Morgunblaðið - 07.08.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
51
Ólafur Jensson á rannsóknastofunni í Blóóbankanum.
lífefnagerð. Við höfum í 2—3 ár
unnið að því að gera ítarlegt yfir-
lit yfir þennan sjúkdóm, bundið
við þá sem hafa dáið úr heilablóð-
falli. Yfirlitsrannsóknin segir ekki
endilega alla söguna, en gefur
vissar upplýsingar um hvernig
þessi sjúkdómur hagar sér. Ef litið
er til fyrri ára, liggur ljóst fyrir að
ekki var auðvelt að greina sjúk-
dóminn, auk þess sem menn létust
iðulega er þeir fengu áfallið af því
að þeir voru í erfiðu starfi og langt
frá sjúkrahúsum. Meðan aðrir
sjúkdómar, eins og t.d. berklar,
felldu svo marga unga, þá kom
líka síður til að banameinið yrði
heilablóðfall. Það verður því ekki
fyrr en nú með síðustu ættliðum
að fáanlegar eru haldgóðar upp-
lýsingar.
Að finna og grípa inn í
— Hvernig geta þessar rann-
sóknir leitt til raunhæfra að-
gerða?
— Markmiðið er vitanlega að
hafa áhrif á gang mála hjá þeim,
sem hafa þessi efni. Á svipaðan
hátt og t.d. hefur verið gert á und-
anförnum árum þegar um er að
ræða kolesterol í blóðinu. Þar sem
um arfbundinn kvilla væri að
ræða, þá að geta greint hann sem
fyrst. Helst á fósturstiginu, til að
geta gripið þar inn í. Það er
markmiðið með rannsóknum á öll-
um alvarlegum erfðagöllum núna.
Bera verður kennsl á efnið, sem
tjóninu veldur mjög snemma, til
að geta haft áhrif á skemmdirnar.
Endanlega keppikeflið er að geta
haft áhrif á myndun þessa efnis.
— Þekkjast í öðrum löndum
hliðstæðar aðgerðir gegn erfða-
sjúkdómum, sem reynt er að tak-
ast á við?
— Það er til taugasjúkdómur í
Portúgal, sem breiðst hefur til
S-Ameríkulanda, þar sem erfðir
koma við sögu. í því tilfelli er um
að ræða gallað eggjahvítuefni.
Portúgalskir vísindamenn eru, að
gera tilraunir til að draga úr ein-
kennunum.
— Nú ert þú síðan í fyrra kom-
inn í samvinnu við bandaríska vís-
indamenn um þessar rannsóknir.
Er auðveldara að afla gagna hér í
fámenninu á fslandi? Eða er þetta
kannski öfugt, enn erfiðara?
— Þegar um er að ræða arf-
genga sjúkdóma, sem hægt er að
athuga í þrjá ættliði og þegar fólk
hefur flutt saman í þéttbýli í svo
ríkum mæli, þá er hagur að því.
Aftur á móti verður að fara afar
varlega með upplýsingar í fá-
mennu landi, þar sem allir þekkja
alla. Það er veigamikið atriði.
Engu að síður er nauðsynlegt að
manna sig upp í upplýsingaleit og
rannsóknir og takast á við það
sem upp kemur. Þekking sem
grundvaílast á haldgóðum rann-
sóknum, er eini möguleikinn til að
geta brugðist við sjúkdómum með
réttum hætti. Hvað rannsókna-
aðstöðu snertir, þá er á síðustu ár-
um orðið mun auðveldara að hafa
samstarf við erlenda vísindamenn
héðan. í þessum rannsóknum
okkar, sem við erum nú að tala
um, er ómetanlegt að hafa komist
í samband við þessa bandarísku
vísindamenn í Medical Center í
Yew York University, sem hafa
svo langa reynslu og mikla getu.
Það gerir þeim fært að fram-
kvæma á þremur mánuðum rann-
sóknaverkefni, sem maður væri
hér að dútla við árum saman í
aukavinnu og sér ekki fyrir end-
ann á. Bandaríkjamennirnir fengu
strax mikinn áhuga á þessu við-
fangsefni og þess er orðið vart að í
gegn um þá hefur áhugi annarra
rannsóknastofnana vaknað á því
sem við erum að gera. Ég reikna
með að greinin um rannsóknirnar
í Journal of Experimental Medicin
eigi eftir að setja þessar rann-
sóknir okkar í alþjóðlegra sam-
hengi. Það er satt að segja ákaf-
lega uppörvandi fyrir mann, eftir
að silast hefur hægt í áravís, að
tengjast slíku fólki og vinna með
því. Maður sér þá fram á árangur
og það er eins og vítamínsprauta.
- E.Pá.
AUÐUNN
VESTFIRSKI
hefði örugglega ekki
farið að arka suður til Rómar
ef Flugleiðir
hefðu verið byrjaðir
með bílaleigupakkana til Evrópu!
Þegar Auðunn vestfirski hafði fært Danakonungi bjarndýrið
eins og frægt varð um árið, lagði hann upp í labbið mikla
suður til Rómar til þess að fá aflausn synda sinna hjá páfanum.
Páfinn situr að vísu enn í Róm en nú er orðið minniháttar mál
að komast þangað. Flug og bílferðir Flugleiða til borga Evrópu
eru sennilega ódýrasti ferðamátinn í dag.
Borg Verð kr. Afsl. f. börn 2-11 ára Brottfarard.
París 12.312 - 4.900,- Laugardagur
Kaupmannahöfn 12.958,- 5.100,- Þriðjudagur
Stokkhólmur 14.088,- 5.800.- Miðvikudagur
Gautaborg 13.170,- 5.100,- Fimmtudagur
Osló 13.996,- 4.700,- Miðvikudagur
Glasgow 10.297.- 3.900,- Föstudagur
London 11.551,- 4.500,- Föstudagur
Frankfúrt 12.328,- 5.000.- Fim/Sun
Luxemborg 12.296,- 5.100,- Föstudagur
Verðið hér að ofan miðast við að fjórir séu saman um góðan
5 manna bíl í tvær vikur. Auðvitað er líka hægt að vera 1, 3
eða fleiri vikur og fá bæði minni og stærri bíla. Innifalið er
flugfar og bílaleigubíll með ótakmörkuðum akstri. Ekki er
inmfalið bensín, flugvallarskattur, kaskótrygging og söluskattur
af bílaleigubíl.
Við minnum einnig á ódýra hótelgistingu, svo og sumarhúsin
í Þýskalandi og Skotlandi, sem dæmi má nefna að gisting á
góðum hótelum í Bretlandi, svokallað „Drive away UK", kostar
frá kr. 712.- pr. mann á nótt eða frá kr. 9.968 - í tvær vikur.
Miðað er við gengi 2/8 1983
Allar nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðs-
menn og ferðaskrifstofur.
Skyldi Auðunn hafa verið með bílpróf?
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi