Morgunblaðið - 07.08.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
71
ÁFÖRNUM
VEGI
j/m
V
Á ströndinni .
Meðan fréttir birtast um að þetta sumar sé svo fádæma kalt að leita þurfí
aftur um heila öld til að finna annað eins, láta þessir krakkar sér ekki mikið
muna um að skella sér í sjóbað og sólbað við íslandsstrendur.
Blaðamennskan
á vel við mig
Þessi ögn er í eigu þeirra Brynleifs
Tobíassonar, Úthlíð og Alberts
Baldurssonar, Páfastöðum og
sýndu þeir hana á flugdeginum á
Sauðárkróki sem haldin var ekki
alls fyrir löngu.
Brynleifur segir þessa vél kallaða
Girokofti og vera algengt fyrirbæri
í Bandaríkjunum, en frekar sjald-
séð hér. Ögn er að mestu leyti inn-
flutt, og var það Albert sem stóð
fyrir því. Brynleifur kom svo inn í
kaupin og í sjö ár hafa þeir verið
að prófa sig áfram með að fljúga
ögninni en að sögn Brynleifs er
það þó nokkur kúnst.
— rætt við Jón Óskar 15 ára blaðaútgefanda
BÓLA heitir nýútkomið blað með
efni fyrir alla, skrifað af unglingum.
Jón Óskar Magnússon heitir útgef-
andi þess og ritstjóri, hann er 15 ára
og hefur lagt stund á blaðaútgáfu í
fjölda ára. „Ég datt niður á þetta
eftir að hafa komið víða við,“ sagði
Jón Óskar. „Blaðamennskan á vel
við mig, en það hefur alltaf verið
mitt uppáhald að vasast í skipulagn-
ingu.
Bóla er gefin út í 2.000 — 2.500
eintökum og er dreift um allt land.
Það liggur mikill metnaður í út-
gáfu þess og ef vel gengur stefnum
við að því að gera það enn veg-
legra og vandaðra. Bóla á sér
langa þróun að baki, fyrsta blaðið
sem ég gaf út var ljósritað i fimm-
tán eintökum, ég hef líklega verið
tíu ára þá. Strax í næstu útgáfu
var eintakafjöldinn orðinn fimm-
tíu blöð og ég fikraði mig áfram i
gegnum blekfjölritun og skóla-
prentara uns ég gaf út offsett-
prentað blað í fimmhundruð ein-
tökum. Nú hefur þetta þróast
þannig að við erum komnir með
prentað blað með lit og dreifing
þess er komin út fyrir skólann.
Þetta er að sjálfsögðu mjög dýrt
og við hefðum aldrei getað þetta
án lánstrausts í prentsmiðjunni
og filmuvinnunni, auk ómetan-
legrar ráðgjafar Sigurðar Blöndal
(gaf út unglingablaðið 16) og
hjálpar hans við dreifingu. Nú er
bara að bíða og sjá hverng til
tekst og þá getum við hafist handa
við vinnslu næsta blaðs."
Jón Óskar Magnússon
W 'mkf m. *■ M t
w wp® **
1 mjf -F
% V\J
Glatt á hjalla hjá starfsfólki Útsýnar eftir ad ferðamannaskatturinn var afnuminn. f tilefni dagsins sendu þau
líka blómakörfu í ráðuneytið.