Morgunblaðið - 07.08.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
79
Candice Bergen leikur banda-
ríska ljósmyndarann Margaret
Bourke-White, sem fylgdi
Gandhi lengi, — og Martin
Sheen leikur blaðamanninn
Walker, sem fyrst hitti Gandhi í
Suður-Áfríku, en fór síðan til
Indlands og skrifaði mikið um
baráttu leiðtogans. Þó hlutverk
hans sé lítið, telur Martin það
sitt besta og mikilvægasta á ferli
sínum (frægur fyrir leik sin í
Apocalypse Now).
„Gandhi er þekktur um heim
allan. Saga hans er ekki gömul,
og fólk mun tengja sögu hans við
alla þá sem börðust fyrir frelsi,
án ofbeldis, spillingar og sjálfs-
elsku. Gandhi er einn af mikil-
vægustu mönnum sögunnar og
þessi mynd er mikilvæg." Martin
Richard Attenborough. Tuttugu ára
gamall draumur hans hefur ræst.
arins jafnhátt á loft og
„Chariots of Fire“ sem sigraði
heiminn árið áður.
Myndin kostaðu um 20 milljón
dali í framleiðslu, eins og áður
sagði, en í Bandaríkjunum ein-
um (stærsti markaðurinn) eru
þegar 52 milljónir dala komnar í
kassann, og Embassy-sjónvarps-
stöðin bandaríska hefur keypt
sjónvarpsréttinn fyrir 20 milljón
dali.
Richard Attenborough hafði
engar áhyggjur af kostnaðinum.
Markmið hans var að gera vand-
aða mynd um manninn mikla, og
það sem gerðist á fyrsta degi
kvikmyndunarinnar lýsir senni-
lega best mikilvægi myndarinn-
ar.
Gandhi í hungurverkfalli.
gaf laun sín til indverska fólks-
ins.
IV
Myndin GANDHI var frum-
sýnd um síðustu áramót og hefur
farið sigurför um heiminn. Hún
hefur unnið til flestra þeirra
verðlauna sem veitt eru, hlaut
meðal annars mörg helstu ósk-
arsverðlaunin í apríl; besta
mynd ársins 1982, besti leik-
stjóri, besti karlleikari og besta
handrit. Einnig fyrir bestu
kvikmyndatöku, bestu klippingu
og bestu búninga.
Það er mál manna að kvik-
myndin um GANDHI haldi
merki breska kvikmyndaiðnað-
Ben Kingsley sté út úr bifreið
í Gandhi-búningnum. Aldraður
bóndi stóð næst honum, snerti
fætur Bens og sýndi honum virð-
ingu sína. Ben fór hjá sér og var
hrærður, en minnti bóndann á
að hann væri aðeins að leika
Gandhi. „Vitum við það vel,“
sagði bóndinn, „en við endurlif-
um hann gegnum þig.“
HJÓ
Foreldrarnir verða forviða þegar dularfullt afl dreg-
ur dótturina að sjónvarpskassanum.
Róbbi, litli maðurinn í fjölskyldunni, lendir í heldur
óskemmtilegu ævintýri þegar tré ryðst inn í herbergi hans og
dregur út í myrkrið.
leika stórt hlutverk í myndinni.
Þetta virta fyrirtæki varð að
hanna yfir hundrað flókin
tæknibrelluatriði (sést kannski á
einhverjum myndanna hér til
hliðar). Leiksviðinu, það er að
segja efri og neðri hæð hússins
sem fjölskyldan býr í, varð ekki
komið fyrir í færri en þremur
sérstökum kvikmyndaverum.
Hræðsla barnsins
Allir hafa einhverntíma á
ævinni upplifað hræðsluna sem
POLTERGEIST fjallar um, þó
kannski ekki á jafn magnaðan
hátt. Börn eru sérstaklega næm
fyrir óútskýranlegum ímyndun-
um, hræðslu, vonbrigðum, ótta
og myrkrinu. Þeir sem hafa lesið
bók Dr. Arthurs Janov, „The
Feeling Child“, verða ekki samir
og áður.
Það eru foreldrarnir sem móta
börnin, í flestum tilvikum án
þess að gera sér fulla grein fyrir
hversu mótunin er áhrifamikil.
Dr. Arthur Janov heldur því
fram (kannski ekki splunkuný
kenning) að líkamleg sem andleg
mótun hefjist þegar í móður-
kviði — að óttinn blundi í barn-
inu ómeðvitað.
En POLTERGEIST fer ekki
djúpt í slíkar hugleiðingar og
fellur heldur ekki í sömu gryfju
og svo margar aðrar myndir, hér
er það ekki blóð og óhugnanleg
morð sem skýtur fólki skelk í
bringu, heldur sálarruglingur og
hið tvíeggja vopn ímyndunarafl-
ið.
„Það er alltaf gaman að heyra
viðbrögð fólks í formyrkvuðu
kvikmyndahúsi," segir Tobe
Hooper. „Fólk öskrar oft upp
yfir sig, en ég nýt þess líka að
heyra fólk skellihlæja."
Þess má geta hér í lokin að
POLTERGEIST var með vinsæl-
ustu myndum ársins 1982 í
Bandaríkjunum, raunar hvar-
vetna sem hún hefur verið sýnd
(í Bandaríkjunum einum komu
um 80 milljón dalir í kassann) og
ekki er að efa að myndin njóti
mikilla vinsælda hérlendis.
Nýjustu fréttir af þeim köpp-
um herma að Tobe hafi lent í
vandræðum með næstu mynd
sína. Hann ákvað að gera fram-
hald af ttiynd George Romeros
„Night of the Living Dead“, i
samvinnu við þá sem eiga höf-
undarréttinn. Eitthvað fór það
fyrir hjartað á sumu fólki, en
Tobe hafði það af og mun mynd-
in heita einfaldlega „Tobe Hoop-
er’s Return of the Living Dead“.
Steven Spielberg þarf ekki að
hafa áhyggjur af slíku. Um þess-
ar mundir er hann önnum kaf-
inn við að kvikmynda framhald-
ið af „Ráninu á týndu örkinni"
sem heitir „Indiana Jones and
the Temple of Doorn".
HJÓ
Útsala — Útsala
Metravara — hanskar — hálsklútar. Efni í allan fatn-
að. Sparið, saumið sjálf.
Útsalan hefst mánudag 8. ágúst.
Aðalstræti 9.
Little
Woods
Haust- og vetrarlistinn kominn. Krisco sími 45915,
pósthólf 7008, 107 Reykjavík.
Hirslur eru til margra hluta nauðsynlegar og hjá okkur
eru til hirslur í hvert einasta herbergi í húsinu þínu.
Veggskápar í einingum og samstæðum í stofur með
geymslurými fyrir dúka, matarstell, hnífapör, uppáhalds-
glösin þín og verðmætustu bækurnar undir gleri, og
margar hillur sem þú getur sett á styttur, skálar og fleiri
hluti sem þú vilt hafa fyrir augunum hvern dag vegna
þess að þeir eru þér kærir. Skápar í sjónvarpsherbergið,
útvarps- videó- og plötuspilaraskápar, plötuskápar og
raunar skápar fyrir hverskonar tæki og „græjur” sem þú
átt.
Bókaskápar sem allsstaðar eru til prýði.
Skápar í herbergi barnanna, unglinganna og í herbergi
húsbóndans og húsfreyjunnar. Allt þetta fæst hjá okkur
í ótal stæröum, gerðum og viðartegundum á hagstæðu
verði með góðum greiðslukjörum.
Gefðu þér góðan tíma
HDSGAGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410