Morgunblaðið - 05.08.1983, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
+
JÓN JÓNSSON,
Basjarsksrjum,
lést í Sjúkrahúsinu í Keflavík 2. ágúst.
Halldóra Thorlacius,
Sigurður Bjarnason, Jóna Bjarnadóttir.
t
Móðir okkar,
ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR,
lóst á heimili sínu í New York 1. ágúst. Útförin hefur fariö fram.
Fyrir hönd aöstandenda,
Valur Fannar, Heiöar Marteinsson.
+
Faöir okkar,
GUNNAR EGILSON,
verslunarmaöur,
lést í Borgarspítalanum 3. ágúst.
Fyrir hönd vandamanna,
Snorri Egilson,
Elfn Egilson,
Brynhildur Egilson.
+
Faöir okkar,
GUÐJÓN GÍSLASON,
Fálkagötu 12,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, 5. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir.
Börn hins látna.
+
Útför eiginkonu minnar, móöur okkar og tengdamóöur.
KRISTEYJAR HALLBJÖRNSDÓTTUR
frá Súgandafiröi,
fer fram frá Suöureyrarkirkju, laugardaginn 6. júlí kl. 14.00.
Sturla Jónsson.
Eva Sturludóttir,
Sigrún Sturludóttir,
Kristín Sturludóttir,
Jón Sturluson,
Eövarö Sturluson,
Guöni Jónsson,
Þórhallur Halldórsson,
Guöbjörn Björnsson,
Sigurbjörg Björnsdóttir,
Arnbjörg Bjarnardóttir.
1 Faöir okkar og tengdafaöir, h
NIKULÁS ODDGEIRSSON,
andaöist 4. ágúst sl.
Grétar Geir Nikulásson, Sjöfn B. Kristinsdóttir,
Siguröur Þ. Nikulásson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Sonja S. Níkulásdóttir, Pétur Guómundsson.
+
Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HALLDÓRS ÓSKARSSONAR,
Nónvöröu 3, Keflavík,
fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 6. ágúst kl. 16.00.
Þórdfs Halldórsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og útför
konu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ELSU R. SIGURÐARDÓTTUR,
Engjavegi 21, isafiröi.
Innilegar þakkir til hjúkrunarfólks í Sjúkrahúsi isafjaröar fyrir frá-
bæra hjúkrun og aöhlynningu, sérstakar þakkir færum viö Jennýju
Jónsdóttur, hjúkrunarkonu, fyrir einstaklega fórnfúst starf.
Kristján J. Kristjánsson,
Karen R. Kristjánsdóttir,
Guörún K. Kristjánsdóttir,
Björk Krístjánsdóttir,
Ásta D. Kriatjánsdóttir,
Trausti A. Kristjánsson
og barnabörn.
Haraldur Benediktsson,
Hafsteinn Ingólfsson,
Gunnar Lárusson,
Sverrir Kristjánason,
Guðjón Gíslason
- Minningarorð
Fæddur 15. júní 1902
Dáinn 24. júlí 1983
Með Guðjóni Gíslasyni er geng-
inn einn hinna mörgu „kyrrlátu í
landinu", sem með löngum vinnu-
degi hafa skilað ungu kynslóðinni
íslandi nútímans.
Hann var fæddur á Höfða í Dýr-
afirði, sonur Gísla Sighvatssonar,
bónda þar, og konu hans, Jónu Elí-
asdóttur. Hann var elstur níu
systkina, sem öll lifa bróður sinn.
En þau eru auk Guðjóns Jóhann
Guðbjartur, sem lengi bjó á
Höfða, en nú á Þingeyri, Jóna Eli-
asína í Reykjavík, Sighvatur í Vík
í Mýrdal, Guðrún í Reykjavík,
Guðmundur á Höfða, Hallgrímur
á Þingeyri, Margrét í Reykjavík og
Þórarinn í Reykjavík. Fleirbýli
var á Höfða og þar bjó í sambýli
við Gísla son sinn Sighvatur
Grímsson Borgfirðingur, þjóð-
kunnur fræðimaður, og Ragnhild-
ur Brynjólfsdóttir, kona hans.
Dvaldist Guðjón löngum hjá afa
sínum og ömmu á uppvaxtarárum
sínum. Nam hann margt hjá þeim
og kunni að segja frá mörgu af
þeim merku hjónum.
Skólaganga varð ekki löng, því
að snemma var farið á vertíð eða
skömmu eftir fermingu. Réri Guð-
jón bæði frá útræði í Dýrafirði og
Arnarfirði. Til fermingar naut
Guðjón góðs undirbúnings sókn-
arprestsins, séra Sigtryggs Guð-
laugssonar, á Núpi, brautryðjanda
kristins lýðskólastarfs á íslandi
og mikils áhugamanns um ung-
mennafélagsstarf. Guðjón hafði
yndi af tónlist og lék nokkuð á
hljóðfæri, en fékk ekki tækifæri
til að rækta hæfileika sína á því
sviði. Hann var sjálfmenntaður í
dönsku og ensku, en bæði málin
gat hann lesið sér að gagni, þá var
hann áhugamaður um íslenzka
sögu og þjóðhætti. Hann var mjög
drátthagur og skrautritaði gjarn-
an á bækur sem hann gaf.
Guðjón var til sjós á þilskipum
og togurum fram yfir 1935, er
hann fór í land af tillitssemi við
fjölskyldu sína, en þá var hann bú-
inn að lenda oft í erfiðum veðrum
og háska, m.a. var hann á togara,
sem var hætt kominn í Halaveðr-
inu mikla. Á þessum árum sá
hann á bak beztu vinum sinum og
félögum löngu fyrir aldur fram,
þ.á m. Böðvari Jónssyni, mági sín-
um, sem giftur var Jónu, systur
hans.
Um 1930 kvæntist Guðjón Guð-
rúnu Þorsteinsdóttur frá Geithell-
um, en hún lézt fyrir rúmum
tveimur árum. Var hún honum
mikill harmdauði.
Þau eignuðust fimm börn, en
fjögur komust upp og lifa foreldra
sína. Þau eru: Erla Gróa, ritari,
gift undirrituðum, þeirra börn eru
Jóna, aðstoðarsálfræðingur, Guð-
rún, hjúkrunarfræðingur BS, Búi,
myndlistarnemi, Guðjón, lækna-
nemi, og Erlendur, menntaskóla-
nemi. Jóna, húsmóðir, áður gift
Gústafi Jóhannessyni, banka-
starfsmenni og organista, þeirra
börn eru Guðjón, bankagjaldkeri,
Jóhanna, kennari, Anna Rún,
verzlunarskólanemi. Björg Lilja,
húsmóðir, áður gift Sigurbirni
Guðmyndssyni verkfræðingi,
þeirra börn eru Guðrún, ljósmóð-
ir, Guðmundur Þórir, flugmaður,
og Kristín Hildur, verkfræðinemi.
Aðalsteinn, netagerðarmaður,
kvæntur Halldóru Valdimarsdótt-
ur, húsmóður, þeirra börn eru
Valdimar, nemi, Erna og Steindór
á barnsaldri. Barnabarnabörnin
eru nú fjögur.
Kreppuárin voru mörgum dag-
launamanninum erfið, stundum
gat eiginkonan fengið vinnu, er
eiginmaðurinn fékk ekki. Þá lifðu
þeir við öryggisleysi leigjandans
og þurftu oft að flytja. Þetta var
hlutskipti þeirra Guðjóns og Guð-
rúnar, en heimili þeirra var ætíð
opið ættingjum og vinum er leið
þeirra lá til Reykjavíkur. Engum
vildi Guðjón skulda og m.a. þess
Birting afmælis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður.
Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum-
ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera
vélrituð og með góðu línubili.
+
Hjartanlegar þakklr fyrlr auösýnda samúö og hlýhug vegna andláts
og jaröarfarar eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og
langafa,
JÓNS EINARSSONAR,
bifreiöarstjóra.
Magnea G. Ágústsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir,
Lilja Jónsdóttir, Vilhjálmur Jóhannesson,
Magnea Jónsdóttir, Einar Aöalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og
vinarhug viö andlát og jaröarför
MARfU JÓNSDÓTTUR
frá Besaastöðum.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki, læknum og hjúkrunarfólki í
Sjúkrahúsinu Egilsstööum.
Magnús Einarsson, Guólaug Guttormsdóttir,
María Eir Magnúsdóttir,
Guðríóur Arney Magnúsdóttir,
Droplaug Nanna Magnúsdóttir.
vegna eignuðust þau ekki eigið
húsnæði fyrr en eftir stríð, er þau
byggðu í samvinnu við Lilju dótt-
ur sína og tengdason. Guðjón
stundaði alla algenga daglauna-
vinnu, en síðar vann hann ; bygg-
ingavinnu, m.a. við byggingu Þjóð-
leikhússins, einnig mikið hjá
byggingafélaginu Stoð. Síðari
starfsár sín tók hann að sér að
leggja járn í hús allt til þess, er
hann hætti vegna veikinda árið
1974. Guðjón þótti traustur og
samvizkusamur starfsmaður og
var vellátinn af samstarfs-
mönnum og sambýlisfólki.
Á fyrstu hjúskaparárum sínum
urðu þau Guðjón og Guðrún fyrir
trúarlegri vakningu og mótaði það
líf þeirra beggja æ síðan. Fyrir
þeim var Jesús Kristur lifandi
frelsari og vinur, og þau voru
minnug orðanna um að vera ekki
aðeins heyrendur Guðs orðs held-
ur líka gjörendur. Þau studdu af
alhug kristilegt starf. Komið var
saman í heimahúsum um Guðs
orð, beðið og lofsungið. Á heimili
þeirra áttu margir farandpredik-
arar, sem nú eru horfnir, athvarf.
Mörg ár vann Guðjón að sunnu-
dagaskólastarfi, fyrst hér í
Reykjavík, en síðar stóð hann í
nokkur ár ásamt elztu dóttur sinni
fyrir eina sunnudagaskólanum
fyrir börn í Keflavík. Var þá farið
á milli í áætlunarbíl. Um nokkurt
skeið var Guðjón stærsti kaupandi
að sunnudagaskólaefni í landinu.
Einnig réðst Guðjón í að gefa út
söngbók fyrir sunnudagaskóla,
sem hann notaði við þetta starf.
Þá eru ótaldar Biblíur og Nýja
testamenti, sem hann gaf. Síðari
ár meðan starfsorkan var óskert
gekk hann á Elliheimilið Grund og
las úr Biblíunni fyrir þá, sem
vildu, og bað með þeim.
Þegar barnabörnin komu áttu
þau athvarf hjá afa og ömmu, þar
fundu þau ríkulega kærleika og
fyrirbæn. Guðjón og Guðrúnu var
gott heim að sækja. Umræðuefnið
var einkum hugðarefni Guðjóns,
kristilega starfið, margvísleg
lífsreynsla og lífshættir fyrr og
nú.
Með Guðjóni er genginn einn af
mörgum framtakssömum leik-
mönnum evangelísk-lúterskrar
kirkju á íslandi, sem gjörði alvöru
úr almennum prestsdómi kristins
manns, er birtist bæði í persónu-
legri tileinkun fagnaðarerindisins
og í samvizkusemi í starfi sem og í
virkri þátttöku í að flytja fagnað-
arerindið næstu kynslóð. Guðjón
hélt sterkt fram barnaskírninni
jafnframt því sem hann var
sannfærður um gildi náðargáf-
anna til uppbyggingar safnaðar-
ins. Hann átti gott samband við
menn af ólíkum kirkjudeildum, en
fór ekki dult með sannfæringu
sína.
Fyrirbænir hans fylgja börnum
og barnabörnum svo og barna-
barnabörnum. Síðustu orð hans
voru þessi: „Ég bið að heilsa þeim,
Drottinn blessi þau öll.“ Við vit-
um, að gæfa hinna ungu byggir
m.a. á fyrirbænum afa og ömmu.
Guðjón þráði að lokum að fá að
ganga á fund frelsara síns og
drottins. Veri hann nú honum fal-
inn með þakklæti fyrir kærleika
og vinsemd, sem hann sýndi und-
irrituðum og fjölskyldu hans frá
fyrstu tíð og allt til hins síðasta.
Blessuð sé minning hans.
Kristján Búason