Morgunblaðið - 07.08.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
*■ %*fJ
(ÍK*
I Síííí^b við Sandskeíð
f <* v.r M tilkvnnt tiliíul^*VÖ,,um vi® S*nd»keiAiA * i V
I r*yndi»t VW« skaAKi!!Á ?®v*í,unn«r | Arb* UmK A 4 ^,“€*rd*«
] l0Kreglumenn . *noppdnni og alveg ósjálfbi.'líL *n I
Um dýrbitin lömb, fyrr og nú
Guðjón Olafsson frá Stóra-Hofi, í
Gnúpverjahrcppi skrifar
„ Ka-ri Vclvakandi
Fyrir nokkru voru birtar grein-
ar í blaði eftir forráðamann Tófu-
vinafélagsins. Þar var sett fram
það mesta bull, sem ég hef séð á
prenti, meðal annars var því hald-
ið fram að refurinn kynbætti
sauðfé fyrir bændur.
Þó ég sé kominn á níunda ára-
tuginn langar mig að koma eftir-
farandi á framfæri vegna tveggja
ljósmynda af dýrbitnum lömbum,
sem birtust í Morgunblaðinu 4. og
5. ágúst sl. Við það að sjá þessar
myndir rifjaðist upp fyrir mér
svipuð sjón frá árum áður.
Árið 1922 var ég heimilismaður
í Grafarholti í Mosfellshrepp. Dag
einn eftir fjallaferð var hringt frá
Lögbergi, en þá lá síminn austur
um Grafarholt um Lögberg.
Hringingin hljóðaði upp á það, að
húsbóndi minn, Björn Birnir, ætti
dýrbitið lamb í Elliðakoti, en þar
hafði Ágúst frá Lárholti í Reykja-
vík fjárbú og ráðsmann.
Ég var sendur með kerru eftir
lambinu. Ekki var aðkoman falleg,
nefið var bitið upp að augum og
allt orðið blóðstorkið. Lambið var
á lífi og mikið sá ég eftir því að
hafa ekki tekið með mér fjárbyss-
una, en slík byssa var ekki til í
Elliðakoti. Nú sé ég sömu sjón á
mynd af Bjarna Bjarnasyni lög-
regluþjóni með dýrbitið lamb á
Vatnavöllum.
Næsta vor, 1923, var ég í vor-
smalamensku á Mosfellsheiði. Við
Þessir hringdu
Björn Kristinsson hringdi.
Að undanförnu hefur mikið ver-
ið um það rætt í fjölmiðlum hvaða
hljómsveit skuli koma á næstu
Listahátíð. Sýnist sitt hverjum
þar um. Mest hefur borið á
hljómsveitunum Kiss, Duran Dur-
an, Culture Club og Queen.
Af ofangreindum hljómsveitum
og öðrum þeim sem nefndar hafa
verið tel ég að hljómsveitin Queen
sé þeirra hæfust. Má í því skyni
nefna að sérhver plata sem hljóm-
sveitin hefur sent frá sér hefur
haft að geyma lög sem orðið hafa
gífurlega vinsæl, svo sem Bohemi-
an Raphsody, sem trónaði efst á
vinsældarlist Breta í níu vikur
samfleytt og hnekkti meti Bítl-
anna um tvær vikur.
Þá tel ég einnig að val á
hljómsveit á Listahátíð ætti aldrei
að fara eftir vinsældum hennar í
dag, heldur ætti að reyna að sjá
fyrir um vinsældir hennar á þeim
tíma sem Listahátíð verður. Það
væri til dæmis hægt með því að
kanna hvenær viðkomandi hljóm-
sveit senir frá sér næstu plötu.
Það eru jú einu sinni plöturnar
sem gera hljómsveitir vinsælar.
Þá bendir allt til þess að hljóm-
sveitin Queen gefi út plötu einum
til tveimur mánuðum fyrir næstu
Listahátíð og verður sú plata í
anda gamla meistaraverksins „A
Day at the Opera".
Þá vona ég einnig að fólk geri
sér grein fyrir því að sú hljóm-
sveit sem valin er á Listahátíð
verður að vera vinsæl þannig að
Laugardalshöllin fyllist, þrátt
fyrir hátt miðaverð og tónleikarn-
ir standi undir sér.
Tryggvi í Miðdal urðum eftir og
fórum norður með Sköflung. Þar
fundum við greni en öll dýr farin.
Leifar fundum við víst af um tutt-
ugu lömbum, ef ég man rétt, og nú
1983 finna þeir Helgi Bachmann
og Ómar Runólfsson leifar af 37
lömbum.
Finnst nú nokkrum heilbrigðum
manni þörf á að friða þennan
skaðvald, því nú eru refir ekki
minni skaðvaldar í fuglavarpi?"
Launatengd gjöld
Steinunn Sigurðardóttir hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
tveimur spurningum sem varða
launatengd gjöld, þar sem ég rakst
á launaseðla frá fyrirtæki sem
engin slík gjöld borgar.
Hvernig stendur launþegi, sem
starfar hjá fyrirtæki sem ekki
borgar nein launatengd gjöld,
gagnvart lífeyrissjóðum, slysa-
tryggingum og þessháttar. Ef það
er skylda fyrirtækja að borga slík
gjöld af launum starfsmanna
sinna, hver á að sjá um að svo sé
gert.
Vona ég að viðkomandi aðilar
svari þessum spurningum mínum.
GÆTUM TUNGUNNAR
•: Ég
ri: Ei
Sagt var: Ég mundi stökkva yfir ef ég mundi þora.
Rétt væri: Eg mundi stökkva yfir, ef ég þyrði.
Eða: Ég stykki yfir, ef ég þyrði.
(Bendum börnum á að segja ekki ,,mundi“ á eftir ,
>ef“!)
B3? %\QCA V/öGA £ 1/LVEMU
VALOtf áAW
vmZaiSGbV
Utsala - - Útsala
’ Mikill afsláttur. Glugginn
1 Laugavegi 49.
Kælivélar hf.
Mjölnísholti 14, Reykjavík. Sími 10332.
Tökum að okkur uppsetningar, eftirlit og viðhald á kæli- og frysti-
kerfum til sjós og lands.
Einnig kæliskápa- og frystikistuviðgeröir.
Leitumst við að veita góða þjónustu.
Ekki bara
verðtrygging
heldur ávöxtun
sem um munar
Vissir þú,
að spariskírteini, veðskuldabréf og önnur
verðbréf skila þér mun meiri ávöxtun en
innistæður á bankareikningum
Vissir þú,
að með því að festa fé í spariskírteinum eða
veðskuldabréfum getur þú verðtryggt sparifé
þitt og fengið allt að 8% ársvexti þar ofan á?
Vissir þú,
að vaxandi verðbréfaviðskipti gera það að
verkum að verðbréf eru yfirleitt auðveld í
endursölu ef þú skyldir vilja losa fé fyrr en þú
ráðgerðir
Vissir þú,
að sérhæft starfsfólk Kaupþings hf. aðstoðar
þig við að taka réttar ákvarðanir varðandi
kaup og sölu verðbréfa
KAUPÞING GEFUR ÞÉR GÓÐ RÁÐ
KAUPÞING HF
H
Húsi verzlunarinnar, 3. hæö, sími 8 69 88
Verðbréfasala, fjárvarzla, þjóöhagsfræði-,
rekstrar- og tölvuráögjöf. Fasteignasala
og leigumiðlun atvinnuhúsnæöis.