Morgunblaðið - 04.09.1983, Side 39

Morgunblaðið - 04.09.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 87 * ÁFÖRNUM VEGI Íl |jg^ „Ætli ég eigi ekki um 20 bíla af þessari árgerö“ — rætt við Henry Stefánsson sem endursmíðar Chervolet '57 í tómstundum „ÞETTA er mjög dýrt áhugamál," sagði Henry Stefánsson, sem endursmíöar Chervolet árgerð ’57 { fristundum. Henry hefur verið bú- settur í Bandaríkjunum síðastliðin 14 ár og m.a.rekið þar mótel ásamt konu sinni, Ágústu Garðarsdóttur. Nú vinnur hann við glervinnu í Flórída og í fristundum dyttar hann að bflunum sem hann hefur safnað að sér. „Ætli ég eigi ekki um 30 bfla í allt og þar af um 20 af þessari árgerð,“ sagði Henry. „Ég kaupi notaða gamla bfla í allavega ástandi, suma nota ég bara í vara- hluti, en aðra ætla ég að geyma þar til ég sest í helgan stein, þá verður ágætt að hafa eitthvað að dunda við. Ég hef verið með bíladelluna lengi og gerði upp einn Chervolet '57, hann seldi ég þegar ég fór út og frétti síðast af honum í Skagafirði. Þetta „hobby" er mikið stundað út í Bandaríkjun- um og Chervolet hvað vinsælasti bílinn til að gera upp. Það er töluvert til af þeim en þeir eru orðnir dýrir vegna vinsældanna. Ég geri þessa bíla upp frá grunni og getur það tekið um tvö ár. Ég hef lært þetta af sjálfum mér, það er eins og þetta sé í blóðinu þegar maður er með bíladellu. Það er líka ýmislegt í kringum þetta, til dæmis þarf maður stundum að leggja á sig ferðalag til nágrannafylkjanna til að kaupa bíla sem maðu hefur frétt af. Við Ágústa eigum jörð ná- lægt heimili okkar og þar geym- um við bílanna, þá bestu inn í bílskúr og hlöðu, en hina í girð- Agústa og Henry: Við ætlum að koma oftar. Ég hef endurnýjað allan öryggis- Gamla vélin sem ný. búnað í bflnum. Ljósmyndir Mbl. Guðjón. ingu. Stundum sel ég bílana sem ég hef gert upp, ef ég fæ nógu gott tilboð í þá, en annars er þetta bara áhugamál hjá mér. Síðasta ár vann ég eingöngu i þessum bíl, þar sem ég ætlaði að taka hann með mér í fríið til fslands. Við höfum farið þó nokkuð á honum, ég skrapp til dæmis til Stokkseyrar um dag- inn og leitaði uppi gamla kunn- ingja, en ég bjó þar til ellefu ára aldurs. Það þekktu mig allir þar, þannig að ekki hef ég breyst mikið, síðan ég var ellefu. En við höfum ekki lagt í að fara á bíln- um mikið út fyrir malbikið. Við höfum tekið okkur langt frí hér enda ekki komið hingað heim í átta ár, en nú erum við ákveðin í að koma oftar, og láta ekki líða svona langt á milli. Sigruð minnimáttarkennd ÞESSA mynd af Gunnari Bjarnasyni fundum við í mynda- safni þáttarins. Hann er hér að taka við heiðurstrabantskjali úr höndum manns frá Trabant- verksmiðjunum í Austur-Þýska- landi og slógum við á þráðinn til Gunnars og spurðum hann um ástæðu afhendingarinnar og myndatökunnar. „Já, það var nú þannig að við Trabant-eigendur stofnuðum klúbb á dögunum og nefndum hann „Klúbburinn skynsemin ræður". Það kom þannig til að í fyrrahaust þurfti ég að kaupa mér bíl sem ég gæti snattast á í hesthúsið og svona og fór að lit- ast um. Eftir að hafa kannað stóra bíla og smáa, sá ég að Trabant var það ódýr að ég gat fengið nokkra fyrir sama verð og einn bíl af annarri tegund. Ég talaði því við nokkra Trabant- eigendur og þeir létu alveg ágæt- lega af bílnum og líktu honum við yfirbyggt mótorhjól. Ég var í æsku einn af mótorhjólagæjum landsins, en ég var ekki viss um hvort ég I minni stöðu gæti látið sjá mig á Trabant. Ég hugsaði um þetta og fann að annarsvegar var snobbið i mér og hinsvegar skynsemin. Og ég lét skynsemina ráða og keypti Trabant. Eftir það fór ég að veita athygli hvernig bílum fólk var á og sá að bæði lágtekjufólk og ungt fólk var á gömlum dýrum bílum og fannst leiðinlegt til þess að hugsa að þetta fólk hefði kannski rétt svo haft efni á að kaupa þessa bíla og svo þegar eitthvað færi að bila hefði það ekki ráð á rándýrum varahlut- unum. Ég ákvað þvi að stofna félag með Trabant-eigendum, og nefndum við hann þessu nafni „Klúbburinn skynsemin ræður" og límdum miða með þessum texta á afturrúðu bílanna. Fólk glottir oft til manns f umferð- inni af því maður er á Trabant, en þegar það rekur augun í mið- ann finnur það eflaust fyrir því að þetta er bara snobb. Eins og ég sagði við konu sem spurði mig um hvort þessi klúbbur væri ekki bara stofnaður af minni- máttarkennd Trabant-eigenda: Nei, hann ber vott um sigraða minnimáttarkennd. S n Gunnar Bjarnason, til vinstri, teknr við heiðurstrabantskjalinu úr höndum Johann Knöchel fri Trabant-verksmiðjunum. Þessa miða hafa klúbbfélagar límt í afturrúðu bfla sinna. ■JJHI DJyi lll I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.