Morgunblaðið - 04.09.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
85
Sveinarnir ungu í Vonbrigdi varða á meðal atriöa.
Megas (t.h. ef einhverjum skyldi blandast hugur um það) kemur fram
í fyrsta sinn í óratíma.
Eftir þessa fyrstu plötu sína varö
langt hlé á og Megas sendi ekki frá
sér plötu fyrr en löngu síöar. Vin-
sældirnar höföu þá aukist nokkuö,
en plötur hans seldust aldrei í veru-
lega stórum upplögum. Megas átti
sér traustan aödáendahóp allt fram
til þess er hann hætti áriö 1977
(eöa var þaö 19787).
Þrátt fyrir ákafar hvatningar víöa
aö, lét Megas bíöa lengi eftlr sér.
Hann lét loks til leiðast og kom
fram á sólóplötu Bubba Morthens,
Fingraförum, og síöan aftur á plötu
Þorláks Kristinssonar, The Boys
From Chicago. Þá kom hann fram í
útvarpi i lokaþætti Áfanga, en hann
lætur nú loks sjá sig á sviöi eftir öll
þessi ár. Ekki nokkur vafi á, aö
hans er beöiö með mikilli eftirvænt-
ingu.
Þorlákur Kristinsson
og íkarus
Plata Þorláks Kristinssonar, The
Boys From Chicago, er vafalítiö í
hópi allra eftirtektarveröustu platna
þessa árs. Auk þess aö syngja sjálf-
ur eigin lög og texta nýtur Þorlákur
aðstoöar góöra manna á plötunni.
Megas hefur áöur veriö nefndur, en
sveitina fkarus skipa þelr Bragi
Ólafsson, Bergþór Morthens og
Kormákur Geirharösson. Saman
hefur lítt ef nokkuö heyrst frá þess-
um sveinum á tónleikum og ætti því
aö vera fróölegt aö leggja leiö sína
í Höllina þótt ekkl væri nema bara
til þess aö heyra í þeim einum.
Bubbi og Egó
Þaö liggur nú viö, aö ekki þurfi
aö kynna Bubba Morthens og Egó-
iö sérstaklega. Þó er e.t.v. ástæóa
til (5ess, þar sem tveir nýir meölimir
hafa bæst í Egóiö; hljómborösleik-
arinn Gunnar Rafnsson og trommu-
leikarinn Jökull, hvers fööurnafn ég
aldrei get munaö. Þannig skipuö
mun Egó gefa út plötu fyrir jólin ef
aö líkum lætur og þá meö verulega
breyttu efni. Þaö veröur ekki af
Bubba skafið hvaö sem hver segir,
aö hann lætur ekki fjötra sig í sömu
sporunum. Meö nýja menn og ný
lög ætti Egóinu ekki aö veröa
skotaskuld úr því aö ná upp stuöi,
sem einkennt hefur þessa sveit allt
frá því hún var sett á laggirnar.
Vonbrigöi
Þaó voru undirrituöum nokkur
vonbrigöi er fyrsta plata þessarar
sveitar leit dagsins Ijós í fyrra. Þeir,
sem gerst til þekkja, segja, aö nú sé
allt annaö aö heyra í sveinunum og
tónlistin hafi tekiö stórfelldum
breytingum. Þá sé hljóöfæraleikur-
inn allur annar og betri. Ný plata
átti að koma meö Vonbrigöi um
þessa dagana og kann aö vera
komin út þegar þetta kemur fyrir
augu lesenda Járnsíóunnar. Þaö
ætti því enginn aö vera svikinn aö
fara í Höllina til að hlýöa á Von-
brigöi.
Kukl
Einar Örn lætur ekki deigan síga
og hefur nú sett á stofn nýjan flokk
undir nafninu Kukl. Aö stofni til er
þessi flokkur svipaöur þeim er kom
fram í útvarpinu fyrir skemmstu og
þá undir nafninu Sérsveitin. Auk
Einars má nefna þarna ekki ómerk-
ari menn en Sigtrygg Baldursson
og Guölaug Óttarsson, áöur i Þey,
Birgi Mogensen, Björk Guömunds-
dóttur úr Tappa Tíkarrassi og Einari
Melax. Vonir standa til aó tveggja
laga plata meö Kukl komi út áöur
en tónleikarnir á laugardag hefjast.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu veröur ekki neitt smáræöi,
sem boöiö veröur upp á í Höllinni á
laugardag. „Viö krefjumst framtíö-
ar“ er hátíö í þágu friöar og þar
meö ættu menn aö hafa tvöfalda
ástæöu til þess aö láta þessa upp-
ákomu ekki framhjá sér fara; þarna
er fjöldi merkra tónlistaratriða, auk
þess sem lögö er áhersla á betri
heim og að fólki séu sköpuö skilyröi
til aö geta lifað óhult um ókomna
framtíö. Járnsíöan hvetur alla, sem
vettlingi geta valdiö, aö láta sjá sig
i Höllinni á laugardag.
- SSv.
Eric Clapton,
37 ára en lætur ekki
deigan síga.
— Á miöjum síöasta áratug
var þaö haft eftir þér, að þú vær-
ir ósáttur viö lífiö og tilveruna.
Hefur skoöun þín breyst?
„Ég held að hún hljóti að hafa
tekiö breytingum. Yfirlýsing á
borö viö þessa er dæmigerð fyrir
„ungan listamann“. Þvílík fyrir-
mynd! Nei, allir í rokkinu eru
meira og minna í þessa veru.
Þetta er bara sjálfsvörn. Þú
veröur aö vera viss um að geta
variö þig um leið og þú gengur
inn í herbergi, þar sem sitja tveir
eöa fleiri. Málið snýst eiginlega
um þaö, aö eiga sór eitthvert
ákveöiö mottó og halda síöan í
þaö dauöahaidi, hvaö sem taut-
ar og raular. Jafnvel þótt um sé
aö ræða viðtöl, sem e.t.v. kunna
aö hafa áhrif á þúsundir ung-
menna. Því yngri, sem maöur er,
þeim mun verr gerir maöur sór
grein fyrir áhrifum þess sem
maöur lætur frá sér fara. Þegar
ég gaf út þá yfirlýsingu, aö mér
væri illa viö tilveruna á sínum
tíma hefur mór sennilega staöið
algerlega á sama um hvort þetta
kynni aö hafa áhrif á einn eöa
annan."
— Roger Daltrey í Who sagði
í fyrrahaust, að hann vildi aö
Who færi í kveðjutónleikaferða-
lag og aö hljómsveitin hætti meö
sæmd. Hann líkti því ferðalagi
viö þaö, sem Cream fór 1968.
Hvers viröi var slíkt tónleika-
feröalag þér á sínum tíma?
„Ekki neins sérstaks. Viö vor-
um allir þeirrar skoöunar, aö
þetta kveöjutónleikaferöalag
okkar væri meira og minna
skylduverk. Ég held ekki aö
nokkur okkar þriggja hafi haft
einhverja sérstaka löngun til aö
fara í þetta feröalag. Hins vegar
var okkur sagt, aö aðdáendur
okkar ættu heimtingu á því aö
vera kvaddir meö bravúr svo viö
létum til leiöast."
— Þú hefur sagt um sjálfan
þig, aö þú sért aðeins ómennt-
aöur tónlistarmaður, sem vinnur
fyrir kaupinu sínu. Ertu í raun
þeirrar skoðunar?
„Já, þetta er bara staðreynd
— E r t u virkilega ekki
þeirrar skoöunar, aö þú sért ein-
hver besti gítarleikari heims?
„Ég er lítiö gefinn fyrir þetta
„bestur“-tal. Þaö fer allt eftir því
viö hvaö þú miöar hver er bestur
og hver er næstbestur. Þaö væri
sosum allt j lagi aö sætta sig viö
að vera kallaöur bestur ef maöur
ætti aldrei sína slæmu daga, en
ég þekki bara engan sem er
þannig úr garöi gerður. Þetta fer
svo mikiö eftir líkamlegu ástandi
manns hverju sinni."
— Hvað er þaö helst, sem
kitlar þig á þessum aldri, þ.e.
tónlistarlega séö?
„Þaö, aö geta farið upp á svið,
leikið í gegnum heilt laga-
prógram og vera fullkomlega
ánægöur meö öll sólóin mín og
öll „lickin". Aö vita aö þaö gæti
ekki hafa verið leikiö betur af
mér eöa nokkrum öörum er hinn
útilokaði draumur. Hið ómögu-
lega.“
— Ertu þeirrar skoöunar, aö
sjálfseyðingarhvötin só rík í
rokkurum nútímans?
„Já, alveg tvímælalaust. Lífs-
máti þessa fólks er þannig, aö
margir tapa algerlega áttunum.
Þaö er fyrst í þessum „bransa“
sem menn átta sig á því til fulln-
ustu hversu lágt er hægt aö
leggjast.”
Enn mannabreytingar í Sabbath:
Bev Bevan bak
við trommurnar
Mannabreytingum i Black
Sabbath er enn ekki lokid akyldi
einhver aðdáenda sveitarinnar
halda svo. Reyndar eru þaö alltaf
sömu tvö sætin, sem eru til um-
ræöu því þeir Tony lommi og
Geezer Butler hnika hvergi fra
gömlu góöu stefnunni.
Fyrr á þessu ári bættist lan sjálf-
ur Gillan í hópinn og nú fyrir nokkr-
um dögum var tilkynnt um aöra
breytingu. Bill Ward ræóur ekki
lengur neitt viö áfengisdrykkju sína
og varö að hætta í flokknum ööru
sinni.
Og hver kemur svo í hans staö?
Hætt er viö, aö mörgum af eldri
kynslóð Sabbath-aödáendanna
þyki lítiö til hans koma. Nafn hans
er Bev Bevan og þessi ágæti sveinn
baröi áöur húöir í ELO, Electric
Light Orchestra.
Þannig skipuö kom Black Sabb-
ath fram í fyrsta sinn á Reading-
rokkhátíöinni í gærkvöld. Nokkrir
íslendingar voru þar á meöal áhorf-
enda. Ber þar vafalítið fyrstan að
telja Sigurö nokkurn Jónsson, eitil-
hressan rokkara, sem lét 15 ára
draum rætast í gær; aö sjá Sabbath
á sviöi.
Þursar fá ný
upptökutæki
Grettisgat hefur nú oröiö sér
úti um ný og betri upptökutæki
en hljóöveriö haföi áöur yfir aö
ráöa. Þursarnir hafa nefnilega
selt gamla 8-rása tækið sitt og
höndlaö 24-rása apparat í þess
stað.
Gamla 8-rása tækiö hafnaöi í
höndunum á Jóni Gústafssyni,
sem er nýverið hættur í Sonus Fut-
urae. Hann hyggst sjálfur þreifa sig
áfram meö tækiö og mun reyndar
þegar vera farinn aö fitla viö upp-
tökur og hefur e.t.v. í hyggju að
leggja þetta eitthvaö fyrir sig. Þá
hyggst hann þreifa sig eitthvaö
áfram í tónlistinni, en hvaöa stefnu
hann tekur liggur ekki Ijóst fyrir á
þessu stigi málsins.