Morgunblaðið - 04.09.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
77
Pottarím
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
í þeirri von að sólin skíni á
okkur og rifsberin, þá fylgja hér
nokkrar athugasemdir og upp-
skriftir að rifsberjaréttum.
Reyndar hafa einnig sézt hér
innflutt rifsber, sem eru svo
sannarlega kærkomin, því þetta
eru svoddan öndvegis ber. Og
það sem er sagt um rifsber, má
heimfæra upp á bláber ...
Góða skemmtun!
Rifsber hér og þar
Rifsber njóta sín vel í margs
konar rétti. Þau eru góð í
ávaxtasalöt, t.d. með eplum, bön-
unum og perum. Þau sóma sér
vel á rjómatertur og á mar-
engsbotna, því auk þess að vera
góð á bragðið, taka þau sig svo
vel út. Súr berin eiga alveg sér-
staklega vel við marengs. Það er
t.d. hægt að útbúa skálar fyrir
hvern og einn með þeyttum
rjóma, marengskökum og rifs-
berjum, sykruðum eftir smekk.
Rifsber með ís er góð sam-
setning. Það er bæði hægt að
setja rifsber i ísinn þegar hann
er búinn til eða bera berin fram
sykruð með ísnum, Það er e.t.v.
óvenjulegra, og jafnvel enn
betra, að hita berin og bera þau
fram heit með ísnum. Þá eru
berin sett í pott ásamt svolitlu
af sykri eftir smekk og síðan hit-
uð undir loki við vægan hita þar
til þau eru orðin heit í gegn, en
ekki farin að springa mikið. Þeir
sem vilja meiri vökva, sjóða ber-
in í svolitlu af appelsínusafa, eða
e.t.v. í portvínslögg, eða öðru
heppilegu víni og hápunkturinn
er auðvitað að búa til ísinn sjálf-
ur. Það jafnast fátt á við heima-
lagaðan ís ...
Kökur með rifsberjafyllingu
og e.t.v. rjóma eru glæsilegt
kaffimeðlæti eða eftirréttur.
Einnig er hægt að raða pönnu-
kökum með rifsberjum á fat,
strá e.t.v. ristuðum heslihnetum
yfir og baka í um 10—15 mín. við
200°. Berið fram með mjúkum,
þeyttum og ögn sætum rjóma, ís
eða vanillusósu. Einnig er hægt
að þeyta eggjahvítur og sykur
saman, setja þetta yfir berja-
pönnukökurnar og baka þar til
hvíturnar hafa fengið á sig lit.
Berið strax fram.
Norðmenn hafa þann háttinn
gjarnan á við ber að blanda þeim
í þykkt pönnukökudeig, eða öllu
heldur klattadeig, og baka þann-
ig berin í deiginu rétt eins og
venjulegar pönnukökur. Stráið
síðan sykri á hvern klatta, stafl-
ið upp nokkrum saman og berið
fram eins og kökur, sem síðan er
hægt að skera í gegnum. Þeyttur
rjómi sómir sér vel með.
Rifsber eiga vel við ýmsan
mjólkurmat, ekki sízt skyr. Búið
til skyrkrem úr 50—100 gr af
skyri, pela af rjóma, þeyttum, og
sætið með sykri og/eða hunangi.
Slíkt krem er gott með berjum
eða þá að berjunum er blandað í
kremið. Látið það þá stífna í
kæli í nokkrar klst. ef vill. Svona
krem er hægt að setja í bakaða,
kælda pæaskel eða í pönnukök-
ur. Rifsber eru frábær í kökur úr
skyri eða rjómaosti.
Rifsber henta vel í botna, sbr.
hér á eftir. Einnig er hægt að
nota ávexti með, t.d. epli og/eða
perur.
Auk þess að borða berin heil,
eins og þau koma fyrir, er hægt
að setja þau í kvörn og hakka
þau. Þá er rétt að bæta sykri í
eftir smekk. Slíkt mauk má síð-
an nota í hvers kyns krem, eitt
sér á kökur, t.d. rjómatertur,
rúllutertur eða pönnukökur, kalt
eða heitt með ís. Og svo er hægt
að frysta maukið, hrærið í því
hreyfið pokana til eftir nokkrar
klst. svo berin verði laus í þeim.
Þegar berin á bökkunum eru
frosin, eru þau sett í poka. Og
síðan er hægt að taka af þeim í
hina ýmsu rétti eftir því sem
andinn innblæs ykkur ... Ef
berin eru mikið þroskuð, er
betra að frysta þau á stönglun-
um og tína þau síðan frosin af
þeim. Þá eru þau hörð og rifna
ekki.
Rifsber eru ekki aðeins góð í
sæta rétti. Þau eru góð í salat úr
venjulegu blaðsalati, kínakáli
eða jöklasalati, gefa slíku salati
frísklegt bragð og glæsilegt út-
lit. Þau eru einnig góð í sósur
með kjöti, t.d. lambakjöti og
villibráð. Setjið berin í rétt áður
en sósan er borin fram, svo þau
hitni, en springi ekki.
Ef þið hyggizt baka jólaköku,
hvernig væri þá að nota rifsber í
stað rúsína? Slík kaka geymist
reyndar ekki eins vel og jóla-
kaka, en hún er svo góð ný, að
Rifsber
meðan það frýs, nokkrum sinn-
um, svo það verði ekki að ís-
klumpi. I svona ísfroðu er vel til
fundið að nota appelsínusafa.
Og svo er það rifsberjasulta
eða hlaup, hefðbundin geymslu-
aðferð, sem frystirinn hefur
e.t.v. gert umframa. En sultan er
góð og stendur fyrir sínu. Og ef
berin þroskast lítt, þá er gott að
sulta þau, því í grænum berjum
er meira af pektíni en þeim
rauðu, og pektín er hleypiefni,
sem sér til þess að sultan hleupi.
Það fer vel á að nota krydd í
sultu, t.d. negulnagla, engifer,
kanil, allrahanda og vanillusyk-
ur. Söxuð engiferhnýði í sykur-
legi gefa rifsberjasultu einkar
gott bragð. í stað þess að sjóða
sultu er hægt að hræra berin
með sykri eftir smekk og láta
standa yfir nótt. Þá hafið þið
sultu sem er frísklegri á bragðið
en soðin sulta og c-vítamínrík-
ari, því c-vítamín rýrnar við
suðu. En þessi sulta geymist lítt
nema í frysti.
Og svo er hægt að frysta berin
og varðveita þannig svolitla síð-
sumarstemmningu fram á næsta
sumar. Skolið þá berin, þerrið
þau sem bezt, t.d. með því að
breiða þau á þurr stykki, og tínið
þau síðan af stilkunum. Frystið
þau síðan á bökkum eða i pokum,
þið þurfið varla að hafa áhyggj-
ur af leifum. Og auk þess getið
þið látið ykkur nægja að setja
rifsber í hluta deigsins, en ekki
endilega í allt deigið ...
Rifsberjapæi
Frakkar eiga sér einkar lyst-
uga og girnilega pæa, sem þeir
kalla gjarnan tarte. Þetta eru
pæabotnar, sem þeir raða
ávaxtasneiðum eða berjum í,
baka stutta stund, kæla svo og
pensla með ávaxtahlaupi. Pæ-
arnir eru síðan bornir fram
kaldir, einir sér, með þeyttum
rjóma, sýrðum rjóma eða van-
illusósu eftir smekk og aðstæö-
um. Pæinn hér á eftir er orðinn
til að franskri fyrirmynd. Þið
ráðið hvort þið bakið berin eða
ekki.
f botninn er notað haframjöl.
Einnig er hægt að hafa svolítið
af grófsöxuðum heslihnetum i
botninum. Það er einfaldast að
þrýsta deiginu í formið, fremur
en að fletja það út. Eftir að þið
hafið þrýst og jafnað deiginu i
mótið, getið þið geymt það í kæli
eða í frysti. Botninn getið þið
bakað daginn áður en hann er
notaður. Ef þið ætlið að taka
botninn úr forminu, þá notið
lausbotna form. Botninn er svo
stökkur að hann hrekkur auð-
veldlega f sundur. Því getur ver-
ið gott að láta hann standa
áfram á botnplötunni, en losa
aðeins hliðarnar frá.
3 dl haframjöl
1 dl hveiti
100 gr ískalt smjör
2— 3 msk sykur, gjarnan hrá-
sykur
1 eggjarauða
1. Setjið ofninn á 200°.
2. Blandið saman haframjöli og
hveiti, saxið smjörið saman við
og myljið það saman við mjölið,
svo blandan líkist grófum sandi.
Hafið snör handtök, þvi smjörið
á að bráðna sem minnst. Blandið
rauðunni saman við og hnoðið
deigið þar til það loðir saman en
ekki lengur. Þrýstið deiginu í
smurt form og látið það ná um
3—4 cm upp á barmana. Bakið
deigið þar til botninn er orðinn
fallega gylltur. Látið hann
kólna.
Fylling:
um Vi 1 rifsber
1 dl flórsykur
(1 msk kartöflumjöl)
3— 4 msk rifsberjahlaup
3. Ef þið hyggizt baka berin,
setjið þá ofninn á 225°. Blandið
saman berjunum og sykri, svo
sykurinn leysist upp. Ef þið bak-
ið kökuna, blandið þá kartöflu-
mjöli í sykurinn áður en honum
er blandað saman við berin.
Hellið berjunum í kaldan botn-
inn. Bakið nú í 10 mín. Takið
kökuna út og látið hana kólna.
4. Bræðið rifsberjahlaupið með
því að láta það standa í heitu
glasi eða bolla, þar til það er orð-
ið fljótandi, en þó enn þykkt.
5. Hellið hlaupinu yfir köld ber-
in eða penslið þau, svo berin
verði gljáandi. Látið nú kökuna
jafna sig, t.d. í kæli, þar til
hlaupið hefur storknað aftur.
Berið þá kökuna fram.
Ef ykkur finnst berin ekki
verða nógu sæt með þessum syk-
urskammti, þá sykrið frekar eft-
ir smekk. ögn af kanel eða öðru
hefðbundnu kökudufti gefur
gott bragð, einnig smávegis af
söxuðum engiferhnýðum í syk-
urlegi.
Rifsberjahlaup fæst í flestum
búðum. Ef þið náið ekki í það, er
hægt að nota annað hlaup sem
ykkur lízt vel á, t.d. sólberja-
hlaup. Og svo getið þið búið til
hlaup úr ávaxtasafa, sem þið
hleypið með matarlími. Appel-
sínu- og sveskjusafi á einkar vel
við rifsberin, auðvitað einnig
rifssafi eða -saft, ef ykkur
áskotnast það.
Er móða á rúð-
unum hjá þér?
Ef til vill getum við leyst þetta hvim-
leiða vandamál fyrir þig.
Viö veitum frekari upplýsingar og tökum á
móti pöntunum af öllu landinu.
Símar: 91-79846, 42867, 96-22308, 93-
7369 og 99-1697.
Fjöltak hf., Dalalandi 6 — Reykjavík
kr. 2.990,
kr. 1.390,
kr. 980,
kr. 1.390,
kr. 350,
kr. 295,
kr. 1.290
mánudag — þriðjudag — miðvikudag
Föt m/vesti, finnsk
Stakir jakkar, finnskir
Stakar buxur, finnskar
Frakkar m/belti, finnskir
Skyrtur m/belti
Skyrtur 1/2-erma
Blússur frá kr. 500,- til 1.290,-
Peysur frá kr. 400,- til 600,-
ítalskir skór
Bolir — sokkar o.m.m.fl.