Morgunblaðið - 04.09.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 04.09.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 53 Xv . Olá|| 'ý'Steíira ðw*esl & AnM-tahí " á. J frrar-SistQwtT6*|JJÍr *Ft. V'-álora ÍSofala (f1 : 1 0 °JV^*V». , vír5.,^<r»Vat.'AírJ ,,-í. Ngam, Wvjr.*A B v.t, Am6rtfc«MA«> ffjj, ‘ . libla rruö Terwtcf y ‘•'AijAíariíriJítC frana'uto .('•L.Ng*m SjÍMmM, L.Qeú & ,.■ S«rowe / BOTSWANAV p. ‘ ......M&efy GABORC* fah* ÍA^ShoOp W' __fV Port NoitotV 8u?"W4<#- SODTH AFM©l"ff oug Bittcrfoftt e|p ^Vfetpta -jy— Hoedjes Cap# Tow; c&m . ^Ínhárr.bar^e 'Álnhírnme 'öáoöelo 0 emSl 'fWoromne . ju ,JS*irp*» f f riítéí#^ /•"' • T A ndrok^ C C S»«. Wsrw ÍMoc/a t. etðrmaHhrburg - . m...... ört Shopstone ..^■^T^St.rJoÍMH :%C“lljrd0fl «Tr*óJV?;> Affrefl mæta málma, sem þörf er fyrir i hinum vestræna heimi.“ —„Eftir að hafa fengið benzín í bænum Nata héldum við til Chobe, sem liggur við samnefnda á, sem er eitt af stærstu fljótum Afríku. Það er lygnt og mjög breitt fljót, sem rennur til austurs við landamærin í áttina til Zimb- abve. Þangað vorum við nú komin til þess að sjá dýrin, sem horfin voru úr eyðimörkinni í leit að vatni. Við bjuggum þarna í frum- stæðu „hvíldarheimili" með vond- um mat og drykk, og gerðum lög- reglunni aðvart um hvar við vær- um, eins og fyrir okkur var lagt. Þetta var einhver sérdeild, sem átti að tryggja öryggi okkar, því allt var í öngþveiti. En sem betur fer hvarf Nkomo um þetta leyti úr landi til Bretlands. Um morgun- inn var okkur sagt hvernig aka bæri að Chobe-fljóti. En á leiðinni þangað fórum við inn á hliðar- slóða með opnu hliði og í myrkvið- um skógarins sást allt í einu stórt og glæsilegt hús, sem var greini- lega að eyðileggjast og hverfa í skóginn. Enda þarna votlendi mik- ið og allt grotnar. Þetta reyndist vera húsið sem þau Elísabet Tayl- or og Richard Burton eyddu hveitibrauðsdögunum í á sinum tíma og eiga. Þarna var til eftirlits bandarískur rithöfundur með konu sinni frá Suður-Afríku, sem var að bíða eftir því að fá vegabréf til Ameríku. Hann var að skrifa bók og næstum búinn með hana og þau bjuggu í gestahúsinu, sem var vel haldið við. Þarna hefur sem- sagt hver eftirlitsmaðurinn af öðrum gætt stóra hússins, sem er að grotna niður og ekki haldið við. —Við ókum að ánni og eftir bökkunum, þar sem við fórum að sjá alls konar dýr að ná sér í vatn eða hlaupa um. Milli trjájaðarsins og fljótsins eru grasi grónir sandflákar og hægt að aka þar. Þarna fengum við að sjá næstum öll dýr Afríku nema fílana, sem olli okkur vonbrigðum. Þarna komu að fljótinu alls kyns hjart- artegundir, sem eru margar í Af- ríku. Gasellur, dádýr, villt svín, vatnabuffalóar, nashyrningar, eitthvað sem heitir Wilderbeast, sem líkist bæði uxa og asna. Þessi dýr voru við vatnið á opna svæð- inu, en zebrahestarnir og gíraff- arnir héldu sig við skógarjaðar- inn. I ánni voru flóðhestar og fleiri dýr, en ljón urðum við ekki vör við fyrr en við vorum komin inn í Zimbabve. þetta var alveg stórkostlegt, og við ókum eins langt upp með ánni og við þorðum. — Á leiðinni frá Chobei festum við bílinn i sandinum. Það var ekki álitlegt. Afríkusólin skein beint niður á höfuðin á okkur, svo við ákváðum að eyða ekki kröftun- um meðan hún væri á lofti. Við vorum þarna fjögur, Tom og Mari- ella og svo við Sigriður. Enginn kom. Ekki þótti okkur árennilegt að leita skjóls i skógarjaðrinum, því vatnabuffalarnir geta orðið mjög vondir og kannski væru þarna ljón. Dýrin þarna eru ekki vön fólki, eins og þau eru i þjóð- görðunum í Kenýa. Svo við hreins- uðum bara hávaxið grasið kring- um bílinn, til að vera viss um að slöngur kæmust ekki að bílnum án þess við vissum. Þá komu allt i einu nokkrir svertingjar á opnum Landrover-jeppa og við gátum kallað til þeirra. Með því að ýta öll, tókst okkur að ná bílnum upp. En nú þorðum við ekki að aka lengur með ánni og tókum slóða inn í skóginn." Fíllinn stóð framan við bflinn —„Það var einmitt meðan við ókum þennan slóða í kjarrinu að við fengum skyndilega svarta mömbu með gapandi ginið upp á húddið á bílnum. Hún hafði komið í einu stökki. Það hafði verið brýnt fyrir okkur að gæta þess að hún væri farin af, ef slíkt kæmi fyrir, því sumir hafa lent í því að slang- an stykki yfir bílinn og smygi inn í undirvagninn neðan frá. Þaðan hefur hún svo árás síðar. —Það var orðið æði framorðið þegar við komumst á okkar slóð. Allt í einu sáum við risa koma út úr skóginum og stanza 4—5 metra fryrir framan bílinn. Þarna stóð þessi risafíll í veginum og veifaði sinum stóru eyrum. Fílarnir þarna eru með stór eyru, þar sem sá indverski aftur á móti hefur lítil eyru. Við stönzuðum auðvitað. Vorum í senn ánægð með að sjá þetta stærsta dýr jarðarinnar í sínu eigin umhverfi og um leið ekki laus við ugg, því við vissum ekkert hvað mundi gerast. En meðan fíllinn stóð þarna, fór fyrir aftan hann halarófa af fílakúm og ungviði á mismunandi aldri. Hann var þá að hleypa þeim yfir slóðina meðan hann var tilbúinn til að verja þau. Við smelltum myndum gegnum framrúðuna. Ætluðum svo að bakka. Meðan fíllinn veifar eyrunum er hann tilbúinn til árás- ar til að verja hjörð sína. En þá hrópuðu konurnar, sem voru í aft- ursætinu, upp yfir sig. Fyrir aftan okkur var annar fíll. Við vorum semsagt í slóð fílahjarðar á leið til fljótsins. Það var ekki um annað að ræða en að bíða. Skógurinn var allur á hreyfingu. Þegar mesta hættan var liðin hjá, ókum við að ánni. Þá voru fílarnir að koma út úr skóginum. Hlupu við fót út i fljótið og sprautuðu yfir sig. Það var stórfengleg sjón. Nú vorum við orðin harla ánægð. Það er erfitt að sjá dýr almennilega, þegar þau ber andartak fyrir á hlaupum f skóginum. En við fljótið má virða þau fyrir sér á töngum og eyjum. Þarna horfðum við yfir breitt fljótið yfir til Zambíu. Zambía var um þessar mundir alveg lokað land og öllum bönnuð umferð. Þannig að leiðin þar í gegn til Viktoriufossanna var úti- lokuð, því þeir voru umkringdir uppreisnarmönnum, fylgis- mönnum Nkomos. Það höfðum við vitað þegar í Gabaroni. Þeir höfðu náð írskri konu, tveim börnum og manni. Höfðu þegar drepið kon- una og búist var við að hin fyndust líka myrt. Þetta voru hermdar- verk. Árið áður höfðu þeir drepið enska túrista. Vegna þessa ástands hugðumst við heldur ekki fara þarna í gegn. Við sáum að við yrðum að fara frá Cassane í Botzwana, þó ekki væri það hættulaust, því Viktoriufossana ætluðum við að sjá, komin alla þessa leið. Og Tom Martin og Mariella höfðu líka beðið með að fara þangað þar til við kæmum. — E.Pá. Frá MÍðari hluU Afríkuferðarinnar verður sagt í annarri grein.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.