Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
23
Hotel Montechoro.
Frá fiskmarkaönum í Portimao.
um flest hafi Algarve verið nánast
einangrað unz Hinrik kom til sög-
unnar. Og ekki síður frá Portúgal
sjálfu. Á þessum tímum þá Al-
garve öll sín áhrif frá Norður-
Áfríku. Hinrik gerði merkilegt
átak til að rjúfa þessa einangrun,
en Algarve varð lengi enn landið
fyrir handan. Það var aðskilið frá
hinum hluta landsins af Caldeirao
og Monique-fjöllum og frá Spáni
með Guadina-fljóti. íbúar Algarve
urðu að treysta á sjálfa sig og þar
þróuðust sérstakir siðir og hefðir,
sem ekki þekktust annars staðar.
Hér er átt við klæðaburð, almenn-
ar lífsvenjur og hvaðeina. Og þess-
ir siðir eru margir enn í fullu gildi
í Algarve og hvergi annars staðar
í landinu.
Þó svo að öllum tálmunum hafi
verið rutt úr vegi fyrir löngu og
hraðbrautir liggi frá Algarve til
allra átta, eru Algarve-búar metn-
aðarfullir og vilja halda sínum
sérkennum, þó að ferðamenn hafi
gert sér æ tíðförulla þangað og
portúgalskir borgarbúar leiti
þangað í leyfum sínum. Hávaða-
samir túristar sem tala í umburð-
arlyndum og lífsþreyttum tón um
sjarma þessa frumstæða mann-
lífs. Og taka svo náttúrlega mynd-
ir af konunum með svörtu hattana
og hestunum með fjaðraskúfana.
Algarvebúar eru ekki uppnæmir
fyrir þessu. En þeir gera sér
mætavel grein fyrir því að koma
ferðamanna bætir efnahag þeirra
og portúgölsk kurteisi er þeim í
blóð borin. Því taka þeir gestum af
höfðingsskap og vinsemd. Ganga
að sínum verkum og eru ekki upp-
næmir íyrir smámunum, en eru
manna skjótastir til að liðsinna
ferðamönnum hvað þeir mega.
íslandsmótið í hestaíþróttum
haldið að Faxaborg um helgina
Núverandi íslandsmeistari í tölti er Olil Amble og vann hún til þess titiis á
hestinum Fleyg frá Kirkjubæ, en hún veröur meöal keppenda á Faxaborg um
helgina. Ljósm. VK
Næstkomandi helgi veröur haldiö
íslandsmót í hestaíþróttum hið
sjötta í röðinni. Veröur mótið haldið
aö þessu sinni aö Faxaborg félags-
svæöi hestamannafélagsins Faxa í
Borgarfiröi.
Að venju verður keppt í öllum
greinum hestaíþrótta og hefst
mótið klukkan tíu á laugardag og
áætlað að því ljúki á sjöunda tím-
anum á sunnudagskvöld. Á laug-
ardagskvöld verður kvöldvaka og
einhverskonar hrossaverslun og
mun hluti af ágóðanum renna í
ferðasjóð landsliðsins sem fer á
Evrópumótið seinna í þessum
mánuði. Á sunnudg um ellefuleyt-
ið verða sýndir nokkrir afkvæma-
hópar undan kunnum stóðhestum
go á hádegi verður mótið sett að
undangenginni hópreið. Einnig
verður keppt í 150 og 250 metra
skeiði en þessar keppnisgreinar
tilheyra ekki hestaíþróttum og eru
þar af leiðandi aukagreinar.
Búast má við skemmtilegri
keppni því til leiks eru skráðir
margir af fremstu reiðmönnum
landsins. En dagskrá mótsins
verður sem hér segir:
Laugardagur 6. ágúst:
Kl. 10.00 Fjórgangur.
kl. 12.30 Fimmgangur.
Kl. 13.00 Hlýónikeppni unglinga.
Kl. 15.00 Tölt
Kl. 17.30 Fimmgangur unglinga.
Kl. 18.00 Hlýónikeppni B.
Kl. 18.00 Fjórgangur unglinga 12 ára og yngri.
Kl. 18.30 Tölt unglinga 13 til 15 ára.
Kl. 19.15 Tölt unglinga 12 ára og yngri.
Kl. 19.45 Skeió 150 metrar.
Kl. 20.15 Skeió 250 metrar.
Kl. 21.00 Kvöldvaka og hrossaverslun til styrkt-
ar landslióinu í EM ’83.
Sunnudagur 7. ágúst:
Kl. 09.00 Fjórgangur unglinga 13 til
15 ára.
Kl. 10.30 Hindrunarstökk.
Kl. 11.00 Sýning afkvæmahópa.
Kl. 12.00 Hópreió, mótssetning.
Kl. 12.15 Fjórgangur unglinga 12 ár og yngri
úrslit.
Kl. 12.40 Fjórgangur ungiinga 13 til 15 ára
úrslit
Kl. 13.05 Tölt unglinga 12 ára og yngri úrslit.
Kl. 13.30 Hindrunarstökk úrslit.
Kl. 13.55 Fjórgangur úrslit.
Kl. 14.20 Tölt unglinga 13 til 15 ára úrslit.
Kl. 14.45 Tölt úrslit.
Kl. 15.10 Fimmgangur unglinga úrslit.
Kl. 15.35 Fimmtangur úrslit.
Kl. 16.00 (>æóingaskeió.
Kl. 17.00 Skeió 150 metrar.
Kl. 17.30 Skeió 250 metrar.
Kl. 18.00 Verólaunaafhending.
Vorum að fá örfáa MAZDA 323 sendibíla, árgerð 1983,
á sérlega hagstæðu verði,
vel ekki lengur að leyna því.
Viðkvæmi þeirra er: „Hvers
vegna skyldum við gera það?“
Pronk sagði, að lífsnauðsynlegt
væri fyrir framtíð heimsins að
koma á nýrri fjárhagsskipan, sem
þjóðir heimsins virtu. Kirkjan
hefði þar- miklu hlutverki og mikl-
um skyldum að gegna, að gera
mönnum ljóst hversu málið væri
brýnt.
— Að deila brauði, starfa hver
með öðrum og hinum óbornu er
hin kristna krafa. Sú krafa skipti
e.t.v. ekki sköpum um tilveru
mannkyns áður fyrr. Nú gerir hún
það, sagði Pronk. Fulltrúi þriðja
heimsins í þessari umræðu benti á
fleiri fleti.
— Það er ekki nóg að senda
okkur mat, sagði Ntoni Nzinga frá
Angóla. — Það þarf að efla mann-
lega reisn þar sem hún hefur
þurrkast út, bæði meðal þeirra
ríku sem hinna fátæku. Reisn
eignast þeir sem taka á sig ábyrgð
á öðrum og sýna fulla samstöðu
með þeim fátæku, svo að þeir geti
losnað úr örbirgð sinni einnig með
fullri reisn. Kenndi Jesús okkur
þetta ekki?
Brauð hafði verið lykilorð í um-
ræðunni og I lok hennar voru
bornar fram körfur með brauði,
sem hinir ortodoxu bræður bless-
uðu og deildu síðan út til fund-
armanna, sem tákn um einingu
þeirra til hinna góðu verka.
Þetta er tilvalinn bíll fyrir iðnaðarmenn, sölumenn, viðgerðar og
þjónustumenn og alla aðra, sem þurfa lipran og þægilegan bíl, sem
er sterkur og ber ótrúlega mikið.
Verð aðeins Kr. 197.000
gengisskr. 21.7.83.
Tryggid ykkur bíl strax á þessu ótrúlega verði.
mazoa
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99