Morgunblaðið - 07.08.1983, Qupperneq 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir
Daglegt líf í Skálholti
Okkur datt í hug að færa ykkur
fréttir af mannlífi í Skálholti í
sumar. Því hittumst við þar á
sunnudegi fyrir þremur vikum.
Liðið var á daginn, tvær rútur
stóðu í hlaði, ferðamenn skoðuðu
kirkju og inni í borðstofu skólans
sátu nokkrir gestir og drukku síð-
degiskaffi. Séra Gylfi Jónsson,
Skálholtsrektor, og kona hans,
Þorgerður Sigurðardóttir, sem
reka hótel staðarins, voru í sumar-
fríi. Við gerum okkur heimakomin
í eldhúsi en þar er Yrsa Þórðar-
dóttir, sem er kckkur á staðnum,
og Björk Óttarsdóttir, sem bæði
vinnur í eldhúsi og annast gesta-
herbergin.
Hvað er í matinn? spurðum
við, og heyrðum að það myndu
verða smjörsteikt smálúðuflök í
rjómasósu. Meðan Yrsa saxar
lauk og Björk þvær grænmeti
spyrjum við þær um sumarstarf-
ið.
— Hér er hægt að fá gistingu
í herbergjum og líka svefnpoka-
pláss, morgunmat, mat um há-
degið og kvöldmat, en þá er bezt
að hringja fyrst og panta. Svo er
hér kaffi á borðum allan daginn.
Á laugardögum og mánudögum
koma hingað rútur með gesti í
hádegismatinn.
— Svo eru námskeiðin, segir
Yrsa. Hér hafa verið þrjú nám-
skeið síðan ég byrjaði í maí.
Delta Kappa Gamma, félag
kvenna í fræðslustörfum, hélt
hér helgarráðstefnu, Jónas Ingi-
mundarson hafði helgarvist með
söngfólki og nú er nýfarið lýð-
haskólafólk frá Svíþjóð. Skál-
holtshátíðin verður og svo verða
sumartónleikar. Helga Ingólfs-
dóttir verður hérna hjá okkur og
Manuela Wiesler seinna.
— Svo verða námskeið sem
eru haldin hvert ár, bætir Björk
við og dregur fram möppu með
dagskránni. í ágúst verður
organista- og kóranámskeið og í
september verður æskulýðsnám-
skeið, fermingarnámskeið og
fleira.
Þeim kemur saman um að hér
sé afbragðsgott að halda nám-
skeið, aðstaðan til tónlistar-
iðkunar frábær og skólinn og
sumarbúðirnar góðar til sam-
veru. Við fáum ekki skilið að
starfsfólkið sé ekki fleira við öll
þessi störf, en þær segja að
Kristín ísfeld, sem hefur yfir-
umsjón með herbergjunum, sé í
fríi í dag. Svo er fengin hjálp á
þeim dögum, sem mest er þörfin,
og nú kemur Bryndís Róberts-
dóttir, sem var að vinna niðri.
Smálúðan kraumar á hlemmi-
stórri pönnunni og baðar sig í
rækjum og sveppum. Fleira
vinnufólk staðarins kemur inn
frá útivinnu og nokkrir gestir
koma aðvífandi. Við setjumst öll
við langborð og það er glatt á
hjalla. Þegar við komum að kaff-
inu og eplakökunni sjáum við að
fólk er farið að ganga í kirkju.
Klukkan er hálfníu og tóna-
stundin fyrir messu að hefjast.
Við göngum yfir hlaðið í kvöld-
sólinni.
Björk, Bryndís og Yrsa.
Við lékum á flautu
10. sunnudagur eftir trinitatis
Matt. 11.16—24
Við hvað á ég að Ifkja þessari kynslóð? Líker hún börnum, sem
á torgum sitja og kallast á: „Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki
vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér
syrgja.“
Þegar ég les þessi orð koma mér í hug þær umræður, sem ég
heyri oft og tek þátt í um kirkjusókn. Fólk, sem nær aldrei sækir
kirkju, ber því við, að þar sé allt svo leiðinlegt. Frá mínum
bæjardyrum séð er hins vegar margt um að vera og ýmislegt boðið
fram, hefðbundnar messur, léttir söngvar, bænamessur, samtals-
stundir, tónleikar, kvöldsöngvar. Sum okkar sinna því engu þótt
fjölbreytnin sé aukin og halda áfram að kvarta eða vera afskipta-
laus. Samt gengur kirkjunni kannski betur en mörgum öðrum
félögum að laða að sér fólk núna þegar erfiðara er að safna fólki
en oft áður. Hugleiðum í dag að kirkjan kallar til okkar og það er
ekki síður undir okkur komið en öðrum hvernig samfélagið verður
í því félagi.
Biblíulestur
vikuna 7.—13. ágúst
Sunnudagur 7. ágúst: 5. Mós. 6.1—9: Samveran heima
Mánudagur 8. ágúst: I Konungabók 8.54—61: Úr musterisbæn
Salómons
Þriðjudagur 9. ágúst: 84. Davíðssálmur: Bústaðir Drottins
Miðvikudagur 10. ágúst: Sakaría 8.1—8: Kærleiki til barna og
aldinna í samfélagi Guðs
Fimmtudagur 11. ágúst: Jóh. 5.35—45: Einn býður öðrum til Jesú
Föstudagur 12. ágúst: Post. 2.43—47: Samfélag trúaðra
Laugardagur 13. ágúst: Post. 12.12: Guðsþjónusta í heimahúsi.
Sr. Guðmundur Óli og frú Anna
Tónastund og messa
Þetta er staður, sem
Guð hefur helgað sér
GLÚMUR Gylfason organisti
Skálholtskirkju annast tónastund-
irnar, sem haldnar eru stundum
fyrir guðsþjónustur í kirkjunni svo
sem við höfum áður greint frá hér
á síðunni. Kirkjufólk er komið að
langan veg og úr sveitinni, starfs-
fólk staðarins er komið, Svein-
björn Finnsson ráðsmaður, Björn
Erlendsson bóndi í Skálholti og
meðhjálpari kirkjunnar, Marta
Halldórsdóttir kirkjuvörður og
Haukur ísfeld með syni sína þrjá
og Marteinn frá Svíþjóð.
Marta kirkjuvörður syngur
„Máríá, mild og há“ og með
Hildigunni systur sinni syngur
hún „Eigi stjörnum ofar“. Lítil
stúlka, Kristín Glúmsdóttir,
leikur á blokkflautu við undir-
leik föður síns. Hátíðarstemmn-
ing breiðir sig yfir kirkjubekki,
kvöldsólin varpar litadýrð úr
marglitum kirkjugluggunum á
veggina. Kertin loga á altarinu
undir stórri Kristsmyndinni í
kórnum.
Guðsþjónustan hefst klukkan
níu. Staðarprestur, séra Guð-
mundur Óli Ólafsson, þjónar
fyrir altari en séra Eiríkur J.
Eiríksson prédikar. Guðmundur
bóndi Gíslason á Torfastöðum
syngur „Faðir vor“ og kirkju-
fólki er boðið til altaris. Eftir
altarisgöngu er sungið „Te De-
um“, en það eru bara þau beztu,
sem geta tekið þátt í því. Kirkju-
söngur hefur annars allur verið
Kristín Glúmsdóttir
undir okkur á kirkjubekkjum
kominn og við finnum sem oft
fyrr að það er gott að taka þátt í
söngnum.
Eftir hina hátíðlegu messu í
Skálholtskirkju, göngum við útí
sumarnóttina — aðeins farið að
lygna — og í átt að prestsbústaðn-
um, þar sem okkur er boðið í kaffi.
Frú Anna Magnúsdóttir eiginkona
sr. Guðmundar Óla Ólafssonar
býður okkur í bæinn. Við tökum
sr. Guðmund Óla tali og spyrjum
hann um það hvernig helgihaldi
hér í Skálholti sé háttað.
Sr. Guðmundur Óli: Sú var tíð-
in, að hér var daglegt helgihald,
þá voru hér guðfræðinemar og
fleira fólk. Dr. Sigurbjörn Ein-
arsson stóð fyrir því. Þá var
staðurinn ríkari að rekstrarfé.
Það var hægt að hafa fólk hér í
vinnu. Rekstur sumarbúðanna
hófst hér 1965 og var hér mikil
uppbygging. Það var hér mikið
af fólki á vegum Þjóðkirkjunnar,
sem vann af hugsjón.
Rauði krossinn var þá með
barnaheimili í Laugarási og
komu börnin hingað á sunnudög-
um í messu. En nú koma fáir.
Allt frá vígslu kirkjunnar fyrir
20 árum og þar til í fyrra var
messað kl. 5 á sunnudögum, en
kl. 2 við sérstök tækifæri. í fyrra
fórum við síðan að reyna kvöld-
messur kl. 9.
Hverjar eru þínar hug-
myndir um leiðir til upp-
byggingar hér á staðnum?
Sr. Guðmundur Óli: Við vígslu
kirkjunnar lét kirkjuráð frá sér
10 liða óskir eða hugsjónir um
staðinn. Framkvæmd á þessum
liðum virðist vera í órafjarska —
því miður. En ég trúi, að Drott-
inn hafi sjálfur einhverja hug-
sjón og að hann muni leiða í ljós
hvað hann ætli með þennan stað.
Ég vil setja markið hátt. Ég á
þátt í þeim umbreytingum sem
eiga sér stað núna í búðunum.
Ég vil að hér verði aðstaða fyrir
presta og kirkjufólk til að vera
hér á þessum stað og vinna að
eigin uppbyggingu og rannsókn-
um.
Ég lifi ekki nema brot af þvi,
sem hér á eftir að verða. Ég vona
að hér verði meira en skóli og
bókasafn. Þjóðkirkjan á þetta og
við eigum margt ógert. Þetta er
staður, sem Guð hefur helgað
sér.
Með þessi orð í huga göngum
við á ný út í nóttina — mánann
ber við kirkjuturninn — við
sannfærumst um sannleiksgildi
orðanna.
Sumarbúðir
Eftir messuna í Skálholti hitt-
um við í kirkjunni sr. Friðrik
Hjartar sóknarprest í Búðardal,
og við spyrjum hann á hvaða
ferðalagi hann sé.
Sr. Friðrik: Ég er hér í
gömlu sumarbúðunum, sem áð-
ur voru fyrir börn á vegum
Þjóðkirkjunnar. Nú eru þær
leigðar út til hvíldar kirkju-
fólki sem sumarhús.
Hvað er gert hér?
Sr. Friðrik: Ekkert, nema
það sem hver og einn vill gera.
Ég er hér með fjölskyldu minni
til hvíldar. Þetta er hugsað
fyrir sóknarnefndir, presta,
organista og annað kirkjufólk.
Þetta er fyrsta sumarið, sem
búðirnar eru notaðar á þenann
hátt og er þetta tilraun til að
nýta þær, en þær voru ekki í
notkun.
Hvað dveljist þið lengi
hérna?
Sr. Friðrik: Við verðum
hérna í viku. Það er góð að-
staða til eldunar, stór stofa og
tvö svefnherbergi, svo það er
nóg rúm fyrir 6—8 manns í
hverju húsi.