þegar í
hópi þeirra sem hafa minnstar
ráðstöfunartekjur og þessi kjara-
skerðing mundi gera fjölda manna
ókleift að stunda nám. Við minn-
um á að námslánin eru verðtryggð
lán eftir lánskjaravísitölu og eng-
inn styrkur.
Vafasamt er að kjaraskerðing
af því tagi sem ráðherrarnir vilja
standist fyrir dómstólum og
námsmenn munu láta reyna á rétt
sinn þar. Við hvetjum alla til að
styðja okkur í baráttu okkar fyrir
mannsæmandi námslánum og
jafnrétti til náms.“
Strengjasveitin ásamt stjórnanda sveitarinnar, Mark Reed.
Strengjasveit Tónlistarskólans:
Tekur þátt í alþjóð-
legri listahátíð
STRENGJASVEIT Tónlistarskólans í Reykjavík mun halda tónleika á
Kjarvalsstöðum mánudagskvöldið 8. ágúst kl. 20.30. Strengjasveitin er
senn á förum til Aberdeen í Skotlandi, ásamt stjórnanda sínum, Mark
Reedman, til að taka þátt í alþjóðlegri listahátíð ungmenna.
Listahátíð þessi hefur verið
starfrækt um árabil á hinum
ýmsu stöðum í Evrópu, en er nú
haldin þriðja árið í röð í Aber-
deen og mun öðlast sinn fasta
sess þar í framtíðinni. Um 20
sveitir ungra listamanna frá
jafnmörgum löndum taka þátt í
hátíðinni og var það einn af
dómendum keppninnar í Belgrad
sl. haust sem kom íslensku sveit-
inni á framfæri.
Menntamálaráðuneytið og
Reykjavíkurborg styrkja sveit-
ina til utanfararinnar, auk ým-
issa fyrirtækja og einstaklinga.
Sveitin mun halda ferna tón-
leika með mismunandi efnisvali
og mun m.a. leika í hinum
þekkta sal, Music Hall.
Efnisskrá tónleikanna á Kjar-
valsstöðum verður þessi:
Chahony eftir Purcell,
Fiðlukonsert í a-moll eftir J.S.
Bach,
Holberg svíta eftir Grieg,
Trauermusik eftir Hindermith
og
svíta nr. 3 eftir Respighi.
Einleikarar verða Auður Haf-
steinsdóttir, fiðluleikari og
Svava Bernharðsdóttir, lágfiðlu-
leikari. Stjórnandi verður Mark
Reed. Þetta verða síðustu tón-
leikar Strengjasveitarinnar um
óákveðinn tíma.
Friðarganga 83:
Tveir íslenskir þátttakendur
FRIÐARGANGA ’83 verður farin dagana 11.— 26. ágúst nk., en þá verður
gengið frá N'ew York til Washington. 150 þáttakendur mynda kjarna göngun-
nar, en þar af eru 100 frá Norðurlöndunum og 50 frá Bandaríkjunum. Tveir
þátttakendanna eru íslenskir, þær Guðrún Agnarsdóttir, alþingismaður, og
María Jóhanna Lárusdóttir.
í fréttatilkynningu frá Samtök-
um um Kvennalista segir að þetta
sé í þriðja sinn sem norrænar kon-
ur ganga til að mótmæla kjarn-
orkuvopnum, en í fyrra var gengið
frá Stokkhólmi um Helsinki og
Moskvu til Minsk í Rússlandi, og
árið áður var gengið frá Kaup-
mannahöfn til Parísar. Nú er ætl-
unin að ganga frá New York til
Washington, eða um 500 km vega-
lengd.
í fréttatilkynningunni segir
einnig að Friðarganga ’83 beri
fram mótmæli gegn kjarnorku-
vopnum í austri og vestri, gegn
kjarnorkuvopnum um allan heim,
gegn staðsetningu nýrra kjarn-
orkuvopna í Evrópu. Krafist sé
stöðvunar á tilraunum, fram-
leiðslu og dreifingu allra gerða
kjarnorkuvopna og lýst yfir stuðn-
ingi við kjarnorkuvopnalaus
svæði. Þess sé einnig krafist, að
því gífurlega fjármagni sem nú
renni til vopnasmíða verði varið
til að tryggja fæðu og atvinnu.
Mánudaginn 8. ágúst tekur aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna í New
York á móti fulltrúum Friðar-
göngu ’83, á skrifstofu sinni. Síðan
halda þátttakendur göngunnar
áleiðis til Washington, og lýkur
henni 26. ágúst. Þann 27. ágúst
verður haldinn útifundur í Wash-
ington undir yfirskriftinni: „At-
vinna — Friður — Frelsi".
Fréttir úr
Jónshúsi
Jónshúsi, 30. júlí.
HINN 28. júlí nutu íslendingar í Höfn
góórar gestakomu í Jónshúsi. Herdís
Þorvaldsdóttir leikkona og Hjálmar
Ólafsson formaöur Norræna félagsins
á íslandi voru hér á ferð og höfóu boó-
að komu sína með nokkrum fyrirvara,
en færri vissu þó af en skyldi, vegna
þess hve erfitt er að auglýsa samkomur
með löndum á sumrin, er Þórhildur
kemur ekki út.
Flutti Hjálmar ávarp um norrænt
samstarf í upphafi samkomunnar og
kynnti síðan þá dagskrá, sem flutt
yrði. Lásu þau Herdís úr íslands-
klukku Halldórs Laxness ásamt með
Rúnari Guðbrandssyni leiklistar-
nema. Milli atriða röktu þau sögu-
þráðinn við óskipta athygli sam-
komugesta. Loks settist Guðmundur
Eiríksson frá Selfossi við hljóðfærið
og lék lög við nokkur ljóð Halldórs
Laxness, en Hjálmar og Herdís
stýrðu söngnum og sungu dúett í
lokin. Listafólkinu var klappað lof í
lófa og þökkuð koman í Jónshús.
_______________G.L.Ásg.
Söfnuðu um 250
þúsundum til
viðbyggingar
sjúkrahússins
Stykkishólmi, 4. ágúst.
EINS og áður hefur komið fram í frétt-
um er nú verið að reisa byggingu við
sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Verður
viðbygging þessi 6—7 hæðir og verður
þar m.a. heilsugæslustöð.
Senn verður byggingin komin und-
ir þak. Starfsfólk sjúkrahússins hef-
ur að undanförnu staðið að söfnun
fyrir hina nýju álmu sjúkrahússins,
en hún hófst með því að hver starfs-
maður gaf átta vinnustundir til
byggingarinnar. Þá var farið 1 fyrir-
tæki og til einstaklinga og voru und-
irtektir ágætar.
Alls söfnuðust um 250 þúsund
krónur og óska starfsfólk og for-
stöðukona sjúkrahússins að koma á
framfæri þakklæti til bæjarbúa
fyrir góðan stuðning. ^rnj
Látinn laus
úr gæslu-
varðhaldi
MAÐURINN sem rak fasteignasölu og
úrskurðaður var í gæsluvarðhald til 3.
ágúst um miðjan síðasta mánuð fyrir
fjársvik o.fl. var látinn laus á laugar-
daginn var.
Að sögn Þóris Oddssonar, vara-
rannsóknarlögreglustjóra ríkisins,
eru meginlínur málsins skýrar og
þótti ekki þörf á að halda manninum
lengur. Alls mun maðurinn hafa
komist yfir með ólöglegum hætti fé
að upphæð eitthvað á aðra milljón
króna. Þórir sagði að maðurinn hefði
verið samvinnuþýður og lagt sig
fram um að upplýsa málið.
Hvítu yrðlingarnir
farnir til Noregs
Noröurlandamótið í skák:
Daninn Curt Hansen sigraði
NORÐURLANDAMÓTINU í skák, sem fram fór í
Esbjerg í Danmörku dagana 19.—30. júlí sl„ lauk
með sigri Danans Curt Hensen í úrvalsflokknum.
Hlaut Hansen 8'/2 vinning af 11 mögulegum. í öðru
sæti varð Wetberg frá Svíþjóð með 8 vinninga og í
þriðja sæti Schnider, einnig frá Svíþjóð, með 7'/2 vinn-
ing. Guðmundur Sigurjónsson hafnaði í fjórða sæti
með 6'/2 vinning. Auk Guðmundar keppti Dan Hans-
son fyrir ísland i úrvalsflokknum, en hann fékk 3
vinninga og hafnaði í ellefta sæti.
í fimmta til sjöunda sæti með 6 vinninga urðu
Tiller frá Noregi, Agdestein frá Noregi og Ung-
verjinn Forintos. Oli Jakobsen frá Danmörku varð
í áttunda sæti með b'h vinning, Finninn Westerin-
en í níunda með 4'k, Raasde frá Finnlandi í tíunda
með 4 og lestina rak Færeyingurinn Ziska með 'h.
vinning.
í meistaraflokknum urðu jafnir og efstir Daninn
Höi og Svíinn Johansen með 7 vinninga, en meðal
^irra sem voru í fimmta til sjöunda sæti var
lendingur, sem hefur verið búsettur í Svíþjóð
undanfarin átta ár, Arnþór Sævar Einarsson, með
6‘k vinning. Erfiðlega gekk að afla upplýsinga um
úrslitin í opna flokknum, en nokkrir íslendingar
kepptu í þeim flokki.
Keppendur á Norðurlandamótinu voru alls 300,
12 í úrvalsflokki, 74 í meistaraflokki og 214 í
opnum flokki. Ellefu íslendingar tóku þátt í mót-
inu.
„ÞEIR eru við hestaheilsu. Norski
bóndinn hringdi í mig þegar hann
var kominn með þá heim til sín og
líst honum bara vel á þá,“ sagði Jón
Ragnar Björnsson, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra loðdýra-
ræktenda, í samtali við Mbl.
Snemma á mánudagsmorgun fóru
hvítu tófuyrðlingarnir sem SÍL hefur
verið að safna saman hér á landi
uppí pantanir, sem borist höfðu frá
loðdýraræktendum ( Danmörku og
Noregi, en þeir hyggjast rækta þá til
framleiðslu á sjaldgæfu litaafbrigði
eins og sagt hefur verið frá í Mbl.
Jón sagði að aðeins hefði verið
hægt að ná 18 hvítum yrðlingum,
en einnig hefðu verið sendir 6
mórauðir með, þannig að 24 yrðl-
ingar urðu samferða með Flug-
leiðavélinni til Oslóar á mánudag,
en þangað fóru þeir allir að þessu
sinni. Jón sagði að norski bóndinn
sem fékk yrðlingana væri strax
farinn að óska eftir að sitja fyrir
með yrðlinga á næsta ári og sagði
Jón að fyrirhugað væri að halda
þessu áfram og vonandi með betri
árangri.
Skálholtskirkja:
Guðsþjónusta
á sunnudag
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Skál
holtskirkju sunnudaginn 7. ágúst
klukkan 17. Þar veröur sérstaklega
minnst Gyðinga og kristniboðs með-
al þeirra. Flutt verður frásagan
„Konan við brunnirin” og mun Auð-
ur Bjarnadóttir ballettdansari sjá
um þaö ásamt fleirum.
Tónleikar verða einnig í kirkj-
unni klukkan 15 þar sem Helga
Ingólfsdóttir og Michael Shelton
leika.