Morgunblaðið - 04.09.1983, Qupperneq 34
82
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
Nina Ricci
ilmvötnin eru heimsþekkt gæðavara. Nú er kominn nýr ilmur frá
Nina Ricci.
Selst í öllum helstu snyrtivöruverslunum landsins og apótekum.
Heildversíun Péturs Péturssonar,
Suöurgötu 14, símar 21020 og 25101.
Skátamiðstödin að Snorrabraut 60.
Ljfemyndir Mbl./KEE
Skátarnir nú
í alfaraleið
- önnur hæð skátamiðstöðvarinnar að Snorrabraut opnuð
SKÁTAR buöu gestum í nýbyggða
miðstöð sína að Snorrabraut 60,
föstudaginn 2. september. Tilefni
þess var ekki einvörðungu að lífga
upp á gráma hversdagsleikans held-
ur einnig til að fagna því að 2. hæð
þessa glæsilega húss hefur verið tek-
in í notkun. A hæðinni er aðsetur
Bandalags íslenskra skáta, Lands-
sambands hjálparsveita skáta,
Skátasambands Reykjavíkur og St.
Georgsgildi, auk þess sameiginleg
afgreiðsla, eldhús og lítill salur til
námskeiðahalds og smærri funda.
„Á Snorrabrautinni erum við í
alfaraleið, og hafa áhrif þess þeg-
ar komið í ljós,“ sagði Benjamín
Árnason hjá BÍS þegar hann sýndi
blm. Mbl. húsakynnin. „Hér hitt-
ast skátar kvölds og morgna, fá
sér kaffisopa, spjalla og taka til
hendinni við ýmis störf. Hingað
eru að sjálfsögðu allir velkomnir,
það er einmitt svona miðstöð sem
okkur hefur vantað, til að tengja
saman hina ýmsu þætti skáta-
starfsins.
Að sögn Stefáns Kjartanssonar,
formanns byggingarnefndar húss-
ins, var leitast við að nota sem
mest íslenska framleiðsu við bygg-
ingu hússins og eru til að mynda
öll húsgögn og innrettingar ís-
lensk.
Upphaf húsbyggingar skáta við
Snorrabraut var 2. nóvember 1962
þegar þáverandi borgarstjóri
Reykjavíkur, Geir Hallgrímsson,
færði skátahreyfingunni lóðina að
Margt manna var samankomið á
föstudag til að fagna opnun skáta-
miðstöðvarinnar. Skátahöfðingi,
Ágúst Þorsteinsson, þakkaði þeim
sem hönd hafa lagt á plóginn og á
þessari mynd sést hann næla næst
æðsta heiðursmerki skátahreyf-
ingarinnar, Skátakveðjunni, í barm
Stefáns Kjartanssonar, formanns
byggingarnefndar hússins.
Snorrabraut 60 að gjöf í tilefni
þess að þann dag voru 50 ár liðin
frá stofnum fyrsta skátafélagsins
i Reykjavík. Það var þó ekki fyrr
en á árinu 1979 að farið var að
vinna af krafti við undirbúning
byggingarinnar og var teiknistof-
an Teiknun sf. fengin til að teikna
húsið. Vorið 1980 var byggingar-
leyfi fengið og 24. júni sama ár
tóku nokkrir tugir ungra skáta
fyrstu skóflustungurnar að hús-
inu, hver með sinni skóflu. Neðsta
hæð hússins var síðan tekin í
notkun 1981. Þar er Skátabúðin er
til húsa og Hjálparsveit skáta í
Reykjavík hefur þar bílageymslu
og aðra aðstöðu. Nú hefur önnur
hæð hússins einnig verið opnuð og
stefnt að því að þriðja hæðin, sem
hýsa á skátastarf í þessum bæj-
arhluta, verði tekin í notkun að ári
liðnu.
Húsið er á þessum þremur hæð-
um alls 1.513 fermetrar. Heildar-
kostnaður við bygginguna er nú
um 10 milljónir króna og er reikn-
að með að kostnaður við loka-
áfangann sé um 4 milljónir króna.
ALLIR
ÞEKKJA
ÍSINN
ís eða púsluspi! í verðlaun
En veist þú hvar
þessi glæsilegi gosbrunnur er?
Ef svo er klipptu þessa auglýsingu út og skilaöu henni á stað-
inn, og þú færö ís (eða púsluspil) í verðlaun.
Gildir aðeins í dag 4. september 1983.