Morgunblaðið - 04.09.1983, Side 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
Afmæliskyeðja:
Ragnar Þorsteinsson
rithöfundur 75 ára
Á morgun, mánudaginn 5. sept-
ember, verður Ragnar Þorsteins-
son rithöfundur, fyrrum skip-
stjóri, bóndi og bankastarfsmað-
ur, sjötíu og fimm ára. Af þvi til-
efni langar mig til að senda hon-
um kveðju, og um leið vekja eftir-
tekt á athyglisverðum og
skemmtilegum manni.
Tvennt er það sem vekur mér
furðu, er mér kemur Ragnar í hug;
— hvað hann hefur komið víða við
og látið margt af sér leiða á þess-
um þremur aldarfjórðungum og
hitt hvað honum hefur tekist að
sigla framhjá skerjum ellihrörn-
unar og aldurdóms, hvatur í spori,
léttur upp á fótinn, með ferskan
svip í uppliti og andlitsdráttum.
Asgeir Ragnar fæddist 5. sept-
ember 1908 í Eyrardal við Súðavík
í Álftafirði vestra, en það er það
ábýli er Jón Ólafsson Indíafari og
rithöfundur hlaut fyrir kóngsins
mekt leigufrítt til æviloka, að
endurgjaldi fyrir þjónustu sína.
Foreldrar Ragnars voru Þorsteinn
Ásgeirsson, lengi formaður við
Djúp og kona hans, Rebekka
Bjarnadóttir, saumakona. Þau eru
í Vestfirskum ættum. Ragnar var
elstur tíu systkina. Það var þröngt
í búi.
Ragnar hóf sjómennsku 12 ára,
tók hið meira fiskimannapróf við
Stýrimannaskólann 22 ára og var
síðan stýrimaður og skipstjóri á
fiskiskipum um 13 ára skeið, en
hætti þá að mestu sjósókn. Þá stóð
heimsstyrjöldin síðari sem hæst.
Þá gerðist Ragnar bóndi á hinu
forna stórbýli Höfðabrekku í
Mýrdal og bjó þar samfleytt í tutt-
ugu og fimm ár. Vann hann þá
mikið og farsælt starf að slysa-
varnamálum við stjórnun slysa-
varnadeilda þar eystra og við
björgunarstörf. Hlaut hann af-
reksverðlaun Sjómannadagsins
1962 (ásamt björgunarsveit) fyrir
björgun manna úr sjávarháska, og
heiðursskjal frá Slysavarnafélagi
íslands fyrir leit að flugvél á jökli.
Ragnar var einnig barnakennari
eystra um árabil og gegndi ýmsum
opinberum störfum.
Er Ragnar hætti búskap fluttist
hann til höfuðborgarinnar og
vann við mynttalningu hjá Seðla-
bankanum f einn áratug eða svo,
unz hann hætti þar störfum fyrir
fáum árum. — En hann gat ekki
alveg lagt árar i bát þegar hann
hætti í bankanum, svo hann
keypti sér bátshorn og lagði út
árar á nýjan leik, fluttist upp á
Akranes og gerðist háseti, véla-
maður og skipstjóri á eigin útgerð.
Ragnar er þríkvæntur. Fyrsta
kona hans 1933, var Guðrún Gísla-
dóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru
fimm á lífi, öll gift og eiga börn.
VANTAR ÞIG VARAHLUTI
í Honda, Mazda, Mitsubishi eða Toyota?
Nú eru tvær [ | verslanir, á
Akureyri og í Reykjavík og þaö
sem meira er þaö er sama verð
fyrir noröan og sunnan
Býður nokkur betur.
Kúplingar
Kveikjukerfi
Startarar
Altinatorar
Vatnsdælur
Tímareimar
Viftureimar
Olíusíur
Loftsíur
Bensínsíur
Þurrkublöð
Ventlalokspakkningar.
Hvergi hagstæðara verð.
VARAHLUT1R
í ALLA JAPANSKA BÍLA
NF VARAHLUTIR. Ármúla 22-105 Reykjavík. Sími 31919
DRAUPNISGÖTU 2, 600 AKUREYRI. SÍMI 26303.
Magnabúdin, Tangargötu 1, Vestmannaeyjum
Sólskinsvika í Þýskalandi
Stuttar fjölskylduferðir í sérflokki
9/9 - 16/9
16/9 - 23/9
23/9 - 30/9
30/9 - 7/10
Þú flýgur í beinu þægilegu flugi til Luxemborgar þar sem bíla-
leigubíllinn bíður á flugvellinum. Ekið er síðan til
sumarhúsanna í Daun þar sem dvalist verður í næstu
8 dagana í góðu yfirláeti.
Þar er hægt að gera ýmislegt sér til gamans, eins og að
fara í sund, tennis, billard, mini-golf, tefla á útitafli,
borða góðan mat eða bara baka sig í sólinni. Ekki er það til að
spilla ánægjunni að stuttur akstur er til þorpanna við Mósel og
Saar, þar sem alltaf er eitthvað um að vera á þessum tíma árs.
Á 8. degi er ekið til Luxemborgar. Möguleiki að dvelja þar í nokkra
daga á bakaleið.
Einstaklings- 2 í stúdío
verð: 3 í íbúð
4 í íbúð
4 í húsi
5 í húsi
með bíl í B flokki
með bíl í B flokki
með bíl í C flokki
með bíl í E flokki
með bíl f E flokki
Börn 2-11 ára fá kr. 3.900,- f afslátt.
kr. 12.240.-
kr. 11.560,-
kr. 11.240.-
kr. 11.570.-
kr. 11.120.-
Önnur kona Ragnars, 1972, var
Matthildur Edwald. Hún dó 1975.
Þriðja kona Ragnars, 1983, er
Anna Hákonardóttir og starfar
hún með Ragnari við sjómennsk-
una.
Þegar Ragnar hafði fest sig í
sessi sem bóndi á Höfðabrekku,
kominn á miðjan aldur, fann hann
fyrst möguleika til þess að láta
eftir löngun sem búið hafði honum
rík í huga allt frá unglingsárum,
en það var að fást við ritstörf, og
byrjaði hann í smásagnagerð. Það
gaf honum kjark til meiri átaka,
og hann sezt niður og skrifar sína
fyrstu skáldsögu, Víkingablóð, er
kom út 1951. Sfðan hafa komið út
átta skáldsögur og unglingabæk-
ur, ein ævisaga, æviminningar
Elíasar Pálssonar og minninga-
þættir frá eigin æsku, ásamt smá-
sögum Með hörkunni hafa þeir
það, sem kom út 1976. Er þar að
finna gagnmerka þætti frá upp-
vaxtarárum hans og finnst mér sú
bók merkust af því sem Ragnar
hefur skrifað, ásamt sumum smá-
sögum og frásögnum hans er víða
hafa birst en ekki verið safnað til
bókar og hafa sumar af þeim unn-
ið til verðlauna.
Ragnar Þorsteinsson á marga
góða eiginleika í fari sínu. Hann
er léttlyndur og óvílsamur, hag-
sýnn og úrræðagóður. Litilmagn-
inn á samúð hans óskifta og allir
þeir sem lenda á refilstigum og
hættuslóðum og eru fyrir borð
bornir í ofríki lífsbaráttunnar,
enda hefur hann sjálfur reynt sitt
af hverju frá því að hann fyrst fór
að berjast fyrir eigin tilveru.
Vegna þess hefur honum verið það
hugstætt að vinna að almennum
slysavörnum, þessvegna hefur
hann lagt starf að mörkum i
slysavörnum og bjargarstarfi
bindindismanna. Þessvegna eru
þeir margir sem senda honum
þakkir og kveðjur í dag.
Börn Ragnars hafa boð inni síð-
degis í dag i húsi Slysavarnafé-
lagsins á Grandagarði fyrir
venzlamenn, vini og velunnendur.
Ég flyt Ragnari vini mínum
árnaðaróskir og kveðjur frá okkur
hjónum um leið og ég þakka hon-
um ánægjulegt samstarf um ára-
tugaskeið í Félagi íslenskra rit-
höfunda, í Góðtemplarareglunni
og Reglu musterisriddara. Lifðu
heill. Indriði Indriðason
Kveðja frá SVFÍ
Góður vinur og traustur sam-
starfsmaður stendur á merkum
tímamótum á morgun, 5. septem-
ber og fagnar 75 ára afmæli. Ekki
ætla ég mér að tíunda lffshlaup
þessa heiðursmanns svo mynd-
rænt sem það þó er, sjómaður og
bóndi, kennari og rithöfundur, og
forustumaður í slysavarna- og
björgunarstörfum í sinni sveit. Á
hinum síðastnefnda vettvangi
lágu leiðir okkar saman og einmitt
þar voru vináttuböndin treyst.
Það var líttreyndum erindreka
SVFÍ mikill fengur að kynnast
þegar á fyrstu starfsárum þeim
öðlingum, sem stóðu í fylk-
ingarbrjósti vaskra björgunar-
manna á Söndum suður, Ragnari i
Vík, Böðvari í Álftaveri, Sigur-
geiri í Meðallandi og Páli í Öræf-
um. Þótt þeir gjörólíkir að eðlis-
fari þá var eitt þeim sameiginlegt,
eldlegur áhugi fyrir þessu mikil-
væga hugsjónastarfi, vinátta og
tryggð, sem seint verður fullþakk-
að.